Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982 7 60 ára afmælishátíð veröur haldin föstudaginn 26. marz 1982 aö Hótel Sögu, Súlnasal. Dagskrá: Hornaflokkur Kópavogs. Stjórnandi: Björn Guö- jónsson. Hátíöin sett. Guömundur Ólafsson, formaöur. Hátíöarræöa: Hjalti Pálsson. Einsöngur: Siguröur Ólafsson. Undirleikari: Garl Bill- ich. Kór íslensku óperunnar. Stjórnandi: Garðar Gortes. Dans: Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Húsið opnað kl. 19.00. Boröhald hefst kl. 19.45. Miðasala hefst í dag, föstudag, kl. 13 í Félagsheim- ili Fáks. Borðapantanir á Hótel Sögu 24. og 25. marz kl. 17—19. Miöar eru afhentir þar á sama tíma. Hestamannafélagiö Fákur Páskaferð Kaupmannahafnar Dvaliö veröur á Hótel Marienlyst í Helsingör, sem er eitt af bestu hótelum Danmerkur. Á hótelinu er casino, sundlaug og gufubaö og góöur veitingastaöur. Skammt frá hótelinu 18 holu golfvöllur. Verð frá kr. 5.130.- Innifalið er: Flugfargjald, flugvallarskattur, flutningur frá/til flugvallar, .gisting i tveggja manna herbergi með síma og lita- sjónvarpi, morgunverður og 3 réttaður kvöldveröur. Ferðaskrffstofan UTSÝN Austurstrætí 17, sími 26611. Kaupvangsstræti 4, sími 22911. Er þetta ekki páskaferðin sem þér biöuö eftir? 2 hljómsveitir leika fyrir dansi á hverju kvöldi. Fararstjóri Útsýnar tekur á móti hópnum. Skipulagið og Gnoðarvogur Þessi mynd er tekin yfir Miklubraut og Suöurlandsbraut aö Gnoöarvogi. Á fimmtudaginn felldu vinstri menn í borgarstjórn tillögu sjálfstæöismanna um aö fresta fram yfir borgarstjórnarkosningar áformum um aö græna svæöiö fyrir framan Gnoðarvogshúsin veröi lagt undir nýtt hverfi og sniöiö af því í áttina aö Miklubraut. Ibúar í Gnoðarvogi hafa mótmælt þessum áformum og á sínum tíma skrifuöu um 9.000 Reykvíkingar undir áskorun á vinstri meirihlutann um aö falla frá því aö leggja þetta svæöi undir byggö og heimila íbúöarhús í Laugardalnum. I borgarstjórn lýstu fulltrúar vinstri manna því yfir, aö þetta væri „lítiö mál“ og þeir heföu þar aö auki meira vit á því en reykvískur almenningur. Vér einir vitum! Athyglisverðar umræður fóru fram í borgarstjórn Reykjavíkur á fimmtudag- inn, þegar rædd var sú tiF laga sjálfstæðismanna, aö frestað yrði fram yfir borg- arstjórnarkosningarnar í vor að taka ákvörðun um þóttingu byggðar við Gnoð- arvog. f umræðum þessum kom skýrt fram, hve lítið vinstri meirihlutanum i Reykjavík er um það gefið, að borgarbúar sjálfir láti mál til sín taka. Umræð- urnar staðfestu, að það er ekki fyrir tilviljun, að i tíð vinstri manna hefur verið hætt við hverfafundina, sem hófust i borgarstjóra- tið Geirs Hallgrimssonar, heldur er það markviss stefna vinstri meirihlutans að stjórna samkvæmt kjör- orði hinnar nýju stéttar Al- þýðubandalagsins: Vér ein- ir vitum. Sjálfstæðismenn minntu á það, að á sínum tíma hefðu 9.000 manns mót- mælt því með undirskrift sinni, að byggt yrði í Laug- ardal og fyrir framan húsin í Gnoðarvogi. Þessi mót- mæli hefur vinstri meiri- hlutinn viljað hundsa. Hann vill ekki heldur gera neitt með það, þótt íbúar við Gnoðarvog telji að sér vegið með þeim áformum, sem nú eru á næsta leiti, eftir að vinstri menn felldu frestunartillögu sjálfstæð- ismanna. Boðskapur vinstri mann- anna til borgarbúa var í stuttu máli þessi: — Þið getið farið í skaðabótamál, en munuð tapa því, var inn- takið hjá Sigurjóni Péturs- syni í Alþýðubandalaginu og fiokksbróðir hans, Sig- urður Tómasson, taldi þetta svo „lítið mál“, að óþarft væri að hafa áhyggj- ur af því. Framsóknarmað- urinn Kristján Benedikts- son gaf til kynna, að þeir í meirihlutanum væru betur dómbærir um það, hvað Gnoðarvogsbúum væri fyrir bestu en íbúarnir sjálfir og tillögurnar, sem Gnoðarvogsbúar mót- mæltu væru „bara skrambi góðar skipulagstillögur“, eins og Kristján orðaði það. Andmæli sjálfstæð- ismanna Þau Birgir ísl. Gunnars- son, Elín Pálmadóttir, Magnús L. Sveinsson, Markús Örn Antonsson Ólafur B. Thors og Páll Gíslason fiuttu mál sjálf- stæðismanna í borgar- stjórninni. Öllum varð þeim tíðrætt um þá lítils- virðingu sem vinstri mönnum væri tamt að sýna borgarbúum við stjórn Reykjavíkur. Það væri óeðlilegt, að jafn viðkvæmt deilumál og þetta væri „keyrt í gegnum" borgar- stjórn, þegar aöeins þrír fundir hennar væru eftir fram að kosningum. Hins vegar væru vinstri menn með þessu að reyna að klóra í bakkann fyrir að- gerðarleysi sitt í skipu- lagsmálum og þar af leiö- andi skort á byggingarlóö- um. Fyrir kosningar ætti að úthluta lóðum á hinu um- deilda svæði. Það kom fram i máli sjálfstæðismanna, að þá sýndust vinstri menn njóta sín best og framsóknar- menn og kratar vera hlýön- astir Alþýðubandalaginu, þegar valdinu væri beitt með mestu offorsi. í þessu máli væri vilji borgarbúa að engu haföur heldur hann brotinn á bak aftur með valdi. Hvers vegna var Alþýðubandalagið að flytja stjórnkerfistillögur um hverfanefndir og samráð við borgarbúa í borgar- stjóm? spurðu sjálfstæð- ismenn. Af hverju sýnir það ekki samráðsvilja sinn við borgarbúa í verki í þessu máli? Við þessum spurningum fengust engin svör í borgarstjórn Reykja- víkur á fimmtudag. Við at- kvæðagreiðshina lutu framsóknarmenn og kratar skipunarvaldi kommúnista, enda hafði Sigurður Tóm- asson haft í hótunum við þá úr ræðustóli, en á fundi á vegum flokks síns, Al- þýðubandalagsins, fyrir skömmu líkti Sigurður framsóknarmönnum og krötum í borgarstjórninni við „fiökkuhunda", sem fengið hefðu skjól hjá kommum. Steingrímur og Páll Vegna fullyrðinga um það, að hér í blaðinu hafi verið rangt eftir Steingrími Hermannssyni, formanni Framsóknarflokksins, haft um vitneskju hans og und- irritun samkomulags vegna Blönduvirkjunar, er rétt aö minna menn á það, sem gerðist á þingflokksfundi framsóknarmanna þann sögulega dag, mánudaginn 15. mars. Undirritun Blöndusamninga fór fram klukkan 18 þann dag. Þennan sama dag hófst þingflokksfundur fram- sóknar klukkan 16. Morg- unblaðið hefur spurt Pál Pétursson, formann þing- flokks framsóknarmanna, að því, hvort Steingrímur hafi skýrt frá undirritun Blöndusamninga á þing- fiokksfundinum. Páll svar- aði: „Nei hann gerði það ekki upphátt fyrir undirrit- unina." Komin út á íslensku í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Don Kíkóti er eins og kunnugt er einn af dýrgripum heimsbókmenntanna — sagan um vindmylluriddarann sem geröi sér heim bókanna aö veruleika og lagöi út í sína riddaraleiðangra á hinu ágæta reiðhrossi Rosinant ásamt hestasveininum Sansjó Pansa til þess aö frelsa smælingja úr nauöum, — leita sinnar ástmeyjar og eyjarinnar fyrirheitnu. Leiðangrar þeirra tvímenninga viðsvegar um Spán hafa síðan haldiö áfram að vera frægustu feröir heimsins og ennþá er sagan um þá Don Kíkóta og Sansjó Pansa aðalrit spænskra bókmennta. Er því vonum seinna aö fá þetta sígilda rit út á íslensku. Don Kíkóti er upphafsrit í nýjum bókaflokki sem Almenna bókafélagiö er aö hefja útgáfu á. Nefnist hann Úrvalsrit heimsbókmenntanna og má ráöa af nafninu hvers konar bækur forlagið hyggst gefa út í þessum flokki. Almenna Bókafélagið, Austurstræti 18, sími 25544. Skemmuvegi 36, Kópavogi, sími 73055,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.