Morgunblaðið - 20.03.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
19
„Snæbjörg“ hf.
hefur opnað
á nýjum stað
VERSLUNIN Snæbjörg hf. í Reykjavík var flutt í gær um
set og opnuð í morgun á nýjum stað á Bræðraborgarstíg 1.
Var hún áður í um 70 fermetra húsnæði að Bræðraborg-
arstíg 5, en á hinum nýja staö eru fermetrarnir um 240.
Eigendur Snæbjargar hf.: Kaj Jörgensen, Snæbjörg Snæbjarnardóttir og
dóttir þeirra, Guórún Birna Jörgensen.
— Við höndlum með alla
almenna matvöru og bjóðum
t.d. kjöt frosið sem ófrosið,
sagði Kaj Jörgensen verslun-
armaður. — Hér tökum við
upp þá nýjung að bjóða
viðskiptavinum upp á heitar
samlokur eða hamborgara
eða aðra hraðrétti og höfum
þess vegna 2 örbylgjuofna
hér í búðinni.
Við rekum ekki stórmark-
að og keppum ekki við stór-
markaði heldur hyggjumst
við reka hér verslun sem
þjónar Vesturbæingum rétt
eins og við gerðum á hinu
horninu og ég tel alla þjón-
ustu geta verið persónulegri
og ánægjulegri hjá kaup-
manninum á horninu og það
er nóg af fólki hér í Vestur-
bænum, sagði Kaj ennfrem-
ur.
Kaj Jörgensen kvaðst hafa
lokað versluninni að Bræðra-
borgarstíg 5 kl 19 í gærkvöld
og opnaði hann síðan á nýja
staðnum kl. 9 í morgun, en
þar var áður Gellir hf. Auk
verslunarinnar er aðstaða
fyrir starfsfólk auk lager-
rýmis og Kaj sagði einnig
ráðgert að hafa í húsinu
söngstofu þar sem kona
hans, Snæbjörg Snæbjarn-
ardóttir, myndi taka að sér
kennslu, en hún er jafnframt
stjórnandi Skagfirsku
söngsveitarinnar. En af
hverju nafnið Snæbjörg hf?
— Ég var orðinn leiður á
öllum þessum kjörum og ver-
um og mörkuðum og fannst
því tilvalið að nefna búðina
eftir konunni minni, sagði
Kaj Jörgensen, en alls hafa
þau verslað með matvöru í 8
ár og áður ráku þau bóka-
verslun.
Hver sporörennir
þrem góðborgurum,
einum skammti af
frönskum og glasi af
Coca—Cola?
Það er ekkert undarlegt þótt margir
fullorðnir ágirnist hina stórgóðu
Sanyo hifi 20 samstæðu: Dolby
kassettutæki, LW, AM, og FM stereo
útvarp, 2x24 watta magnara, TP-X1S plötu-
spilara, tveir Sanyo hátalarar 40 sínus vött
og glæsilegur hljómtækjaskápur með
rúmgóðu plássi fyrir plötur
En það er vegna verðsins, sem við köllum
hana frábæra fermingargjöf.
Verö kr. 12.200,-
Gunnar Ásgeirsson hf.
Soöurlandsbraut 16 Sími 9135200
FERMINGARGJÖF
SEM
FULLQRÐNIR
VILJA LIKA'
1.
verðlaun kr.
VerMaun Verðmæti
1. Suzuki, 4ra dyra 79.000
2. Nec-samatæða. (Fyrir
besta tímann til
og með 12.3.) 8.950
3. 35 manna kalt borð
frá Gosbr.,
Laugavegi 116. 4.130
4. 50 stk. góðborgarar
ásamt meðlæti 2.600
5.25 stk. Western-kjúkl-
ingar ásamt
meðlæti 1.425
6. 20 stk. Roast Beef-
borgarar ásamt
meðlæti 1.140
7. 10 stk. kvöldverðir í
Gosbrunninum 940
8. 15 stk. Fiskborgarar
ásamt meðlæti 675
9. 12 stk. góðborgarar
m/osti og skinku
ásamt meðlæti 864
10. 6 stk. kvöldverðir í
Gosbrunninum 564
11. Æfingaskrírteini, gildis
tími 3 mán. í
Apolló sf., líkamsrækt,
Brautarholti 4 1.200
12. Æfingaskírteini, gildis-
tími 2 mán. í
Apolló sf., líkamsrækt,
Brautarholti 4 800
Verðmæti vinninga kr. 120.108,-
Skyndibitastaður
Hagamel 67,
sími 26070