Morgunblaðið - 20.03.1982, Page 37

Morgunblaðið - 20.03.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982 37 Stjörnuspekin og nýju merkin Til Velvakanda. Vegna greinar þeirrar, er birtist í Morgunblaðinu hinn 5. mars, langar mig að segja nokkur orð. Eg er mikill áhugamaður um stjörnumerki og hugsanleg áhrif plánetanna og annarra þátta á mótun skapgerðar einstaklinga, jafnvel örlög. Ég hef stúderað þetta hátt og lágt, rýnt í frægt fólk, lifandi og liðið, og athugað fólk í umhverfi mínu. Hef ég kom- ist að raun um, að fólk getur verið merkilega líkt, og ég get á stund- um sagt um í hvaða merki viðkom- andi er fæddur, aðeins af útliti hans og útgeislan. En þetta á við um hin nýju stjörnumerki. Eitt er það, að fólk er ótrúlega lengi að taka við sér, jafnvel þó að það sjái og heyri sannleikann. Stjörnumerkin hafa breyst sökum ýmissa eðlisfræðilegra þátta í geimnum, og afstaða jarðar gagn- vart þeim hefur breyst, eins og Þorsteinn Sæmundsson stjarn- fræðingur benti á. Langar mig því til að sýna, hvernig afstaðan hefur breyst. Það er talað um að sólin gangi inn í tiltekið stjörnumerki á til- teknum tíma, og út úr því aftur á öðrum tilteknum tíma. Sagt er að sólin gangi inn í Hrútsmerkið 20. mars og út úr því aftur 19. apríl. Þetta er alrangt. Sólin gengur inn í Hrútsmerkið 19. apríl og út úr því aftur hinn 13. maí samkvæmt nýjustu útreikningum háskóla- og vísindastofnana, enda eru stjörnu- spekingar farnir að miða útreikn- inga sína við hin nýju stjörnu- merki. Hér á eftir fylgir skrá yfir nýju merkin. Hrútur 19. apríl — 13 maí. Naut 14. maí — 20. júní. Tvíburar 21. júní — 20. júlí. Krabbi 21. júlí — 10. ágúst. Ljón 11. ágúst — 15. sept. Meyja 16. sept. — 29. okt. Vog 30. okt. — 20. nóv. Sporðdreki, 21. nóv. — 29. nóv. Naðurvaldi 30. nóv. — 17. des. Bogamaður 18. des. — 19. jan. Steingeit 20. jan. — 16 febr. Vatnsberi 17. febr. — 11. mars. Fiskar 12. mars — 18. apríl. Eins og fólk sér, þá hefur eitt merki bæst í hóp stjörnumerkj- anna sem mynda dýrahringinn. Merkin hafa færst til, svo og elem- entin: vatn, jörð, eldur og loft. Við könnun hefur komið fram, að til dæmis í Ljónsmerkinu eru tiltölu- lega fáir leiðtogar miðað við önnur merki, svo sem Naut, Meyju og Steingeit. I Hrútsmerki komu fram margir listamenn og svo framvegis. Niðurstðan var sú, að fólk fætt á tilteknum tíma sam- svaraði betur hinum nýju merkj- um heldur en hinum gömlu. Þannig hefur, eftir að farið var að nota nýju merkin, fengist ná- kvæmari útreikningur og styrkari stoðum rennt undir þessa skemmtilegu grein. En fólk verður að vara sig á því að dæma fólk og flokka, þegar það veit um fæð- ingardag þess. Það eru ekki bara merkin sem ráða, heldur einnig pláneturnar og risandi merki. Þorgeir Árnason Foröast gjald- þrot — ekki forða því Kæri Velvakandi! í Morgunblaðinu þann 12. þ.m. stendur þessi feitletraða fyrirsögn á bls. 18: „Flugleyfi notað til að forða gjaldþroti". Mitt álit er að blaðamenn ættu að leiðrétta mál- villur af þessu tagi, hvaðan sem þær koma. Hér hefði átt að standa: Flugleyfi notað til að forð- ast gjaldþrot" — eða þá að koma í veg fyrir það. Með þökk fyrir birtinguna. A.M. / Vvli'ukanda f i/rir ,W áriun Góds viti * IDAG er 20. marz. Þá er jafn- dægri á vor, nótt og dagur jafn- löng. Eftir tíðinni, eins og hún hef- ir yfirleitt verið í marz, gæti verið áliðnara vetrar. Einhver vorhugur hefir líklega fylgt auglýsingunni, þar sem til- greind voru á annað hundrað sumarblómafræ, sem á boðstólum væru. Verður hún að teljast góðs viti, þó að varla springi út fíflar undir bæjarveggnum að sinni. Vinsælasta félag á íslandi UNDANFARNA daga hefir 6. landsþing Slysavarnafélagins setið á rökstólum í Reykjavík. Líklega nýtur Slysavarnafélagið meiri vinsælda en nokkur annar fé- lagsskapur á landi hér, og það er engin furða. Mannslífin eru þó, hvað sem tautar og raular, dýrm- ætust, svo að allir, sem reyna að varðveita þau, gegna veglegu hlut- verki. Félagið er nú á 25. árinu, og hefir veitt þúsundum manna í sjávar- háska meiri og minni aðstoð. bi*SS um á öld ÞAÐ er ekki ófróðlegt að vita að danska slysavarnafélagið átti aldarafmæli fyrir skömmu. Á und- anförnum hundrað árum hafa sjó- mennirnir, sem skipa sveitir þess, bjargað hvórki meira né minna en 12.000 manns úr sjávarháska. Þar á móti hafa 54 björgunar- menn iátið lífið við björgun, og er það furðulág tala, þegar þess er gætt, að björgunarbátunum er helzt ekki ýtt úr vör nema þegar veður er svo vont, að stór skip verða að leita lands. Fyrr á öldum GAMLAR sagnir herma, að fólkið á vesturströnd Dan- merkur, hafi síður en svo allt af lagt eins mikið í sölurnar fyrir er- lenda sæfarendur. Sagt er, að fyrir mörgum öldum hafi þeir verið tældir upp í sandana með því að sveifla til ljóskerum, svo að eins liti út og skip lægi fyrir akkerum í vari. Slysið var óumflýjanlegt, ef sæ- farendurnir létu blekkjast. Ósvik- inn desembergarri færði mörgu fá- tæku heimili gleðileg jól í þá daga. Öfugmæiið um heiminn EN hvað sem sannleiksgildi þess- ara sagna líður, þá er hitt þó víst, að í fátækum þorpum fluttu prestarnir bæn af stólnum, sem kemur nútímamönnum spanskt fyrir sjónir. Þeir báðu ekki beinlín- is um skipreika, en hétu á forsjón- ina, að skipstrand yrði „á þessum slóðum“, ef til þess kæmi á annað borð. Heimur versnandi fer segjum við stundum. Sem betur fer er það bölvuð vitleysa. Megrunarnámskeið Vegna mikillar eftirspurnar hefst nýtt 12 vikna megr- unarnámskeiö 24. marz (bandarískt megrunarnám- skeiö sem hefur notiö mikilla vinsælda og gefiö mjög góöan árangur). Síöasta námskeið vetrarins. Upplýsingar og innritun í síma 84204. Kristrún Jóhannsdóttir, manneldisfræðingur. Húsafriöunarnefnd auglýsir hér meö eftir umsóknum til húsafriöunar- sjóðs, sem stofnaöur var meö lögum nr. 42/1975, til að styrkja viðhald og endurbæta húsa, húshluta og annarra mannvirkja, sem hafa menningarsögulegt eöa listrænt gildi. Umsóknir skulu greinilega bera meö sér til hvers og hvernig umsækjandi hyggst verja styrk úr sjóönum. Skulu umsóknum fylgja eftir- talin gögn og upplýsingar: a. Uppmælingar, dagsettar og undirskrifaöar. b. Ljósmyndir. c. Upplýsingar um nánasta umhverfi. d. Sögulegar upplýsingar sem unnt er aö afla, s.s. aldur mannvirkja, nöfn arkitekts, smiös og eig- enda fyrr og nú. e. Greinargerö um framtíöarnotkun. f. Greinargerð um fyrri breytingar ef gerðar hafa veriö. g. Teikningar af breytingum ef ráðgeröar eru. h. Kostnaöaráætlun um fyrirhugaöar framkvæmdir ásamt greinargerö um verktilhögun. Umsóknir skulu sendar Húsafriöurnefnd, Þjóöminja- safni íslands, Reykjavík, fyrir 1. september nk. Húsafriðunarnefnd. Samvinnuskólinn BIFRÖST SKÓLI FYRIR ÞIG? UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 10. JÚNÍ Umsóknareyðublöð fást i kaupfélögum, Fræðslu- deild Sambandsins, fræðsluskrifstofum og ýmsum skólum. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.