Morgunblaðið - 20.03.1982, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1982
Stjarnan færist nær 1. deildinni
Möi>ulcikar Stjörnunnar á að
hljóta sæti í I. deild í handknattleik
jukust verulega þejjar félagið sigraói
Aftureldingu á heimavelli sínum,
Ásgarói, meö 24 mörkum gegn 16 í
ga-rkvöldi. I'arf Ntjarnan aóeins aó
hljóta eitt stig út úr tveimur síðustu
leikjum sínum til aó tryggja sér sæti
í l.deild.
Stjarnan hóf leikinn af miklum
krafti, og fyrr en varði var staðan
3—0 fyrir Stjörnuna. Á sama tíma
varði Birkir Sveinsson skot úr
dauðafæri og vítaskot. Var hann
bezti maður vallarins að þessu
sinni. Afturelding skoraði ekki
Kiinnccke, þjálfari Waterschei.
fyrr en eftir um sex mínútur, en
eftir níu mínútur hafði UMFA
jafnað leikinn, 4—4. Aftur var
jafnt 5—5 og 7—7, en þá komst
Afturelding yfir, 8—7. Stjarnan
jafnaði, en UMFA komst í 9—8,
þegar sjö mínútur voru eftir, en
síðan skoraði Stjarnan þrjú síð-
ustu mörkin og staðan í hálfleik
því 11—9 fyrir Stjörnuna.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik, en í þeim seinni seig
Stjarnan fljótt fram úr, munaði
þar mest um hversu vel liðinu
tókst að trufla sóknarleik UMFA
með því að koma vel út í vörninni.
„LÁRUS Guómundsson veröur
snjall mióherji, sannió til. Hann býr
yfir miklum hraða, hefur næmt auga
fyrir samlcik og leggur hart aó sér.
Tækni hans þarf slípunar við, en
framtíóin er hans,“ sagði Kiinnecke,
þjálfari Waterschei, liösins sem
mióherji íslandsmeistara Víkings
gekk til liös vió í samtali við belgískt
blað fyrir skömmu.
Lárus hefur hlotið góða dóma
fyrir leiki sína með Waterschei.
Hann gerði lánssamning við Wat-
erschei fram til vorsins. Að und-
anförnu hafa staðið yfir viðræður
milli Lárusar og Waterschei um
nýjan samning. „Það er aðeins
formsatriði að skrifa undir. Samn-
ingsuppkast liggur fyrir og nú er
ekkert því til íyrirstöðu að skrifa
undir og þá til tveggja ára,“ sagði
Lárus Guðmundsson
Átti UMFA ekkert svar við þessu,
og síðar beitti UMFA sama
bragði, og varð þá aftur jafnt á
með liðunum, þótt of seint væri.
Lengst af átti Stjarnan í miklu
basli með UMFA, þegar á heildina
er litið, en þegar seinni hálfleikur
var hálfnaður breyttist staðan úr
16—12 í 21—13 á skömmum tíma
fyrir Stjörnuna.
MÖRK STJÖRNUNNAR:
Eyjólfur 5, Gunnlaugur 5, Magnús
4, Viðar 4 ( 3v.), Eggert 3, Gunnar
2 og Guðmundur 1.
MÖRK UMFA:
Björn 6 (4v.), Guðjón 4, Ingvar 2,
Lárus 2, Magnús 1, Sigurjón 1.
UMFN sigraði
KR í spenn-
andi leik
Þaó var mikið skoraó og mikil
spenna, er UMFN sigraöi KR
104—100 í úrvalsdeildinni i körfu-
knattleik í gærkvöldi, en liöin mætt-
ust suóur í Njarðvík. Staðan í hálf-
leik var tiltölulega jöfn, 55—51 fyrir
IIMFN, og því hafa liðin slakaó lítiö
á í stigaskorinu í síðari hálflciknum.
Iæikur þessi hafði raunar litia
þýðingu, því UMFN hafði fyrir
nokkru tryggt sér sigur í úrvals-
deildinni, en kannski einmitt þess
vegna var leikurinn jafn góður og
raun bar vitni. Var viðureignin
æsispennandi allt fram á síðustu
sekúndu. Danny Shouse var at-
kvæðamestur hjá UMFN að
vanda, skoraði 31 stig. Gunnar
Þorvarðarson skoraði 18 stig og
Valur Ingimundarson 15 stykki.
Hjá KR bar mest á Stewart John-
son, hann skoraði 40 stig, en Jón
Sigurðsson, sem átti mjög góðan
leik, skoraði 22 stig. Síðan kom
Páll Kolbeinsson með 12 stig.
„Lárus verður
snjall miðherji"
— sagði Kúnnecke, þjálfari Waterschei,
í samtali við belgískt blað
• Alfreó Gíslason fór á kostum í
gærkvöldi.
í því að mata hann, biðu eftir í
hraðaupphlaupum og hvaðeina. Þá
voru fyrri félagar hans hjá KA
mjög kurteisir að taka hann ekki
úr umferð þegar ljóst var í hvurs
lags stuði hann var. Alfreð bar af
hjá KR, en skammt á eftir kom þó
Gísli Felix Bjarnason í markinu.
Annars var liðið jafnt og ungur
piltur að nafni Guðmundur Al-
bertsson vakti athygli. Hjá KA
var Aðalsteinn þokkalegur í mark-
inu, en hlutskipti hans ekki öf-
undsvert. Friðjón slapp einnig vel
frá sínu, en KA-liðið hafði sýni-
lega þverrandi áhuga í leiknum
eftir því sem á hann leið.
Mörk KR: Alfreð Gíslason 21, 4
fllfreð skoraði 21
mark gegn KA!
— og setti nýtt markamet i 1. deild
ALFKEÐ Gislason var sannarlega
maður leiksins er KR gersigraói KA
í síöasta leik beggja liða í 1. deild-
inni aö sinni, lokatölurnar 33—20 og
geröi Alfreð sér lítið fyrir og skoraði
21 mark i leiknum. Markamet í I.
deild og Alfreð skoraði því 109 mörk
í 1. deildinni i vetur. Næsta öruggt
að hann verður markakóngur eftir
sýninguna í gær. Kristján Arason
hefur reyndar skorað 91 mark, en
má hafa sig allan við ef hann ætlar
að skora 18 mörk gegn Víkingi i dag.
Við getum verið stuttorðir um
gang leiksins, KR náði afgerandi
forystu eftir að hafa jafnað leik-
inn um miðjan fyrri hálfleik, byrj-
un KA hins vegar sterk og foryst-
an þeirra framan af. í síðari hálf-
leik var bara spurt: Hvað skorar
Alfreð mikið? Félagar hans gerðu
KR:KA
33—20
víti, Haukur Ottesen 4, Guðmund-
ur Albertsson 3, Gunnar Gíslason
og Jóhannes Stefánsson 2 hvor og
Ragnar Hermannsson eitt mark.
Mörk KA: Friðjón Jónsson 7,
Sigurður Sigurðsson og Erlingur
Kristjánsson 3 hvor, Þorleifur An-
aníasson, Guðmundur Guð-
mundsson og Kristinn Sigurðsson
2 hver, Jóhann Einarsson eitt
stykki.
Alfreð brenndi af einu víti og
Magnúsi Birgissyni úr KA 'T2S
að af leikvelli í 2 mínútur.
Markatala Anderlecht var 0—156!
Anderlecnt mætir Aston Villa
Það er ekki nóg að heita frægu nafni
til þ<s.s að ná langt. Það vita þeir
sem leika með belgíska áhuga-
Breiðablik
ADALFUNDUR Styrktarfélags IIBK
verður haldinn mánudaginn 22.
mars klukkan I7.30. Fundarstaður
er safnaöarheimili Kársnessóknar.
mannaliðinu Kacing Andcrlcrht.
Markatala liðsins var síðast er frétt-
ist 0—156. Nýlega tapaði liðið
0—36, en það var litilræöi miðað við
vikuna áður, en þá tapaði liðið
0—54. En vikuna þar áður voru mik-
il hátíöarhöld hjá leikmönnum And-
erlecht. Þá tapaöi liðið aðeins 0—2
og borgarstjóri Anderlerht bauð öll-
um í veislu í tilefni dagsins!
PÉTUR Pétursson og félagar hjá
Anderlecht maúa enska meistaralið-
inu Aston Villa í 4-liða úrslitum Evr-
ópukeppni mcistaraliöa, en dregið
var til umferðarinnar í Ziirich í gær.
Kaycrn Miinrhen dróst gegn búlg-
arska liðinu CSKA Sofia og því er
ekki loku fyrir það skotið að liðin
sem til úrslita leika verði bæði með
íslenska leikmenn innan sinna vé-
banda. Annars drógust eftirtalin lið
saman:
Evr.keppni meistaraliða:
CSKA Sofia — Bayern Múnchen
Aston Villa — Anderlecht
Keppni bikarhafa:
Din. Tblisi — Standard Liege
Tottenham — Barcelona
UEFA-keppnin:
Kaiserslautern — Gautaborg
Radnicki Nis — Hamburger SV
Fyrri leikir umferðarinnar fara
fram 7. apríl, en síðari leikirnir
hins vegar tveimur vikum síðar,
eða 21. apríl. FC Porto, mótherji
Standard Liege í siðustu umferð
mun hafa kært leikina á forsend-
um sem Mbl. eru ekki kunnar. Er
drátturinn því birtur með þeim
fyrirvara sem kæran býður upp á.
Reykjavíkurmótið í badminton:
Loks kom að því að
Guðmundur sigraði
KEVKJ.AVÍKUR.MÓTH) í badmin
ton var haldið í Valsheimilinu við
Hlíðarenda nýlega. Keppt var i öll-
um greinum í meislaraflokki og A-
flokki, en einliða- og tvíliðaleik
karla í öðlingaflokki. Keppni féll
niður í æðsta-flokki, sem eru kepp-
endur 50 ára og eldri. Er langt síðan
svo stórt og viðamikið mót hefur ver-
ið haldiö í V alsheimilinu. Þar eru
aðeins fjórir vellir til að keppa á og
það var því ekki fyrr en um kl. 23.00
á laugardagskvöld sem síðustu und-
anúrslitaleikirnir voru leiknir. Þá
var búið að lcika marga spcnnandi
leiki. Sá leikur sem kom hvað mest
á óvart var milli Brodda Krist-
jánssonar TBR, núverandi íslands-
meistara og margfalds sigurvegara á
mótum í vetur, og Keynis Guð-
mundssonar KR. Broddi vann Keyni
mjög naumt í upphækkaðri oddalotu
og má segja að þar hafi hin marg-
umtalaða meistaraheppni hjálpað
upp á sakirnar. Þá var einnig hörku-
leikur milli Guömundar Adolfssonar
TBR og Sigurðar Haraldssonar Val,
en Sigurður virðist nú vera líkiegur
til að blanda sér aftur í topp-
baráttuna, eftir nokkra hvíld í
badmintonlcik.
IJrslitaleikir voru síðan leiknir
á sunnudag. í meistaraflokki
karla, einliðaleik, Iéku til úrslita
Broddi Kristjánsson TBR og Guð-
mundur Aldolfssón TBR. Sigraði
Guðmundur í þeim leik, sennilega
langþráður sigur því þeir hafa
leikið til úrslita undanfarin mót
og hefur Broddi alltaf unnið mjög
naumt. Kristín Magnúsdóttir og
Elísabet Þórðardóttir léku til úr-
slita í meistaraflokki kvenna.
Vann Kristín örugglega. Hún varð
þrefaldur sigurvegari á þessu
móti, sigraði einnig í tvíliða- og
tvenndarleik. Þau eru orðin býsna
mörg mótin, þar sem hún hirðir
öll verðlaun án þess að hafa mikið
fyrir því.
I A-flokki börðust menn um
sæti í meistaraflokki, þar var Ari
Edwald í nokkrum sérflokki, enda
sigraði hann þrefalt á mótinu.
Önnur úrslit eru sem hér segir:
Meislaraflokki:
Kinliðaleik karla:
Guðmundur Adolfsson TBR sigr-
aöi Brodda Kristjánsson TBR.
Tvíliðalcik karla:
Guðmundur Adolfsson TBR og
Broddi Kristjánsson TBR sigruðu
Sigfús Æ. Árnason TBR og Har-
ald Kornelíusson TBR.
Einliðaleik kvenna:
Kristín Magnúsdóttir TBR sigraði
Brodda
Elísabetu Þórðardóttur TBR.
Tvíliðaleik kvcnna:
Kristín Magnúsdóttir TBR og
Kristín B. Kristjánsdóttir TBR
sigruðu Hönnu L. Pálsdóttur TBR
og Lovísu Sigurðardóttur TBR.
Tvenndarleik:
Broddi Kristjánsson TBR og
Kristín Magnúsdóttir TBR sigr-
uðu Harald Kornelíusson TBR og
Lovísu Sigurðardóttur TBR.
A-flokki:
Einliðaleik karla:
Ari Edwald TBR sigraði Óskar
Óskarsson TBR.
Tvíliðaleik karla:
Ari Edwald TBR og Snorri Ingv-
arsson TBR sigruðu Jón Sigur-
jónsson TBR og Óskar Óskarsson
TBR.
Einliðaleik kvcnna:
Guðrún Júlíusdóttir TBR sigraði
Berglindi Jónasdóttur.
Tvíliðaleik kvenna:
Guðrún Júlíusdóttir TBR og Guð-
rún Gunnarsdóttir TBR sigruðu
Kristínu Magnúsdóttur TBR og
ELínu H. Bjarnadóttur TBR.
Tvenndarleik:
Ari Edwald TBR og Elín H.
Bjarnadóttir TBR sigruðu Snorra
Ingvarsson TBR og Guðrúnu Júlí-
usdóttur TBR.
Stórleikur í blakinu
í DAG kl. 14.00 leika í íþróttahúsi
Hagaskólans lið Þróttar og ÍS í und-
anúrslitum bikarkeppninnar. Leikir
þessara liða í vetur hafa allir vcrið
mjög spennandi og skemmtilegir og
má búast við að svo verði einnig í
dag. Þróttur hefur unnið allar viður-
eignir liðanna í vetur þó oft hafi
munað litlu og er skemmst að minn-
ast síðasta leiks en þá þurfti að leika
í 2 klst. og 17 mín. áður en úrslit
fengust. Það lið sem sigrar í dag
leikur úrslitaleikinn í bikarkeppn-
inni við sigurvegarann úr leik
Bjarma og Samhygð/ÍBV.
Strax að leik Þróttar og fs lokn-
um leika sömu lið í fyrstu deild
kvenna og verður þar örugglega
hörkuleikur eins og svo oft i kvenna-
blakinu í vetur. SUS
Leika með sorgarborða
VÍKINGAR munu leika með sorg-
arbönd er liðið mætir FH í úrslita-
lcik 1. deildarinnar i handknattleik í
Hafnarfirði í dag. Eru borðarnir til
minningar um Jón Gunnlaug Sig-
urðsson, sem lést í bílslysi í vikunni.
Jón lék um árabil með meistara-
flokki Víkings, en hætti árið 1978, er
hann gerðist sveitarstjóri á Fá-
skrúðsfiröi.
Unglingaþjálfarar
fá styrki frá ISI
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hcfur
ákveðið að tillögu unglinganefndar
ÍSÍ að veita þremur þjálfurum eða
lciðbeinendum á sviði unglingaþjálf-
unar styrki til að sækja námskeið
erlendis á þessu ári, að upphæð
krónur 5000 hvern.
Væntanlegir umsækjendur um
þessa styrki skulu vera starfandi
fyrir íþrótta- og ungmcnnafélög, hér-
aðssambönd eða sérsambönd innan
ÍSÍ. Sérstök umsóknareyöublöð
liggja frammi á skrifstofu ÍSÍ og er
umsóknarfrestur til 21. apríl á þessu
ári.