Morgunblaðið - 28.03.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
57
hafið og full virðing borin fyrir
erlendri fjárfestingu, en nýjar
reglur dregnar upp.
— Mótun óháðrar og sjálfstæðrar
utanríkisstefnu með áherslu á
gott samband við Bandaríkin.
Samtök byltingarmanna voru
stofnuð í apríl 1980. Þau eru fjöl-
mennasta stjórnmálahreyfingin í
sögu E1 Salvador. Kommúnistar,
sósíaldemókratar og óánægðir
kristilegir demókratar starfa þar
saman. 80% af verkalýðsfélögum
eru aðilar að samtökunum, þjónar
kirkjunnar starfa innan þeirra,
svo og bændur, stúdentar, emb-
ættismenn og verslunarfólk. Ungo
er talsmaður stjórnmálaarms
samtakanna, en fimm leiðtogar
flokka kommúnista, sem eru mis-
jafnlega blóðþyrstir, tala máli
byltingarinnar.
Byltingarmönnum óx fiskur um
hrygg á áttunda áratugnum eftir
að kosningabandalag Kristilegra
demókrata og sósialdemókrata
hlaut mikið fylgi í kosningunum
1972 og ógnaði verulega herfor-
ingjastjórninni, sem var við völd.
Talið er, að kosningabandalagið
hafi unnið meirihluta atkvæða í
kosningunum, en herforingja-
stjórnin hafi haft rangt við, falsað
atkvæði og talið vitlaust, og þann-
ig haldið velli. Talið er, að svipað
hafi átt sér stað 1977. Ernesto
Claramount, frambjóðandi stjórn-
arandstöðunnar, naut þá svipaðs
fylgis og Romero herforingi í
skoðanakönnunum, en Romero
sigraði í kosningunum þá með
helmings mun atkvæða.
Baráttan fyrir velferð bænda
efldist á þessum árum. Kommún-
Hermenn í eftirlitsferð i
San Salvador, höfuöborg
El Salvador.
istar börðust fyrir rétti þeirra í
byrjun 4. áratugsins og verka-
lýðsfélög voru stofnuð en herinn
barði baráttu þeirra á bak aftur
og 20.000—30.000 bændur eða 4%
íbúa landsins voru myrtir í miklu
blóðbaði árið 1932. Þessi aðför
hersins hélt mótþróa í landinu
gegn landeigendum niðri í þrjá
áratugi. Stjórn landsins var í
höndum landeigenda fram til árs-
ins 1932 þegar fyrsta herforingja-
stjórnin tók völdin. Mest allt gróð-
ursælt land er í höndum 14 fjöl-
skyldna og þær hafa mikil áhrif
innan hersins því aðeins ættingjar
þeirra komast til metorða innan
hans.
Kaffi, sykur og bómull eru
helstu útflutningsvörur E1 Salva-
dor. Ræktunin krefst mikils land-
svæðis til að vera arðbær en land-
eigendurnir njóta góðs af stórbýl-
um sínum. 90% bænda eiga ekkert
land. Þeir lifa við sult og seiru,
ferðast um í leit að atvinnu og
finna hana um uppskerutímann
sem stendur í fjóra mánuði.
Frjálslyndir prestar innan kaþ-
ólsku kirkjunnar hófu að starfa
með bændum á áttunda áratugn-
um. Þeir mynduðu með þeim sam-
tök sem börðust fyrir betri laun-
um og afkomu. Stjórnvöld reidd-
ust kirkjunni og sögðu hana vera
að blanda sér inn í mál henni óvið-
komandi. Aðför var gerð að prest-
um og þeir myrtir og ofsóttir.
Á sama tíma jókst fylgi bylt-
ingarmanna og flokkar þeirra
mótuðust. Fimm kommúnista-
flokkar eiga sér talsmenn innan
samtaka byltingarmanna. Jorge
Shafick Handal er formaður
Kommúnistaflokksins. Hann
studdi kosningabandalag Kristi-
legra- og Sósíaldemókrata á sín-
um tíma. Hann er „Rússakommi"
en er sagður aðhyllast friðsam-
legri lausn á stjórnmálavandanum
í E1 Salvador. Flokkur hans nýtur
meira fylgis innan verkalýðsfé-
laga en meðal skæruliða. Salvador
Cayetano Carpio er leiðtogi Frels-
Vinstrisinnaöir
skæruliöar
í Cabanas-héraöi
ishreyfingarinnar. Hann klauf sig
út úr Kommúnistaflokknum 1970
þegar flokkurinn neitaði að taka
upp vopn. Hann er gamall Marx-
Leninisti og hefur minnstan
áhuga af leiðtogum samtakanna á
að hefja samningaviðræður við
stjórnvöld. Roberto Roca er leið-
togi Byltingarsinnaðra verka-
manna í Mið-Ameríku. Hann er
sagður hafa gott vit á stjórnmál-
um og vera mjög hlynntur samn-
ingaviðræðum. Flokkur hans er
minnstur meðal uppreisnarmann-
anna. Joaquin Villalobos er leið-
togi Byltingarhersins. Hann
stjórnar stærstu skæruliðasveit-
inni og hefur gott vit á hernaði.
Hann þykir raunsær í stjórnmál-
um en oft skorta skoðanafestu.
Ferman Dienfuegos er leiðtogi
Andspyrnuhreyfingarinnar. Hann
er hlynntur samstarfi við and-
marxíska flokka og þykir varfær-
inn.
Samtök byltingarmanna taka
ekki þátt i kosningunum og munu
halda áfram að berjast fyrir rétti
borgaranna að þeim loknum.
Kristilegir demókratar eru lengst
til vinstri af þeim flokkum sem
eru í framboði. Bandaríkjastjórn
treystir því að flokkurinn vinni
meirihluta í kosingunum, 31 þing-
sæti af 60, eða nægilegt fylgi til að
hafa áfram forystu í nýrri ríkis-
stjórn. Duarte mun halda endur-
skiptingu landeigna og skrefum í
átt að þjóðnýtinu áfram eftir
kosningarnar. Hann hefur sagt að
eftir kosningarnar verði auðveld-
ara að hafa hömlur á hernum og
öryggissveitunum því þá verði
herinn ekki lengur sjálfstæð heild
eins og hann er nú. Hann segist
vonast til að vinna bug á skærulið-
um og uppreisnarmönnum eftir
kosningarnar með aukinni hern-
aðaraðstoð frá Bandaríkjunum og
auknum þrýstingi á Nicaragua og
Kúbu að hætta vopnasendingum
til landsins.
Fimm hægriflokkar bjóða fram
í kosningunum en flokkur Roberto
d’Aubuisson frv. majórs í hernum,
Repúblikanski sambandsflokkur-
inn er stærstur. Sendiherra
Bandaríkjanna í San Salvador,
Deane R. Hinton, hefur sagt að
Bandaríkjastjórn lítist miður vel á
velgengni hans og það verði erfitt
að fá bandaríska þingið til að
samþykkja aukna hernaðar- og
efnahagsaðstoð við E1 Salvador ef
hann fer með sigur af hólmi. Bar-
átta d’Aubuissons var mjög vel
skipulögð og hann hafði gilda
kosningasjóði að baki sér. Hann
kallar Duarte kommúnista og er á
móti þjóðnýtingu og endurskipt-
ingu landeigna. Hann vill að her-
inn fái frjálsar hendur og allsherj-
ar herferð verði farin gegn skæru-
liðum og uppreisnarmönnum og
barátta þeirra endanlega beygð á
bak aftur á næstu þremur mánuð-
um. d’Aubuisson er ávallt vopnað-
ur en hann hefur lifað af tvær
morðtilraunir. Sagt er að hann
hafi verið viðriðinn morðið á Rom-
ero erkibiskupi en öryggissveitir
stjórnarinnar myrtu hann 1980.
Hinir hægriflokkarnir eru litlir og
eiga litla sigurmöguleika í kosn-
ingunum.
Borgarastyrjöldin í E1 Salvador
mun halda áfram hver sem niður-
staða kosninganna verður. Vandi
þjóðarinnar verður ekki leystur á
einni nóttu. Landeigendur og her-
inn vilja ekki missa eignir sínar og
völd en misrétti og ofbeldi hefur
staðið of lengi. Efnahagslíf í land-
inu er í fullkomnu öngþveiti og
fólk býr við mikla óvissu. Athygli
heimsins beinist að E1 Salvador
þessa dagana en tíminn einn mun
leiða í ljós hver örlög 5 milljóna
íbúa landsins verða.
ab.
Sólarkvöld okkar hala nú slegið öll
met. - rétt eins og sumaráœtlunin og
íerðabœklingurinn góði Nú kynnum
við Torontoferðirnar og sköpum
kanadíska hlöðustemmningu eins og
hún gerist best; mœtum í frjélslegum
klæðnaði og tökum lagið í góðra vina
hópi Allir lá íerðabœkling og að
sjálísögðu verður kynningarkvik-
myndinsýnd
Kanadískt fjör fré fyrstu mínutu.
Reynir Jónasson harmonikkuleikari
og Jón Ólalsson píanóleikari taka á
móti gestum með dillandi hlöðu-
músík.
I örstuttri ferðakynningu verður sagt
írá Kanadaferðunum og athyglin
vakin á þeim tjölmörgu möguleikum
sem þœr bjóða upp á-
Spurningakeppnin verður á sínum
stað og nú keppa Tollvarðafélag
íslands og Iðja, félag verksmiðju-
fólks.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir
þjóðdansa
Ferðabingóið er ómissandi og að
venju spilað um veglega ferða-
vinninga.
Kvöldverðurinn
íadawonderland
P‘eCmskrl50ogviðminnuiri
Módelsamtökin sýna glœsileg föt
fránýrri tískuverslun, Urður, Skóla-
vörðustíg 14.
Kór Langholtskirkju kemur í heim-
sókn og skemmtir gestum af alkunnri
snilld-
Arnarflugsdúettinn frcegi tekur lagið
'f' Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
leikur fyrir dansi.
Aðgöngumiðar eru seldir og aí-
greiddir í andyri Súlnasalar milli
kl. 16.00 og 18.00 og þú velur þér
borð um leið og þú sœkir miðana.
Síminn í miðasölunni er 20221 og hver
aðgöngumiði er um leið happ-
drættismiði sem gefur þér möguleika
á 20.000 króna ferðavinningi. Rúllu-
gjald er innheimt við innganginn.
Næsta sótarkvöld er tileinkað
Portoroz.
Kynnir: MagnúsAxelsson
Stjórnandi: Sigurður Haraldsson
Húsið opnað kl. 21.00 fyrir þá gesti
sem ekki snœða kvöldverð.
Töframaðurinn og eldgleypirinn
Micky Vaughan sýnir listir sínar
Hittumst á Solarkvöldi - Þar er fjörið!
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899