Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982
59
Minning:
Guðmundur Guðmunds-
son Núpstúni
1. mars síðastliðinn lést á
sjúkrahúsinu á Selfossi einn af
okkar elstu sveitungum, Guð-
mundur Guðmundsson, Núpstúni.
Guðmundur var fæddur 6. des.
1893 og var því 88 ára er hann lést.
Kona hans var Sigríður Guð-
mundsdóttir en hún lést 24. mars
1980. Sigríður var gáfuð og góð
kona og mörg börn og unglingar
dvöldu hjá þeim sumar eftir
sumar og segir það sína sögu um
húsmóðurina, enda var hún ekki
útávið en var heimili sínu og fjöl-
skyldu allt. Þau Sigríður og Guð-
mundur eignuðust tvo syni, Jó-
hann Má, sem starfar í Reykjavík
og býr þar, og Brynjólf, sem tók
við búi foreldra sinna ásamt konu
sinni, Ingilaugu Guðmundsdóttur
frá Fögruhlíð í Fljótshlíð. Nú þeg-
ar þessi mætu hjón eru horfin hér
af sjónarsviði koma margar minn-
ingar fram í huga manns því árið
1935 flytja foreldrar mínir í næsta
nágrenni við Guðmund og Sigríði,
en þá voru þau búin að búa í
Núpstúni í nokkur ár. Persónulega
eru mér ógleymanlegar margar
sendiferðir til þeirra frá þeim
tíma er ég var barn og unglingur.
Það hafði eitthvað svo góð áhrif á
mann að koma til þeirra, þó svo ég
hafi oft orðið að vera fljótari í
ferðum en ég hefði kosið, og síðan
hef ég átt þetta góða Núpstúnsfólk
sem nágranna og líklega gerir
maður sér ekki alltaf grein fyrir
því hversu mikils virði það er að
eiga góða nágranna, en það verður
ekki rakið nánar hér. Guðmundur
kom oft á heimili mitt og var allt-
af kærkominn, hann lífgaði svo
upp á hversdagsleikann, var
skemmtilegur og ræðinn, þó við
værum ekki alltaf sammála, en
það gerði umræðurnar bara líf-
legri og skemmtilegri. Hestamað-
ur var hann, átti góðan reiðhest
sem veitti honum marga ánægj-
ustund þegar tími gafst til frá önn
dagsins. Hann var sérstaklega
góður fjármaður, átti fallegt og
hraust fé, og margir út um land
munu kannast við Guðmund í
Núpstúni frá þeim tíma er fjár-
skiptin voru 1952. Guðmundur var
heilsuhraustur þar til fyrir sex ár-
um að hann var í heimsókn hjá
okkur eins og svo oft áður, en varð
þá fyrir því áfalli er leiddi til þess,
að hann varð að fara á sjúkrahús
og dvelja'þar, þar til yfir lauk. Var
okkur hér á heimilinu mikil eftir-
sjá að heimsóknum hans sem
hættu svo snögglega. En nú að
ieiðarlokum er okkur efst í huga
þakklæti til hins látna vinar okkar
fyrir allt, og þær mörgu ánægju-
stundir sem hann veitti okkur, um
leið og við sendum sonum hans og
tengdadóttur innilegar samúð-
arkveðjur.
Aslaug
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg er 21 ár.s gömul. Eg heí alltaf verið þeirrar
skoðunar, að fólk af ólikum kynþáttum ætti ekki að
giftast. En nú hef eg hitt pilt af öðrum kynþætti, og við
erum ákaflega hrifin hvort af öðru. Ilefur Hihlían
nokkuð á móti hlönduðum hjónahöndum? Eg híð eftir
svari yðar.
Biblían bannar ekki fólki af mismunandi kynþátt-
um að giftast, enda nær kærleikur Guðs til allra
kynflokka, eins og þér vitið. Hún bannar trúuðum
lærisveini að giftast vantrúuðum.
Eíjíí að síður hvetur Biblían okkur til að lifa í friði
við alla menn, eins og hún kemst að orði, og stundum
fer svo, ef við virðum að vettugi þjóðfélagslega
hleypidóma, þá köllum við yfir okkur áhyggjur og
erfiðleika. Ymislegt er leyfilegt, en þó ekki æskilegt í
reynd.
Sálfræðingar og ráðgjafar hjóna hafa komizt að
þeirri niðurstöðu, að meiri von sé um, að þau
hjónabönd verði varanleg, þar sem makar eru sömu
trúar og eiga sömu þjóðfélagsrætur, heldur en hin,
þar sem fólk hugleiðir ekki slíka þætti og hlustar ekki
á aðvaranir.
Við finnum, þegar við kynnumst fólki af alls konar
kynþáttum, að það hefur sömu yndislegu eiginleikana.
í hópi náinna vina minna eru menn af öllum
þjóðflokkum, og eg get tekið undir með Páli: „Ekki er
greinarmunur.“
Nú á dögum er erfitt að lifa í hjónabandi, jafnvel
þegar bezt lætur. Eg ráðlegg hverju ungmenni:
Gakktu að eiga maka af þínum eigin kynflokki. Reisið
hjónaband ykkar á sem sterkustum grunni. Hlífið
börnum ykkar við ónauðsynlegri gagnrýni þjóðfélags,
sem á margt eftir ólært um kærleika og umburðar-
lyndi.
Fáskrúðsfirðingar og aðrir
Austfirðingar á Suðurlandi
halda sína árlegu vorskemmtun í Fóstbræðra-
heimilinu laugardaginn 3. apríl kl. 20.30.
Félaqsvist, skemmtiatriöi, kaffiveitingar. Dans.
Ágóðinn rennur til Styrktarfélags vangefinna á
Austurlandi.
Allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
FERMINGARGJÖFIN
í ÁR ER
FRÁ
Frábær hljómflutn-
ingstæki er full-
nægja ströngustu
kröfum:
Verö
kr. 16.600
System 31H
9 122 Jbft WutíT EE
| DOLBV SVSTBV1
Verd
kr. 8.500
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999