Morgunblaðið - 28.03.1982, Page 25

Morgunblaðið - 28.03.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 73 Faömlag samlyndra hjóna — Sophiu og Carlo Ponti. get dregið mig í hlé, ef ég verð og ég sé að ég get ekkert gert í málinu. Ég kann að bíða. Nú er ég tilbúin til að reyna eitthvað nýtt. En stundum, þegar maður er til- búinn, er nauðsynlegt að ganga í gegnum ýmsar þjáningar. Nú hef ég tekið þá af- stöðu að fara eftir því sem tilfinningarnar segja mér í stað þess að leita að öryggi. Nú ætla ég að fá það sem ég þarfnast sem kona.“ Það þarf mikið til þess að hnakkakert og sómakær kona á borð við Sophiu Loren tilkynni að hún hafi í huga svo róttækar ráðagerðir að segja skilið við eiginmann sinn og eiga vingott við annan karlmann. Enginn einstakur atburður getur hafa knúið hana til slíkra sinnaskipta, heldur hljóta þau að hafa orsakazt af mörgum samverkandi þáttum. Sambandið öllum ráðgáta Ókunnugum hefur jafnan þótt sem sam- band þeirra Sophiu Loren og Carlo Ponti hlyti að vera öllum hulin ráðgáta. Það er heldur ekki annað hægt en að furða sig á því, hvað þessi stórfallega stúlka úr fátækrahverfi Napolí, sem ummyndaðist i eina stórkostlegustu leikkonu í heimi, gat séð við þennan stutta, sköllótta kúlu- vamba, er var nógu gamall tii að vera faðir hennar. Fólk hefði haldið, að fyndist öðru hvoru þeirra makinn sér ekki samboðinn, væri það fremur Sophia en Ponti. En þegar maður sér þau saman stendur maður andspænis beizkum raunveruleika lífsins. Eftir nálega þriggja áratuga sam- vistir þeirra hjóna virðist Ponti ekkert hafa elzt, en Sophia er eins og fölnandi skrautblóm. Ponti er jafnvaldamikill og áður. Þótt nokkur brestur hafi komið í fjárhag hans við það að ítölsk stjórnvöld hafi dæmt hann í stórar fjársektir og Verðbréfa- og kauphallarráð Bandaríkja- stjórnar hafi borið fram kæru á hann fyrir að hafa svikið rösklega tvær milljónir doll- ara út úr fólki, sem fjárfest hefur í kvik- myndaiðnaði, er hann jafnvel ennþá auð- ugri en þá er fundum hans og Sophiu bar fyrst saman. A hinn bóginn stendur Sophia Loren andspænis erfiðleikum þeim, sem aldurinn færir fögrum leikkonum af miklu mis- kunnarleysi. En af meðfæddri kænsku reynir hún að taka að sér fleiri skapgerð- arhlutverk í stað þess að ganga sjálfkrafa inn í hlutverk glæsikvenna. Hún hefur haft þungar byrðar að bera frá barnæsku, og á unglingsárum tók hún að sjá fyrir móður sinni og systur, sem hún hefur gert síðan samfara því að vinna sér frama og vera eiginkona og móðir. Nú er hún orðin örþreytt. Eftir því sem 50 ára afmælið færist nær hefur Ponti fjarlægzt hana og sýnt henni vanrækslu og ótryggð. Svo virð- ist sem hún líti á samband sitt við dr. Baulieu sem síðasta tækifærið til að njóta æsku, frelsisás.tar og fullnægingar sem kona. Er við ræddum saman nýlega sagði hún m.a.: „í fyrstu varð ég að beita mig hörku til að breyta mér. En mér tókst að gera það. Það var spurningin um hvort ég væri fær um að þroskast áfram sem kona.“ Forvitin um eitt og annað Þvínæst reyndi hún að gera mér ljóst í hverju væru fólgnar þær breytingar, sem hún hafði gert á lífi sínu og hélt áfram: „Þegar ég var ung, fannst mér ég vera gömul, því að ég hafði svo mikla ábyrgð- artilfinningu. Nú nýt ég loks æskunnar og ég gef mér tóm til að uppgötva eitt og annað í lífinu. Það er eins og allur heimur- inn hafi lokizt upp fyrir mér. Núna finnst mér gaman að fara í leikhús, í ferðalög og skoða söfn, en áður fyrr þótti mér ekkert í þetta varið. Núna er ég að lesa bók um frú Curie, sem franski rithöfundurinn Franco- is Giroud hefur skrifað. Ég er orðin mjög forvitin um eitt og annað sem örvar hug- ann. Þannig langar mig til að lifa núna. Það er nefnilega ekki hægt að einskorða sig við að hugsa um heimili, börn og vinnu. Þá deyr í manni sálin. Ef maður er tilfinn- inganæmur að eðlisfari verður maður að láta eftir sér að drepa sig úr dróma. Ég held, að konur vilji slíkt nú á dögum. Þetta er svipað því og að losna úr álögum. Ég hef orðið fyrir miklum áhrifum af því, hvernig margt í heiminum hefur losnað úr læðingi að undanförnu. Þegar ég spurði hana aftur um viðhorf manns hennar til þessara nýju l.ugmynda hennar og þrár, fór hún undan í flæmingi og sagði svo þreytulega: „Maðurinn minn ræðir aldrei slík mál. Hann myndi ekki skilja þetta. Hann hefði engan áhuga á því.“ Til allrar hamingju fyrir Sophiu hafa viðhorf til miðaldra leikkvenna breytzt mjög að undanförnu. Nú hafa verið skrifuð fyrir þær óvenjulega bitastæð hlutverk, og fá þær að njóta sín á hvíta tjaldinu sem skapgerðarleikkonur fremur en sem feg- urðardísir. Hefur þetta valdið því að þær eru orðnar helzta aðdráttaraflið, sem kvikmyndahúsin hafa. I maí næstkomandi mun Sophia Loren hefja leik í kvikmynd, sem Lina Wertmull- er stjórnar. Hún segir með nokkru stolti: „Ég leik aðalkvenhlutverkið. Það er mjög skapmikil og lostafull brasilisk kona. Sagan segir frá bláfátækri 14 ára stúlku, sem fer til Sao Paulo og hafnar þar í pútnahúsi, því að hún getur enga vinnu fengið. Þá hittir hún stórkostlegan mann, sem hjálpar henni að vinna sér frama í viðskiptalífinu og“ Sophia bætir við með röddu, sem þrungin er ánægju: „hún verð- ur mjög valdamikil kona — auðug og mik- ils metin í samfélaginu. Hún getur gert allt sem hugurinn girnist." Við ræddum ennfremur dálítið um sjón- varp og Sophia staðfesti að henni hefði verið boðið hlutverk í framhaldsþáttum fyrir sjónvarp, er nefnast Konungsættin. Hún kveðst hafa hafnað því tilboði. „Ég vildi heldur skapa sjálf hlutverk fyrir mig í sjónvarpsþáttum,” segir hún. Ýmsir fréttamenn hafa talið, að eitt- hvað samband sé milli tilboðs þess, sem Sophia fékk um leik í „Konungsættinni" og þess að Ponti hefur nýlega keypt sér glæsi- legan „felustað" í Los Angeles. Hins vegar sagði mér Alex Ponti, sonur Carlo af fyrra hjónabandi, að faðir hans hefði keypt hús- ið fyrir sjálfan sig og drengina, þegar þeir yxu úr grasi. Sophia myndi alls ekki búa í þessu húsi. Hann vísaði einnig á bug þrá- látum orðrómi um að faðir hans væri al- varlega veikur og sagði loks, að ekki væri um neinn skilnað að ræða hjá föður hans og Sophiu. Sophiu og Carlo Ponti hefur alls ekki borið saman um það, sem þau hafa sagt fréttamönnum að undanförnu. Til dæmis hefur Sophia fullyrt, að maður hennari eigi ekkert í umræddu húsi í Los Angeles. Skýringin á þessu gæti verið sú, að Ponti sé sjálfur að hugsa um að flytjast til Hollywood, þar eð hann á fangelsisdóm yfir höfði sér á Ítalíu og svo lítur út sem hjónaband hans sé að bresta. Fjárhagslega sjálfstœð Sophia Loren hefur gætt sín á því að vera ekki algerlega háð eiginmanni sínum fjárhagslega. Hún hfur haft ýmis járn í eldinum sjálf. Samningurinn, sem hún hefur gert til að kynna Coty-ilmvötn, mun verða áfram í gildi á næstunni og á óformlegum grunni. Kynning hennar á Coty-ilmvötnunum hefur tekizt sérlega vel, en hún felur m.a. í sér tvær ferðir á ári fyrir hana til Bandaríkjanna svo og hinar frægu sjónvarpsauglýsingar hennar. „Þú sagðir mér í París að þig skorti ör- yggistilfinningu," sagði ég við Sophiu. „Nei, vina mín, ég er ekki örugg með mig og það verð ég aldrei," svaraði hún. „En hver er það í rauninni? Mér finnst ætíð sem ég muni missa það á morgun sem ég á 'í dag. Mér finnst þetta ágætt út af fyrir sig, því viðkomandi persóna virðist af þeim sökum viðkvæm og tilfinningasöm. Mér fellur við slíkt fólk, en það sem er sterkt og sjálfsöruggt skelfir mig. Þegar allt kemur til alls þá verð ég að treysta á sjálfa mig. Ég hef komizt heilu og höldnu út úr heimsstyrjöld. Ég veit að ég get allt- af leitað tit vinnunnar og séð mér far- borða, jafrjvel þótt ég verði fjörgömul kona.“ Sophia Loren hafði eitt sinn gefið mér ráð í vandamáli, sem ég átti sjálf við að stríða. „Ef þú rekst á mann, sem vekur ástríður þínar — ástríður sem höfða til hugans, andans, ímyndunaraflsins — ef hann er líklegur til að veita þér dýpstu lífsfyllingu — þá skalt þú gefa þig honum á vald, jafnvel þótt það geti reynzt hættulegt og jafnvel þótt þú vitir ekki hvað það mun kosta þig. Láttu öryggið fjúka út í veður og vind. Þú getur auðveldlega gjörbreytt lífsháttum þínum ef þú mátt til. Það kann að vera þess virði. Láttu tilfinningar þínar ráða ferðinni. Það er öruggast." Það bendir allt til þess, að Sophia Loren ætli að fara að sínum eigin ráðum, eins og málin standa um þessar mundir í lífi hennar. Electrolux ryksugan er hljóðlát, sogkrafturinn rafeindastýrður og aðlagar sig sjálfkrafa að þykku teppi eða trégólfi. Fótrofi til að ræsa mótorinn og til að draga inn snúruna. Stýrishjól undir henni miðri auðveldar keyrslu, gúmmípúðar á hliðum og lipur sogbarki. AUKAHLUTIR: SOGSTYKKI með Ijósi og rafknúnum bursta sem bankar teppið um leið og sogað er. PÚSSKUBBUR sem sveiflast upp í 18000 snúninga á mín. Sogið hreinsar allt ryk undan kubbnum. ryksugum Vörumarkaðurinn h(. ÁRMÚLAIa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.