Morgunblaðið - 31.03.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
37
Deila skattyfirvalda og dagmæðra:
„Erfiðasta mál sem upp hefur
komið á mínu kjörtímabili“
Fyrstu tónleikar Kórs
Menntaskólans í Kópavogi
— segir Guðrún
Helgadóttir
„1>ETTA er eitthvert erfiðasta
mál, sem upp hefur komið á
minu kjörtímabili," sagði Guð-
rún Helgadóttir alþingismaður
og formaður dagvistunarstjórnar
Reykjavíkur í samtali við Mbl.
þegar hún var innt eftir þeirri
deilu, sem risin er upp milli
dagmæðra í Reykjavík og
skattayfirvalda og dagvistunar-
stjórnin hefur látið til sín taka.
Sagði Guðrún að deilan sé
þannig til komin að Reykjavík-
urborg greiðir einstæðum for-
eldrum styrk vegna barna-
gæslunnar sem þeir þurfa að
borga dagmæðrunum fyrir og
er mun hærri en dagvistun-
arstofnanir taka fyrir sína
gæslu. Þessi styrkur, sem ein-
stæðir foreldrar fá rennur
beint til dagmæðranna og var
því samþykkt í borgarráði að
einstæðu foreldrarnir þyrftu
ekki að greiða útsvar af
styrknum.
Þetta fól í sér að einstæðu
foreldrarnir þurftu að gera
grein fyrir hvert styrkirnir
rynnu og kom þá í ljós að allur
gangur hefur verið á hvort
dagmæður teldu þessar tekjur
til skatts.
„Hins vegar,“ sagði Guðrún
Helgadóttir, „hefur dagvistun-
arstjórnin og félagsmálaráð,
sem greiðir út þessa styrki,
látið málið til sin taka, vegna
þess að hér er um að ræða
stórkostlegt hagsmunamál
fyrir Reykjavíkurborg, þar
sem um 900 börn eru í dagvist
hjá dagmæðrum, en þær hafa
hótað að senda inn leyfi sín til
Reykjavíkurborgar 1. maí, ef
ekki finnst viðunandi lausn á
vandanum.
Það segir sig sjálft að ef
þessar konur hætta störfum
kemur upp stórkostlégt vanda-
mál í borginni þar sem dag-
vistunarheimilin geta ekki tek-
ið við þessum börnum. Mín
skoðun er sú að engin lausn sé
önnur á þessu máli en sú að
dagmæður verði ráðnar hjá
borginni og þiggi þaðan laun,
en ekki er ég viss um að allar
dagmæður séu jafnhrifnar af
þeirri lausn," sagði Guðrún
Helgadóttir að lokum og bætti
því við stjórnarnefnd dagvist-
unarheimila hefði gert sam-
þykkt þess efnis að teknar
verði upp viðræður við' dag-
mæður og hefjast þær innan
skamms.
KÓR Menntaskólans í Kópavogi
heldur tónleika í Kópavogs-
kirkju miðvikudaginn 31. mars
kl. 20.30.
Tónleikarnir eru hinir
fyrstu sem kórinn heldur og
þeir tileinkaðir byggingu
Hjúkrunarheimilis aldraðra í
Kópavogi. Stjórnandi kórsins
er Gunnsteinn Ólafsson, nem-
andi í 4. bekk.
Kórinn syngur ýmis verk,
bæði eftir innlenda og erlenda
höfunda. Þá syngur hann ís-
iensk þjóðlög og nokkrar
tónsmíðar eftir kórstjórann.
Aðgangur er ókeypis, en í
lok tónleikanna tekur kórinn
við frjálsum framlögum sem
renna til Hjúkrunarheimilis-
ins.
Jón Ásbergsson
Þorbjörn Árnason
Knútur Aadnegard
Aðalheiður Amórs-
dóttir
Klísabet Kemp
Listi sjálfstæðismanna
á Sauðárkróki
FRAMBOÐSLISTI sjálfstæð-
ismanna á Sauðárkróki vegna
komandi bæjarstjórnarkosninga
hefur verið samþykktur. Hér
birtist listinn ásamt myndum af
þeim sem skipa 5 efstu sætin:
1. Þorbjörn Árnason
dómarafulltrúi, 2. Aðalheiður
Arnórsdóttir snyrtifræðingur,
3. Jón Ásbergsson fram-
kvæmdastjóri, 4. Knútur
Aadnegard byggingameistari,
5. Elísabet Kemp hjúkrunar-
fræðingur, 6. Pálmi Jónsson
verktaki, 7. Páll Ragnarsson
tannlæknir, 8. Arni Egilsson
verkamaður, 9. Birna Guð-
jónsdóttir húsmóðir, 10.
Kristján Ragnarsson skip-
stjóri, 11. Lilja Þórarinsdóttir
húsmóðir, 12. Reynir Kárason
skrifstofumaður, 13. Rögn-
valdur Árnason bifreiðastjóri,
14. Bjarni Haraldsson kaup-
maður, 15. Minna Bang hús-
móðir, 16. Björn Guðnason
húsasmíðameistari, 17. Árni
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri og 18. Friðrik J. Frið-
riksson héraðslæknir.
ins 1 Borgarnesi
dóttir, bankamaður, 11. Hólm-
fríður Sigurðardóttir, húsmóð-
ir, 12. Hörður Jóhannesson,
vaktmaður, 13. Örn Símonar-
son, bifvélav.m. 14. Björn Ara-
son, umboðsmaður.
Til sýslunefndar Mýrasýslu:
Guðmundur Ingi Waage, mæl-
ingamaður.
í samtali við Morgunbl. sagði
Gísli Kjartansson efsti maður
listans: „Ég er mjög ánægður
með skipan listans. I efstu sæt-
unum er ungt, nýtt fólk, sem er
fullt af áhuga og ætlar sér
stóra hluti í kosningunum í vor.
Niðurstöður prófkjörsins voru
látnar ráða skipan sjö efstu
sætanna og alger samstaða
náðist um allan listann. Við er-
um ákveðin í að bæta við okkur
þriðja manninum í vor.
Málefnastaða okkar sjálf-
stæðismanna er ákaflega sterk
nú. Sjálfstæðisflokkurinn er í
meirihlutasamstarfi þetta kjör-
tímabil og framkvæmdir hafa
aldrei verið meiri hér í Borg-
arnesi. Má þar nefna miklar
gatnagerðarframkvæmdir,
hótelbyggingu, byggingu
íþróttahúss og hitaveitu og
Áki Gránz
Njarðvík:
Julius Rafnsson
Sveinn Kiríksson
Halldór Guómundsson
I ngi (iunnarsson
Ingólfur Bárðarson
Listi sjálfstæðismanna
Á FUNDI sem haldinn var í full-
trúaráói sjálfstæðisfélaganna í
Njarövík hinn 14. marz, var fram-
boóslisti Dokksins við sveitar-
stjórnakosningarnar i vor sam-
þykktur þannig:
1. Áki Gránz málarameistari,
2. Júlíus Rafnsson fiskverkandi,
3. Halldór Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri, 4. Ingólfur Bárð-
arson rafverktaki, 5. Sveinn Ei-
ríksson slökkviliðsstjóri, 6. Ingi
Gunnarsson aðstoðarstöðvar-
stjóri, 7. Helga Óskarsdóttir
sölumaður, 8. Guðbjartur
Greipsson smiður, 9. Sigríður
Aðalsteinsdóttir húsmóðir, 10.
Jónína Sanders gjaldkeri, 11.
Ólafur - Pálsson skipstjóri, 12.
tilkynntur
Magdalena Olsen húsmóðir, 13.
Ingvar Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri, 14. Ingólfur
Aðalsteinsson hitaveitustjóri.
Algjör samstaða var með
þessa afgreiðslu.
Á síðasta kjörtímabili hafa
sjálfstæðismenn haft 3 fulltrúa
af 7, en höfðu áður 4.
Þrýstimælar
Allar stæröir og gerðir
@ð(uiiHlaQ(yig)(U)ip
Vesturgötu 16, tími 13280
Lofta-
undirstöður
3,70-J-
3,60
3,50 |
3.70
3.60
3.50
3.40
3.30
3,20-
3.10
3,00
2,90-
2,80
2.70
2.60
2.50
2.40
2.30
2,20
2.10
C 3
700
750
800
875
900
950
1025
1100
1150
1200
1275
1325
1400
1450
1475
1500
1525
Stærð:
2.10-3.75
metra.
Þyngd að-'
eins 13 kg.
V-þýsk
gæðavara.
Verö að-
eins 298 kr.
m/U-járni.
Getum út-
vegað með
stuttum
fyrirvara
margar
aðrar
lengdir og
einnig ál og
stálbita
undir loft.
Fallar hf.
Vesturvör 7, Kópavogi.
Simi 42322.