Morgunblaðið - 31.03.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
41
anlega um skjalasafn Alþingis og
skjalasafn Seðlabanka og Lands-
banka. Alþingi hefur að vísu
endur fyrir löngu afhent Þjóð-
skjalasafni eins konar úrtíning úr
skjalasafni sínu, en haldið flestu
því sem meginmáli skiptir. Bank-
arnir hafa aldrei afhent Þjóð-
skjalasafni neitt.
Gömul skjöl sérskjala-
safna á aö afhenda ÞjóÖ-
skjalasafni og efla það
Það er auðvitað ekki nema allt
gott um það að segja, að þessar og
aðrar stofnanir búi vel að skjala-
söfnum sínum. Hins vegar er það
fjarstæða, að þær starfræki opin
skjalasöfn, eins og sumir hafa ver-
ið að tala um þessa dagana vegna
umræðna um skjala- og bókasafn
Seðlabankans. Eina rétta og
skynsamlega stefnan hlýtur að
vera sú, að þannig verði búið að
Þjóðskjalasafninu, að það geti
jafnóðum tekið við skjölum (t.d.
eldri en 30 ára) opinberra stofn-
ana og embætta, og ennfremur við
sögulega mikilvægum skjölum
einkaaðila og gert þessi gögn al-
mennt aðgengileg. Þetta er líka í
samræmi við gildandi lög um
Þjóðskjalasafnið. Stendur það því
engum nær en Alþingi að sjá til
þess að unnt sé að framkvæma
þau lög, sem það hefur sett.
Hlutverk Þjóðskjalasafns
Samkvæmt lögum um Þjóð-
skjalasafn Islands frá 17. marz
1969 er það aðalhlutverk safnsins
að annast innheimtu og varðveizlu
afhendingarskyldra skjala (eftir
gildandi reglugerð) hjá embættum
og stofnunum ríkisins, safna öðr-
um skráðum heimildum varðandi
sögu þjóðarinnar, þar með ljósrit-
um af slíkum gögnum í erlendum
söfnum, skrásetja öll afhent
skjalasöfn, gefa út prentaðar eða
fjölritaðar skrár yfir þau og halda
opnum lestrarsal fyrir almenning.
Safnið veitir ennfremur opinber-
um stofnunum, embættismönnum
og borgurunum almennt margvís-
legar upplýsingar úr gögnum sín-
um.
Þjóðskjalasafnið á sem sé að
vera eins konar þekkingar- og
upplýsingabanki fyrir fræðimenn,
opinberar stofnanir og almenning.
Ef rétt væri á haldið, ætti það
ennfremur að vera liður í stjórn-
kerfi landsins og hafa ásamt hér-
aðsskjalasöfnum forystu varðandi
skipulag, grisjun og varðveizlu
skjalasafna stofnana og embætta
og hvetja einkaaðila til að varð-
veita sögulega mikilvæg gögn og
afhenda þau Þjóðskjalasafni eða
héraðsskjalasöfnum, eftir að þeir
þurfa ekki sjálfir á þeim að halda.
Þjóöskjalasafn vantar
fleira en húsnæði
Þjóðskjalasafnið vantar ekki
aðeins stóraukið húsnæði til að
geta gegnt hlutverkum sínum eins
og því ber. Það vantar ennfremur
ymiss konar búnað, sem hér væri
of langt upp að telja. Og bókakost-
ur Þjóðskjalasafns er t.d. svo lítill
og lélegur, að án nærveru Lands-
bókasafns væri það í rauninni ekki
starfhæft. Þá bráðvantar Þjóð-
skjalasafn meira starfslið og þá
engu síður aðstoðarfólk en há-
skólamenntaða skjalaverði.
Ekki er unnt að ræða málefni
Þjóðskjalasafns frekar í stuttri
blaðagrein. Vísa ég því til rits
míns Þjóðskjalasafn íslands —
Ágrip af sögu þess og yfirlit um
heimildasöfn þar, sem Sagnfræði-
stofnun Háskólans hefur gefið út.
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Eigulegt
safn
laga
Vmsir flytjendur.
Beint í mark 1 og 2.
Steinar SAFN 50.
í upphafi fannst mér það all
góð hugmynd að gefa út safn-
plötu sem hafði að geyma vin-
sælustu lög íslenskra og er-
lendra flytjenda þá stundina. Að
minnsta kosti leit ég þannig á
málið þegar platan „Gæðapopp“
var gefin út. En eins og stundum
vill verða þá hleypur oft kapp í
menn. Það var ekki nóg að koma
með eina heldur fylgdi önnur á
eftir skömmu seinna og sú þriðja
kom svo út rétt fyrir áramót. Að
vísu var hún í dulbúningi en
engu að síður á sama bekk og
hinar fyrri. Þegar hún var kom-
in fannst mér nóg komið eins og
eflaust fleirum og átti varla til
orð þegar það fréttist að enn ein
safnplatan væri á leiðinni. hvað
er að gerast? Hefur eitthvað
komið fyrir Steina? An þess að
vita betur leit ég á þessa nýju
safnplötu sem algjöra vitleysu.
En „Beint í mark“ er gott dæmi
þes að ekki má vanmeta Steinar
Berg. Það er stórsnjöll hugmynd
að gefa út tvær safnplötur og
gefa aðra þegar hin er keypt. En
það þarf meira en sniðugheit ef
hljómplata á að vera góð. Ef
þetta eru ekki góðar safnplötur
sem slíkar þá eru allar safnplöt-
ur með tölu lélegar. Plata af
þessu tæi getur þó aldrei orðið
eins sterk og nafn bestu laga
einhverrar stórhljómsveitar, en
þær eru undantekningarlaust
mjög góðar. (T.d. „George Ben-
son Collection" og Pink Floyd
samansafnplatan.)
Eftir að hafa rennt plötunum
tveimur í gegn og kannað laga-
valið þá verð ég að segja að þetta
eru góðar safnplötur. Plata eitt
hefur að geyma 14 lög með jafn-
mörgum flytjendum. Þar af eru
fjórir íslenskir: Jóhann Helga-
son (She’s Done it Again), Start
(Sekur), Guðmundur Árnason
(Við ystu mörk skóga), og að
ógleymdum Mezzoforte (Ferðin
til draumalandsins). Aðrir sem
eru á þessari plötu eru: Gillan,
Billy Bremmer, Billy Idol. Trev-
or Walters og Linx. Eitt stærsta
atriðið við plötur af þessu tæi er
uppröðum laganna, en ekki verð-
ur annað sagt er að allvel hafi
tekist með „Beint í mark“.
Plata tvö er eins og sú fyrri að
því ieytinu að á henni eru 14 lög.
Hinsvegar eru bara þrír íslensk-
ir flytjendur en það eru: Bubbi
Morthens (Þú hefur valið), Grýl-
urnar (Fljúgum hærra), og
Björgvin Gíslason (Glettur). Af
erlendum flytjendum ber fyrst
að nefna hjúin Mörtu and the
Muffins. Þau eiga eitt besta lag
erlendu flytjendanna eða lagið
„Women Around the World“.
Aðrir eru: Fun Boy Three (The
Lunatics Have Taken Over the
Asylum), Taxi Girl (Cherechez le
garcon), Specials (Ghost Town)
og Orchestral Manoeuvres in the
Dark (Souvenir og Enola Gay).
Ekki er hægt að velja besta
lag þessara platna því flest eru
þau góð. Hinsvegar eru það tvö
lög sem heilla mig meira en önn-
ur „Glettur" og „Women Around
the World". En hver og einn
verður að velja sitt uppáhald og
það gæti reynst einhverjum erf-
itt því úrvalið er gott.
Eins og áður hefur verið
minnst á þá er nokkuð frumlegt
að selja eina plötu og gefa aðra
með. Það er aftur á móti annað
sem mér finnst ekki skipta
minna máli en snilldin við sölu-
mennskuna en það er umslag
platnanna. Það er í sjálfu sér
allt í lagi að hafa þau eins (eini
munurinn er að annað er blátt
en hitt er grænt). Hvort sem út-
gáfan á að vera ódýr eða hvað,
þá finnst mér að útgefandi ætti
að leggja metnað sinn í að hafa
umslögin eiguleg en ekki eins og
eitthvað ódýrt drasl. Ég trúi
ekki öðru en að Ernst Backman
geti gert betur en þetta.
Svona í lokin þá er fátt annað
að segja en að „Beint í mark“
kom mér á óvart og án efa fleir-
um.
FM/AM.
Frábær
hljóm-
plata
XTC.
Fnglish Settlement.
VIRGIN 2223.
Hljómsveitin XTC var stofnuð
í Svindon á Englandi þegar upp-
gangur pönkaranna var hve
hraðastur. Þeir sem voru í upp-
runalegu myndinni voru Andy
Partridge, Colin Moulding,
Barry Andrens og Terry Chanb-
ers. Svona skipuð gaf hljóm-
sveitin út tvær plötur: „White
Music“, sem er nokkuð góð og
„Go 2“ sem er eins frábær og
þær sem á eftir komu. Það er
ekki aðeins tónlistin sem er
frábær heldur einnig umslagið.
Það er svart og það eina sem er á
því eru vélritaðir stafir og er þar
gert grín að lesandanum ásamt
því sem reynt er að fá viðkom-
andi til að kaupa plötuna. Áður
en þriðja platan kom út kom upp
ágreiningur í hljómsveitinni
með þeim afleiðingum að hljóm-
borðsleikarinn Barry Andrens
hætti en í hans stað kom gítar-
leikarinn Dave Gregory. Þriðja
platan kom út árið 1979 og heitir
„Drums and Wires". Með þeirri
plötu mörkuðu þeir endanlega þá
tónlistarstefnu sem þeir hafa
fylgt síðan og þróað á stórkost-
legan hátt. Barry Andrens hafði
haft mikil áhrif á tónlistina sem
þeir fluttu en þegar hann var
farinn datt hljómborðið að
mestu út. Það er eins með
„Drums and Wires" og „Go 2“ að
það var fleira en tónlistin sem
kom á óvart. Nú létu þeir fylgja
texta með plötunni, ekki bara
texta með nýju plötunni heldur
einnig þá sem komu út á fyrstu
tveimur plötunum.
Fram að fjórðu plötunni hafði
hljómsveitin ekki náð neinum
vinsældum svo um væri talandi.
Hún var nokkuð vinsæl sem
„underground“-hljómsveit en
ekkert fyrir utan. Þessu breytti
fjórða platan að nokkru en samt
náði hún ekki að skapa þeim þær
vinsældir sem þeir áttu skilið.
Plötuna kölluðu þeir „Black
Sea“. Af henni urðu nokkuð vin-
sæl lögin „Towers of London" og
„Generals and Majors". Síðan
„Black Sea“ kom út hefur verið
frekar hljótt um þá félaga.
Sennilega hefur þögnin gert
þeim gott, en í byrjun mars
sendi XTC frá sér sína fimmtu
plötu.
Platan „English Settlement"
er til að byrja með tvöföld,
þ.e.a.s. aðeins fyrstu 10.000 ein-
tökin eru tvöföld en síðan verður
hún fáanleg sem einföld. Þar
verður úrval af báðum plötun-
um. Eins og fyrr hefur verið sagt
þá hafa fyrri plötu XTC verið
hver á annarri betri og „English
Settlement" er engin undantekn-
ing. Platan er frábær og það má
taka undir orð breska tónlistar-
blaðsins Record Mirror sem seg-
ir (í lauslegri þýðingu): ,,„ES“ er
mjög góð plata og þeta er fyrsta
platan á þessu ári sem skiptir
einhverju máli og kemur til með
að gera það. Sestu niður með
eintak eins fljótt og þú getur og
þú verð tímanum eins og best
verður á kosið." Já, þessi plata
þeirra félaga verður greinilega
þeirra fyrsta „smash“. Lagið
„Senses Working Overtime" er
þegar orðið vinsælt og fleiri lög
eiga örugglega eftir að fylgja í
kjölfarið. I tónlistinni eru sam-
ankomin áhrif frá gamla tíman-
um og svo einnig þau áhrif sem
eru í hinni svokölluðu ný-
rómantísku stefnu. Þessu bland-
ar XTC saman og setur sín áhrif
með og útkoman er þeirra eigin
tonlist sem er einstök. Að min-
um dómi er engan veginn hægt
að nefna neitt lag sem besta lag
plötunnar.
Öll 15 eru góð Þó svo þau séu
mis grípandi. En það sem skiptir
er að saman mynda þau heild
sem kemur til með að vera valin
sem ein besta heild ársins 1982
eða jafnvel áratugsins.
XTC er hljómsveit sem margir
hafa örugglega efni á að kynna
sér og það er betur gert fyrr en
síðar. Það skemmir ekki fyrir að
plöturnar eru tvær á mjög góðu
verði.
FM/AM.
Ef þió eruó ekkí enn búin aó ókveóa fermingarg jöf ina
œttuó þió aó lesa þetta:
Viö hjá Heimilistækjum h.f. eigum mikiö úrval hagnýtra og skemmtilegra hluta sem eru
tilvaldar fermingargjafir jafnt fyrir stúlkur og drengi.
Philips útvörp. Fyrir rafhlöður og 220 volt, mono og
Sambyggð
eöa lausir
I sterío, lítil og stór.
Philips útvarps og kassettutæki. Steríoupptakajnnbyggöir
hljóðnemarog útvarp meö FM bylgju.
Philips rakvélar. Einfaldar og litlar eöa stórar ogfullkomnar, en allar^AM^ framtíöarvélar.
hitaburstar og hárblásarasett, - öll tæki
Philips hársnyrtitæki. Hárblásarar,
sem þarf til hársnyrtingar.
Philips vasadisco. Litlu kassettutækin sem alla unglinga
Philips Morgunhaninn.
morgnana meö hring-
dreymir um aö eignast.
Utvarp og vekjaraklukka í einu tæki, sem vekur þig á
ingu eöa Ijúfri tónlist.
Hjá okkur ffáið þið veglega gjöff á vœgu verði!
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655