Morgunblaðið - 31.03.1982, Side 10
4 2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
Adalfundur Verktakasambandsins:
— Ólafur Þorsteinsson
kjörinn formaöur
Verktakasambandsins
AÐALFIJNDUR Verktaka.sambands
íslands var nýlega haldinn í Reykja-
vík. Gestir fundarins voru Stein-
grímur Hermannsson, samgöngurád-
herra, og alþingismennirnir Birgir
ísleifur Gunnarsson, Friðrik Sophus-
son, Helgi Seljan og Karvel Pálma-
son, segir ■ fréttatilkynningu frá
sambandinu.
Fráfarandi formaður, Ármann
Örn Ármannsson, flutti í upphafi
ræðu á fundinum og gat þess m.a.
að liðið starfsár hafi öðru fremur
einkennst af því að reynt var að
vekja athygli fólksins í landinu á
því að verktakaiðnaður væri
sjálfstæð atvinnugrein.
Samgönguráðherra flutti ræðu
um opinberar framkvæmdir sem
heyra undir ráðuneyti hans og
samskipti við verktaka. Ráðherra
sagði m.a. að hann vildi stuðla að
því að meira væri boðið út og bauð
fulltrúa Verktakasambandsins til
samstarfs um þau mál.
Úr stjórn gengu Ármann Örn
Ármannsson og Páll Sigurjónsson
sem setið hafa í stjórn í sex ár.
Nýja stjórn skipa: Ólafur Þor-
steinsson, formaður, Sigurður Sig-
urjónsson, varaformaður, Ellert
Skúlason, ritari, Sigurður Sig-
urðsson, gjaldkeri og Rannver
Sveinsson, meðstjórnandi. Vara-
Frá aðalfundi Verktakasambands íslands
menn sem sitja alla stjórnarfundi
eru: Jón Fr. Einarsson og Einar
Sigurðsson. Framkvæmdastjóri er
Othar Örn Petersen hrl.
Fráfarandi formaður Verktaka-
sambandsins, Ármann Örn Ár-
mannsson, hélt ræðu á aðalfund-
inum og sagði hann þá m.a.:
„Stærsti þáttur verktakastarf-
semi er annað hvort framkvæmd-
ur af ríkinu sjálfu eða ríkið er
verkkaupi.
Þar sem ríkið er hvorugt þetta
eins og í íbúðarbyggingum, er hið
opinbera engu að síður ráðandi
sem skömmtunaraðili fjármagns
og lóða.
Hið opinbera ræður einnig oft
að verulegu leyti hagkvæmni
framkvæmda, því miður oft með
geðþóttaákvörðunum eða hend-
ingu. Sem lítið dæmi má nefna að
byggingarkranar, sem hagkvæm-
ara gæti oft verið að nota við verk-
framkvæmd, leggur ríkið á í toll-
heimtu nánast sömu upphæð og
þarf að greiða erlendum seljanda
fyrir tækið, meðan það tekur að-
eins helming innkaupsverðs af
bílkrana, en án þessarar minnkun-
ar í gjaldheimtu ríkisins gæti
bílkraninn verið mun óhagstæðari
í rekstri við viðkomandi verk.
Ríkisvaldið okkar, með þing-
mennina í stafni, leggur vegi og
Ríkið leggur vegi og hafiiir
þriðjungi dýrar en hægt er
Ólafur Þorsteinsson
reisir hafnir þriðjungi til helmingi
dýrara heldur en við verktakar
treystum okkur til og hefur tak-
markaðan áhuga á að breyta.
Það er líka talað um af hinum
opinberu embættismönnum að
þeir gætu misst vinnuna, ef verk-
efni þeirra væru minnkuð þó ekki
sé nú talað um öll mikilvægu
tímavinnuatkvæðin heima í hér-
aði.
Við verktakar erum þeirrar
skoðunar að starfsmenn ríkisins,
sem vinna að verktakaiðnaði,
væru almennt til þess líklegir að
skila enn betri afköstum, ef þeir
væru starfandi í frjálsum verk-
takaiðnaði og þar fengju þeir
vissulega störf, ef verkefnin færð-
ust til hans.
Við höfum beint því til þing-
manna að ekki væri óeðlilegt að
gerð yrði úttekt á opinberum
framkvæmdum eftir að nú hefur
verið starfað eftir lögum um skip-
an opinberra framkvæmda í 10 ár
og sú úttekt væri gerð með þátt-
töku hins frjálsa verktakaiðnaðar
en ekki eins og oft vill brenna við,
að opinberir starfsmenn skoðuðu
eigin störf sjálfir."
Vara-heimsforseti Junior Chamber:
„Hlýtt viðmót Islendinga bætir
upp kuldalega ásjónu landsins“
Virendra Patel afhendir forseta íslands, Vigdisi Finnbogadóttur, gjafir JC-hreyfingarinnar. í fylgd Patel er Kári
Jónsson varalandsforseti Junior Chamber á fslandi. Ljósmynd M»r«unbl.Ai« Krisiján Ein.rsson.
Alþjóðlegur varaheimsfor-
seti samtakanna Junior
Chamber International var ný-
verið í heimsókn á íslandi og
ferðaðist m.a. um Norðurland
og Austurland. Varaforsetinn
er Virendra Patel frá Zimb-
abwe. Blaðamaður Mbl. ræddi
við Patel og spurði hann fyrst
hverra erinda hann væri hér á
landi.
„Sem alþjóðlegur varaforseti
hef ég eftirlit með JC-hreyfing-
unum í Svíþjóð, Noregi, Dan-
mörku, Finnlandi og á Islandi,
og er því hér í embættiserindum.
Þessi ferð mín hingað hefur ver-
ið ævintýri líkust. Þetta er í ann-
að sinn á ævinni að ég sé snjó, sá
fyrst snjó í janúar í Bandaríkj-
unum. En það verð ég að segja,
að þótt hér kunni að vera svolítið
kuldalegt um að litast, þá bætir
hlýtt viðmót íslendinga það upp,
og vel það.
Ég hef farið og heimsótt
JC-félög á Norðurlandi og Aust-
urlandi, var viðstaddur stofnun
nýs aðildarfélags á Eskifirði, sat
fund hér á Reykjavíkursvæðinu
og sótti Vestmanneyinga heim.
Þá var ég að koma frá forsetan-
um ykkar, en honum afhenti ég
gjöf frá samtökunum.
Auk venjulegra embættis-
starfa, hef ég fjallað aðallega um
samskipti norðurs og suðurs í
þessari heimsókn. Samskipti
ríkra þjóða og snauðra er mál,
sem JC-hreyfingin hefur látið til
sín taka. Við höfum um árabil
lagt ríka áherzlu á alls kyns
samfélagsstarf, og er JC-hreyf-
ingin á Islandi til fyrirmyndar
að því leyti. Við teljum okkar
samtök einkar fær til að vinna
að vandamálum eins og sam-
skipti norðurs og suðurs eru,
samtökin eru ópólitísk og gegna
ekki hagsmunagæzlu, heldur
hafa þau unnið að bættu samfé-
lagi, án tillits til stjórnmála-
skoðana, litarháttar eða menn-
ingarhátta.
Það er von okkar, að hægt
verði að ráðast að rótum þess
vanda, sem fátækari þjóðirnar
eiga við/að stríða, og að vinna
megi bug á honum. Af þessum
sökum hefur JC-hreyfingin helg-
að sig þessum málum í bili, og
það gleðilega er, að vaxtarbrodd-
urinn í JC-hreyfingunni er ein-
mitt í þróunarlöndunum. Þar fer
nú fram öflugt leiðbeinendastarf
á ýmsum sviðum og við teljum
okkur vera á réttri braut. Sam-
tök á borð við okkar eru að ýmsu
leyti færari um að vinna að
lausn vandamála í samskiptum
ríkra þjóða og snauðra, það er
talandi dæmi um hvað hags-
munatogstreitan getur haft lít-
inn árangur í för með sér, að það
tók fulltrúa þjóðanna, sem þátt
tóku í Cancun-fundinum, heila
sex mánuði að komast að sam-
komulagi um hvernig viðræð-
urnar skyldu fara fram og um
hvað skyldi rætt á fundinum.
Niðurstaða fundarins var síðan
sú, að ákveðið var að halda ann-
an fund síðar."
Þar sem Virendra Patel er frá
Zimbabwe var hann spurður út í
stöðu mála þar í landi, og hverj-
ar líkur hann teldi vera á frið-
samlegri sambúð þjóðarbrot-
anna, sem þar búa. Patel er frá
hundrað þúsund manna land-
búnaðarmiðstöð Gatooma, sem
er 130 km suðvestur af Salisburg
og á þar sæti í borgarstjórn.
„Það gefur augaleið að 12 ára
stríð setur strik í reikninginn,
þessi átök höfðu slæm áhrif á
allt þjóðlíf og efnahagslíf lands-
ins. Og atburðirnir núna síðast
benda til þess, að enn sé ekki öll
hætta á einhvers konar vopnaðri
valdabaráttu úr sögunni, þótt
fullvíst megi telja, að allur al-
menningur, án tillits til litar-
háttar, eigi þá ósk æðsta, að ekki
verði gripið til vopna á ný.
Zimbabwe byggir fólk, sem á
ólíka menningararfleifð, en
þetta fólk virðist geta blandast
saman og starfað við hlið hvers
annars án nokkurra örðugleika.
Það getur varla heitið að nokkur
togstreita sé milli hinna ólíku
þjóðarbrota, og ef eitthvað er, þá
tel ég að okkar margbrotna og
ólíka menning sé sá styrkur sem
hægt verði að byggja framtíð
landsins á.
Að ýmsu leyti á Zimbabwe
langt í land með að treysta efna-
hag sinn og skjóta fastari rótum
undir hann, þar sem 75% þjóð-
arinnar búa við landbúnað. En
þessi sjö milljóna þjóð er betur
sett en ýmsar aðrar Afríkuþjóð-
ir, og m.a. er unnið mjög ákveðið
að því að útrýma fátækt meðal
okkar. Það sem háir okkur að
ýmsu leyti, er að stór hluti þjóð-
arinnar býr enn við ættflokka-
kerfi, þar sem fjölkvæni tíðkast.
Á þessu þarf að verða breyting
og þörf er mikillar fræðslu á
sviði fjölskyldumála. Þá er
margt ógert eða skammt á veg
komið í menntamálum. En það
sem við þurfum þó ef til vill
fyrst og fremst á að halda, er
alþjóðleg aðstoð við að treysta
efnahag okkar, einkum þurfum
við á því að halda, að útlend
iðnfyrirtæki fjárfesti í fram-
leiðslutækjum í landi okkar. Þau
hafa hingað til viljað halda að
sér höndum, vilja bíða og sjá og
treysta sér ekki til að koma fyrr
en þau eru fullviss um að tryggt
jafnvægi komist á í öllu þjóðlífi
eftir hin langvinnu valdaátök,
sem hrjáðu Zimbabwe í rúman
áratug," sagði Virendra Patel að
lokum.