Morgunblaðið - 31.03.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
43
ÚTVEGSBANKINN
Greinilega bankinn íyrir þig líka.
ak;i.ysin<;\siminn kr
22480
Ploroutil)lnöil)
Ferðaskrifstofa stúdenta
veitir góða og ódýra þjón-
ustu og á örugga framtíð
— segir Sigríður Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar
„FYRSTA SKREFIÐ í rekstri Ferðaskrifstofu stúdenta var
stigið um jólin 1979, en þá gekkst Stúdentaráð fyrir hópferð
með leiguflugi til Kaupmannahafnar. í þann tíma var verðlag
á fargjöldum tiltölulega hátt, en SHÍ gat boðið viðráðanlegt
fargjald svo dæmið gekk upp. Sumarið 1980 skipulagði Fé-
lagsstofnun stúdenta síðan fjögur leiguflug til Kaupmanna-
hafnar í samvinnu við íslendingafélögin í Danmörku og
Suður-Svíþjóð og tókst þetta nokkuð vel yfir heildina.
Ferðatíminn var miðaður við
námsmenn hér heima og frí
þeirra, sumar með það í huga að
þeir stunduðu einhverja vinnu úti,
en aðrar fyrir skemmri tíma.
Einnig var miðað við það að
námsmenn erlendis gætu notfært
sér leiguflugið til heimferðar. Ég
byrjaði að vinna við ferðamálin
hér þetta sumar og eftir reynsluna
af þessu var talinn fullur grund-
völlur fyrir rekstri ferðaskrifstofu
og því var hún endanlega stofnuð
formlega um haustið 1980 og hóf
störf í nóvember," sagði Sigríður
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu stúdenta, í sam-
tali við Morgunblaðið er hún var
beðin að skýra frá rekstri ferða-
skrifstofunnar.
„Þetta sumar hafði verið lægð í
íslenzkum flugrekstri og tilhneig-
ing til lækkunar fargjalda farin að
gera vart við sig og apex-fargjöld
voru þá kynnt í fyrsta sinn um
jóiin 1980. Við gerðum okkur grein
fyrir því að við yrðum að starfa á
allt öðrum grundvelli en almennar
ferðaskrifstofur, þar sem ferða-
skrifstofa stúdenta höfðar til allt
annars hóps en þær. Þess vegna
höfum við einbeitt okkur fyrst og
fremst að því að þjóna náms-
mönnum, en auk þess getum við
auðvitað veitt hverjum sem er alla
alhliða ferðaþjónustu, þar sem við
höfum leyfi til rekstrar almennrar
ferðaskrifstofu. Hvað varðar þjón-
ustu við stúdenta stöndum við
mjög vel að vígi vegna aðildar
okkar að Alþjóða stúdentasamtök-
unum (ISTC) og Skandinavisku
samtökunum (SSTS), sem reka
mjög öfluga og mikla ferðaskrif-
stofuþjónustu. SSTS skipuleggur
og semur um stúdentaflug og er
mest með leiguflug innan Evrópu
og gerir sérstaka samninga við
ákveðin flugfélög á lengri leiðum.
Þannig fást lág stúdentafargjöld,
sem gilda ákveðna daga með
ákveðnum flugfélögum og gefur
SSTS út sína eigin farseðla. Þeir
gera líka fyrir hönd sinna aðildar-
félaga samninga við hótel alls
staðar í heiminum, þannig að
VIRKA
Klapparstig 25—27,
sími 24747.
Bómullarefni
650 litir og munstur.
Strauþjál, vönduö.
VIRKAV
Klapparstíg 25—27,
simi 24747. r
Bómullarefni
í fermingarkjóla og til
hverskonar sauma.
þjónusta þeirra er geysilega víð-
tæk.
Vandamálið, sem að okkur hér
heima snýr, er að koma fólkinu út
úr landinu inn í ferðakerfi SSTS á
skikkanlegum fargjöldum. Nú er
verið að ganga frá ferðum héðan í
sumar og við reynum að halda
verðinu niðri með því að beina
ferðum á ákveðna staði. Því hefur
verið stefnt á Kaupmannahöfn og
verður þar um þrjá valkosti að
ræða: Tveggja vikna ferðir með
gistingu á farfuglaheimilum eða
sumarhúsum, sem eru mjög ódýr-
ar. Þá eru mánaðar ferðir og er
þar innifalið í verði flug og lest-
arkort („interrail"), sem gildir
fyrir þá, sem ekki hafa náð 26 ára
aldri. Lestarkortin gilda til
ótakmarkaðra ferða með lestum í
Vestur-Evrópu, Júgóslavíu, Ung-
verjalandi og Rúmeníu og kosta
kortin innan við 2.000 krónur. Þá
er þriðji kosturinn ein löng ferð
með leiguflugi. Farið verður frá
íslandi 8. júní og heim verður
komið 25. ágúst. Þá eru einnig
ferðir til Amsterdam í athugun.
Ferðir SSTS hefjast flestar í
Kaupmannahöfn og Amsterdam
og eru því góðir möguleikar fyrir
stúdenta að halda áfram út í
heiminn í tengslum við þessar
ferðir. SSTS þjónar öllum náms-
mönnum, fjölskyldum þeirra og í
mörgum tilfellum kennurum
sömuleiðis. Auk þess getur allt
ungt fólk undir 26 ára aldri not-
fært sér nær alla þjónustu SSTS.
Þá annast Ferðaskrifstofa stúd-
enta farmiðasölu og hótelpantanir
innanlands og nú leita námsmenn
til ferðaskrifstofunnar í auknum
mæli með ýmiss konar fyrir-
greiðslu. Frá 1. maí geta allir
Sigríður Magnúsdóttir, fram kvæmdastjóri Feröaskrifstofu stúd-
enta. I.jósrmnd Mhl. Krislján.
námsmenn fengið fjórðungs af-
slátt af ferðum innan lands. Þá
hefur tekizt vel að skipuleggja
náms- og kynnisferðir til Kaup-
mannahafnar og London, en það
háir okkur nokkuð hve hátt verð-
lag er á Norðurlöndunum.
Sem betur fer er námsfólk farið
að taka betur við sér og gerir sér
betur grein fyrir þeim möguleik-
um, sem Ferðaskrifstofa stúdenta
hefur til að veita góða og ódýra
þjónustu. Reynslan sýnir að
Ferðaskrifstofa stúdenta á fram-
tíð fyrir sér, en hún byggist einnig
á því að stúdentar veiti henni
brautargengi með því að skipta við
hana,“ sagði Sigríður að lokum.
ÁBYRGÐARTÉKKAR Á ÚTVEGSBANKANN ERU
ÖRUGGUR
GIALDMH>ILL
Útgeíandinn sýnir þér skilríki sem sannar heimild hans til útgáíu
ábyrgðartékka. Á skírteininu stendur hve hár tékkinn megi vera.
Bankinn ábyrgist innlausnina.