Morgunblaðið - 31.03.1982, Page 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
Rektorskjör
Frá æflngu á „Hassið hennar mömmu“. Margrét Ólafsdóttir, Gísli Halldórsson og Kjartan Ragnarsson
í hlutverkum sínum.
Leikfélag Reykjavíkur:
LR sýnir nýjan ærslaleik
haldsnáms í verkfræði við háskól-
ann í Karlsruhe hafði verið í und-
irbúningi um hríð og komst á
haustið 1980 og hafði prófessor
Einar Pálsson veg og vanda af því
af okkar hálfu. Sparar samningur-
inn íslenskum nemendum u.þ.b. ár
í námi.
Kannað hefur verið lauslega í
nokkrum öðrum þýskum háskól-
um um undirtektir að þessu leyti,
en samningar ekki verið gerðir.
Gerður hefur verið samningur
við Minnesolaháskóla um aðstöðu
fyrir kennara og niðurfellingu
skólagjalda þar fyrir tiltekinn
fjölda nemenda. Samningur hefur
þegar verið undirritaður við
Washingtonháskóla í Seattle um
lækkun skólagjalda fyrir nemend-
ur í byggingarverkfræði. Einniger
verið að koma á samstarfi við há-
skólann í Fort Collins í Colorado,
sérstaklega varðandi rannsóknir á
áhrifum vinda á byggingar o.fl., en
rannsóknaaðstaða á þessu sviði
verður í næstu nýbyggingu vestan
Suðurgötu.
Numerus clausus
í læknisfræði
Ein erfiðasta ákvörðun háskóla-
ráðs á sl. háskólaári var um tak-
mörkun á fjölda nemenda í lækn-
isfiæði sem flytjast yfir á 2. ár
haustið 1982. Er fjöldinn 36 auk
nokkurra útlendinga, en talið var,
að ekki væri unnt að anna 70—80
manna árgöngum í klíniskri
kennslu (en tveir árgangar eru
þetta stórir). Samkvæmt gildandi
reglugerð skal taka þá ákvörðun
árlega. Fjöldatakmarkanir eru
sem kunnugt er einnig í tannlækn-
ingum (8), og sjúkraþjálfun (20).
Háskólinn verður að tryggja gæði
náms hverju sinni. Jafnframt
verður hann að hafa víðtækt
sjálfræði í ákvörðun um nýjar
námsgreinar og námsleiðir, sbr.
nýlega ákvörðun um nám í félags-
ráðgjöf og lokapróf í lyfjafræði
lyfsala.
Stjórnunarskylda
Háskólaráð samþykkti nýlega
breytingu á vinnuskyldureglum.
Stjórnunarskylda hækkar úr 10 í
15% og yfirvinnuþak hækkar.
Endurskoðun á stjórnunaraukum
er í gangi.
Mikil spenna er nú í launamál-
um háskólamanna, sérstaklega
þar sem bein viðmiðun við hinn
frjálsa markað er nærtæk og
vegna þeirrar launamálastefnu
sem rekin er af opinberri hálfu.
Þetta verður að breytast, því það
er hlálegt þegar nýútskrifaðir
nemendur fá hærri byrjendalaun
á almennum markaði en kennarar
þeirra eftir áratuga starf og nám.
Álverkpallar
Til sölu — leigu
Spariö fé og tíma, mjög fljót
uppsetning. V-þýsk gæöavara,
mjög góð reynsla hér á landi.
Leitiö upplýsinga!
Pallar bf.
Vesturvör 7, Kópavogi,
simi 42322.
Kaup á Reykja-
víkur Apóteki
Háskólinn tók við rekstri
Reykjavíkur Apóteks 1. janúar
1981 skv. kaupsamningi. Heil-
brigðisráðherra hefur ekki enn
gefið út lyfsöluleyfi á nafn Há-
skóla íslands, en fyrir Alþingi
liggur nú frumvarp til breytinga á
lyfsölulögum, þannig að ótvíræð
heimild fáist að mati ráðherra til
að gefa út leyfið. Háskólinn telur
hins vegar heimild næga til þess í
lögum um Háskóla íslands.
Helstu ákvörðunar-
atriði á næstunni
fyrir utan að sjá til þess að
rekstur og framkvæmdir gangi
sem best, eru helstu mál framund-
an þessi:
1. Til þess að rekstur háskólans
geti gengið eðlilega, þarf leið-
réttingu af hálfu fjárveitinga-
valdsins eins og við afgreiðslu
fjárlaga fyrir 1982.
2. Fá þarf heimild til að dreifa
lánsbyrði vegna tækjakaupa
fyrir tannlæknadeild á lengri
tíma en eitt ár.
Frá og með 1984 þarf að gera
nýtt samkomulag um fram-
kvæmdafé til nýbygginga há-
skólans til viðbótar happdrætt-
isfé.
3. Staðfestingu þarf að fá hjá
borgaryfirvöldum á skipulagi
fyrir miðsvæði háskólans.
4. Háskólaráð þarf að ákveða
skipulag rannsóknamála, eink-
um þjónusturannsókna.
5. Afstöðu þarf að taka til nýs
náms, bæði nýrra námsgreina
og nýrra sviða. Allsherjarút-
tekt á stöðu háskólans í þessum
efnum og stefnumörkun svipuð
og í háskólaskýrslunni 1969 er
orðin tímabær. Má hér minna á
þingsályktun um kennslu í út-
vegsfræðum, umræður um
hjúkrunarnám o.fl.
Er ég helst á þeirri skoðun, að
þetta starf eigi að vinna í háskól-
anum og að frumkvæði hans. Til
þessa þarf að virkja marga aðila,
því að rektor einn getur ekki
ákveðið hvað koma skuli eftir
5-10 ár.
6. Koma þarf á kerfisbundinni
söfnun upplýsinga og miðlun
þeirra.
Niðurlag
Framfarir á sviði tækni og vís-
inda eru örar. Islenskt þjóðfélag
er á miklu breytingaskeiði. Há-
skóli Islands hefur því hlutverki
að gegna að varðveita íslenska
tungu og menningu og skila frá
sér fólki sem kemur til með að
móta þjóðfélagið á næstu áratug-
um, allt fram á næstu öld.
I háskólanum eru starfandi
menn með menntun frá bestu
menntastofnunum í veröldinni
sem eru tilbúnir að axla þessa
ábyrgð og leysa þau verkefni sem
krefjast úrlausnar hér á mörkum
hins byggilega heims. (Ég vil
skjóta því hér inn, að verið er að
taka saman yfirlit yfir menntun
háskólakennara sem birt verður í
árbókinni 1980/81 sem kemur út í
vor.)
Háskólinn sjálfur hefur tekið
ótrúlegum breytingum á undan-
förnum áratugum. Ég leit mér til
gamans í kennsluskrána. Þar
kemur fram, að 82% af kennurum
hafa verið skipaðir eða settir á sl.
10 árum, sbr. meðf. töflu:
KKNNAKAK SKII'AIUK KDA SKTI IK
f. I'172 e. 1972
PrófcHSOrar 29 (35) 53 X2
l)ós<nfar 9 (10) 7X X7
lx‘klorar 1 (0,2) 53 54
39 (IX) 1X3(X2) 223
Ég hef gefið kost á mér til
endurkjörs. Það er bæði af því að
ég hef áhuga á að koma fleiri mál-
um í höfn og því að ég vil gera
háskólann að enn betri vinnustað
og meira áhrifaafli í þjóðfélaginu
með því að leggja mitt af mörkum
til að virkja þann brennandi
áhuga og kunnáttu sem felst í
þeim mannauði sem hér er til
staðar.
eftir Dario Fo
4. APRÍL næstkomandi frumsýnir
læikfélag Reykjavíkur ærslaleikritið
llassið hennar mömmu eftir Dario
Fo. Eins og nafnið ber með sér fjall-
ar leikritið um fíkniefnaneyslu en
eins og þessum ítalska þúsundþjala-
smið er lagið, þá fléttar hann saman
gamni og alvöru þannig að jafn al-
varlegt mál og hassreykingar og
heróínneysla verða tilefni ótrúleg-
asta skops og skemmtunar. Undir-
tónn verksins er þó alvarlegur og er
þar sýnt fram á skaðsemi og hættu
þá sem stafað getur af neyslu fíkni-
efna.
Leikritið gerist á Ítalíu og hefst
STRENGJASVEIT Tónlistarskól-
ans í Reykjavik stendur um þessar
mundir fyrir tvennum tónleikum.
Þessir tónleikar eru haldnir í fjár-
öflunarskyni, en sveitin hyggst
taka þátt í alþjóðlegri keppni
ungra strengjaleikara, sem fer
fram í Belgrad í Júgóslaviu næsta
haust.
Fyrri tónleikarnir verða mið-
vikudaginn 31. þ.m. að Kjar-
á því að ungur piltur, sem farinn
er að fikta við hassreykingar og
jafnvel sterkari fíkniefni, kemur
að móður sinni og afa reykjandi
hass af fullum krafti og reyndar
eru þau líka farin að rækta þessa
jurt af kappi. Upphefst þar með
alls lags misskilningur og koma
þar einnig við sögu forfallinn
heróínneytandi, ung og glæsileg
nágrannakona, fótbrotinn frændi
fjölskyldunnar og mafíuprestur úr
hverfinu. Með hlutverkin fara
Margrét Ólafsdóttir, sem leikur
móðurina, Gísli Halldórsson leik-
ur afann, Emil Gunnar Guð-
mundsson, sem fram að þessu hef-
ur einkum verið þekktur fyrir leik
valsstöðum og hefjast kl. 20:30.
Þetta eru kammertónleikar og
verða flutt verk eftir Hándel,
Dvorak, Beethoven og Schu-
mann. Flytjendur eru félagar úr
strengjasveitinni og með þeim
tveir píanónemendur og semb-
alnemandi ásamt kennurum
strengjaleikaranna, þeim Guð-
nýju Guðmundsdót.tur og Mark
Reedman.
Síðari tónleikarnir verða í
sinn í hlutverki Þórbergs í Ofvit-
anum fer með þriðja stærsta hlut-
verkið, soninn Luigi. Þá leikur Að-
alsteinn Bergdal eiturlyfjaneyt-
anda, Kjartan Ragnarsson frænd-
ann í fíkniefnalögreglunni,
Ragnheiður Steindórsdóttir stúlk-
una Cameliu og Guðmundur
Pálsson prest.
Þýðingin er eftir Stefán Bald-
ursson, leikmynd og búninga gerir
Jón Þórisson og leikstjóri er Jón
Sigurbjörnsson, sem leikstýrt hef-
ur mörgum vinsælustu sýningum
Leikfélagsins, þeirra á meðal
Rommí, Fló á skinni, Skjaldhömr-
um og Þið munið hann Jörund.
(Fréll frá LK)
Bústaðakirkju mánudagskvöldið
5. apríl og hefjast kl. 20:30. Þar
flytur strengjasveitin verk eftir
Purcell, Elgar, Bach og Grieg en
stjórnandi sveitarinnar er Mark
Reedman.
Aðgangur að tónleikunum
verður seldur við innganginn og
er kr. 100 og allir sem koma telj-
ast styrktarvinir strengjasveit-
ar Tónlistarskólans í Reykjavík.
Borgarnes:
84% þátttaka var í prest-
kosningunum um helgina
Borjfarnusi, 29. mars.
PRESTKOSNINGAR fóru fram
í Borgarprestakalli á sunnudag.
Mjög mikil kosningaþátttaka
var, eða um 84%, 1080 af þeim
1289 sem voru á kjörskrá neyttu
atkva*ðisréttar síns á kjördag en
engin utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla fer fram í prestkosning-
um. Kosning er því lögmæt. Um-
sækjendur eru 4, sr. Friðrik J.
Hjartar, sr. Olafur Jens Sigurðs-
son, Þorbjörn Hlynur Árnason
cand. theol. og Önundur Björns-
son cand. theol.
Að sögn Magnúsar Guð-
jónssonar biskupsritara er svo
mikil kjörsókn óvenjulega
mikil í prestkosningum í svo
stóru prestakalli og með því
mesta sem þekkist. Atkvæði
verða talin á biskupsstofu 1.
apríl, þ.e. ef öll gögn hafa þá
borist þangað og fæst þá loks
úr því skorið hver umsækjend-
anna um brauðið hlýtur flest
atkvæði. Til þess að kosningin
sé bindandi fyrir kirkjumála-
ráðherra þarf einhver um-
sækjandinn að fá helming
greiddra atkvæða, nái enginn
helmingi greiddra atkvæða er
kosningin ekki bindandi, en
ráðherra hefur sjaldnast farið
aðrar leiðir en að skipa þann
sem flest atkvæði hlýtur í slík-
um tilvikum.
Einhver þessara heiðurs-
manna sest síðan að á Borg á
Mýrum þann 1. maí í vor sem
prestur allra í prestakallinu.
Óskandi væri að hinn mikli
áhugi sem verið hefur á kirkj-
unni í þessari hörðu kosn-
ingabaráttu haldist eitthvað
áfram og að allir taki nýja
prestinum vel, hver svo sem
hann verður.
Prestkosningar fara fram
skv. lögum sem komin eru á
ellilífeyrisaldur og hafa víst
ekkert leitað til læknis allan
þann tíma. Nú hlýtur að vera
kominn tími til að lækna þau
eitthvað og samræma breytt-
um tímum, t.d. að telja strax
að loknum kjörfundi heima í
héraði, og að viðhafa utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðslu.
HBj
Strengjasveit Tónlistar-
skólans með tvenna tónleika