Morgunblaðið - 31.03.1982, Qupperneq 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
racnnu-
ípá
IIRÚTURINN
21. MARZ—19.APR1L
Byrjadu ekki aprílmánuÁ á því
art vera kærulaus með peninga.
Kinhver þinna nánustu á við
veikindi að stríða og gæti þurft
á læknishjálp að halda.
NAUTIÐ
2fl. APRlL-20. MAl
l*ú átt erfitt með að einbeita þér
í dag vegna sífelldra truflana
sem neyða þig til að hætta við
það sem þú ert að gera. Gættu
að mataræðinu og reyndu að
koma þér í betra form.
TVÍBURARNIR
lWS 21. MAl —20. JÚNl
l*ér fmnst þú ekki hafa nóg að
gera i dag en gættu þess að ana
ekki óhugsað út í neitt. I*ú þarft
skyndilega að fara að hafa
áhyggjur út af verkefni sem
hingað til hefur gengið svo vel.
KRABBINN
21. JÚNl —22. JÚLl
F'jölskyIduvandamálin hrannast
upp og koma þér alveg úr jafn-
vægi. Áætlanir dagsins renna út
í sandinn og reyndu að láta fólk
vita í tíma að þú komist ekki á
þeirra fund.
LJÓNIÐ
23. JÍILl—22. ÁCCST
lleilsa þín hefur neikvæð áhrif
á vinnu þína í dag. I*að er betra
að liggja í rúminu einn, tvo
daga, heldur en að þrauka
áfram og verða enn verri.
MÆRIN
23. ÁGCST-22. SEPT.
Farðu varlega með peningana
þína, þú átt ekki eins mikið af
þeim og þú heldur. Vinur þinn
sem hefur sýnt þér mikinn kær-
leik biður þig um greiða sem þú
getur ekki neitað.
Wh\ VOGIN
23.SEPT.-22.OKT.
I»ér líður ekki vel í dag, þér
finnst eins og allir séu að reyna
að gabba þig. Sýndu að þú hafir
kímnigáfu. I*ú skalt ekki byrja
á neinum nýjum verkefnum í
dag.
DREKINN
23. OKT.-21. NÓV.
Kf þú gætir þín ekki verður þú
aldeilis látin hlaupa apríl i dag.
Forðastu allt leynimakk, þú
skalt láta þér nægja lítil verk-
efni.
BOGMAÐURINN
22. NÓV.-21. DES.
Fljótfærnislegar ákvarðanir eru
ekki þær réttu í dag. I*ú verður
fyrir vonbrigðum með hvernig
gengur í vinnunni, en þetta er
aðeins tímabundið ástand, svo
þú skalt ekki láta það á þig fá.
ffl
STEINGEITIN
22. DES.-19. JAN.
I»ú færð einhverjar fréttir með
póstinum í dag sem valda þér
áhyggjum. (iættu tungu þinnar
gagnvart ástvinum. Vinnuáætl-
un þín fer eitthvað út um þúfur
vegna þess að fjölskyldumálin
taka meiri tíma en þú bjóst við.
H'fjjl VATNSBERINN
ks*iSS 2fl. JAN.-18. FEB.
Mánuðurinn byrjar ekki eins
skemmtilega og þú bjóst við.
Ileilsan er eitthvað að angra
þig, líklega tannpína eða háls-
bólga. Keyndu að láta það ekki
fá mikið á þig þó allt gangi ekki
að óskum.
FISKARNIR
^3 19. FEB.-20. MARZ
l*ú skalt ekki búast við of miklu
í dag og þá verður þú heldur
ekki fyrir vonbrigðum. Ástar-
málin ganga ekki of vel í dag.
(■ættu þess að vera ekki að taka
ákvörðun í máli sem þú ræður
ekkert um.
dýraglens
LJÓSKA
TOMMI OG JENNI
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Mörg spil gefa tilefni til
hinna svívirðilegustu lymsku-
bragða. Sjáðu t.d. hvernig
lúmski seiðskrattinn í suður
galdraði heim 4 spaða í þessu
spili:
Vestur Norður s KD7 h G52 19843 ID72 Austur
s 1064 s 53
h D8643 h 109
t K75 t ÁG6
196 1 ÁG10853
Suður s ÁG982 h ÁK7 t D102 1 K4
Austur hafði ströglað á
laufi og vestur spilaði út
laufníunni. Sagnhafi fékk að
eiga fyrsta slaginn á laufk-
ónginn og spilaði strax litlum
spaða á borðið. Vestur lét lítið
— nema hvað?! — en þá var
sjöan í blindum látin duga!!
Þvílík svívirða! En samn-
ingurinn var ekki í höfn enn-
þá. Næst kom tigull á tíuna
og kónginn. Vörnin spilaði þá
tvisvar laufi, en sagnhafi
stakk frá og fór inn á blindan
til að spila á tíguldrottning-
una. Og nú var spilið unnið.
Austur fór upp með tígulás-
inn og reyndi hjarta. En það
var drepið á ásinn, tígul-
drottning tekin og blindum
spilað inn á tromp. Þrettándi
tígullinn var svo tíundi slagur
sagnhafa.
Vörnin gat tvisvar hnekkt
spilinu. Vestur hefði eyðilagt
mikilvæga innkomu á borðið
með því að stinga upp
tromptíunni þegar trompinu
var fyrst spilað. En honum er
vægast sagt vorkunn.
Austur átti kannski betri
möguleika. Hann gat rokið
upp með tígulásinn þegar
sagnhafi spilaði fyrst tígli úr
blindum. Þá gæti vestur síðar
þegar hann kæmist inn á tíg-
ulkónginn stíflað tígullitinn
með því að spila trompi.
Farðu yfir það.
En sennilega er austri tals-
verð vorkunn líka, því það
væri ekki gott að fara upp
með ásinn ef suður ætti KDx í
tígli.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
I júgóslavnesku deilda-
keppninni í fyrra kom þessi
staða upp í skák þeirra Buj-
akovic og Bistric, sem hafði
svart og átti leik.
19. — Rb3+!, 20. axb3 -
De3+, 21. Kbl — Hdl+, 22.
Ka2 — Del og hvítur gafst
upp því hann er óverjandi
mát. Meðal þátttakenda í
keppninni, sem fór fram i
haust, voru hvorki meira né
minna en 18 stórmeistarar og
28 alþjóðameistarar.