Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
91
— Minnisstædar ferðir?
„Margs er að minnast frá þess-
um árum. Haustið 1936, að mig
minnir, þegar færð var orðin erf-
ið, það var komið fram í október,
sótti ég farþega í Hrútafjörð og
aetlaði með þá til Akureyrar. Þeg-
ar leið á daginn byrjaði að snjóa
svo við brugðum á það ráð að
gista á Blönduósi. Leiðindaveður
var komið þegar við lögðum af
stað að morgni, komin norðanhríð
svo ófært var talið til Akureyrar.
Ég brá því á það ráð að halda til
Sauðárkróks. Þar létum við fyrir-
berast um nóttina, en að morgni
var allt orðið kolófært og ljóst að
ekki kæmist ég með farþegana til
Akureyrar og illt var að þurfa að
sitja uppi með bílinn á Sauðár-
króki yfir veturinn.
Skip var þá statt á Sauðárkróki
og brugðið var á það ráð að senda
farþegana með því til Akureyrar.
En ég varð eftir á Sauðárkróki og
leist heldur illa á blikuna. Ein-
sýnt var að ekki kæmist ég til
Akureyrar, en taldi möguleika á
að komast suður. Um kvöldið hitti
ég Karl Friðriksson, vegaverk-
stjóra, en hann var þá staddur á
Sauðárkróki eins og ég og með 17
manna vegavinnuflokk og fýsti að
komast suður.
Vonlaust var talið að komast
vestur yfir Vatnsskarð og til
Blönduóss, en Karl lagði hart að
mér að freista þess að kómast yfir
Skarðið og síðan suður. Við
ákváðum að freista þess að brjót-
ast vestur yfir Skarðið og lögðum
af stað morguninn eftir. Okum
inn Skagafjörð en þegar kom að
Víðimýri var kolófært þegar í
fyrstu brekku. Vegurinn var
niðurgrafinn og snjóþungur og
einsýnt að hann kæmust við ekki.
Við urðum því að moka okkur leið
upp á Skarðið utan vegar og menn
Karls hófust handa. Verkfæri
þeirra voru skóflur og þeir tóku
til óspilltra málanna, mokuðu og
ýttu á víxl og upp á Skarðið kom-
umst við þegar leið að kvöldi.
í sneiðingunum, þar sem venjan
var að fara niður, var mikil fönn
og ljóst að þar myndi ófært niður.
Við brugðum á það ráð að aka
norður hábunguna og komum þar
sem er Þverárdalur og vegurinn
liggur nú um. En niður var bratt
og eina ráðið sýndist vera að fara
bara beint af augum og láta kylfu
ráða kasti. Mennirnir röðuðu sér
á bílinn, sem var 18 manna Stude-
baker, og lagt var niður snar-
bratta brekkuna. Billinn ruddi
snjó á undan sér, þannig að aldrei
varð mikil ferð á honum. Þannig
komust við í Bólstaðarhlíð og
Langidalur tók við, sem var talinn
illfær. Við höfðum samband við
Blönduós og menn lögðu upp til
móts við okkur. Með skóflum
mokuðu þeir sig austur á bóginn
og við vestur og til Blönduóss
komumst við klukkan tvö um
nóttina. Daginn eftir var komið
sæmilegt veður og ferðin til
Reykjavíkur gekk greiðlega.
Önnur haustferð er mér minn-
isstæð. Eftir að hafa brotist við
illan leik frá Blönduósi á tveimur
bílum með um 40 manns urðum
við að skilja bílana eftir á Grjót-
áreyrum á Öxnadalsheiði og
ganga í Bakkasel. Daginn eftir
héldum við að bílunum, en sáum
að vonlaust var að reyna að
hreyfa þá þann daginn. Þá var
hörkufrost og við komum þeim
ekki í gang. A þriðja degi komum
við bílunum í Bakkasel og á fjórða
degi til Akureyrar með aðstoð
leiðangurs, sem kom á móti
okkur. Vegir voru niðurgrafnir og
strax og snjóaði urðu þeir ófærir."
— Þú hættir akstri til Reykjavík-
ur 1939.
„Danskur maður hafði haft um-
sjón með varahlutaverslun BSA,
en Kristján hafði umboð fyrir
Ford-bíla. Daninn fór af landi
brott og ég tók við starfi hans og
einnig starfaði ég á bílaverkstæð-
inu. Þar með var ferðum mínum
með farþega um íslenzkar veg-
leysur lokið og skömmu síðar sótti
ég um starf í lögreglunni og nýtt
tímabil ævi minnar tók við,“ sagði
Gísli Ólafsson.
H.Halls.
mörkum til þess að vélin
verði sérlega sparneytin, en
samt aflmikil.
Já hinn nýji Mazda 929 er
eins og sniðinn fyrir nú-
tímafólk, rúmgóður, spar-
neytinn og nýtiskulegur i
útliti og að tæknilegri gerð.
Hafið samband við sölu-
menn okkar sem veita fús-
lega allar nánari upplýsing-
ar.
Nýr
Mazda
929
Mest seldi bíllinn á Islandi
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23, sími 812 99.
Nýr Mazda 929
þáttaskil í hönnun lúxusbíla.
Af hverju ?
Nútímahönnun fyrir
nútímafólk
Hinn nýji Mazda 929 er
hannaður og smíðaður í
anda þeirrar stefnu Mazda,
að beita skuli nýjustu
tækni og hagkvæmni í
framleiðslu til þess að búa
til bila, sem henti kröfum
kaupenda sem best.
Aðeins er notað það nýj-
asta í tækni og hönnun,
ásamt bestu hráefnum.
Og það sem er mest áríð-
andi; hver einasti hlutur,
hvert einasta stykki er
reynt og þrautreynt til að
tryggja það að eigandinn
njóti sem mestrar ánægju
af bílnum.
Fjaðrakerfi
Fjöðrunin cr þannig gerð
að hún verði sem mýkst, án
þess þó að góðir aksturs-
eiginleikar tapist, eða
hleðslugeta minnki.
Langar PcPherson gorma-
fjaðrir eru að framan og nú
er það nýjung að fjöðrun á
afturhjólum er einnig sjálf-
stæð með gormum.
Jafnvægisstangir eru bæði
að framan og aftan, til þess
að hafa bílinn sem stöðug-
astan í beygjum og þykkir
gúmmípúðar hindra að
fjöðrunin slái saman á
slæmum vegum.
Diskahemlar
á öllum hjólum
Að geta stöðvað bílinn
fljótt og vel er ekki síður
áríðandi en að hann komist
áfram. Hinn nýji Mazda
929 er með diskahemla á
öllum hjólum, eflaust eitt
besta hemlakerfið, sem völ
er á.
Diskar á framhjólum eru
kældir með loftraufum,
þannig að þeir ofhitna
ekki, jafnvel við neyðar-
hemlun.
Hemlakerfið allt er af nýrri
gerð, bæði léttara og sterk-
byggðara og gefur betri
hemlun en áður. Jöfnunar-
loki jafnar hemlunarátaki
milli fram og afturhjóia
eftir hleðslu bílsins, og nýtt
efni í bremsluklossum eyk-
ur endinguna að mun.
Nákvæmt
tannstangarstýri
í Mazda 929 er tannstang-
arstýri, er talið er gefa
bestu og nákvæmustu stýr-
issvörun, sem völ er á.
Það er Iykillinn að tilfinn-
ingu ökumannsins fyrir
veginum.
Auk þess að auka stórlega
öryggi, þá er tannstangar-
stýrið einnig mjög sterk-
byggt. Tveir hjöruliðir eru
á stýrisleggnum til að
mýkja stýrisátak og enginn
titringur finnst í stýri,
þegar bílnum er ekið hratt
á misjöfnum vegum.
Vökvastýri er fáanlegt í all-
ar gerðir Mazda 929. Það
er gætt þeim eiginleika að
gefa mismunandi mikið
hjálparátak eftir því hve
vél bílsins snýst hratt.
Þannig er stýrisátakið jafnt
án tillits til hraða bílsins.
Þetta er mikilvægt atriði,
þar sem ökumaðurinn
missir því aldrei tilfínningu
fyrir veginum.
Aflmikil og
sparneytin vél
Góð vélarorka og spar-
neytni geta farið saman.
Þetta sannast í hinum nýja
Mazda 929.
Vélin er 4ra strokka, vatns-
kæld, með yfirliggjandi
knastás, tveggja hólfa
blöndungi, ,,hemi”
sprengirými og 5 höfuðleg-
um. Allt þetta leggur sitt af
.ifii V11113 i i4l 13 ‘ í \ íníöni'iin^ | jj? % nunatii ij wají 1» 11 le mu .1 nfinnfi ,nni i1