Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 23

Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 103 Vid vii/um fara ad fljúga, en okkur vantar vaengi Flugvélarnar samgöngntee tiðarinnar l jpí *má hin fyrsta í heiminum. Seinna átti ég eftir að leita fyrir Norðurlandi, ýmist í leitarflugi eingöngu eða að við svipuðumst eftir síld í farþega- fluginu. Yfirleitt var leitað í 300—500 metra hæð yfir sjó, og sáust síldartorfurnar sem dökk- brúnir blettir á sjónum, og þegar nær kom, sást síldin vaða. Það var ætlazt til mikils af okkur í síldarleitinni. Við áttum að sjá hvort torfurnar væru ufsi eða síld. Bátarnir köstuðu sjálfir oft á ufsa og rifu allar nætur. Kom fyrir að þeir sögðu okkur hafa vís- að þeim í ufsann. Við létum þá vita af síld með því að kasta út sérstökum flotholtum sem inni- héldu síldarskeyti, svona rétt eins og við værum að senda flösku- skeyti. Bátarnir höfðu ekki tal- stöðvar, aðeins nokkrir togarar. Það voru allir ánægðir með leit- arflugið, þar til átti að borga. Það var þrasað hvenær við skyldum byrja á morgnana, sumir vildu klukkan þrjú, aðrir klukkan fimm o.s.frv. Greitt var fyrir síldarleit- arflugið með því að 10 aura skatt- ur var tekinn af hverju máli eða tunnu af herpinótarsíld og sett í sérstakan sjóð. Nauðlending Síldarleitin gekk jafnan snurðu- laust, ef nauðlending út af Skaga- firði í júlí 1931 er undanskilin. Það losnaði skrúfa á innsogsventli, hann stóð út með þeim afleiðing- um að eldur kviknaði í blöndungn- um. Það var strekkingur af norð- austri og haugasjór fyrir flugvél. Við vorum heppnir, Björn Olsen vélamaður og ég, lentum á einni öldunni, hoppuðum og settumst svo á þeirri næstu. Rak okkur síð- an í fimm stundir, komum upp að landi við Selvík á Skaga, þar sem komið var út á bátum til okkar. Á rekinu lömdu vængirnir öft öld- una, en betur fór en á horfðist um tíma. Fengum við að sofa á gólfinu í Selvík, sem var torfbær, en vél- inni höfðum við lagt við stjóra á víkinni. Gerðum við við bilunina næsta dag og héldum ferð okkar áfram. Nú, þetta haust hættum við svo að fljúga. Þá var kreppan komin í algleyming og allt í helvítis ves- eni. Eg var skuldum vafinn eftir flugnámið, sem kostaði 20 þúsund krónur. Útvegaði Alexander mér stöðu hjá Háskólahappdrættinu. Alexander var stórkostlegur mað- ur, langt á undan sinni samtíð. En hann var ekki fjármálamaður, hann var ídealisti mikill, og þetta flug okkar leið ef til vill eitthvað fyrir það. Það var svo seinna sem ég fór að fljúga aftur, þegar Flug- félagið, sem stofnað var upp úr Flugfélagi Akureyrar, réði allt í einu yfir tveimur flugvélum. Þetta var með þeim dugnaðarforkunum Agnari Kofoed-Hansen og Erni Ó. Johnson, á árunum 1940, ’41 og að hluta til 1942. í millitíðinni flaug ég þó Klemminum við og við, eins og við höfum svolítið rætt um.“ — En hvernig vildi það til, Sig- urður, að þú hófst flugnám? „Það er út af fyrir sig hægt að hafa langt mál um það. Það var um haustið 1928, þegar ég var sendiherra í íslandsbanka, eins og sendlar voru kallaðir í þá daga, að auglýsing birtist í blöðum, þar sem tilkynnt var, að ríkisstjórnin væri tilbúin að styrkja einn mann til flugnáms og þrjá til náms í vélfræði. Mér fannst engin fram- tíð í því fyrir ungan strák að verða bankastarfsmaður, svo þarna fannst mér mitt tækifæri komið, og sótti um. Um sumarið höfðum við félagarnir Sverrir Bernhöft, æskuvinur minn og vinur mikill alla tíð, Friðþjófur Johnson og ég farið í hringflug yfir bæinn með Junkers F-13 flugvélinni. Það var mikil upplifun, og var maður jafn- an spenntur að sjá flugvélina lyfta sér af ytri höfninni. Ég var hálfpartinn búinn að gleyma þessu öllu saman þegar ég fæ símhringingu í bankann einn góðan veðurdag. Þar var sjálfur Alexander Jóhannesson kominn, og biður hann mig að koma til sín í Vonarstræti 4 klukkan hálfníu um kvöidið, það sé í sambandi við umsóknina. Hjartað í mér tók stóran kipp, annars væri maður ekki normal. Auk mín mættu fimm aðrir hjá Alexander þetta kvöld, þar á meðal einn loftskeyta- maður, Ólafur Jónsson, Óli radíó, sem síðar varð yfirloftskeytamað- ur hjá Loftleiðum. Mér leist nú ekkert á þetta, taldi möguleika mína litla, og ekki bætti úr skák, þegar ég frétti, að kvöldið áður hefði annar álíka hópur verið til viðtals hjá Alexander. Gáfnapróf Þarna vorum við látnir þreyta eins konar gáfnapróf og voru þrautirnar fjórar. Ein prufan var í því fólgin, að lesin var upp lang- loka úr fornritum og við áttum að endursegja þetta og fengum til þess ákveðinn iíma. Ég hafði allt- af verið slæmur í sögu, svo mér leist ekkert á þetta, en hygg að þessi prufa hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá okkur flestum. Þá vorum við látnir draga línu í takt við taktmæli, áttum að mynda slaufu milli tveggja strika á blaði. Ég var búinn að ná góðum takti þegar allt í einu dúndra við þrjú skammbyssuskot úr næsta herbergi, en það var víst ætlunin með þessum látum að sjá hver i færi út af laginu. Auðvitað sást skotið í línunni, en ég ytti hausn- um til og hélt áfram og missti ekki taktinn. Hvort þetta hefur haft mikið að segja, skal ég ekki full- yrða um, en þegar við fórum, var okkur engu lofað og tekið skýrt fram, að þetta hefði bara verið til- raun, sem við skyldum ekki leggja frekar upp úr. Ég fór heim, og sagði móður minni, að mér fyndist ég ekki hafa staðið mig of vel í þessu prófi. Síð- an labba ég niður í bæ, að Nýja bíói, hitti þar Sverri, sem bjó í Vonarstræti 4, sama húsi og Alex- ander. Hann segir mér, að Alex- ander hafi komið upp til sín skömmu eftir prófið og sagt sér, að hann mætti segja mér að ég hafi orðið hlutskarpastur á próf- inu. Það munu hafa verið 26—28 sem sóttu um, en af þeim heltust margir fljótt úr lestinni, því þeir voru taldir of gamlir. Alexander mælir síðan með því við ráðuneytið, að mér verði veitt- ur styrkurinn. Þá tekur við lækn- isskoðun hjá Guðmundi Thorodd- sen, Gunnlaugi Einarssyni og Kjartani Ólafssyni læknum, og út held ég með gamla Goðafossi 3. október 1928. Fyrst um sinn bjó ég í Berlín hjá þeim Friðrik Dungal og Bergi Gíslasyni, sem síðar varð mikill frammámaður í fluginu og er enn. Og ég komst fljótt inn í málið, hafði góða undirstöðu úr Landakotsskóla, þar var góð kennsla, einkum í tungumálum, en reikningur var þar lélegur, enda kunnu kellingarnar ekkert að reikna, enda gerðu þær allt ókeyp- is og þurftu ekki á honum að halda, hann var ekki þeirra mál. Ég hóf síðan flugnám í Böbling- en 14. nóvember og fór mitt fyrsta einflug 6. desember, eftir 2:40 stundir með kennara. Kláraði ég helminginn af einkaflugmanns- prófinu í Böblingen, en afganginn í Wúrzburg, þar sem ég lauk A- prófi 26. marz 1929. Þá var það fyrir orð og áhrif einhvers þýzks skrattakolls, að ég fór til Neustadt í Holstein til sjómennskunáms, en í byrjun ágústmánaðar kem ég til Warnemúnde og þar lýk ég einka- flugmannsprófi á sjóflugvél um miðjan september. Hef þar at- vinnuflugmannsnám, flaug þar rúma tíu þúsund langflugskíló- metra, en lýk svo atvinnuflug- mannsprófi í List á Sylt í Norður- sjónum 30. maí 1930. Daginn eftir hélt ég til Kaupmannahafnar og næ að fá pláss á gamla íslandinu og er kominn heim um miðjan júní. Walter keðjureykti Eftir heimkomuna flaug ég tvo til þrjá túra með Neumann út á land, en fyrsta flug mitt sem flug- stjóri fór ég 27. júní. Það var í því fólgið að ég lenti fimm sinnum á ytri höfninni fyrir Walter, sem skoðaði mig í kíki og keðjureykti á meðan. Hann hefur víst verið ánægður kallinn, því samdægurs flýg ég sjö ferðir með farþega á Alþingishátíðina, og fimm ferðir daginn eftir. Hinn 30. júní fór ég síðan mitt fyrsta flug út á land sem flugstjóri, til Isafjarðar og til baka. Mér eru farþegarnir í þeirri ferð alltaf minnisstæðir. Það voru Guðmundur Grímsson, dómari í Norður-Dakóta, Islendingur er frægur varð í Bandaríkjunum er hann kom því til leiðar að tekið var mildar á hegningarföngum í Georgíu-ríki, en þeim hafði verið misþyrmt, einnig Reginald Orrcut, umboðsmaður fyrir Linotype- setjaravélar hér á landi, og Ág- ústa Hallgrímsson, dóttir séra Friðriks Hallgrímssonar. Samtals tók ferðin fram og til baka um fimm stundir. Það er náttúrulega mikið vatn runnið til sjávar frá því ég var að basla í fluginu fyrir rúmri hálfri öld. Það var peningaleysið sem gerði út af við okkur, en síðar komu til skjalanna harðduglegir menn, sem rifu flugið upp og síðan hafa unnizt margir stórsigrar þótt ekki hafi vindar alltaf blásið hag- stætt. Það er von mín og ósk, að íslendingar eigi í framtíðinni eftir að taka enn betur á móti þessari skynsamlegu samgöngutækni,” sagði Sigurður Jónsson, fyrsti flugmaður íslendinga, að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.