Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
/7X/JA
C/tJZOÍ XOA/O/VSO/I 1?ÚMeM/L/
&K/PAP 4zjóí> S/'VA'/ At>
t7a#y//ss.4 pArrréiArc/ •
fT'X' sJ?Á iWAO/ ■
l-'* I* IWW FöL/M/*Sr A
jrj/> o6 --~~~, n*
SFA/SA/. AostuaJ/íjc/, V
of e/#6/'WA/Af/v
HAFA p£AAF7ÍO<yr///f)
k's. þ/J/TTÓ/ee/. >/
7//.f/y////A pÁTTö/co
IÍ///////0A A£> /£/*-
f/W. £*Y
tKffpp/V/hf^
'f/ersr //z/ZA//
\7ÍÁP66/A ,
kJ Máa/að/i
W/Fi/KAll. J7APps-^\
Jórz/zi/rt PR 0O7?ZÍA£>
.fZ/?/A AÍ> T///MA. ef/p/Ki,
Kfy*VK.'+?/A/J<A Já
VW&JAÝ OÁAP
AffAPP! At>
V//0/7fBÓN///6/
í /40M7ty/D£o
dyáírVU pe/12
LE/zvéi/./.,
sen VAP&
PjÓt>ABSTO/.T
f/AMZ/ póaao/
7o P>ÓSC///D
'AfjoBFf//D//P,
\/ Í5/C77 -
fCe>STAP/
//Yn M///JÓ//
Fo/zda .
ppoMu/eoun oá &töv.
"^V/£> VTRBOM
fAVFAPA VJP f&/(TL>M'
UQUáMy T//_ AP/fTA
J/TJÓT/D. y/DVTPPC/Af
vAP PAPA 77/- .
^MgNTeviPeo .. ^
V/P FiNNUM .1
ALDPÉ! FimmTa/J^
i£//ov£/y/z r//.;
p£$S AP A4/Z4 /
ATTA V/WA TSi- .
y/Ð ÓÉ7Í/M L
£/oa PAP/Ð. Jz
Titillinn aldeilis ekki
í höfn hjá Liverpool
• Tottenham-leikmennirnir Steve Archihald og Steve Perryman kljást um
knöttinn viö Alan Kennedy, bakvörö Liverpool. Félögin eiga eftir að ma tast
tvívegis áöur en yfir lýkur og gætu úrslit þeirra leikja ráöið úrslitum í 1.
deild.
LIVERPOOL stendur geysilega vel
aö vígi í ensku deildarkeppninni í
knatLspyrnu. Fimm stiga forysta og
skammt til mótsloka. Tottenham
hefur ekki tapað mikið fleiri stigum,
en flestir reikna meö því að liöið
lendi í þrengingum því það á svo
marga leiki til góða auk þess sem
Osvaldo Ardiles er farinn heim til
Argentinu. Jafnteflið gegn Sunder-
land í fyrrakvöld stykir kenningu
þessa. Swansea og Manchester Utd.
eiga vissulega sína möguleika, en að
flestra mati er Ipswich þó helsti
keppinauturinn. Pegar litið er á þá
leiki sem Liverpool og Ipswich eiga
eftir, kemur i Ijós að staða Liverpool
er fjarri því að vera eins trygg og
ætla mætti. Bæði liðin eiga eftir 8
leiki. Ipswich fimm þeirra á heima-
velli og þrjá á útivelli. Liverpool á
hins vegar aðeins tvo heimaleiki eft-
ir, sex erfiða útileiki. Við skulum
renna yfir dagskrána og byrja á Liv-
erpool:
17. apríl WBA (heima).
24. apríl Southampton (úti).
I. maí Nott. Forest (úti).
4. maí Middlesbrough (úti).
8. maí Birmingham (úti).
II. maí Arsenal (úti).
15. maí Tottenham (heima).
25. maí Tottenham (úti).
Og hjá Ipswich ...
17. apríl Stoke (heima).
20. apríl Man. Utd. (heima).
24. apríl Man. City (úti).
1. maí Middlesbrough (heima).
5. maí WBA (úti).
8. maí Brighton (úti).
15. maí Nott. Forest (heima).
17. maí Tottenham (heima).
Það er athyglisvert, að Totten-
ham á þrjá leiki gegn Liverpool og
Ipswich undir blálokin, þar af
báða deildarleikina gegn Liver-
pool. Það er því alls ekki ólíklegt,
meira að segja mjög líklegt, að
ekki verði útséð hvert titillinn fer
fyrr en í síðari hluta maí.
Nhemiah í „rúbbíið“
— keppir ekki á Ól
í Los Angeles 1984
HM-fárið á Spáni færist
heldur betur í aukana
— reiknað með 500.000 erlendum áhorfendum
EFTIR því sem nær dregur loka-
keppni HM í knaltspyrnu, sem fram
fer á Spáni í sumar, fer spennan þar
í landi og víðar vaxandi. Og ekki
einungis vegna hinnar væntanlega
knattspyrnusýningar, þvi lokakeppn-
in verður að þessu sinni viðameiri en
nokkru sinni fyrr, fleiri þátttöku-
þjóðir en áður og meöal „leikenda"
ef svo mætti að orði komast, eru
einn konungur, bestu knattspyrnu-
menn veraldar, 30.000 sérþjálfaöir
lögreglumenn og meira en milljarð-
ur áhorfenda. Má með sanni segja,
að Spánn verður gagntekinn þær
vikur sem keppnin fer fram, eða eins
og sagt er gjarnan á Spáni þessa
dagana, „HM-hitasóttin llýgur hrað-
ar en fiskisagan“. I dag, tæpum
tveimur mánuðum áður en
HM-keppnin verður sett, þann I3.
júní í Barcelona, er undirbúningi
Spánverja nánast lokið. 24 þjóðir
keppa, helmingi fleiri en áður, 52
landsleikir fara fram á 17 leikvöng-
um. Aætlaður kostnaður: 400 millj-
ónir Bandaríkjadala.
Fleira mætti tína til, reiknað er
með 500.000 erlendum áhorfend-
um og fer hinn árlegi ferðamanna-
fjöldi Spánar þá upp í 4 milljónir,
en sjálfir eru Spánverjar 37 millj-
ónir talsins. Og Spánverjar ætla
sér að græða á öllu saman eins og
nærri má geta. Búið er að brugga
sérstakt HM-vín, sérstakur
HM-gosdrykkur hefur verið lagð-
ur og færiböndin eru enn að dæla
frá sér HM-lukkudýrinu. Sérstök
mynt verður slegin. Öðru megin á
henni verður mynd af Juan Carlos
Spánarkonungi, sem er verndari
keppninnar, en hinum megin
mynd af knetti. Óteljandi gerðir
af minningargripum verða í um-
ferð, bolir, knattspyrnuspil,
veggspjöld, dúkkur, lyklakippur,
spil, hnífar, skeiðar og handtöskur
svo eitthvað sé nefnt. Það verður
meira að segja sérstakur næt-
urklúbbur opnaður í miðborg
Madrid. „Mundial 1982 Bar“. Og
ekki nóg með það, heldur hefur
frést að aðskilnaðarsinnar Baska
hafi í hyggju að draga úr og jafn-
vel hætta öllum hryðjuverkum
meðan að á HM stendur. Ríkis-
stjórnin ætlar þó ekki að láta
koma aftan að sér og hefur beðið
h’rakka að fylgjast vel með
mannaferðum á landamærum
landanna og gæsla verður öll hin
öflugasta við hvern leikvang.
Spænska stjórnin hefur einka-
rétt á sjónvarpssendingum frá
leikjunum. RUV þeirra Spánverja
reisti í tilefni keppninnar 221
metra háan útsendingarturn, en
um hann verður 41 leik sjónvarpað
út um allan heim. Talið er að þeg-
ar HM lýkur hafi meira en millj-
arður fólks um gervallan heim
fylgst með sjónarspilinu.
En fleiri græða. Ferðaskrifstof-
ur eru allar meira og minna full-
bókaðar, einkum þó þær þjóðir
sem eiga þátttökulið. Islendingar
gefa ekkert eftir, hundruð Islend-
inga ætla að leggja land undir fót
og fylgjast með keppninni, annað
hvort á Spáni, eða í sjónvarpi frá
nágrannalöndunum. Verð á gist-
ingu hækkar líklega um helming
eða meira og svartamarkaðsbrask
með miða á leiki er að byrja.
Miðaverð verður mismunandi, allt
frá 3 til 38 Bandaríkjadala stykk-
ið. En líklegt er að talan hækki
gífurlega í skúmaskotum fyrir
utan knattspyrnuvellina síðustu
klukkustundirnar áður en stór-
leikirnir hefjast.
Já, HM er stór stund í lífi ótrú-
lega margra Spánverja og litlu,
stóru hjörtun slá ótt og títt víða.
Má til dæmis nefna hjartað í borg-
arstjóranum í Oviedo, sem reiknar
með því að verða frægur maður,
því miklir stórleikir eiga eftir að
fara þar fram. Hann segir:
„Oviedo verður nú einn af fjórum
merkilegustu stöðum veraldar."
En Luis Riere Rosada gleðst einn-
ig yfir öðru atriði: Knattspyrnu-
völlur borgarinnar hefur verið
endurreistur fyrir ríkisfé, en
Rosada er eins og svo margir
Spánverjar, óður í knattspyrnu.
Grindahlauparinn heimsfrægi,
Renaldo Nhemiah, gerði sér í gær
lítið fyrir og skrifaði undir samning
við bandaríska „rúbbí“liðið“ San
Francisco 49ers, en það félag er
„Super Bowl“-meistari, en á Islandi
myndi það útleggjast Norður-Amer-
íkumeistari. Nhemiah útilokar þar
með sjálfan sig frá Ólympíuleikun-
um sem fram fara 1984, en það hef-
ur verið margra álit að hann ætti
stórgóða möguleika á þvi að
hremma ein eða fleiri gullverðlaun á
þeim leikum.
4ra ára samningur kappans við
SF 49 gefur honum 500.000 banda-
ríkjadali í aðra hönd, en hann er
þar með orðinn tekjuhæsti leik-
maður ameríska fótboltans (sem
er auðvitað allt annað en það sem
við köllum fótbolta). Nhemiah er
eini maðurinn sem hlaupið hefur
110 metra grindahlaup á skemmri
tíma en 13 sekúndum og á æfingu
hjá SF 49 hljóp hann 36 metra
sprett á steinsteyptu gólfi á 4,1
sekúndu, eða hraðar en nokkur
leikmaður í bandarísku
NFL-deildinni.
• Julio Grondona, forseti argentínska knatt.spyrnusambandsins lengst til
vinstri, afhendir Dr. Joao Havelange forseta FIFA heimsbikarinn. Lengst til
hægri er Pablo Porta, framkvæmdastjóri spænsku undirbúningsnefndarinn-
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
tz/&/////& AK /<0/70 / PEO
py/e/K Af> /T/epry/CK/
AD OP/ZA Ki5AL/A//ZA
PÉ7TDM r/AfA, e/z
/ÝA/z/z TATeÐ TUSy//z/y
fy#/P P/ÓP//ÁT/&AP
//ÓÉD//Z /g. TeÁA/.
evpó7>c/þjóDlJVZAN
f/yrro s'gjt £*/</ av