Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982 r I stuttu máli Skuldafen sjúkrastofnana PÉTUR SIGURÐSSON (S) og Deiri þingmenn veittust harðlega að Svavari Gestssyni, heilbrigðisráð- herra, í neðri deild Alþingis í gær, vegna lélegrar fjárhagsstöðu heil- brigðisstofnana, skuldasöfnunar þeirra, vegna ónógra tekna, og til- heyrandi vanda i þjónustu þeirra. Vitnaði Pétur til ummæla 8 for- sjármanna heilbrigðisstofnana, sem öll gengu á einn veg, að verr væri nú komið fjárhags heilbrigðisstofnana en um langt árabil. Taldi Pétur margar heilbrigðisstofnanir komnar í skuldafen. Höfuðorsök þessarar stöðu var talin sú, að hvorki daggjaldakerfið né fjárlög, hefðu tekið nægilegt mið af þeirri dýrtíðaraukningu, sem væri í raun í landinu, heldur miðað við „reiknitölur„ ráðherra, byggðar á „niðurtalningu verð- lags“, er hefði gjörsamlega brugð- izt. Þessvegna hefðu útgjöld farið langt fram úr tekjum, auk þess sem samningar ríkisvaldsins við einstakar heilbrigðisstéttir hefðu og farið langt út fyrir áður ákveð- inn útgjaldaramma. Þessi um- mæli féllu í umræðu um stjórnar- frumvarp, sem heimilar ríkis- stjórninni, ef samþykkt verður, að taka fleiri daggjaldasjúkrahús inn á fjárlög. Töldu gagnrýnendur það eitt, án annarra viðbragða, ekki leysa nein fjárhagsvandamál. Tollkrít RAGNAR ARNALDS, fjár- málaráðherra, mælti fyrir stjórn- arfrumvarpi í efri deild, sem mið- ar að því að taka upp svokallaða tollkrít 1. janúar 1983, og stefna í tilteknum áföngum að tollkrítar- kerfi. LÁRUS JÓNSSON (S) sagði forsætisráðherra hafa lofað þessu frumvarpi þegar haustið 1980, svo tímabært væri að liti dagsins ljós. Hinsvegar væra það nú svo síðla lagt fram af fjármálaráðherra, sem auk þess hefði í framsögu haft á margskonar fyrirvara um framkvæmdina, þó frumvarpið væri samþykkt, að hann efaðist um vilja hans til að málið næði fram að ganga, a.m.k. fyrir þing- lausnir nú. Hann lýsti yfir stuðn- ingi við frumvarpið og taldi það spor í rétta átt. Járnblendið og þátt- taka ríkisins HJÖRLEIFUR GUTTORMS- SON, iðnaðaðarráðherra, mælti fyrir frumvarpi um umtalsverðar frekari fjárskuldbindingar fyrir íslenzka ríkið í tengslum við eign- araðild þess að járnblendiverk- smiðjunni að Grundartanga, vegna undangengis rekstrartaps og til að styrkja rekstrarstöðu fyr- irtækisins. Gerir frumvarpið ann- arsvegar ráð fyrir því að hækka hlutafjáreign islenzka ríkisins úr 13,2 milljónum dollara í 19 millj- ónir dollara, en hinsvegar ráð fyrir sjálfskuldarábyrgð ríkisins á láni, er fyrirtækið tekur, á allt að 3,3 milljónum Bandaríkjadala. Miklar umræður urðu um málið. Söluerfiðleikar búvöru EGILL JÓNSSON (S) hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar, þess efnis, að þingflokkar tilnefni sinn manninn hver í sérstaka nefnd, sem vinni að tillögum um, hvern veg skuli bregðast við þeim vanda, sem íslenzkur landbúnaður stendur nú frammi fyrir vegna söluerfiðleika á hefðbundnum bú- vörum á erlendum mörkuðum, einkum á sauðfjárafurðum, en sauðfjárbúskapur sé einmitt sú búgreinin, sem þær byggðir hvíli á, „sem ekki nærast af hinum daglegu viðskiptum við þéttbýlið". Telur flutningsmaður að röskun á byggð í landinu liggi við, ef ekki verði rétt við brugðið. í þessum efnum verði sérstaklega haft í huga: 1) lækkun framleiðslu- kostnaðar, 2) skipulag framleiðsl- unnar með tilliti til að byggð hald- ist í svipuðu formi og 3) skipulegt átak í markaðsmálum. Einokunarákvæöum aflétt Friðrik Sophusson, Steinþór Gestsson og Albert Guðmundsson, þingmenn Sjálfstæðisflokks, flytja frumvarp, sem felur það í sér að einokunarákvæðum um sölu matjurta- og gróðurhúsafram- leiðslu verði numin úr lögum. Ekki er Iögð til önnur breyting á starf- semi Grænmetisverzlunar land- búnaðarins. Lagt er til að lögin taki ekki gildi fyrr en 1. janúar 1983, þannig að Grænmetisverzlun landbúnaðarins, núverandi fram- leiðendur og hugsanlegir nýir heildsöludreifiaðilar fái nokkurn aðlögunartíma þar til lögin taki giidi. Þessi breyting er talin til mikilla bóta fyrir neytendur. I sviðsljósi stjórnmálanna „Stresstaskan“ hefur ekki þótt sérstakt „vörumerki" róttækari sósíalista, en þeir tveir forystumenn Alþýðubandalagsins, sem hér má sjá, Hjörleifur Guttormsson, orkuráðherra, og Ólafur Ragnar Grimsson, formaður þing- flokksins, bera sínar töskur með tilheyrandi reisn, enda innihalda þær máski nokkrar maraþonræður. Guðmundur Karlsson: Búa þarf betur að björgunarsveitum Tillaga um slysa-, líf- og örorku- tryggingar þeirra, sem að almanna- vörnum og björgunarstörfum vinna (flutningsmenn Pétur Sigurðsson og 15 aðrir sjálfstæðisþingmenn), var til umræðu i Sameinuðu þingi sl. fimmtudag. Tillagan gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin leiti hag- kvæmra leiða til að koma á sérstök- um tryggingum fyrir alla þá sem kallaðir eru til starfa að almanna- vörnum og vinna sjálfboðastörf á vegum björgunar- eða hjálparsveita við leit eða björgun manna sem í Kviknar á perunni hjá þingmönnum! í þinghúsi er tvær ljósatöflur með 60 perum, einni fyrir hvern þingmann. Strax og þingmaður gengur í þinghús kviknar á hans peru — en slokknar, er hann fer úr húsinu. Þannig getur starfsfólk þingsins jafnan vitað, hvaða þingmenn eru mættir til vinnu — og hverjir ekki. Það er því ekki við hæfi þegar sagt er að ekki kvikni á perunni hjá þessum eða hinum þingmanninum! Hér er Sigríðui G.uðmundsdóttir, þingvörður, við töfluna í anddyri þinghússins. tnjtnimöáð .fie .lannad mo 11; ( ; i 11 ': . m i m / r:i^ni MU'lM *! J 1 i) I!! H"1'. ('ITVH "l'Ml.j IH'.Þ Hijllfuni háska eru staddir. Sérstaklega verði athugað hvort slíkri tryggingu verði ekki bezt fyrir komið hjá Við- lagatryggingu íslands. Guðmundur Karlsson (S) sagði m.a. efnislega við þessa umræðu: Hér er um mjög þarft og kall- andi mál að ræða. í þessu sam- bandi vil ég minna á hið hörmu- lega slys, sem varð við Vest- mannaeyjar sl. vetur, er belgísk- ur togari strandaði og tveir er- lendir sjómenn og tveir íslenzkir björgunarmenn drukknuðu. Þetta slys var með öðru kveikjan að flutningi þessarar tillögu. Sú gæfa hefur fylgt íslenzku björgunarstarfi, lengst af, að björgunarmenn hafa ekki týnt lífi, þrátt fyrir margskonar hætt- ur er starfi þeirra fylgja. Hér var um fyrstu dauðaslysin að ræða í íslenzkri björgunarsögu. Guð- mundur rakti nokkuð þessa björgunar- og slysavarnasögu, bæði á vegum Slysavarnarfélags- ins, landhelgisgæzlunnar og fleiri aðila, ekki sízt undanfara Slysa- varnarfélagsins, Björgunarfélags Vestmannaeyja, en það var björgunarsveit þess og hjálpar- sveit skáta í Eyjum, sem vann að björgun skipshafnar belgíska togarans. Gerði hann í ítarlegu máli grein fyrir starfi þessara að- ila í Vestmannaeyjum allar götur frá upphafi þessa starfs fram á líðandi stund. Það var Eldeyjar-Hjalti sem fyrstur hreyfði því á þingmála- fundi, sagði Guðmundur, að nau^synlegl, ypól arskip;tjj ;Eyja, en þaÁnvóim i>in j Guðmundur Karlsson tíðu slys, sem urðu í upphafi vél- bátaútgerðar, sem vöktu menn til vitunddar um nauðsyn björgun- arstarfs. Manntjónið, eignatjónið og atvinnutjónið sem báts- töpunum fylgdi, var á stundum svo ægilegt, að ekki varð hjá því komizt að ráða þar á einhverja bót. Þá var kosturinn oft sá einn að biðja sjóhrakta menn, sem nýsloppnir vóru úr háskanum á illa búnum smábátum, að fara aftur út í illviðri og náttmyrkur til að leita að bát, sem ekki hafði náð landi. Það var hinn 11. júní árið 1918 sem samþykkt var þingsályktun um heimild fyrir landstjórnina til þess að veita fé til kaupa á björgunarbáti. Björgunarfélag Vestmanneyja var stofnað á þessu sama ári fyrir forgöngu Karls Einarssonar, alþing- ismanns, en fyrsti erindreki þess var Sigurður Sigurðsson, lyfsali. Félagið keypti björgunarbátinn Þór, sem jafnframt varð fyrsta íslenzka strandgæzluskip þjóðar- innar og vísir að íslenzku land- helgisgæzlunni. Frumkvæði Vest- mannaeyinga á þessum vettvangi 11 átti. eftiiíi; að; leiða til ▼íð.tæksoi 9i starfs. Þingmaðurinn rakti isöjfb: i þessa skips og starfs, sem hér verður ekki tíunduð frekar, þó þessi forsaga íslenzks björgun- arstarfs og landhelgisgæzlu eigi vissulega erindi til samtímans. Þingmaðurinn sagði að lokum: Við getum styrkt þetta björgun- arstarf með því að tryggja björg- unarsveitunum lágmarkstekjur og með því að gera þeim auðveld- ara að verða sér úti um nauðsyn- leg tæki og búnað, sem oft er mjög dýr ef vel á að vera. Ekki er við hæfi að taka innflutnings- gjöld af þessum búnaði, sem lúx- usvara væri, en ekki nauðsynleg tæki, sem mannslíf geta oltið á að til staðar séu. Margt fólk eyðir nú öllum frístundum sínum í þágu þessa björgunarstarfs við fjáröfl- un, við þjálfun og skipulagningu starfsins. Þetta fólk er ávallt viðbúið til strafa oft við hinar erfiðustu aðstæður og verstu skil- yrði og leggur oftlega líf sitt í hættu. Þannig missti hjálpar- sveit skáta í Vestmannaeyjum einn af sínum ágætustu félögum við leitaræfingu í Eyjafjallajökli. Við, sem höfum notið þjónustu þessa björgunarfólks, skiljum þörfina fyrir bætta starfsaðstöðu þess, en sá skilingur þarf að fara víðar, svo starfsemin fái nauð- synlegt brautargengi. Það er sjálfgefið, að mínu mati, að fram- fylgja efni þeirrar tillögu, sem hér er til umræðu, að búa þann veg í haginn varðandi slysa-, líf- og örorkutryggingar björgunar- fólks, að þar verði eins vel frá öllu gengið og tryggilega og frek- ast er kostur. Það er vanzi að svo skuli ekki fyrir löngu vera fyrir séð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.