Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982 13 artakmarka og meira og minna eru á hans vegum mörg hús og stofnanir utan þeirra takmarka. A launaskrá eru 1500 manns hjá þessum eina spítala, þar af 144 læknar, 280 hjúkrunarfræðingar — og hvorki fleiri né færri ljós- mæður en 5 tugir, svo að einhverj- ir hópar séu nefndir, sem ættu að gefa sæmilega hugmynd um, að þarna séu störfin mörg og marg- vísleg. Og árangurinn hefur sýnt sig: mannsævin á íslandi er nú að meðaltali helmingi lengri en elztu menn muna, og kunnátta ís- lenzkra lækna og tækjabúnaður er þannig, þrátt fyrir tregðu og vönt- un, að einungis einn tugur sjúkl- inga var árið 1980 sendur til út- landa í von eða vissu um, að það kæmi að tilætluðum notum. En þessi feikna árangur sjúkrahúsa og stofnana, sem starfa að ein- hverju leyti að heilbrigðismálum, virðist nú sumum fyrirhyggju: sömum mönnum ískyggilegur. I bókinni segir svo: „Það fer að verða umhugsunarv- ert, sem karlinn í Hrútafirði sagði fyrir síðustu kosningar: „Við þurf- um ekki svona mikla heilbrigðis- þjónustu — fólkið verður eldgam- alt og verður fjárhagsleg byrði á þjóðfélaginu." Varla mun hann nú vera kom- inn að fótum fram, sá sem þetta mælti, og hafi hvergi höfði sínu að halla, en þó að orð hans séu nei- kvæðrar merkingar, hefur varla verið borið meira lof á framfarir í heilsugæzlumálum íslenzku þjóð- arinnar! - O - Gunnar og samstarfsmenn hans hafa fundið frásögnum og greinar- gerðum mjög skýrt og skiljanlegt form. Hann ritar fyrsta kafla bók- arinnar, í upphafi var orðið, um heilsugæslu á 19. öld, og er það vægast sagt ömurleg lýsing. Þá er fjallað um hið frábæra líknarstarf St. Jósefssystra, sem margur ís- lendingur á að þakka heilsu og líf, getið franska spítalans, Klepps og holdsveikrasjúkrahússins, sem oddfeílowar gáfu, og síðan er all- rækilega getið baráttu framsýnna og raunsærra manna fyrir stofnun og starfrækslu Landspítalans. Sérstakur kafli er að verðugu helgaður þrotlausri baráttu kvenna fyrir byggingu og tækja- búnaði spítalans í bráð og lengd, og er það sízt ofsagt, sem sagt er hér áður, að án tilstyrks og frá- bærrar framtakssemi kvennanna hefði enginn Landspítali verið vígður merkisárið 1930. Þá er Gunnar hefur ritað um fyrsta starfsár spítalans, hefjast frásagnir af starfsemi hinna mörgu deilda. Gunnar ritar nokk- ur orð um hverja deild yfirleitt, en síðan tekur við skýr og skipuleg frásögn forstöðumanna, karla og kvenna, um störf deildarinnar og nauðsyn þeirra. Þessar frásagnir eru að vonum enginn skemmtilest- ur, en vel eru þær til þess fallnar, að lesandinn geri sér grein fyrir þeirri brýnu nauðsyn, sem alltaf sé fylgzt með framförum og nýj- ungum, hvar í veröldinni, sem þær birtast. Hygg ég, að hin illræmda tregða muni reynast hóflegri en áður, ef helztu ráðamenn hinna stjórnmálalegu flokka kynna sér þetta merka rit rækilega. Seinasta kafla bókarinnar, sem er sá 21. í röðinni, kallar Gunnar Undir lokin. Þar getur hann um sitthvað, sem ekki hefur hæft að minnast á í þeim tveim tugum kafla, sem fjalla samfellt um starf hinna mörgu deilda. Hann birtir þar t.d. hinn ævaforna læknaeið, Codex Ethicum, „sem hefur gilt um lönd á vesturhveli jarðar í ná- lega þrjú þúsund ár“, og læknar verða að sverja í siðrænum aðal- atriðum eins og hann hefur hljóð- að frá upphafi. Síðast dregur bókarhöfundur saman nokkrar minnisverðar staðreyndir og lýkur máli sínu þannig: „Er það ekki drýgsti skerfurinn til lífsins, að hafa stutt að því eft- irsóknarverða að sjá vonglatt blik í auga og heyra orðin: Það er gam- an að lifa“ Egilsstaðir: Fundur um hreppsmálin KgilsNtoAum, 14. apríl. HREPPSNEFND Egilsstoðahrepps boðaði til almenns fundar í Vala- skjálf í gær. Þar voru reikningar sveitarfélagsins fyrir árið 1981 lagðir fram ásamt fjárhagsáætlun yfir- standandi árs — eins og hún litur út eftir 2. umræðu í hreppsnefnd. Niðurstöðutölur rekstrarreikn- ings árið 1981 eru kr. 10.567.348.-. Á gjaldalið rekstrarreikningsins ber mest á fjárhæðum til fræðslu- mála, æskulýðs-, íþrótta- og um- hverfismála — svo og til gatna- og holræsagerðar. Niðurstöðutölur fjárhagsáætl- unar yfirstandandi árs eru kr. 15.488.300.-, eða 46,57% hærri en niðurstöðutölur rekstrarreikn- ingsins 1981. Fundurinn var vel sóttur; um- ræður líflegar um reikninga og áætlanir sem og um aðra þætti sveitarstjórnarmálanna — enda vart við öðru að búast þar sem kosningar eru í sjónmáli. Ólafur. Tvær kápur teknar í ógáti LAUGARDAGINN 3. apríl var haldin skemmtun á vegum Fá- skrúðsfirðingafélagsins í Reykja- vík í heimili Fóstbræðra. Tvær kápur voru þá teknar í ógáti og eru þeir, sem fyrir því urðu, vin- samlega beðnir að hringja í síma 35556. hér skal stuttlega skýrt frá, en hún fæst nú í vasabroti í bóka- verslunum hér. í The Clowns of God skýrir Morris West frá örlögum páfa, sem verður fyrir þeirri vitrun að sjá ragnarök og endurkomu Krists. Höfðingjarnir í Vatíkan- inu vilja síst af öllu að þetta spyrjist og páfi er knúinn til að segja af sér. Á hinn bóginn vill hann, að því sé komið á framfæri við sem flesta, hve tæpt mann- kyn standi andspænis hörmung- um gjöreyðingarátaka. Lýsir bókin þessum atburðum og er víða gripið til guðfræðilegra röksemda um heimsslit og ým- islegt annað, sem setur svip sinn á samtímaumræður um stríð og frið. Bók Morris West er ekki eins spennandi og sú bók Ludlums, sem að ofan var getið. West læt- ur sögupersónur sínar að sjálf- sögðu leiða fram dýpri rök en Ludlum. Bækurnar eiga það eitt sameiginlegt, að í þeim báðum er fjallað um samsæri. í þeim báð- um eru kjarnorkuvopnin hin ógurlega ógn, sem samsæris- mönnunum er kærust. Og í báð- um tilvikum tekst að koma í veg fyrir hinar mestu hörmungar á síðustu stundu, þótt með ólíkum hætti sé. Við þurfum ekki að leita lengi í blöðum eða hlusta lengi á frétt- ir ríkisfjölmiðla til að heyra samsæriskenningar um kjarn- orkuvopn, eins og til dæmis þá, að risaveldin hafi uppi áform um að fórna Evrópu í takmörkuðu kjarnorkustríði. Það er líklega engin tilviljun, að rithöfundar, sem báðir hófu skriftir í auglýs- ingaiðnaðinum, skuli nú velja sér söguefni nátengt slíkum samsæriskenningum, annar tengja það kirkjuhöfðingja og hinn undirróðursstarfi Sovét- manna á Vesturlöndum. RR BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. Sölusýning á notuðum mazDa biium frá 10-4 alla laugardaga Nú geta allir veriö sérfræðingar í því að velja og kaupa notaöan bíl. o Þiö athugiö útlit bílsins, ástand hjólbaröa og annaö sem sést. og viö ábyrgjumst þaó sem ekki sést. o Tryggió góó og örugg viðskipti. veljiö notaðan MAZDA BÍL MEÐ 6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ. Við erum eini aðilinn á landinu sem veitir ábyrgó á öllum notuöum bílum. og tryggir þannig öryggi í viö- skiptum. A BÍLABORG HF ° Smiðshöfða 23. sími 812 99.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.