Morgunblaðið - 18.04.1982, Page 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
Menntaskólakennari í Japan, 36
ára karlmaður, óskar eftir bréfa-
sambandi við íslenzkar konur á
aldrinum 18—40 ára. Tónlist,
bókalestur, bréfaskriftir, garð-
yrkja, ljósmyndun, frímerkja- og
póstkortasöfnun eru meðal áhuga-
mála hans:
Kiyoichi Saiwaki,
Wada-cho 740,
Kagoshima-city,
891—01 JAPAN
Þrítug sænsk kona, tveggja barna
húsmóðir, skrifar á ensku, dönsku
eða sænsku, óskar eftir bréfasam-
bandi við konur hér á landi:
Maj-Lis Persson,
Liirkgatan 10,
S-28063 Sibbhult,
SWEDEN
Tvær 16 og 17 ára vestur-þýzkar
stúlkur frá Dusseldorf með mörg
áhugamál, skrifa á þýzku, ensku
eða frönsku. Hafa sama heimilis-
fang:
Birgit Slevogt, eða
Andrea von Thiel,
Biittgenweg 14,
4000 Dusseldorf 11,
W-GERMANY
Kanadísk kona af íslenzkum ætt-
um skrifar fyrir börn sín tvö, sem
vilja eignast pennavini hér á
landi. Afi konunnar er íslenzkur,
fluttist til Kanada 17 ára gamall.
Börnin eru Roxanne, 11 ára
stúlka, og Sheila, 8 ára stúlka:
Roxanne Lucas, eda
Sheila Lucas,
3—2624 Franklin Street,
Vancouver, B.C.,
CANADA V5K 1X6
Sex ungmenni skrifa frá Ástralíu,
öll með sama heimilisfang. Þeirra
áhugamál eru margvísleg. Segjast
geta skrifað á frönsku auk ensku:
Mary Petersen, 18 ára
Karen White, 18 ára
Peter Gibson, 22 ára
Sonia Fiori, 19 ára
Neil White, 23 ára
Jim Murray, 24 ára
Box 533,
Charters Towers,
Queensland 4820,
AUSTRALIA.
r r\
n j
V
J
o
___>>
Bókin með nýju
húsunum
frá Húseiningum
erkomin!
Rúmlega 80 litprentaðar blaðsíður með margvíslegum upplýsingum
og teikningum eftir Bjarna Marteinsson, Helga Hafliðason og Viðar A. Olsen.
Teikningarnar f bókinni gefa hugmyndir um byggingu einlyftra og tví-
lyftra einbýlishúsa fyrir viðráðanlegt verð, - sambærilegt við góða íbúð í fjöl-
býtishúsi f Reykjavík. Bókin er ókeypis.
Hafið samband við Húseiningar h/f á Siglufirði, sími 96-71340 eða
söluskrifstofuna í Reykjavík, Laugavegi 1B, sími 91-15945 og bókin fer í
póst til ykkar samdægurs.
ÓSA
SVARSEÐILL
Vinsamlega sendiö
! mér eintak
I af bókinni, mér aö
kostnaðarlausu!
I
I
\
HÚSEININGAR HF
--------------------------------------------
Nafn:
Heimilisfang:
Póstnr.: Sími:
Þau Machiko Sakurai, Margrét Pálmadóttir og Joseph Fung munu á
næstunni ferðast um landið og skemmta fólki með tónleikum.
LjÓHmynd Mbl. Emilía Björg.
*
Island er auðlind,
sem auðgar list-
sköpun og túlkun
tónlistarfólks
— segir Machiko Sakuari, sem nú heldur
tónleika hér á landi
JAPANSKI píanóleikarinn Machiko Sakurai heldur ein-
leikstónleika á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 18. þessa
mánaðar. Á tónleikunum mun hún leika sónötur eftir
Schubert (A-dúr), Mozart (c-moll) og Prokoliev (C-dúr).
Er þetta í annað skiptið, sem Machiko Sakurai kemur
hingað til lands. Að loknum þessum tónleikum mun hún
halda út á land og halda tónleika ásamt Margréti Pálma-
dóttur, söngvara og Joseph Fung, gítarleikara.
Morgunblaðið hafði tal að
Machiko og sagði hún, að til-
gangur ferðarinnar hingað
væri að sameina hljómleika-
hald og kynnisferðir um land-
ið. Hún sagðist vera hugfang-
in af landinu, hverunum, heita
vatninu og fiskinum, sem
minnti hana á heimalandið
Japan, bæði löndin væru eyjar
og eldgos væru tíð. Hins vegar
væru íslendingar blessunar-
lega lausir við mengunina,
fólksmergðina og tæknivæð-
inguna, sem nú einkenndi Jap-
an. Hún sagði einnig, að hún
teldi ísland mikla auðlind
fyrir tónlistarfólk, það auðg-
aði listsköpun þess og það ætti
því auðveldara með að fá út-
rás í verkum sínum og túlka
þau betur. Það væri mjög mik-
ilvægt fyrir tónlistarfólk að
víkka sjóndeildarhringinn og
öðlast sem mesta reynslu til
betri túlkunar á tónverkum.
Þess vegna væri það algengt
að japanskir tónlistarmenn
leituðu til Evrópu og Banda-
ríkjanna.
Machiko stundaði nám við
tónlistarháskólann í Vín og
nam meðal annars hjá hinum
kunna meistara Bruno Seidl-
hofer, sem nú er nýlátinn. Síð-
an hefur hún verið kennari í
píanóleik þar og haldið bæði
einleikskonserta og leikið með
stærri og smærri hljómsveit-
um víða í Evrópu og Japan.
Síðast lék hún píanókonsert
Mozarts í d-moll með hljóm-
sveit tónlistarháskólans í Vín.
Hún mun halda af landi brott
eftir þrjár vikur og mun þá
halda tónleika í Miinchen
ásamt systur sinni, sem er
þverflautuleikari.
Margrét Pálmadóttir, sem
syngja mun með Machiko og
Joseph Fung úti á landi, hóf
söngnám hjá Elísabetu Erl-
ingsdóttur 1972. Að loknu
stúdentsprófi hélt hún til Vín-
ar og stundaði þar söngnám
undir leiðsögn Svanhvítar Eg-
ilsdóttur í fjögur og hálft ár.
Undanfarin sumur hefur hún
nýtt til söngnáms á Ítalíu og
hélt hún, ásam fleiri ungum
söngvurum, á tónleika á
Norður-Ítalíu í fyrra. Eftir þá
var henni boðið að taka þátt í
tveimur ’slíkum tónleikum á
komandi sumri, sem hún
hyggst nýta sér ef aðstæður
leyfa.
Margrét sagði mikla fram-
tíð fyrir söngvara á íslandi og
vettvangurinn væri mikill þó
menn yrðu að vinna fyrir lifi-
brauði sínu á annan hátt.
Joseph Fung er fæddur í
Hong Kong og nam gítarleik í
Royal Northen College of
Music í Manchester í Eng-
landi. Hann hefur verið ein-
leikari með ýmsum hljóm-
sveitum í Englandi og auk
þess haldið nokkra einleiks-
tónleika. Síðan 1980 hefur
hann kennt við Tónskóla Sig-
ursveins. Joseph sagði, að hér
væri mikið að gerast í tónlist-
arlífinu og það væri mjög upp-
örvandi fyrir þróun einstakl-
inga á tónlistarbrautinni.