Morgunblaðið - 18.04.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
67
Seyðisfjörður:
Útgerð
hefur gengið
vel í vetur
Seydisfirði, 13. apríl.
ÚTGERÐIN sem allt veltur á hefur
gengið vel. Trollbátarnir hafa fiskað
ágKtlega siðan um áramót.
Togarinn Gullberg hefur fengið
1.120 tonn á tímabilinu 17. janúar
til 8. apríl, en togarinn Gullver hóf
ekki veiðar fyrr en 8. marz, þar
sem hann var í klössun í Færeyj-
um, síðan hefur hann fengið tæp
400 tonn. Báðir togararnir landa
hjá Fiskvinnslunni hf.
Afli togaranna hefur að lang-
mestu leyti farið í salt, en nú er sá
háttur hafður á í Fiskvinnslunni,
að fiskurinn er flakaður í flökun-
arvél á sama hátt og hann er
flakaður til frystingar, en ekki
lengur flattur. Mjög lítið hefur
verið verkað til frystingar og lítið
í skreið.
Bátarnir Otto Wathne, Þórður
Jónasson og ólafur Magnússon, er
landa hjá Norðursíld hf., hafa ver-
ið mikið í viðgerðum síðan um
áramót. Otto Wathne hefur fengið
430 tonn, Þórður Jónasson 113
tonn og Ólafur Magnússon tæp 20
tonn.
Mest af aflanum hefur farið í
saltfisk, eitthvað í skreið, en
hlutfallslega minna hefur farið í
frystingu en vant er.
Páskaveðrið hefur verið sérlega
gott og sól skinið flesta daga.
Þetta hafa Seyðfirðingar kunnað
að meta og óspart stundað skíða-
íþróttina.
Á skírdag var fermt hér og setti
fermingin sinn svip á páskahaldið.
Af landbúnaðarmálum er það
helst að frétta að hjá öðrum
stærsta mjólkurframleiðanda á
Austurlandi, Jóni Sigurðssyni á
Hánefsstöðum í Seyðisfirði, hafa
kýr verið óhraustar og ekki mjólk-
að sem áður, telur Jón það vera
afleiðingar slæmrar tíðar síðast-
liðið sumar.
Nokkru fyrir páska var þrem
ám bjargað undan Skálanesbjargi,
en það er út undir Dalatanga, og
höfðu þær gengið úti þar í vetur
og virtust vel á sig komnar. Ærn-
ar voru úr Mjóafirði.
— Sveinn
Fundur um
máltölvun
íslenska málfræðifélagið efnir
til fundar um máltölvun, en eins
og kunnugt er hefur Baldur Jóns-
son, dósent, gengist fyrir notkun
tölvu við málrannsóknir við Há-
skóla íslands. Baldur verður frum-
mælandi á fundi Málfræðifélags-
ins, og mun hann þar flytja erindi
sem hann nefnir: Tölvunotkun við
orðabókargerð.
Fundurinn fer fram í stofu 422 í
Árnagarði við Suðurgötu og hefst
kl. 17.15 þriðjudaginn 20. apríl
næstkomandi.
18. maí — 22 dagar
Allir beztu gististaöirnir
— Hagstæö greióslukjör —
URVAL
Viö Austurvöll — Sími 26900.
Umboösmenn um allt land.