Morgunblaðið - 18.04.1982, Side 44

Morgunblaðið - 18.04.1982, Side 44
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 „Sem mér si)nist! þessar gulrótarplöntur eru cx^minnkoL!" HcartAntt ást er... u* ■.. aö vera samtaka TM Raa U.S. Pat OW.-ill rlflhts raaarvw) •1982 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu l>ú ert farinn að fara í taugarnar á mér! HÖGNI HREKKVlSI 11 PAR/S//V OETTurV Líe»ur> JAFh/Aru SR7ÁLABA Q.'rv/A ... VFiR HAWA AFSÍiNG HANS!“ „Toora loora looreia Svavar Gests skrifar 16. apríl: „Agæti Velvakandi. Ég tel þig líklegastan til að leysa vandræði mín og þess vegna skrifa ég þér. Fyrir nokkrum áratugum söng Bing Crosby lagið „Toora loora loorei" inn á plötu og gerði vin- sælt. Ef einhver lesenda Morgun- blaðsins kannaðist við íslenzkan texta við þetta lag og þá hver gerði, þá þætti mér vænt um að hann hefði samband við mig. Ef til vill væri enn betra að hann sendi Velvakanda textann til birtingar, því ég efast ekki um, að fleiri en ég hefðu ánægju af að sjá íslenzkan texta við þetta gamalkunna lag. Með þakklæti. Bing Crosby. Myndin er tekin í júní 1979, er hann dvaldist hér i landi og renndi fyrir lax. Geysir í Haukadal: Aðvörun Friðrik Haraldsson skrifar. Geysir hefur geyst um síður dagblaðanna frá því skömmu eftir áramótin, allt frá því að Geysisnefndin var vakin til vit- undar um spjöllin, sem unnin voru á hvernum. Flestir eru orðnir þreyttir á náttúruvernd- arsjónarmiðunum sem hamrað er á, þegar þetta mál ber á góma. Samt má aldrei láta deigan síga á því sviði. Þessar línur eru settar á blað í þeirri von, að nefndin sé ekki komin í náttfötin sín aftur og geti hugsað sér að hafa enn mik- ilvægari hugsjón að leiðarljósi en náttúruverndina, þ.e.a.s. verndun lífs og lima þeirra, sem heimsækja Geysissvæðið. Raufarskömmin hefur haft þau áhrif á Geysi, að vatnsborð hans hefur lækkað og kóinunar- flöturinn minnkað. Þetta hefur þær afleiðingar, að hverinn gus- ar fyrirvaralaust úr sér í allar áttir, þannig að þeir, sem nærri standa eiga fótum fjör að launa, ef þeir eru nógu sprækir til að forða sér. Nú fer ferðatíminn í hönd og þegar eru hundruð erlendra ferðamanna farin að streyma um hverasvæðið. Þetta fólk er ekki allt á bezta aldri og því benda ailar líkur til að senda verði sorgarfréttir til heim- kynna einhvers þess, að óbreyttu ástandi við Geysi. Þann 9. þ.m. var undirritaður staddur á hverasvæðinu og sá með eigin augum hættuna, sem stafar af Geysi í núverandi mynd. U.þ.b. 30 manns stóðu á skálarbrún hversins, þegar hann þeytti sjóðandi vatni 10 m í loft upp og yfir áhorfendur. Þar brenndist enginn þessu sinni en líkurnar á slysi eru verulegar. Vonandi þurfum við ekki að horfa upp á stórslys áður en gripið verður til aðgerða til úr- bóta. Þessir hringdu . . . Alltaf innan tímamarkanna Þorsteinn Hannesson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Vegna ummæia Guðrúnar Krist- jánsdóttur í dálkum þínum á fimmtudaginn, þess efnis að dagskrárliðir hafi verið felldir niður vegna þess að hljómplötu- rabbið hafi farið fram úr áætluð- um tíma, vil ég aðeins segja það, að þátturinn hefur ekki í eitt ein- asta akipti farið út fyrir áætlaða lengd. Ég hef lagt sérstaka áherslu á, að slíkt kæmi ekki fyrir hjá mér. Ástæðan fyrir því, sem Guðrún talar um, er því sú, að lið- ir framar í dagskránni hafa farið úr böndunum. Ekki rétt med farið Gunnlaugur Rögnvaldsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — I grein sinni í Velvak- anda á föstudag, Illt til eftir- breytni, segir Gísli Bjarnason m.a. er hann fjallar um Tomma-rallið, að þrír bílar hafi oltið og einn maður slasast. Hið rétta er að einn bill valt og hélt áfram keppni, en maðurinn, sem Gísli nefnir, meiddist aðeins lítillega í baki. Stórhættuleg- ur akstursmáti Ó.Þ. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mér kom það í hug þegar ég las grein Gisla Bjarnasonar um rallaksturinn, að fleira er hættulegt í umferðinni en hraður akstur á vegum úti. Um páskana fór ég ásamt konu minni og fieirum akandi austur í Hreppa. Á leiðinni mættum við mörgum bílum, eins og gera mátti ráð fyrir. Sumir fóru greitt, aðrir hægara. En ekki urðum við fyrir neinum óþægindum fyrr en við komum niður í Lækjarbotna á leiðinni heim síðdegis á annan í páskum, og urðum síðust í langri bíialest. Fyrir lestinni fór ljós fólksbíll úr Kópavogi. Var öku- maðurinn kona og hélt hún sig á um 45—50 km hraða, svo og um- ferðinni fyrir aftan sig. Ekki undu allir þessum ferðamáta og var einn og einn bíll að taka sig út úr lestinni til að fara fram úr Kópa-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.