Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 45

Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 93 w w - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖ8TUDAGS MIÆ*I MJmá 'U if Vísa vikunnar Ráðherrans lítt þó renni blóð, rullu sína valdsmannslega þylur, yfirdrifið orðaflóð, sem enginn veit hvort nokkur maður skilur. Hákur Hrakvirði Andvirði Núvirði fram a A'pm* ■iv„raoeröi »8 er l urverksmi*) « Hjörleifs ',af, „nar iðnaAarráft- I (;ullormssonar, Lag til við „Rósina“ LH. skrifar: „Kæri ágæti Velvakandi. Vilt þú vera svo góður að birta eftirfarandi: Mig langar til að vekja athygli S.G. á að það er til yndislega fagurt iag við Ijóðið „Rósin" eftir Guðmund Guðmundsson. Lagið er eftir Árna Thorsteinsson tónskáld. Velvakandi, þökk sé þér ef þú vilt koma þessu á framfæri." Útreiðar á bílabrautum: Jafnfráleitar og leik- ir barna á götum úti Björn Steffensen skrifar: „Velvakandi. Það var mikil skammsýni hjá borgarstjórn og hestamönnum þegar hluti Seláss og Árbæjar- hólma, eða þau svæði sem nú eru nefnd Víðidalur og Víðivellir, voru lögð undir hestasportið. Fara hefði átt lengra frá borg- inni, þangað sem meiri möguleik- ar voru til umsvifa, og þá sérstak- lega til iagningar reiðgatna. En einmitt það hlýtur að vera annað höfuðskilyrði allrar hesta- mennsku, ásamt sjálfum hestun- um. Á núverandi stað eru allt of litl- ir möguleikar til gatnagerðar í þessu skyni, og því hefur bílaveg- urinn tií Vatnsendabyggða jafn- framt verið notaður til útreiða, svo og bílavegurinn frá Rauða- vatni til Vífilsstaða. Þetta er háskalegt fyrirkomulag og með öllu óviðunandi fyrir báða aðila, að stefna þarna saman þétt- Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstudaga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kemur orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimilis- föng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar þess óski nafnleyndar. ings bílaumferð og mörgum hundruðum reiðmanna, oft með 2—3 til reiðar. Af langri og lýj- andi reynslu af þessu fáránlega skipulagsleysi undrar það mig mest, að þarna skuli ekki hafa orðið tíðari slys. Margir virðast ekki gera sér grein fyrir því að hesturinn er ekki lengur farartæki. I öllu falli ekki í þéttbýli. Hestar hér um slóðir eru nú ekki annað en leik- föng, sporttæki, og sportið, reið- mennskan, krefst viðeigandi að- stöðu, rétt eins og t.d. golf og aðr- ar íþróttir. Að iðka útreiðar á fjöl- förnum bílabrautum er jafn frá- leitt og boltaleikir barna á götum úti, og engu hættuminna, auk þess sem ósköp lítil reisn er yfir hesta- mennsku við svo óglæstar aðstæð- ur. Hestamenn komast ekki hjá því að efna nú þegar til nýrrar bæki- stöðvar fjær borginni, og flytja svo þangað smám saman alla starfsemina, nema ef til vill skeið- völlinn. Vegurinn, sem kemur ofan byggðar, og er alveg óhjákvæmi- legur vegna byggðanna sunnan Reykjavíkur, gerir þetta enn brýnna, að ekki sé talað um byggð- ina, sem koma á þarna allt um kring, og þá miklu fjölgun hesta sem stöðugt á sér stað. P.S. Vegna þess, m.a. að örlög bæki- stöðvar hestamanna í Selási hafa tengst umræðunni um fyrirhug- aða byggð kring um Rauðavatn, langar mig að fá svar sérfróðra við spurningunni: Þegar allt vatnasvið Rauðavatns er komið undir steinsteypu og malbik, verð- ur þá nokkurt Rauðavatn? vogsbílnum, þrátt fyrir nokkuð þétta umferð á móti. Var oft á tíð- um giæfraiegt að horfa upp á þetta og ekki lögðum við í að taka þarna framúr, en biðum frekar Vesturlandsvegarins til þess að losna við þessa hægferðugu sam- fylgd konunnar úr Kópavogi. Akstursmáti hennar þarna var að mínum dómi stórhættulegur og finnst mér of lítið hafa verið gert til að benda fólki, sem þannig ek- ur, á villu síns vegar. Hvað voru mið- arnir margir? Andrés Andrésson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Það stendur skýrum stöfum á happ- drættismiðum þeim, sem SAÁ bauð til sölu fyrir skemmstu, að upplagið væri 170 þúsund miðar. En nú sé ég í vinningaskrá happ- drættisins, að vinningur hefur fallið á miða nr. 170581. Hvernig stendur á því? Hvað urðu miðarn- ir endanlega margir? - O - Velvakandi hafði samband við skrifstofu SÁÁ og fékk þar eftir- farandi upplýsingar: Fyrstu 30 þús. númerin voru ætluð til lausa- sðlu, en næstu 140 þús, til heim- sendingar. Þar sem fjöldi heim- sendra miða fór 692 númerum fram úr áætlun, tók fógeti í stað- inn jafnmörg númer úr lausasölu- upplaginu til þess að jafna metin (nr. 13501—14192). Númerin urðu því 170 þús. alls eins og tilgreint var á miðunum. 03^ SIGGA V/öGA £ ‘Í/LVE&4N /YmDRElTIR mADmint/ Mánudaga til föstudaga Við bjóðum m.a.: Gufusoðinn rauðmaga Svartfuglsbringu með madeirasósu auk hins fasta matsedils hússins ARNARHÓLL á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrœtis. Boróapantanir í síma 18833. Góður sumarbústaður óskast Óskum eftir aö taka á leigu sumarbústaö í nágrenni Reykjavíkur. Uppl. í síma 75748. UTBOÐ Tilboð óskast í byggingu bílageymslu Reykja- víkurborgar og undirstöðurog botnplötu húss Seðlabanka íslands við Kalkofnsveg í Reykja- vík. Helstu magntölur eru: Mótafletir 13.700m2, steypustyrktarstál 484 tonn og steypa 5.230m3. Steypuvinnu skal vera lokið 15. desember 1982 og öllu verkinu eigi síðar en 15. febrúar 1983. Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræðiskrifstofunni h.f., Fells- múla 26, gegn 3.000,00 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð að Einholti 4, mánudaginn 3. maí 1982, kl. 11,00 fh. SEÐLABANKIÍSLANDS z' w wm miv\ V/óóAÍ \\AM ÍMPQI/ vvf« mi — ý> &mi é6 OG % mq- MáQltí YlÉtf 06 átftl \ivty SA69/Sro £ud MGm VIQ V/1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.