Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982 Um 3.400 Sókn- arfélagar í verk- fall frá 19. maí Starfsmannafélagift Sókn hefur boóað verkfall frá og með 19. maí nk., að sögn Aðalheiðar Bjarnfreðs- dóttur, formanns félagsins, sem sagði verkfallið boðað til að knýja á um gerð samninga, sem hefðu dreg- izt um of á langinn. Þessi verkfallsboðun okkar þýðir ekki, að slitnað hafi upp úr samn- ingaviðræðum okkar og viðsemj- enda okkar. Viðræðum verður haldið áfram eftir sem áður og reynt til þrautar að ná samkomu- lagi, sagði Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir. Það kom ennfremur fram hjá Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, að fé- lagar í Starfsmannafélaginu Sókn eru í dag liðlega 3.400 talsins.'Fé- lagar í Sókn eru m.a. starfandi á sjúkrahúsum, dagvistarstofnunum, í heimilsþjónustu og heimilishjálp, en stærsti hluti félaga er starfandi á Reykjavíkursvæðinu. Nafn mannsins sem drukknaði MAÐURINN sem drukknaði í höfninni í Grundarfirði um helg- ina hét Karl Jónasson og var frá Hofsósi. Karl heitinn var sextug- ur. Nýsmíði fiskiskipa: Jón Sigurðsson varð áttræður i gær, en sem kunnugt er stóð hann í fylkingarbrjósti verkalýðshreyfingarinnar i áratugi og var formaður Sjómannasambandsins lengi. Verkalýðshreyfingin hélt honum kaffi- samsæti á afmælisdaginn og komu margir til að beilsa upp á Jón, þeirra á meðal Torfi Hjartarson sáttasemjari. Sést hann hér heilsa Jóni. Ljóam. Mbl. KÖK. Hjúkrunar- fræðingar á Sólvangi bjóöa málamiðlun Hjúkrunarfræðingar á Sólvangi í Hafnarfirði buöu í gær upp á að halda áfram störfum frá 15. maí eins og ekkert hefði í skorist. Þess í stað fara hjúkrunarfræð- ingar fram á að fá sömu kjarabæt- ur og aðrir hjúkrunarfræðingar, ef til þess kemur, og hverjar svo sem þær verða og skuli þær gilda frá 15. maí að telja. Tilboð þetta verður rætt á stjórnarfundi Sól- vangs og í bæjarráði Hafnarfjarð- ar í dag. Að sögn Sveins Guðbjartssonar forstjóra Sólvangs kemur til al- gjörs neyðarástands á Sólvangi ef hjúkrunarfræðingar ganga út á laugardag. Sveinn sagði að hann sæi ekki hvernig unnt yrði að standa að málum þar. Ekki væri unnt að loka neinni af þeim þrem- ur deildum sem þar eru og algjört hámark að unnt yrði að senda tvo til þrjá sjúklinga heim. Fundur Vardbergs og SVS: Utanríkisráð- herra ræðir alþjóðamál SAMTÖK um vestræna samvinnu (SVS) og Varðberg halda sameigin- legan hádegisverðarfund laugardag- inn 15. maí í Átthagasal Hótel Sögu. Ræðumaður á fundinum verður Olafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, og nefnist erindi hans „Horfur í alþjóðamálum." Ráðherra svarar fyrirspurnum fundarmanna. Fundurinn er ein- göngu ætlaður félagsmönnum og gestum þeirra. Lánahlutfall Fiskveiða- sjóðs fer úr 75% í 60% Hamlar af endurnýjun og breytingum, segir Þorleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna „MENN óttast mjög, að þessi breyt- ing muni bremsa ansi mikið af endurnýjun, auk þess sem Fisk- veiðasjóður ætlar ekki að veita nein lán út á raðsmiði okkar á þessu ári,“ sagði Þórleifur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Landsambands iðnað- armanna í samtali við Mbl., er hann var inntur álits á þeirri ákvörðun Fiskveiðasjóðs, að lækka lánahlut- fall til nýsmíði fiskiskipa úr 75% í 60%. — Reyndar ætlar Fiskveiða- sjóður að samþykkja lán til bygg- ingar fjögurra skipa á næsta ári, sem er fjarri því að vera nægjan- legt. Þá var samþykkt í fjárfest- ingar- og lánsfjáráætlun, að hægt er að veita stöðvunum sjálf- skuldarábyrgð til þess að þær geti smíðað fyrir eigin reikning á með- an ekki fæst lánsfjárloforð frá Fiskveiðasjóði. Þetta getur bjargað málinu að hluta, ef lánshlutfallið verður ekki orðið svo lágt, að menn treysti sér hreinlega ekki út í þetta af þeim sökum, sagði Þórleifur ennfremur. Þórleifur sagði aðspurður, að þessar reglur virkuðu ekki aftur fyrir sig og myndu því aðeins gilda frá útgáfu þeirra, sem var um miðjan apríl. — Síðan þessar nýju reglur urðu að veruleika, er mér ekki kunnugt um að Fiskveiða- sjóður hafi samþykkt neitt nýtt lán til nýsmíði eða breytinga, sagði Þórleifur Jónsson ennfrem- ur. Þórleifur sagði aðspurður að eðlilegt væri að menn vildu draga úr nýsmíði fiskiskipa. Hins vegar kæmi það sér illa, þegar smiði fiskiskipa hæfist að nýju af full- um krafti að íslenzku stöðvarnar sætu þá eftir en sú hætta væri auðvitað fyrir hendi ef samdrátt- ur yrði í íslenzkri skipasmíði. Útlánastefna bankanna: Útvegsbanki ekki aðili að samkomulagi - hvorki formlegu né óformlegu f FRAMHALDI af frétt Morgun blaðsins í fyrradag um útlánastefnu Fréttaspegill á föstudagskvöld: Hjörleifur lagði bann við að Ragnar hlýddi á mál sitt Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, neitaði að koma fram með Ragnari Halldórssyni, forstjóra ÍSAL, í fréttaskýringaþætt- inum Fréttaspegli á fóstu- dag í síðustu viku. Tveimur mínútum fyrir beina útsendingu krafðist ráðherra þess svo, að Ragnar yrði ekki í sjón- varpssal þegar hann talaði og tryggt yrði, að Ragnar gæti með engu móti fylgst með ummælum sínum í sjónvarpi. Þessi furðulega krafa ráðherrans kom mjög flatt upp á menn, en Ragnar Halldórs- son hjó á hnútinn með því að fall- ast á kröfu ráðherrans með þeim orðum, að það gerði svo sem ekk- ert til sín vegna. Kraföist að maður yrði settur til höfuðs Ragnari En þetta dugði ráðherranum ekki og hann krafðist þess, að maður yrði settur til höfuðs Ragn- ari svo tryggt yrði, að Ragnar „stælist" ekki til að horfa á ráð- herrann. Menn litu nú hver á ann- an í forundran. Ragnari var boðið sæti í herbergi án þess að nokkur fyrirmæli væru gefin um, að líta þyrfti sérstaklega eftir honum. Hljóp til og athugaði hvort hurð væri lokuð En sagan er ekki öll; rétt áður en bein útsending hófst hljóp ráðherrann Hjörleifur Guttorms- son til og athugaði hvort hurð að hliðarherbergi, þar sem sjónvarp var, væri ekki örugglega lokuð. Tryggt skyldi, að Ragnar Hall- dórsson gæti undir engum kring- umstæðum hlustað á ummæli hans. Þeir starfsmenn sjónvarps- ins sem vitni urðu að þessu urðu mjög hissa, en atburðir sem þessir hafa aldrei gerst í sögu sjónvarps- ins. Ráðherra taldi sig ekki þurfa að fara í viðræður við forstjóra einhvers fyrirtækis úti í bæ Mbl. bar þessa sögu undir Ólaf Sigurðsson, fréttamann, og stað- festi hann söguna. „Þegar ég fór þess á leit við Hjörleif fyrr um daginn, að hann kæmi fram í sjón- varpi, hafði hann þau orð við okkur Ingva Hrafn Jónsson, að sem ráðherra teldi hann sig ekki þurfa að fara í viðræður við for- stjóra einhvers fyrirtækis úti í bæ, eins og hann orðaði það og var fallist á þetta," sagði Ólafur Sig- urðsson í samtali við Mbl. „Það kom svo algjörlega flatt upp á menn þegar ráðherrann, tveimur mínútum fyrir beina út- sendingu, krafðist þess, að Ragn- ari yrði bannað að hiusta á mál hans. Eins og það sé í verkahring ráðherra að ákveða hverjir horfi á sjónvarp á íslandi. Mönnum mis- líkaði þetta mjög en lítið ráðrúm var til stefnu og lítið hægt að að- hafast á aðeins tveimur mínútum. En Ragnar hjó á hnútinn þegar hann féllst á að víkja. Að hliðra svo til við Hjörleif að leyfa honum að vera einum fannst okkur Þrándi Thoroddsen, stjórn- anda þáttarins, mjög langt gengið. Aldrei hefði verið fallist á kröfu ráðherrans, að meina Ragnari að hlýða á mál hans, ef ráðrúm hefði gefist. Svona tilvik hafa aldrei gerst áður, en útvarpsráð hefur samþykkt, að ef menn neita að koma til umræðna við andmæl- anda í mikilvægu máli, þá geta sjónvarpsmenn rætt eingöngu við annan málsaðila," sagði Ólafur Sigurðsson. bankanna skal tekið fram, að við- skiptabankarnir munu ekki hafa gert með sér undirritað samkomulag um útlánastefnu næstu mánuði. Hins vegar má búast við, að flestir bankanna fylgi þeim línum um útlán, sem lagðar hafa verið á fundum fulltrúa bankanna að undanförnu. Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins er Utvegsbanki íslands ekki aðili að nokkru samkomulagi um útlánastefnu, hvorki formlegu né óformlegu. Brotizt inn í KÁ í Hveragerði llveragerði, 12. maí. BKOTIZT var inn í útibú Kaupfé- lags Árnesinga í Hveragerði sl. nótt og miklu stolið af vörum, mest þó af tóbaki og sælgæti. Varningi hafði verið sópað niður úr hillum verzlun- arinnar og mikið skemmt. Brotnar voru rúður á bakhlið hússins, en þar munu þjófarnir hafa farið inn í búðina. Lögreglan á Selfossi vinnur að rannsókn málsins og biður hún alla sem hafa orðið varir við óvenjulegar mannaferðir nálægt KÁ að gefa sér upplýsingar hið bráðasta. — Sigrún. © INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.