Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1982
23
ísrael, Taiwan og S-Afríka
framleiða kjarnorkuvopn
Tel Aviv, 12. maí. AP.
ÍSRAEL, Suður-Afríka og Taiwan hafa tekið saman höndum
um smíði margra tegunda kjarnorkuvopna, segir í bók sem
kemur út í Bretlandi og Bandaríkjunum í vikunni.
Herlið sækir
inn 1 Guyana
(ieorgetown, Guyana, 12. maí. AP.
HERMENN frá Venezuela sóttu inn yfir landamæri Guyana nálægt þorpinu
Eteringbang á mánudaginn og námu ekki staðar fyrr en Guyana-hermenn
skutu viðvörunarskotum, að sögn stjórnarmálgagnsins „Guyana-tíðindi" í
gær, þriðjudag.
Spenna hefur þar með aukizt
vegna þess að búizt er við að Ven-
ezuela endurnýi í næsta mánuði
kröfu sína til fimm áttundu hluta
yfirráðasvæðis Guyana, sem er
fyrrverandi brezk nýlenda. Ven-
ezuela neitar að endurnýja samn-
ing, sem hefur leitt til þess að
deilan hefur legið í þagnargildi í
12 ár.
Ekkert hefur frétzt um mann-
tjón í bardögunum og „Guyana-
tíðindi" sögðu heldur ekki frá því
hve margir hermenn hefðu tekið
þátt í þeim, þótt blaðið gæfi í skyn
að þeir hefðu verið fáir. Svo er að
skilja að nokkrir Venezuela-her-
menn séu enn á guyönsku yfir-
ráðasvæði.
Blaðið segir að tveir flokkar
Venezuela-hermanna hafi farið
frá eynni Ankoko á Cuyuni-fljóti
og gengið á land nálægt Etering-
bang, þar sem hermenn frá eftir-
iitsstöð varnarliðs Guyana skutu
viðvörunarskotum.
Embættismenn Guyana-stjórn-
ar telja að annar venezuelski her-
flokkurinn hafi snúið aftur til eyj-
unnar, sem bæði löndin gera kröfu
til og Venezuela hefur haft á valdi
sínu í 11 ár. Óljóst er hvað varð
um hinn herflokkinn.
Venezuela gerir tilkall til
155.400 ferkílómetra vanþróaðs en
málmauðugs frumskógasvæðis
vestan Essequibo-fljóts. Deilan á
rætur að rekja til nítjándu aldar
ósamkomulags Breta og Venezuela
um landamæri Brezku-Guyana og
minnstu munaði að hún leiddi til
styrjaldar milli Bretlands og
Bandaríkjanna skömmu . fyrir
aldamótin síðustu.
Syni Korchnoi
sleppt úr haldi
Moskvu, 12. maí. AP.
SONUR VIKTORS Korchnoi skákmeistara verður látinn laus úr vinnu-
búðum í Síberíu á morgun, fimmtudag, að sögn ættingja hans í dag,
miðvikudag.
Igor Korchnoi er 23 ára og var
fundinn sekur um að koma sér
undan herskyldu í desember
1979 og dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi.
Ættinginn sagði í símtali frá
Leningrad að vonandi leiddi
þetta til þess að fjölskyldan
fengi að flytjast frá Sovétríkjun-
um og vera hjá Viktori Korchnoi
á Vesturlöndum.
Korchnoi-fjölskyldan sagði
1979 að Igor hefði komið sér
undan herskyldu, þar sem hann
hefði óttazt að ef hann yrði
neyddur í herinn fengi hann
vitneskju um ríkisleyndarmál,
þannig að enn minni möguleikar
yrðu á því en ella að hann fengi
að flytjast úr landi.
Viktor Korchnoi bað um hæli í
Hollandi 1976 og býr um þessar
mundir í Sviss. Önnur tilraun
hans til að hremma heimsmeist-
aratitilinn í skák af Anatoly
Karpov fór út um þúfur 1981
þegar hann tapaði með tveimur
vinningum gegn sex.
Tveir drepnir á N-írlandi
Belfmsl, 12. maí. AF.
TVEIR MENN voru myrtir á Norður-írlandi í dag þegar vopnaðir öfgasinnar
skutu á þá af stuttu færi.
Sá fyrri 'var 26 ára kaþólikki.
Tveir öfgamenn úr röðum mót-
mælenda skutu hann til ólífis í
ávaxtabúð við Antrimgötu í Bel-
fast. Særðu þeir tvo aðra menn í
árásinni.
Seinna morðið var framið í
bænum Strabane við írsku landa-
mærin, þar sem meirihluti íbúa er
kaþólskrar trúar. Sátu vopnaðir
menn, sem taldir eru vera í írska
lýðveldishernum (IRA), fyrir
fórnarlambinu í húsi hans.
Á þessu ári hefur 31 maður fall-
ið á Norður-írlandi, en frá því
deilurnar hófust í héraðinu fyrir
13 árum hafa þar fallið rúmlega
2.200 menn.
Áfengisdrykkja í
Noregi minnkar
Osló, 12. maí. AP.
Norðmenn neyttu sem svarar 17 milljónum litra af hreinum vínanda á
síðasta ári, að sögn norsku hagstofunnar, en það jafngildir 10,3 % magn-
minnkun frá árinu áður. Hér er eingögnu um að ræða áfengi, sem selt er í
verzlunum, og því ekki um raunverulega tölu að ræða, þar sem heimabrugg
er mjög algengt, sökum mikillar álagningar ríkisins á áfenga drykki.
Vínandaneyzla Norðmanna 1981 1980, borðvína um 4,9% og bjór-
jafngildir því, að þeir sem eru 14
ára og eldri hafi neytt 5,3 lítra af
hreinum vínanda hver. Heildar-
neyzlan hefur ekki verið minni frá
1974. Neyzla sterkra drykkja 1981
minnkaði um 15,7% miðaö við
neyzla minnkaði um 6,5%. Samtals
borguðu norskir vínneytendur 7,17
milljarða norskra króna fyrir
áfenga drykki 1981, en þótt neyzl-
an minnkaði, var það 11,5% hækk-
un i krónutölum frá árinu áður.
Meðal þeirra vopna, sem í ráði
er að smíða, eru nifteinda-
sprengjur, litlar kjarnorku-
sprengjur, sem skotið er með
fallbyssum, og langdrægar eld-
flaugar búnar kjarnaoddum. Því
er einnig haldið fram að ísraels-
menn hafi fundið upp ódýrustu
aðferðina til úraníumvinnslu við
framleiðslu kjarnorkusprengja.
Bókin er eftir þrjá ísraels-
menn, próf. Amof Perlmutter,
sem býr í Bandaríkjunum og dr.
Michael Hendel og Uri-Bar-
Yosef við Alþjóðamáladeild
Hebreska háskólans í Jerúsalem.
ísraelskir fjölmiðlar skýrðu frá
efni bókarinnar í dag, miðviku-
dag.
Bókin Heitir „Tvær mínútur yf-
ir Baghdad" og fjallar um loft-
árás Israelsmanna á kjarnakljúf
íraka á siðasta ári.
Blaðið Haaretz segir í frétt frá
London að samkvæmt bókinni
virðist Israel, Suður-Afríka og
Taiwan vinna að smíði stýrield-
flaugar, sem getur borið kjarna-
odd og gæti hæft hvaða skot-
mark sem er í arabaheiminum og
náð til stórra svæða Sovétríkj-
anna.
Við öllu búnir — Þrír argentínskir hermenn sjást hér búa
sig undir innrás Breta á Falklandseyjum. Myndin var
tekin fyrir nokkru.
Kona verður aðstoðar-
bankastjóri Alþjóðabankans
Wa.shington, 12. maí. AP.
BANDARÍSKI hagfræðiprófessor-
inn Anne Krueger verður fyrsta
konan sem gegnir störfum aðstoð-
arbankastjóra Alþjóðabankans í
Washington. Frá þessu var skýrt í
höfuðstöðvum bankans í dag.
Anne Krueger hefur verið prófess-
or við háskólann í Minnesota í
mörg ár og m.a. rannsakað við-
fangsefni er varða þróunarlöndin,
en meginverkefni Alþjóðabankans
er að lána slíkum löndum fé til
“PPbyggingar.
SkiptiferOr
VPlktllVtA -
félasan
ódýrara er ekki hægt a
Með samstarfi við Samvinnuferðir-Land-
sýn og Dansk Folke-ferie efnir Alþýðu-
orlof í sumar til þriggja utanlandsferða
fyrir félagsmenn verkalýðssamtakanna
á íslandi og í Danmörku. Með þessum
gagnkvæmu samskiptum við dönsku
verkalýðshreyfinguna er unnt að bjóða
skiptiferðirnar fyrir verð sem vart á sér
nokkra hliðstæðu og verður boðið upp á
fjölbreytta dagskrá og ýmsar spennandi
skoðunarferðir um Danmörku og yfir til
Svíþjóðar. Farið er vítt og breytt um Jót-
land og Sjáland og tækifæri gefst m.a. til
heilsdagsferðar yfir til Þýskalands.
Rétt til þátttöku í Danmerkurferðunum
eiga félagsmenn í aðildarfélögum Alþýðu-
orlofs sem eiga orlofshús í Ölfusborgum,
Svignaskarði, Vatnsfirði, Illugastöðum
eða Einarsstöðum og fær hvert orlofs-
svæði tiltekinn fjölda þátttakenda í
hverja ferð.
Eftirtaldir aðilar veita allar nánari upp-
lýsingar og taka við bókunum:
Alþýðuorlof
Lindargötu 9, Reykjavík
sími 91-28180 (kl. 13.00-17.00)
Alþýðusamband
Austurlands
Egilsbraut 25, Neskaupstað
sími 97-7610
Alþýðusambands
Vestfjarða
Alþýðuhúsinu, ísafirði
sími 94-3190
Alþýðusamband
Norðurlands
Brekkugötu 4, Akureyri
sími 96-21881
19 dagar með öllu fyrir aðeins
kr. 5.700
Innifalið: Flug, gisting í sumarhúsum í 7
daga og 12 daga rútuferð með gistingu og
fullu fæði ásamt íslenskri fararstjórn.
Barnaafsláttur kr. 800
fyrir böm yngri en 12 ára.
28. júní - 17-júlí - laus sæti
17. júlí - 31. júií -15 dagar - uppselt
31. júlí -18. ágúst laus sæti
Verð miðað við flug og gengi 18. jan. '82
Dansk folkefene
Samvinnuferdir - Landsýn
m|
Stjórn Alþýðuorlofs