Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982 31 Brottför 24. maí og til baka að kvöldi 27. maí, gist í London og Kotterdam. Verð ca. kr. 6.200.00. Innifalið: flug, tíistinu með morgunmat, ferðir til or frá völlum ok aðganKsmiðar í góð sæti. Aðeins örfá sæti fáanleg. Reykjavík, Austurstræti 17, sími 26611 Akureyri, Kaupvangsstræti 4, sími 22911 Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar frekari upp- lýsingar. Hverfisgólu 33 — Slml 20560 — Pósthóll 377 Reykjavik U-bix 100 er Ijósritunarvél sem sér- staklega er hönnuð til þess að þola mikið og stöðugt álag. Hún er því mjög heppileg Ijósritunarvél fyrir stofnanir og fyrirtæki sem stöðugt þurfa að fjölfalda mikið efnismagn t.d. skýrslur og álits- gerðir eða kennslugögn og próf. U-bix 100 hefur reynst ein- staklegavel tilslíkra verka endaerhún númest selda Ijósritunarvélin í sínum stærðarflokki. U-bix 100 skilarallt að 15 Ijósritum á mínútu í stærðunum A5 - A3 á venjulegan pappír, bréfsefni eða löggiltan skjalapappír. xxa % n Sextugur: Einar Markússon píanóleikari „Veistu að hann Einar okkar verður sextugur 13. maí,“ sagði við mig kona, sem ég mætti á förnum vegi í Hveragerði. Og hvað sem Hávamál annars segja um mark- tækni kvennahjals, datt mér ekki í hug að rengja þessi tíðindi um sextugsafmæli Einars Markússon- ar píanóleikara, vissi að það stóð til, að hann hrykki yfir á þennan áratug einhverntíma, svo fremi sem hann lifði. Kynni okkar Einars hófust fyrir tíu árum, er hann kom vestan úr Reykjavík til að gerast kennari við Tónlistarskóla Árnessýslu. Til bráðabirgða fékk hann hús- næði á hótelinu, hjá þeim sæmd- arhjónum Eiríki Bjarnasyni frá Bóli og Sigríði Björnsdóttur. Á því hefur svo engin breyting orðið, enda margt ágætt sem gert er til bráðabirgða. Á starfi hans sem kennara við tónlistarskólann hef- ur heldur engin breyting orðið að ráði. Hann er laginn við að kenna nemendum sínum að ná lagi á slaghörpuna, fundvís á hið skemmtilega í tilverunni og góður félagi. Það mætti rifja margt upp á þessum tímamótum, en þetta er engin minningargrein, heldur að- eins heillaóskir til þín, Einar, frá vinum sem hafa Hveragerðis- kirkju fyrir vinnu- og griðastað. Þökkum þér störf þín og vináttu. Gangi þér allt í haginn á næstu áratugum. Tómas Guðmundsson. Mýyatnssveit: Ánægjulegur samsöngur kórs Reykjahlíðarsóknar Mývainasveit, 1. maí. KÓR Reykjahlíðarsóknar hélt samsöng í Skjólbrekku í gær- kvöldi. Söngstjóri var Jón Arni Sigfússon, einsöngvarar Guðbjörg Ingólfsdóttir, María Ketilsdóttir og Baldur Baldvinsson. Undirleik- ari var séra Örn Friðriksson. Á söngskrá voru fimmtán lög eftir innlenda og erlenda höf- unda. Aðsókn var mjög góð og Hópferð á topp-leiki í fótbolta Ferðaskrifstofan Útsýn hefur ákveðið að efna til hópferðar til London og Rotterdam þar sem horft verður á England — Holland og úrslitaleikinn í Evrópukeppni meistaraliða Áston Villa — Bayern Munchen undirtektir áheyrenda fram- úrskarandi góðar. Varð kórinn að endurtaka mörg lög og enn- fremur að syngja aukalög. Auðheyrt var að kórinn hefur æft vel að undanförnu og er í ágætri þjálfun. Sl. laugardags- kvöld söng kórinn í Ljósvetn- ingabúð. Ekki er fullráðið hvort sungið verður víðar á næstunni. Þökk sér kór Reykjahlíðarsókn- ar fyrir ánægjulega söng- skemmtun. Reykjavík: Frambjóðend- ur á fundi um dagvistarmál FÓSTRUFÉLAG íslands gengst fyrir opnum fundi að Hótel Sögu, Súlnasal, í kvöld kl. 20.30. í frétt frá félaginu segir, að fulltrúar allra framboðslista til borgarstjórnarkosninga muni flytja framsöguerindi um stefnu þeirra í dagvistarmálum og fyrirspurnir og frjálsar umræð- ur verði á eftir. BR&BTERS Komdu fyrir kl. 10.00, myndirnar tilbúnar kl. 17.00. Framköllun samdægurs er ný þjónusta sem þú færö aöeins hjá okkur. Komdu í einhverja afgreiösluna milli kl. 8.30 og 10.00 aö morgni, og náöu í tilbúnar litmyndir kl. 17.00—18.00 síö- degis. Aö sjálfsögöu kemur hraöinn ekki niöur á gæðunum. Viö reynum betur. Hafnarstræti 17, Suöurlandsbraut 20 og hjá Magasín, Auðbrekku 44—46, Kópavogi. U-BIX100 öflug og afkastamikil Ijósritunarvél

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.