Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1982
t JÓRUNN JÓNSDÓTTIR, Neöra-Ási, andaöist þann 10. maí á Landakotsspítala. Systkini hinnar látnu.
t Eiginkona mín og móöir okkar, ALDÍS ANNA ANTONSDÓTTIR, Álftamýri 28. lést í Borgarspítalanum, 12 maf. Kristján Björnsson, Axel Albertsson, Kristín Albertsdóttir.
t Eiginmaöur minn, INGIMUNDUR SVEINSSON Frá Melhóli, sem andaöist 6. maí, veröur jarösunginn laugardaginn 15. maí, kl. 2 e.h. frá Prestsbakkakirkju á Sföu. Fyrir hönd vandamanna, Valgeröur Ingibergsdóttir.
t Maöurinn minn, SVEINN GUÐMUNDSSON, Garöabraut 24, Akranesi, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju, föstudaginn 14. maí, kl. 14.15. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hans, láti sjúkrahús Akraness njóta þess. Ingibjörg Jónasdóttir.
t Kveöjuathöfn um ÞURÍÐI BÆRINGSDÓTTUR frá Hóli f Hvammssveit, fer fram föstudaginn 14. maf kl. 3 f Dómkirkjunni f Reykjavfk. Jarösett verður f Hvammi f Dölum, laugardaginn 15. maí, kl. 2. Ingvar Kristjánsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t Kveöjuathöfn um móöur mína, LOVÍSU ÓLAFSDÓTTUR frá Stykkishólmi, fer fram í Dómkirkjunni, föstudaginn 14. maí nk. kl. 13.30 e.h. Jaröaö veröur frá Stykkishólmskirkju, laugardaginn 14. maí, kl. 2. Ruth Einaradóttir.
t Þakka vinum mínum og vandamönnum auösýnda samúö og hlý- hug viö fráfall eiginmanns mfns, ÞORSTEINS KRISTINSSONAR frá Möórufelli í Eyjafiröi. Guö blessi ykkur öll. Jenný Oddsdóttir frá Heiöi á Langaneai.
t Innilegar þakkir öllum þeim sem heiöruöu minningu ADALSTEINS HJARTARSONAR frá Grjóteyri meö nærveru sinni á kveöjustund, minningargjöfum og blóm- um. Guö blessi ykkur öll. Systkini hins látna.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar og móöur okkar, MARÍU EYVARAR EYJÓLFSDÓTTUR frá Kambshóli, Svínadal. Þorsteinn Vilhjálmsson og vandamenn.
Minning:
Hergeir Albertsson
rafvirkjameistari
Fæddur 11. október 1897
Dáinn 4. maí 1982
í dag er til moldar borinn frá
ísafjarðarkirkju Hergeir Al-
bertsson, rafvirkjameistari.
Hergeir fæddist á ísafirði 11.
október 1897, sonur hjónanna Al-
berts Jónssonar, járnsmiðs, og
Magneu Guðnýjar Magnúsdóttur,
sem þar bjuggu að Sundstræti 33,
Albertshúsi. Foreldrar Hergeirs
voru kunnir borgarar á ísafirði,
Albert fyrir afburða hagleik á
járn og tré og rak hann járn-
smiðju á ísafirði um árabil og var
sérstaklega til kallaður til við-
gerða hjá erlendum fiskiskipum,
sem leituðu til viðgerða á ísafjörð.
Þetta var í kring um aldamótin,
þegar vélar voru að koma til sög-
unnar í erlendum skipum og kunn-
átta á slík tæki ekki fyrir hendi
hér á landi. Var oft til þess tekið
hve vel Albert járnsmið tókst að
smíða nýja vélahluta í ýmsum til-
fellum. Guðný móðir Hergeirs var
mikil gæðakona, hún var mjög vel
lesin, enda þótt skólagangan væri
engin. Hún var mikil blómakona
og þekkti vel til jurta og lækn-
ingamátt þeirra. Svo mikill var
fróðleiksþorsti Guðnýjar að þegar
hún var komin hátt á sjötugsaldur
og var að mestu rúmliggjandi af
sjúkdómi þeim sem dró hana til
dauða, bað hún mig, ömmustrák-
inn, eitt sinn að skreppa yfir til
hans Nonna (Jóns Alberts) og ná í
bók fyrir sig, en ég svaraði:
„Amma mín þú ert búin að lesa
allar íslensku og dönsku bækurn-
ar.“ „Náðu þá í einhverja enska
bók,“ sagði amma. Þetta var í
fyrsta sinn sem hún reyndi að lesa
enska bók, en þær urðu fleiri. Hún
sagði síðar að í fyrstu hefði hún
aðeins skilið eitt og eitt orð á
hverri síðu, en svo gekk þetta allt
saman.
Albert og Guðný áttu 12 börn,
en þau voru: Karl, Skúli og Guð-
rún, sem öll létust í æsku, og Al-
bert, sem lést á 14 aldursári. Til
fullorðinsára komust Kristján,
Þórey, Jón, Hergeir, Magnús, Jón-
ína, Herdís og Margrét.
A lífi eru af systkinunum Jón-
Minningarsjóður
Knattspyrnufélags
Reykjavíkur
sem stofnaöur var við fráfall
Erlendar Ó. Péturssonar. Minn-
ingarkort seld á eftirtöldum
stöðum:
Snyrtiverslunin Clara,
Bankastræti 8, Reykjavík.
Úlfarsfell, bókaverslun,
Hagamel 67, Reykjavík.
KR-heimiliö sími 27181
(kl. 15—17)
ína móðir mín, sem dvelur á
Hrafnistu í Reykjavík, Herdís,
sem býr í Albertshúsi á Isafirði og
sér til þess, að þangað eru allir
velkomnir, því aldrei hefur nein-
um verið vísað frá Albertshúsi á
Bökkunum, og Margrét, starfs-
stúlka á Elliheimilinu Grund í
Reykjavík.
Hergeir ólst upp í faðmi fjöl-
skyldunnar á Ísafirði og eftir að
barnaskólanámi lauk, stundaði
hann algenga verkamannavinnu
en hóf síðan nám í rafvirkjun hjá
Jóni bróður sínum, en Jón Alberts
var meðal fyrstu rafvirkja lands-
ins. Hergeir lauk námi kringum
1930 og starfaði fyrst með Jóni
bróður sínum, en síðan hjá öðrum.
Hann stundaði iðn sína alla tíð,
með smá hléum þó. M.a. bjó hann
nokkurn tíma á Blönduósi og vann
við raflagnir á ýmsum bæjum í
Húnaþingi.
Bróðursonur Hergeirs, Hall-
grímur Kristjánsson, varð honum
mjög kær og fór vel á með þeim
frændum, enda reyndust Hall-
grímur og Þóra kona hans Her-
geiri alla tíð mjög vel, og átti hann
heimili hjá þeim um tíma. Móður
Hallgríms, Herdísi Samúelsdótt-
ur, var heldur ekki fisjað saman
og minnist ég þess þegar hún
hjúkraði ömmu sinni síðustu árin
og oft gaukaði þessi ágæta kona
kökubita og ýmsu öðru að mér
„þakkaflóninu".
Síðustu árin var Hergeir frændi
minn vistmaður á Hrafnistu í
Reykjavík og þar lést hann 4. maí
sl. og er vinum hans og kunningj-
um þökkuð umhyggjan.
I dag kveðjum við góðan vin og
umhyggjusaman frænda. Einn af
aldamótakynslóðinni er fallinn í
valinn, kynslóðinni sem aldrei
spurði hvað fæ ég? heldur sagði,
hvað get ég gert fyrir ykkur?
Systurnar þrjár, Jónína, Herdís
og Margrét, fylgja nú síðasta
bróðurnum hinsta spölinn. Megi
guðs blessun fylgja þeim og öðrum
ættmönnum heiðursmannsins
Hergeirs Albertssonar.
Far þú í friði, friður guðs þig
blessi.
Albert K. Sanders
FI með Esjugöngur
í TILEFNI 55 ára afmælis á árinu
efnir Ferðafélag íslands til átta
gönguferða á Esju.
Fyrsta gangan verður 15. maí og
sú næsta síðan daginn eftir, J)ann
16. og svo 20., 22. og 29. maí. I júní
verða þrjár ferðir; þann 5., 19. og
21., en sú verður miðnæturganga
um sumarsólstöður.
Allir, sem taka þátt í Esjugöng-
unum, verða með í happdrætti,
þar sem vinningar eru helgarferð-
ir eftir eigin vali.
í frétt frá FÍ segir, að valin hafa
verið svonefnd Esjubergsleið, þurr
og greiðfær leið upp á Kerhóla-
kamb, sem er 852 metrar yfir sjáv-
armáli, en á meðfylgjandi teikn-
ingu er gönguleiðin sýnd.
Norræna húsið:
Grænlenzkur vísnasöngvari
GRÆNLENZKI vísnasöngvarinn
og lagasmiðurinn Peter O. Peter-
sen frá Nuuk kemur fram í Nor-
ræna húsinu í kvöld og lýkur þar
með þáttunum um Grænland, sem
hafa verið í hverri viku frá 30. jan.
í Norræna húsinu.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
ÞÓRU STEINGRÍMSDÓTTUR,
Ásabyggö 13, Akurayri.
Páll Einarsson,
Guöný Pálsdóttir,
Einar Pálsson,
Steingrímur Pálsson
María Pálsdóttir,
Sólveig Pálsdóttir,
Þóroddur Jónasson,
Halldóra Bernharösdóttir,
Ingibjörg P. Jónsdóttir,
Jón Arni Jónsson,
Jóhann Ævar Jakobsson.
Peter O. Petersen er 37 ára
gamall og er útlærður smiður,
en hefur lært á ýmis hljóðfæri í
frístundum sínum og samið lög
og ljóð. Hann hefur spilað með
hljómsveitinni „The Eskimos"
og gefið út 2 litlar hljómplötur.
Hann hefur oft komið fram í út-
varpi og sjónvarpi, bæði með
eigin lög og texta, en einnig
syngur hann grænlensk þjóðlög.
Þá hefur hann verið með dag-
skrá fyrir börn í sjónvarpinu.
Hann vinnur nú að hljóm-
plötu, sem er væntanleg í haust.
Dagskráin í Norræna húsinu
verður um klukkutíma löng, og
ætlar Peter 0. Petersen að
flytja frumsamið efni, lög og
ljóð, og grænlenska söngva, seg-
ir í frétt frá Norræna húsinu.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
RAGNHEIÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Hvallátrum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 8 á Landspítalanum fyrir
frábæra umönnun í veikindum hennar.
Gíali Kristjánsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Eggert Kristjánsson, Hulda Kristjánsdóttir,
Siguröur Kristjánsson, Arndís Kristjánsdóttir,
Einar Kristjánsson, Hrofna Kristjánsdóttir,
Jóna Margrát Kristjánsdóttir,
og aörir vandamenn.
Fákskonurá
Lækjartorgi
KONUR úr kvcnnadeild hcsta-
mannafélagsins Fáks koma með
hesta sína á Lækjartorg fostudaginn
14. mai.
Þar verða þær með sölu á happ-
drættismiðum kvennadeildar
Fáks milli kl. 15.30 og 17.30.