Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982 3 Alþýöubandalagiö og launamálin: Samherjar í forystugrein Tímans 27. ágúst 1981 sagði meðal annars: „Þau tíðindi hafa nú gerst að þeir Kjartan Ólafsson, Þjóðvilja- ritstjóri, og Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSI, hafa snúið bökum saman og ákvarðað það svigrúm sem þeir telja hæfi- legt í komandi samningum (um kaup og kjör innsk. Mbl.). Hér skal enginn dómur lagður á hvort útreikningar þeirra standast né hvernig hinum almenna launþega líst á hugmynd þeirra, en hann ætti að hafa í huga að fenginni l>orNteinn Kjartan reynslu að krónutalan er lítils virði ef ekki tekst að tryggja verðgildi hennar." Sinfóníuhljómsveit íslands: Messa og sinfónía Beethovens á síðustu tónleikum vetrarins Bók um skyr á hebresku MORGUNBLAÐINU hefur borizt bréf frá dönskum rithöfundi og sælkera, þar sem hann segist vinna að bók um skyr, sem ætlunin er að komi út á dönsku, ensku, sænsku, þýzku og hebresku. í bréfinu biður Daninn um aðstoð ís- lendinga varðandi uppskriftir um leið og hann lýsir eftir íslenzkum útgef- enda, sem kynni að hafa áhuga á að gefa bókina út á íslandi. Maður þessi heitir Benjamin Göldst- ein og heimilisfangið er: Enghusene 20, 2670 Greve Strand, Danmark. Messa í C-dúr og sinfónía nr. 4 eftir Beethoven verða á dagskrá á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís- lands í kvöld í Háskólabíói og hefj- ast tónleikarnir kl. 20:30. Auk hljómsveitarinnar eru flytjendur Söngsveitin Fílharmónía, sem Krystyna Cortes stjórnar og ein- söngvararnir Ólöf K. Harðardóttir, Sigriður Ella Magnúsdóttir, Hall- dór Vilhelmsson og Reynir Guð- mundsson. Jean-Pierre Jacquillat, sem er aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar stjórnar þess- um síðustu áskriftartónleikum vetrarins og eru þeir orðnir 20. Einsöngvarana Ólöfu Kolbrúnu, Sigríði Ellu og Halldór þarf vart að kynna, en Reynir Guðmunds- son kemur nú í fyrsta sinn fram í Reykjavík. Stundaði hann söng- nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk síðan MS og MA prófum frá Atlantic Union College og Boston University. Hefur hann sungið víða í Nýja Englandi og stundað kórstjórn. Hin mikla sala á SAAB-bílum á ís- landi síðastliðið ár, og það sem af er þessu, hefur tryggt okkur jafnar og stöðugar sendingar frá verksmiðjum. Það gerir það það að verkum að við eigum alltaf flestar gerðir SAAB-bíla til afgreiðslu strax. Það er að segja með þessum venjulega viku til 10 daga biðtíma — sem fer í að leysa út tolli — ryðverja — skrá og þrífa — Að því loknu færðu SAABinn þinn skínandi fallegan strax. TÖGGURHR SAAB UMBOÐIÐ BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.