Morgunblaðið - 13.05.1982, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982
Leikið á grqsi í Kópavogi
en á möl á ísafirði
Óvíst er ennþá með Laugardalsvöllinn
VÖLLURINN hjá okkur er alls ekki
nægilega góður enn þá. Frosta-
kaflinn sem kom um daginn á sinn
þátt í því. En þrátt fyrir það Ktlum
við að taka áhættu og láta leika á
vellinum á sunnudag er UBK mætir
ÍA, sagði Jónas Guðmundsson vall-
arstjóri í Kópavogi.er hann var innt-
ur eftir því hvort leikið yrði á gras-
vellinum í Kópavogi á sunnudag, í
íslandsmótinu. Jónas sagði að vor-
leikirnir væru alltaf hættulegir fyrir
vellina, sérstaklega ef bleyta væri.
A Isafirði var formaður
knattspyrnuráðs fyrir svörum.
Jón Axel Steindórsson sagði, að
það væri alveg ljóst að þrír fyrstu
heimaleikir Isfirðinga yrðu á mal-
arvellinum, en þessir leikir væru
allir í maímánuði. Hinsvegar
gerðu menn sér vonir um að hægt
yrði að leika á grasvellinum
snemma í júnímánuði, yrði tíðin
góð.
Starfsmenn Laugardalsvallar-
ins treystu sér ekki til þess í gær-
dag að segja til um hvort leikið
yrði á grasi um helgina. Ljóst var
á svörum þeirra að það stæði mjög
glöggt hvort knattspyrnumönnun-
um yrði hleypt á grasvellina um
helgina. Það munar um hvern dag
sem vellirnir fá, sagði einn vall-
arstarfsmaðurinn. En eins og
skýrt hefur verið frá hefst ís-
landsmótið í knattspyrnu á laug-
ardag. Hér á eftir má sjá hvaða lið
leika saman í fyrstu fjórum um-
ferðum mótsins, í 1. deild og 2.
deild. En fjórar umferðir í 1. deild
fara fram í maímánuði þannig að
Coe ætlar
ekki að
tapa keppni
Sebastian Coe, heimsmethafi í
800, 1000 metrum og míluhlaupi,
hefur lýst því yfir að hann ætli sér að
stefna að því að tapa ekki neinni
hlaupakeppni á keppnistímabilinu.
Það þýðir að hann verður að sigra
mesta keppinaut sinn, stórhlaupar-
ann Steve Owett, í það minnsta þrí-
vegis. Því að aldrei þessu vant munu
hlaupagarparnir mætast þrisvar í
keppni í sumar. í London, Frakk-
landi og í Bandaríkjunum. Coe sagði
aðaltakmark sitt vera að sigra í 800
metrunum á Evrópumeistaramótinu
i Aþenu í haust. Jafnframt hefur Coe
lýst því yfir að hann ætli að stefna að
því að keppa á næsta ári á lengri
vegalengdum eins og 5 km. Það
verður sú vegalengd sem ég keppi í á
Ol-leikunum í Los Angeles 1984.
Fiorentina náði
í Pasarella
ítölsku félögin voru enn að ráða
erlenda leikmenn i gríð og ergi síð-
ast er fréttist og markverðasti samn-
ingurinn af þvi tagi var er Fiorentina
festi kaup á argentinska landsliðs-
fyrirliðanum Daniel Pasarella og
borgaði slika fjárupphæð að félagið
neitaði að gefa hana upp. Þá var
Napólí búið að ganga frá lausum
endum í sambandi við kaup á arg-
entínska miðherjanum Kamon Diaz,
en snurða hljóp á þráðinn nýlega. Þá
var félaginu gert að leggja fram
900.000 dollara i reiðufé til þess að
sanna að peningar væru til fyrir
kappanum. Ekki er víst að það dæmi
gangi upp, enda mun félagið hafa
ætlað að slá slatta af lánum.
knattspyrnumenn hafa í nógu að
snúast.
I Vestmannaeyjum verður leikið
á grasvellinum við Hástein.
Keppnistímabiliö 1982 1. deild 1. umferð:
15. maí ÍBÍ:KR
15. maí ÍBV:ÍBK
15. maí Valur:KA
16. mai Víkingur:Fram
16. maí 2. umferð: UBK:ÍA
19. maí KR:KA
19. maí ÍBÍ:ÍBV
19. maí ÍBK:Víkingur
20. maí Fram:UBK
20. maí 3. umferð: ÍA:Valur
23. maí ÍBV:KR
23. maí Vikingur:ÍBf
23. maí UBK:ÍBK
23. mai KA:ÍA
24. mai 4. umferð: Valur:Fram
26. mai KR:ÍA
27. maí Fram.-KA
29. maí ÍBÍ:UBK
29. maí ÍBV:Víkingur
29. maí ÍBK:Valur
2. deild
1. umferð:
15. maí FH:Fylkir
15. maí Einherji:Þróttur N
15. maí Þór A.:Njarðvík
16. maí Reynir:Vö!sungur
17. maí 2. umferð: Þróttur R.:Skallagr.
21. maí Fylkir:Skallagrímur
21. maí Njarðvík:Þróttur R.
23. mai FH:Reynir S.
23. maí Völsungur:Einherji
23. maí 3. umferð: Þróttur N.:Þór
29. maí Reynir S.:Fylkir
29. maí Einherji:FH
29. maí Þróttur R.:Þróttur N.
29. maí Skallagrímur:Njarðvík
29. maí 4. umferð: Þór A.:Völsungur
5. júní Fylkir:Njarðvík
5. júní FH.ÞÓr A.
5. júní Reynir S.:Einherji
5. júní Völsungur:Þróttur R.
5. júní Þróttur N.:Skallagr. ÞR.
Það er ekki gott að átta sig á því hvor þessara kappa er hinn raunverulegi
John McEnroe og hvor er vaxbrúða af tennisleikaranum fræga. En þegar
það er upplýst að myndin er tekin í vaxbrúðusafni Madame Tussauds í
Lundúnum rennur upp fyrir mönnum að sá til vinstri er McEnroe af holdi
og blóði, en sá til hægri er McEnroe í vaxi. Þegar McEnroe leit á brúðuna
hafði hann á orði að hún væri heldur stillt til að geta verið af hinum
raunverulega McEnroe! Annars er helsta slúðrið varðandi McEnroe
þessa dagana, að hann var að flytja í nýja 7 herbergja ibúð í Manhattan.
Svefnherbergið eitt er um 100 fermetrar!!
Ragnar og Björgvin
á stórmót í Frakklandi
Tveir íslenskir kylfingar, þeir
Björgvin Þorsteinsson og Ragnar
Olafsson, héldu utan í fyrradag
áleiðis til Luxemborgar, en þaðan
liggur leiðin svo til Frakklands þar
sem þeir taka þátt í opna franska
golfmótinu fyrir áhugamenn, en það
er annað af tveimur stærstu golfmót-
um af því tagi sem fram fara ár
hvert í Evrópu.
Þeir félagarnir hyggjast æfa sig
fyrir keppnina á ágætum golfvöll-
um Luxemborgar þar til að mótið
hefst í Frakklandi 19. maí. Það
stendur síðan til 23. maí. Fyrri
hluta mótsins verða leiknar 36
holur og er það jafnframt lands-
keppni þar sem skor tveggja bestu
keppenda hverrar þjóðar gildir.
Þar sem íslendingarnir eru aðeins
tveir gildir auðvitað árangur
beggja. 32 bestu komast síðan
áfram í framhaldskeppni að um-
ræddum 36 holum leiknum.
Góö meðalaðsókn að
leikjum 1. deildar í
knattspyrnu á síðasta ári
Það er jafnan mjög forvitnilegt að fylgjast með því hvernig aðsóknin að
knattspyrnuleikjum í íslandsmótinu er. Þegar litið er til baka og áhorfenda-
fjöldinn skoðaður kemur í Ijós að besta meðalaðsókn í 1. deild var á síðasta
keppnistímabili í Reykjavík. Kom það til af því, að mótið var mjög jafnt og
úrslit fengust ekki fyrr en í síðasta leik. Aðsóknin á Akranesi var hins vegar
minni en áður, en betri i Vestmannaeyjum, Kópavogi og Hafnarfirði. Hér er
átt við meðalaðsókn. En taflan hér að neðan sýnir okkur meðalaðsókn
áhorfenda að leikjum í 1. deild frá árinu 1976.
1976 1977 1978 1979 1980 1981
Reykjavík 969 866 784 1037 1137 1282
Akranes 867 915 819 1062 990 778
Akureyri 861 790 834 959
Keflavík 672 866 645 821 827
Vestmannaeyjar 604 490 730 654 738
Kópavogur 520 645 560 795 936
Hafnarfjörður 299 445 361 425 604
Ragnheiður setti
íslandsmet
4. STJÖRNUHLAUP FH fór fram
síðasta þriðjudag á Kaplakrika.
Keppt var í 3 flokkum karla og 2
flokkum kvenna. í karlaflokki var
keppt I 2 milum og í kvennaflokkun-
um var keppt í 1 mílu.
AN-tE-iei
z r*rc~
^£>6. PEL.E
'i
H&i s-'ISf^,
k-íCP»Ptoí. ....
.... t s.,
5TAPFASW A -
feNDueHOMTA
6LN*
Bfe^SlLlUMfcLjKi
NA|SST
ÉTCteiA MenJi^
ÍTILHA'e, BELÚW,
0ír'
WALMA TSAJJTE5
.OCi HlkJKJ UKJCil
vis i ^ i_»e> t 6ACLOJ
To. TOSCAO
2AC»ALÖ
vJifO STFaxv,
k>MONJTÍ \j\^
™ H IKsiKJ
VOLOOL-,, -
F^-TL-IKjtwj^T
Ragnheiður Ólafsdóttir FH sigr-
aði í kvcnnaflokki og setti íslands-
met, hljóp á 5:10,3 mín. f telpna-
flokki sigraði Linda B. Ólafsdóttir
FH á 6:08,9 mín. sem er telpnamet.
4. varð (íuðrún Eysteinsdóttir FH,
hljóp hún á 6:21,6 min. sem er
stelpnamet.
í karlaflokki sigraði Gunnar P.
Jóakimsson ÍR örugglega og hljóp
hann 2 mílurnar á 10:00,9 mín. f
svcinaflokki sigraði Ómar Hólm FH,
hljóp hann á 10:46,6 mín. f pilta-
flokki sigraði Jón Björn Björnsson
UBK, hljóp hann á 11:55,9 min. Ann-
ar var Finnhogi Gylfason FH á
12.-01,5 mín. sem er strákamet.
I