Morgunblaðið - 13.05.1982, Page 48

Morgunblaðið - 13.05.1982, Page 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Jttoröimt>Iní>ií> FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1982 Fjölskylduhátíðin í kvöld FjölskylduhátíA á vegum ungra sjálfstæðismanna verður í Laugardals- höllinni í kvöld og verður þar margt til skemmtunar. Þessir ungu stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins munu að sjálfsögðu mæta á hátíð- ina, en þeir eru íklæddir skyrtubolum sem þar verða seldir. Sjá miðopnu. l.jósmrDd: Krisljín Örn Klíasson Landspítali, Landakot og Vífilsstaðir: Reynt að útskrifa um 320 sjúklinga fyrir verkfall „ÆTLUNIN er að reyna að komast eins nálægt neyðaráætl- un hjúkrunarfræðinga og mögulegt er,“ sagöi Pétur Jónsson, aöstoðarframkvæmdastjóri ríkisspítalanna í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist buast við því að um 200 sjúklingar yrðu útskrif- aðir af Landspítala og Vífils- staðaspítala áður en uppsagnir hjúkrunarfræðinga gengju í gildi og ekki yrði tekið fólk af biðlist- um inn á spítalann. Pétur sagði að allt stefndi í það að hjúkrun- arfræðingar gengju út þann 15. maí. Þá benti hann á að Sókn- arstarfsmenn boðuðu verkfall 19. maí, sjúkraliðar myndu hætta störfum þann 1. júní, ljósmæður 20. júlí og meinatæknar þann 1. september. Guðrún Marteinsson, hjúkrun- arforstjóri á Landakotsspítala, sagði í samtali við Morgunblaðið, að erfitt væri að segja til um hversu marga sjúklinga tækist að útskrifa, en hún bjóst við út- skrifa þyrfti um 120 sjúklinga af spítalanum. Sagði hún að á Landakotsspítala væru rúmlega 180 sjúkrarúm og þau öll full- nýtt, en nú væri unnið að því að athuga hve margir sjúklingar kæmust heim. Guðrún sagði að til stæði að halda tveimur deild- um spítalans opnum, en ljóst væri að þær yrðu mjög þétt setn- ar. „Það er því mjög alvarlegt ástand framundan," sagði Guð- rún Marteinsson. Samið við Svía um sölu á 40—50 þús. tunnum af síld „KINS OG ártur hefur komið fram í fjölmiðlum vorum við svo til alveg flæmdir út af sænska síldarmark- aðnum, elzta síldarmarkaði okkar, í fyrra eftir að söluverð okkar hafði hækkað um 60% í sænskum krónum á aðeins þremur árum,“ sagði Gunn- ar Flóvenz, framkvæmdastjóri Síld- arútvegsnefndar, í samtali við Morg- unblaðið. „Samtök sænsku síldarkaupend- anna tilkynntu okkur í vor, að ef íslendingar hefðu áhuga á að reyna að ná aftur fyrri stöðu sinni á sænska markaðnum, yrði að fást úr því skorið í síðasta lagi í maí- mánuði, hvort grundvöliur fyndist fyrir samkomulagi, vegna fyrir- hugaðra innkaupa Svía frá öðrum framleiðslulöndum, sem keppa við okkur um markaðinn og geta boð- ið langtum lægra verð. Viðræður við sænsku samtökin hófust um síðustu helgi og sam- komulag hefur nú verið undirritað um fyrirframsölu á 40—50 þúsund tunnum. Þetta er svipað magn og við seldum til Svíþjóðar á árunum fyrir 1981, þannig að segja má, að við höfum náð fyrri stöðu okkar á sænska markaðnum," sagði Gunn- ar Flóvenz ennfremur. Samninga- viðræðurnar fóru fram í Svíþjóð. Heimilað hefur verið að veiða 50 þúsund lestir af Suðurlandssíld á vertíðinni næsta haust. Vegna óvissunnar á sölumörkuðum voru menn jafnvel farnir að óttast, að eitthvert magn síldar færi í bræðslu á vertíðinni. Milljón á mánuði til styrktar BÚR „AÐ MINNSTA kosti milljón krónum á mánuði er nú varið til styrktar Bæjarútgerð Keykjavík- ur. í ár renna 16,5 milljónir kr. úr Framkvæmdasjóði Reykja- víkur til BUR, en framlag úr sjóðnum hefur hingað til ekki verið endurgreitt," sagði Ragnar Júlíusson, sem á sæti í útgerð- arráði BÚR í samtali við Mbl. A vinnustaðafundi, sem Ragn- ar Júlíusson og Guðmundur Hall- varðsson voru á, kom fram að of Katrín Fjeldsted læknir: Afar mikiil kosningablær á yfirlýsingu ráðherrans Ekki hafin bygging neinnar nýrrar heilsugæslustöðvar á þessu kjortímabili „ÞKSSI tilkynning heilbrigðisráö- herra um að nú skuli leggja áherslu á uppbyggingu heilsugæslustöðva á höruðborgarsvæðinu, er ekki hans uppfinning og það er afar mikill kosningablær yfír þessari yfirlýs- ingu ráðherrans, enda kemur hún aöeins 10 dögum fyrir kosningar," sagði Katrín Fjeldsted læknir, 11. maður á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Keykjavík, í samtali við Morgun- blaðið. „Á þessu kjörtímabili hefur ekki verið hafin bygging neinnar nýrrar heilsugæslustöðvar í Reykjavík, en þær þrjár heilsu- gæslustöðvar sem teknar hafa verið í notkun í Reykjavík síðustu ár, í Árbæ 1977, í Breiðholti 1978 og í Fossvogi 1981, eru allar runn- ar undan rifjum sjálfstæðis- manna. Að vísu fengu vinstri- menn að mæta við opnun stöðv- anna í Breiðholti og Fossvogi, en hönnun og bygging stöðvanna var unnin af sjálfstæðismönnum í borgarstjórn. Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi er byggð af sveitarfélagi þar sem sjálfstæð- ismenn eru í meirihluta. Á þessu kjörtímabili hefur ekki verið keypt neitt húsnæði undir heilsu- gæslustöð, en á fjárlögum þessa árs eru aðeins 900.000 krónur ætl- aðar til uppbyggingar heilsu- gæslu í Reykjavík og ég á eftir að sjá að mikið verði gert fyrir það fé,“ sagði Katrín. „Þessi væntanlega uppbygging heilsugæslustöðva, sem ráðherr- ann nefnir, er samkvæmt tillög- um borgarlæknis og þeirra heil- brigðisráða sem setið hafa á und- an því ráði sem nú situr. Þó unnið hafi verið áfram að þessu verk- efni af núverandi heilbrigðisráði, þá er upphaflega tillagan löngu fra.n komin. Svavar Gestsson tekur ekki einhliða ákvörðun um þetta mál. Það stendur á samn- ingum við heimilislækna í Reykjavík, sem ekki hafa verið gerðir, en þeir vinna samkvæmt svokölluðu númerakerfi. Eg fagna því að stofnsetja eigi þess- ar heilsugæslustöðvar, en tíma- setningin á þessari yfirlýsingu ráðherrans er greinileg, þetta er kosningabomba," sagði Katrín. Varðandi frestun borgarstjórn- ar á þessu máli, þá er ástæðan sú að númerasamningurinn við Katrin Fjeldsted heimilislækna er enn í gikli og ekki hefur verið gengið frá nýjum samningi. Einnig er kostnaðar- hlið þessa máls í athugun hjá borgarráði og deildarstjóra fjár- máladeildar borgarinnar. Þess vegna voru sjálfstæðismenn, al- þýðuflokksmenn og framsókn- armenn sammála um að fresta þessu máli,“ sagði Katrín Fjeldsted. Sji bls. 27 mikill hluti þessa fjár fer í að greiða rekstrartap. Féð rennur ekki til framkvæmda heldur í reksturinn. Reikningar BÚR verða lagðir fram í dag. „Bæjarútgerð verður að standa á eigin fótum og þessari þróun verður að snúa við. Það dugir ekki endalaust að sækja fé í vasa skattborgaranna. Með breyting- um sem gerðar voru á rekstri BÚR á síðasta kjörtímabili, hefði fyrirtækið skilað ágóða. Það er markmið mitt og Sjálf- stæðisflokksins að BÚR skili hagnaði en til þess að svo megi verða, verður að auka verðmæti aflans. Breyta aflasamsetningu, úr karfa í verðmætari tegundir, auka fjölbreytni í vinnslu, auka hagkvæmni og gæta þess að allt- af sé fullt samræmi milli veiða og vinnslu. Jafnframt, að þess sé gætt, að aðbúnaður starfsfólks fylgi kröfum tímans," sagði Ragnar Júlíusson. Engir togarar að veiðum á úthafskarfa KNGIK íslenzkir togarar munu nú vera að veiðum um 225 milur suð- vestur af Reykjanesi, þar sem sov- czkir togarar voru að veiðum á út- hafskarfa. Tveir íslenzkir togarar fóru á miðin, en vegna þess hve karfinn var lélegur hafa aðrir íslenzkir togarar ekki farið til veiða á svæð- inu. „Við höfum ekki nýtt þennan stofn vegna þess, að karfinn full- nægir ekki þeim gæðakröfum, sem við gerum," sagði Ágúst Einarsson hjá Landssambandi íslenzkra út- vegsmanna í samtali við Mbl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.