Morgunblaðið - 19.06.1982, Page 7

Morgunblaðið - 19.06.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982 7 Símaskráin 1982 Afhending símaskrárinnar 1982 hefst mánudaginn 21. júní til símnotenda. í Reykjavík veröur símaskráin afgreidd á Aðal- pósthúsinu, gengið inn frá Austurstræti, mánudag til föstudags kl. 9—17. í Hafnarfirði verður símaskráin afhent á Póst- og símstöðinni Strandgötu 24. í Kópavogi verður símaskráin afhent á Póst- og símstöðinni, Digranesvegi 9. Varmá í Mosfellssveit verður símaskráin afhent á Póst- og símstööinni. Þeir símnotendur, sem eiga rétt á 10 símaskrám eða fleirum, fá skrárnar sendar heim. Símaskráin verður aðeins afhent gegn afhend- ingarseðlum, sem póstlagðir hafa verið til sím- notenda. Athygli skal vakin á því að símaskráin 1982 gengur í gildi frá og með fimmtudeginum 1. júlí 1982. Frá sama tíma fellur úr gildi símaskráin 1981 vegna fjölda breytinga, sem orðið hafa frá því hún var gefin út. Póst- og símamálastofnunin. ..... v2ds- '111 ■ 460g Grænar baunírj GRÆNMETI Kr.8.95 pr.ds. Þetta ergmnnvöruverÖ Gerið verösamanburb KAUPFELAG VHUNVETNINGA HVAMMSTANGA Saman- burdarfræöin blómstrar á ný Þegar dró að bæjar- og sveitarstjórnarkosningum minnkaði iðkun saman- burðarfræðinnar á síðum Þjóðviljans. Þessi fræði snúast um það, að Banda- ríkin og Sovétríkin eru lögð að jöfnu og síðan dregin sú niðurstaða af vangaveltum um risaveld- in, að Bandaríkin séu öllu verra og hættulegra ríki en Sovétríkin. Samanburðar- fræði af þessu tagi hafa verið iðkuð um langan al- dur á síðum Þjóðviljans og hvorki griðasáttmáli Hitl- ers og Stalíns 1939, valda- ránið í Tékkóslóvakíu 1948, blóðbaðið í Ungverja- landi 1956, innrásin í Tékkóslóvakíu 1968, her- nám Afganistans 1979 né valdataka hersins í l’óll andi 1981 hafa raskað ró samanburðarfræðinganna, þeir geta alltaf leitt rök að því, að smáþjóðunum og lýðræðinu stafi meiri hætta af Bandaríkjunum en Sovétríkjunum. „Lífsháski lýðræðisins kemur frá hægri,“ sagði einn þeirra á síðum Þjóðviljans fyrir nokkrum mánuðum, þegar menn væntu þess um heim allan, að sovéski herinn myndi ráðast inn í Pólland. Nú eru kosningar af- staðnar hér á landi og því þykir þeim á Þjóðviljanum tími til þess kominn að hefja iðkun samanburðar- fræðinnar að nýju — þeir ætla um skeið að sýna áróðursmeisturum heims- kommúnlsmans, að Þjóðy viljinn sé trausts verður. A sjálfan 17. júní, þegar ís- lendingar almennt minnast sjálfstæðis síns og frelsis, var leiðarahöfundur Þjóð- viljans á kafi í samanburð- arfræðunum. llann sagði meðal annars: „Hversu miklu auðveldara ætti það ekki að vera, að halda hér (á íslandi, innsk. Mbl.) uppi virku og lifandi lýð- ræði með sem almennastri þátttöku heldur en hjá þeim í Moskvu og New Vork.... “ Það þarf meira en lítið hugmyndaflug eða beinlínis pólitíska sið- blindu til að setja mál sitt fram með þessum hætti, að GALTIERI leggja að jöfnu stjórnar- hætti í Moskvu og New York og tala um lýðræði í sömu andránni. Auðvitað þegir Þjóðviljinn um það, að lýðræði er bannað með hervaldi í Moskvu — en niðurstöðum sínum ná samanburðarfræðingarnir einmitt með því aö þegja yfir slíkum staðreyndum. Nýtt viðfangsefni En fræðimennirnir á Þjóðviljanum hafa nú feng- ið nýtt viðfangsefni við samanburðarrannsóknir sinar. í því skyni að sýna fram á, að Bretar, undir forystu Margaret Thatch- ers, séu skúrkarnir í Falk- iandseyjadeilunni er farið að líkja rimmunni við land- helgisdeilur Breta og ís- lendinga. Þessi saman- burður er út í hött af mörg- um ástæðum, sem hér verða ekki raktar. „Hvern- ig hefði farið fyrir íslend- ingum i þorskastriði ef að flokksystirin frækna (svo!), THATCHER frú Thatcher, hefði þá verið komin til valda?“ Með þessum orðum er svo sann- arlega verið að gera smán- arlega litið úr málstað ís- lendinga við útfærslu fisk- veiðilögsögunnar — það er verið að bera hann saman við málstað herforingjanna í Argentínu, sem var for- dæmdur af öllum í örygg- isráði Sameinuöu þjóö- anna. Samanburðarfræð- ingurinn þegir auðvitað yfir þeirri staöreynd, að Vestur- lönd, bæði á vettvangi Evr- ópubandalagsins og Atl- antshafsbandalagsins, stóðu eindregið með Bret- um gegn Argentínu- mönnum, en í landhelgis- deilunum nutu íslendingar meiri stuðnings en Bretar meðal Atlantshafsbanda- lagsþjóðanna og Evrópu- bandalagið (Efnahags- bandalag Evrópu) stóð alls ekki einhuga á móti okkur, eins og sýnt var fram á með fiskveiðisamningum við Belga. En hvers vegna er Þjóðviljanum kappsmál að gera málstað herforingjaklikunnar í Arg- entínu svo hátt undir höfði. LÚÐVÍK að hann líki honum við málstaö okkar í landhelg- ismálinu? Eru kommúnist- ar hér á landi kannski þeirrar skoðunar, að þaö sé meira „lýðræði" í Argent- inu en í Bretlandi? í Þjóðviljanum er komist aö þeirri niðurstöðu, að „einna hörmulegast við Falklandseyjastríðið" sé að það hefur vakið „þjóðern- isbelging" fyrir tilstilli þess „spilverks" ráðamanna í London og Buenos Aires „sem byggir á því, að vopnaskak sé vænlegasta ráðið til að eignast þann pólitiska stuðning og vin- sældir sem lítt þokkaðar stjórnir hafa áður fyrir- gert.“ Enn er stjórnin í London lögð að jöfnu við upphafsmann stríðsins og árásaraðilann, herforingja- klíkuna í Buenos Aires. Samanburðarfræðingurinn lítur þó ekki í eigin barm, þegar hann talar um þetta „spilverk" — hvernig væri að hann bæri það saman við skrif Þjóðviljans um landhelgismálið fyrr og síð- ar eða álmálið siðustu mis- seri? Borið blak af Argentínumönnum Eins og áöur hefur verið vakiö máls á eru heimildir Þjóöviljans um alþjóöamál oft hinar sórkennilegustu, niöurstööur blaðsins, þegar það fjallar um utanríkismál eru einnig oft mjög skrýtnar. Nú harmar þaö mjög, aö Argentínumenn skuli hafa verið hraktir frá Falklands- eyjum og dregur taum herforingjastjórnarinnar í Argentínu. Er augljóst, að í þessu máli eins og svo mörgum öörum er línan sótt í áróðurssmiðju heimskommúnismans og höfuöbækistöövar hennar í Kreml. Pravda og Þjóöviljinn eru sammála og liggur viö, aö Galtieri sé litinn sömu augum og Lúövík Jósepsson í Þjóðviljanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.