Morgunblaðið - 19.06.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982
9
Umsjónarmaóur Gísli Jónsson
Við óskumeinhverjum ein-
hvers. Við óskum ykkur gleði-
legra jóla og farsæls nýárs.
Við óskum þér heilla. Þetta
hélt ég að flestir kynnu að
segja, segðu það án þess að
hugsa sig um, hefðu tilfinn-
ingu fyrir því. En því miður. í
morgunútvarpi á dögunum
mátti heyra mætan mann
segja: Ég óska ykkur góðan
dag.
Við bjóðum góðan dag, en
eins og ég sagði í upphafi, tek-
ur sögnin að óska með sér
þágufall persónunnar (ein-
hverjum) og eignarfall hlutar-
ins (einhvers). Dæmið, sem ég
tók úr útvarpinu, er svo sem
ekkert einsdæmi. Þjóðkunnur
maður óskaði landsmönnum
einu sinni gleðilegt nýár í stað
gleðilegs nýárs. Oft hefur verið
minnst á samruna í þessum
þáttum. Hann er fólginn í því
að tvö orð eða tvö orðtök renna
saman í eitt. Fáránleg dæmi:
Hann er snauðugur (samruni
úr snauður og auðugur). Ég
var alveg grandvaralaus gagn-
vart þessu (samruni úr
grandalaus og andvaralaus).
Sú hafði aldeilis vaðið fyrir neð-
an nefið (samruni úr að hafa
munninn fyrir neðan nefið og
að hafa vaðið fyrir neðan sig).
Kostulegt nýtt dæmi um
samruna heyrðist í útvarpsvið-
tali fyrir skemmstu. Þetta er
alveg staðhæfulaust, var sagt.
Hér er greinilegur samruni úr
orðunum tilhæfulaust og stað-
hæfing. Einnig gætu orðin
staðlaus og staðleysa hafa
ruglað málfar mannsins. Hann
hefur væntanlega ætlað að
segja að þau ummæli, sem
hann vildi mótmæla, væru til-
hæfulaus.
Ég inni til þess aftur sem
hér var annarstaðar í blaðinu
fyrir skemmstu, í leiðbein-
ingarklausu á næstöftustu
síðu. Þar var drepið á orða-
sambandið að taka djúpt í ár-
inni. Af skiljanlegum ástæðum
breytist þetta stundum í að
taka djúpt í árina. Mig langar
til að skýra uppruna og
merkingu þessa orðtaks í
lengra máli en svigrúm var til
í klausunni sem ég vitnaði í.
Eins og þar er sagt, er í þarna
ekki forsetning, heldur atviks-
orð, en að vonum eiga menn
bágt með að átta sig á því. Ar-
inni, þágufall, táknar sem sé í
þessu dæmi með hverju eitt-
hvað er gert. Það er svokallað
verkfærisþágufall og þarf ekki
forsetningu (með).
Að taka djúpt i árinni merkir
upphaflega að taka djúpt í
(sjóinn) með árinni, þ.e. sækja
róðurinn fast. Þetta minnir
mig í bili á hina frábæru vísu
Látra-Bjargar um ræðarann
sem henni þótti rækja starf
sitt löðurmannlega:
Taktu á betur, kær minn kall,
kenndu ekki i brjósti um sjóinn.
Þótt harðara takirðu herðafall,
hann er á morgun gróinn.
Björg Einarsdóttir frá Látr-
um vissi að sjórinn yrði gróinn
sára sinna hið snarasta, þótt
hásetinn tæki djúpt í hann ár-
inni, veitti honum djúpt sár
með árinni.
Þá vitum við um eiginlega
merkingu þess að taka djúpt í
árinni. Ut frá henni verður svo
líkingamálið til. Að taka djúpt
í árinni tekur að merkja að
kveða sterkt að orði. Og þá vit-
um við líka að forsetningarlið-
urinn í árina er þarna alveg út
í hött. Menn taka ekki djúpt í
árina. Þetta er ekki þannig
hugsað.
Dásamlegt má það kallast
að geta enn notað mismunandi
fallmyndir orða án forsetninga
til þess að tjá mismunandi
merkingu. Þetta er hluti hins
dýra arfs okkar sem við meg-
um ekki týna. Sem betur fer,
morar íslenska af skemmtileg-
um þáguföllum sem ekki stýr-
ast af forsetningum. Og að öllu
samanlögðu held ég að þágu-
fallið sé þokkafyllsta fall tung-
unnar, að minnsta kosti þegar
best er með það farið í ákveðn-
um samböndum. Hugsum okk-,
ur setningu eins og: Þú ert mér
allt. Hugsum okkur hvað þessi
setning verður hörmuleg lág-
kúra og smekkleysa, ef við
breytum henni lítillega og
segjum: Þú ert allt handa mér,
eða: Þú ert allt fyrir mig. I
151. þáttur
dæminu hér á undan, þú ert
mér allt, er þágufallið í sinni
fegurstu og frumlegustu mynd.
Af hverju heitir þágufall
þágufall? Af því að það táknar
í hvers þágu (eða óþágu)
eitthvað verður eða er.
Mig langar til að víkja aftur
að verkfærisþágufallinu, með
hverju eitthvað er gert. Sum-
um hefur þótt nafnið langt og
leiðinlegt. Þeir vildu þá breyta
því í t.d. tækisþágufall, en það
fór slysalega. Hvernig haldið
þið að þetta verði við samruna?
Verkfærisþágufall — tækis-
þágufall verður tækifærisþágu-
fall, og það er ekki nógu snið-
ugt.
Önnur dæmi um verkfæris-
þágufall en þau sem þegar eru
fram komin, snarlifandi mál:
Að taka einhvern höndum.
Hver skyldi segja að taka ein-
hvern með höndum?
Hér í blaðinu var um daginn
tekið orðasambandið að róa öll-
um árum að einhverju. Þarna
er öllum árum verkfærisþágu-
fa.ll. Menn róa með öllum árum
að einhverju. Síðan fær þetta
óeiginlega merkingu og fer að
þýða að vinna að einhverju af
öllum mætti. Og þá plægist
jarðvegur fyrir sáðkorn vit-
leysunnar. Menn fara að segja
að vinna öllum árum að ein-
hverju. Þá er líkingamálið
brenglað, myndin skökk. Menn
eru farnir að tala nykrað.
Vitlaust líkingamál heitir
nykrað, af því að það er van-
skapað eins og nykurinn með
öfuga hófana. Góð skáld þekkj-
ast frá vondum skáldum að því
leyti t.d., að þau yrkja ekki
nykrað. Ef skip er kennt sjávar
hestur, þá má ekki segja að sá
hestur sigli, hann hlýtur að
hlaupa. Ef auga er kallað enni-
máni, þá má sá máni ekki
horfa, hann verður að sjálf-
sögðu að skína. Við róum því að
einhverju öllum árum. Að
vinna að einhverju öllum árum
væri nykrað líkingamál.
Hlymrekur handan kvað:
Að vinna að því öllum árum
er eins og að sigla á klárum.
Við róum með ár,
en eyjabands klár
skeiðar á brimfextum bárum.
Afmælisskák-
mót UMFB á
Bolungarvík
Afmælisskákmót Ungmenna-
félags Bolungarvíkur hófst í gær,
fóstudag, í Ráðhúsinu á Bolungarvík
og lýkur á morgun, sunnudag. Þátt-
takendur eru 17 og tefla 6 umferðir
cftir monrad-kerfi.
Meðal þátttakenda í afmælis-
mótinu eru landsliðsmennirnir
Ásgeir Þ. Árnason og Róbert
Harðarson. Ennfremur má nefna
Arnór Björnsson sveinameistara
Norðurlanda og Guðmund Gísla-.
son skákmeistara Vestfjarða.
Afmælismótinu lýkur með
hraðskákmóti sem hefst kl. 13.30 á
morgun, sunnudag. Öllum er
heimil þátttaka í því.
Oska eftir
lóö eða lóö með sökklum undir einbýlishús eða
raðhús á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Uppl. í síma 40517 eftir kl. 19.
83000
Einbýlishús viö
Brekkuhvamm, Hafn.
Einbýlishús 114 fm, 30 fm bílskúr. Fallegur garöur.
Þetta er eign í sérflokki. Laus eftir samkomulagi.
Bein sala. Utborgun viö samning kr. 600 þús.
Opið alla daga til kl. 10 e.h.
FASTEIGNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 Silfurteigi 1
Söluslióri: Auöunn Hermannsson, Krislján Eiríksson hæstaréttarlögmaöur.
Símatími í dag kl. 2—4
Hafnarfjörður — í smíðum
Höfum til sölu 2 sérhaeöir meö bílskúr í suöurbæ Hafnarfjaröar.
Ibúöimar verða til afhendingar fokheldar í ágústmánuði. Teikningar
á skrifstofunni. Ath. gott fast verð.
Suðurhólar — 4ra herb.
Glæsileg endaíbúö á 4. hæð. íbúðin er m.a. 3 svefnherbergi, sjón-
varpshol og stór stofa. Þvottaaðstaöa í íbúöinni. Suðursvalir.
Ljósheimar — 4ra herb.
4ra herb. um 100 fm íbúö á 3. hæö í lyftuhúsi viö Ljósheima. Góö
íbúö.
Seljavegur — 3ja—4ra herb.
Um 95 fm hæð í þríbýlissteinhúsi viö Seljaveg. íbúðin er m.a. 2
svefnherbergi og samliggjandi stofur. Getur veriö laus fljótlega.
írabakki — 3ja herb.
Góð 3ja herb. um 90 tm íbúö á 2. hæö 2 góö svefnherbergi og
rúmgóð stofa. Sér þvottaherbergi.
Drápuhlíð — 3ja herb.
Rúmgóö 3ja herb. kjallaraíbúö i vönduöu húsi. íbúöin er meö sér-
inngangi.
Hafnarfjörður — 3ja herb.
Um 80 fm björt kjallaraíbuö við Móabarð. íbúöin er laus.
Austurberg — 2ja herb.
Góö íbúö á 2. hæö í fjölbýlishúsi. Stórar suöursvalir. Til afhend-
ingar strax.
Blönduós — einbýlishús
Vandað og fallegt 240 tm einbýlishús meö 40 fm bilskúr. Allt á einni
hasö. Húsiö er aö mestu fullgert aö utan, en rúmlega tilbúiö undir
tréverk að innan. Vel íbúðarhæft. Góður staöur. Teikningar á
skrifstofu.
Hveragerði — einbýlishús
Höfum til sölu vönduö einbýlishús í Hverageröi. Tilb. raöhús og
steinhús. Húsin eru frá um 100 fm uppí 185 fm meö bilskúr.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Höfum traustan kaupanda að 200—400 fm húsnæði í Múlahverfi.
Aðrir staðir koma til greina. Æskilegt er að húsnæðið sé é 2. hæð
eða í lyftuhúsi og sé tilbúið undir tréverk. Nauösynlegt að góö
bílastæði séu til staðar.
Eignahöllin
28850-28233
Fasteigna- og skipasala
Skúli Ólafsson
Hilmar Victorsson viöskiptafr.
Hverfisgötu76
HÚSEIGNIN
B3
Sími 28511
Opiö í dag
Verömetum eignir samdægurs
BREIÐVANGUR — 5 HERB. — BÍLSKÚR
Vönduö 120 fm meö 22 fm bílskúr á 2. hæð. Verð 1300 þús.
REYNIMELUR — 2JA HERB.
Vönduð 2ja herb. á 3. hæð í fjölbýli. Verð 740 þús.
MEISTARAVELLIR — HRINGBRAUT
3ja herb. glæsileg ibúö á 2. hæö. Verö 900 þús.
SÉRHÆÐ — KÓPAVOGI — 4RA HERB
100 fm sér miðhæð í þríbýli við Auöbrekku. Garöur. Bílskúrsréttur.
Verð 1,1 millj.
2JA HÆDA EINBÝLISHÚS — HAFNARF
2x55 fm jaröhæö og hæð í járnklæddu timburhúsi á steinjaröhæö.
Húsiö er allt viöarklætt aö innan. Viöargólf. Ný standsett aö hluta.
Stór stofa, 2 til 3 svefnherb. Verö 1 millj. til 1,1 millj.
LYNGMÓAR GARÐABÆ — TB. UNDIR TRÉVERK
4ra herb. ibúð á 1. hæö. Sameign fullfrágengin. Afhendist í marz
'83 105 fm. Bílskúr 25 fm. Verð 900 þús. Teikn. á skrifstofunni.
SKÓLAVÖRÐUHOLT — T.B. UNDIR TRÉVERK
Lúxus íbúöir 2 stofur og eitt svefnherb. Bílskúr. Sameign og bílskýli
fullfrágengió. Afhendist í ágúst. Allar nánari uppl. og teikningar á
skrifstofunni. Verð 860 þús.
LOKASTÍGUR — 4RA HERB.
Rúml. 100 fm risíbúð í steinhúsi. Lyklar á skrifstofunni. Verö 800
þús.
Gnoðarvogur 5 TIL 6 HERB. HÆÐ — BÍLSKÚR
Vönduð 143 fm. 3 svefnherb. Verð 1,8 millj.
LAUGARVEGUR — 2JA HERB.
Kjallaraibuð 30 til 35 fm. Sér hiti. Verð 350 þús. Ekkert áhvílandi.
NJÁLSGATA — 2JA HERB.
íbúðin verður laus fljótlega. Selst strax. Verö 450 þús.
HÚSEIGNIN
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU