Morgunblaðið - 19.06.1982, Page 16

Morgunblaðið - 19.06.1982, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982 Leggjum til atlögu við erfiðleik- ana — Forðumst uppgjafartón Þjóðhátíóarrœða dr. Gunnars Thoroddsens, forsœtisráðherra Y irðulegi forseti! Góðir íslendingar! Þegar fargi er af létt, er mönnum feginleiki í hug. Svo er í dag. Sá skuggi er genginn hjá, er ógnaði atvinnulífi í landinu með voveiflegum hætti. Vinnustöðvun er bægt frá og góðar horfur á því, að samið verði á almennum mark- aði áður en dag tekur að stytta að ráði. Þegar vinnudeilur leysast, líður þakklátur hugur til sáttasemjara ríkisins og samstarfsmanna hans, sem leggja, ásamt aðiljum, nótt við nýtan dag, og eiga oftlega drjúgan hlut að farsælli lausn. Fyrir fjórum árum var starf ríkissáttasemjara gert að fullu ársstarfi. Sú breyting hefur orðið að góðu gagni. En margt er það fleira í meðferð kjaramála, sem þarf að betrumbæta. Þegar þeirri samningsgerð er lokið, sem nú stendur yfir, ætti að taka til hendi á samningstímanum, meðan frið- ur helst, og undirbúa endurbætur, með samstarfi aðilja vinnumark- aðar og sáttasemjara, — og með atbeina ríkisstjórnar, eftir því sem efni standa til. Hér er af mörgu að taka, en eitt skal nefnt. Atvinnuvegirnir standa mjög misjafnt að vígi í launasamning- um. Þeir, sem framleiða vörur fyrir erlendan markað, geta ekki hækkað verð á vöru sinni sem kauphækkun nemur. Sama máli gegnir um framleiðslu fyrir heimamarkað í harðri samkeppni við útlendan varning. En þeim greinum, sem að litlu leyti glíma við erlenda sam- keppni, gegnir öðru máli og kostn- aður af kauphækkunum kann að lenda á þriðja aðila, sem ekki var viðstaddur samningsgerðina. Stundum veldur þessi ólíka að- staða ókyrrð og tortryggni. I kjaradeilum ber mjög á því, að samanburður milli hópa og ein- staklinga stendur í vegi fyrir samkomulagi, vekur upp nýjar kröfur annars staðar og veldur óbilgjörnum vinnubrögðum. Auðvitað þarf að gæta réttlætis milli manna. En í mannlegu sam- félagi er ógerningur að marka svo þann gullna meðalveg, að öllum þyki öllu réttlæti fullnægt. Það er oftast unnt að finna einhvern punkt, þar sem einhver annar hef- ur það betra. Réttlætisgyðjunni má ekki misbjóða með því að mis- nota boðskap hennar til stuðnings tillitslausum eigin hagsmunum. Menn mega ekki undir yfirvarpi réttlætiskenndar leiðast út í sí- felldan samanburðakryt og öfund í annarra garð. Það er illt fyrir þjóðfélagið, verst fyrir mann sjálfan. Þjóðskáldið Matthías Joch- umsson flutti þann boðskap rétt fyrir aldamót í „íslands minni", sem enn stendur í fullu gildi: (■rsdum saman mein við mein, metumst ei vid grannann. fellum saman slein við stein, styðjum hverjir annan; plöntum, vökvum rein við rein, ræktin skapar framann. Hvað má höndin ein »g ein? Allir leggjum saman. Þeirrar hneigðar gætir oft í lífi okkar að einblína á hin dökku ský, en koma ekki auga á hina bláu vök, sem boðar skin eftir skúr. Fólk mætti gjarnan huga að spaklegum orðum Steingríms skálds: Menn oft sér skapa þraut og þrá, að þvrnum leita og finna þá, en hýrri fjólu ei gefa gaum, sem gra*r á þeirra leið. I lífi okkar íslendinga skiptast alltaf á skin og skúrir. Þjóðarbúið hefur að undanförnu orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Sjávarafli dregist stórum saman, — verðfall orðið í mikilvægum framleiðslugreinum og markaðs- tregða. Við þessum þrengingum þarf þjóðin öll að bregðast sem einn maður, — ekki með öfgum og ýkj- um, voli og víli, eins og allt sé komið á heljarþröm, — heldur með manndómlegri sókn og vörn, hófsemi og festu. Forðumst allan uppgjafartón, — leggjum heldur til atlögu við erfiðleikana og sigr- umst á þeim. Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði, fjöll sýni torsóttum gæðum að ná; bægi sem kerúb með sveipanda sverði silfurblár Ægir oss kveifarskap frá. Með þessum kjarki og karl- mennsku lýsti Bjarni Thoraren- sen viðhorfi sínu á ólíkt harðari tíð en nú er. I dag, á fæðingardegi Jóns Sig- urðssonar, minnumst við þeirrar þjóðhetju, sem jafnan horfði fram og 8Ótti fram, einbeittur og sókndjarfur, ráðinn í því að víkja aldrei frá settu marki, sem var frelsi og farsæld hinnar íslensku þjóðar. Fordæmi hans og fórnfúsra samherja hans er hollt að muna, — í fótspor þeirra er gott að ganga. Eg óska þjóðinni allri gleðilegr- ar þjóðhátíðar. Fjárfestingar Sambands- ins urðu 32.093 þús. á sl. ári — sagði Valur Arnþórsson, stjórnarformaður í ræðu sinni á aðalfundi Sambandsins, sem hófst á Húsavík í gær Komsa- skólahljómsveitin að spila fyrir utan Norræna húsið. Hópur frá Alta í viku heimsókn HINGAÐ til lands er kominn 130 manna hópur frá Alta i Norður-Noregi og verður hér í vikutima. Tilgangur ferðarinnar er að efla tengslin milli íslands og Norður-Noregs. Hópurinn mun setja upp sýningu frá Alta i Norræna húsinu, þar sem menning, saga, náttúra og atvinnulíf Finnmerkur verður kynnt. Sýningin er sett saman af starfsmönnum Alta-safnsins í Finnmörku og forstöðumanni þess, Kjersti Skavhaug. Hér er um aö ræða skermasýningu með myndum frá Alta og öðrum hlutum Finnmerkur, sem sýna náttúru, atvinnulíf o.fl. Auk þess eru listaverk og listiðnaður og sýnd eru dæmi um flögusteinagerðina, sem er annar helsti atvinnuvegur Altahúa auk fiskveiða. Alta-kórinn og Komsa- skóla- hljómsveitin komu með hópnum. Húsavík, 18. júní. 80. AÐALFIJNDUR Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga var settur á Húsavík í dag, en fundurinn er hald- inn á llúsavík í tilefni þess, að hinn 20. febrúar sl. voru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta kaupfélagsins á land- inu, Kaupfélags Þingeyinga á Húsa- vík. Formaður Sambandsstjórnar, Val- ur Arnþórsson, setti fundinn og minntist í upphafi málsins látinna samvinnumanna. Fundarstjórar voru kosnir Teitur Björnsson, Brún, for- maður KÞ, og Böðvar Jónsson bóndi að Gautlöndum. Fundinn sitja 106 fulltrúar, framkvæmdastjórar hinna ýmsu deilda Sambandsins og fleiri gestir og í för með þeim flestir makar, svo að héraðið gista nú um 300 manns í sambandi við þessa miklu samvinnuhátíð. Valur Arnþórsson, formaður stjórnar SÍS, flutti ítarlega skýrslu um viðfangsefni og framkvæmdir síðasta árs og í máli hans koma fram m.a. þetta: „Fjárfestingar Sambandsins urðu 32.093 þúsund krónur og þær stærstu voru nýjar kembivélar Iðnaðardeildar, 12.295 þúsund krónur, verzlunarhús Iðn- Stofnun Árna Magnússonar hefur að venju opnað sumarsýningu hand- rita í Arnagarði. Á sýningunni eru handritin tvö sem endurheimt voru 21. apríl 1971: Konungsbók Eddu- kvæða og Flateyjarbók. Að öðru leyti er sýningin einkum helguð Jónsbók, og eru þar mörg handrit aðardeildar í Glæsibæ, framlög til Miðvangs og Sparkaups og Holta- garða vegna Skipadeildar SÍS, samtals 6.676 þúsund krónur. Hlutabréf og eignarhlutar í félög- um, 6.787 þúsund krónur. Loðdýra- ræktarmál hafa verið til umfjöll- unar innan stjórnar Sambandsins og leggur stjórnin áherzlu á, að Samvinnuhreyfingin styðji eftir föngum við bakið á þessari nýju búgrein í landinu. Jafnframt hafa fiskræktarmál ítrekað verið til um- ræðu innan Sambandsstjórnar og vill Sambandsstjórnin einnig leggja áherzlu á, að Samvinnu- hreyfingin stuðli að þróun þessarar nýju búgreinar." Margt fleira kom fram í hinni ítarlegu ræðu formannsins, Vals Arnþórssonar, sem ekki er rúm til að rekja að þessu sinni. Erlendur Einarsson, forstjóri, gerði grein fyrir rekstri Sambands- ins á sl. ári og sagði m.a. þetta: „Aðalfundur Sambandsins er nú haldinn á Húsavík til heiðurs Þing- eyingum, sem stofnuðu fyrsta kaupfélagið 20. febrúar 1882. Sam- vinnumenn um allt land votta frumherjunum virðingu og þökk á aldarafmæli Samvinnuhreyfingar- hennar auk litmynda og vegg- spjalda með skreytingum úr hand- ritum. Handritasýningin verður opin í sumar á þriðjudögum, fimmtudög- um og laugardögum kl. 14.00-16.00. innar. Þingeysku bændurnir áttu hugrekki og mikinn manndóm við eindæma erfiðar aðstæður, þegar veðurguðirnir 1882 virtust ætla að banna mönnum lífsbjargir til sjós og lands. Grasleysi, hafís við land, langt fram á sumar, og mannskæð- ur mislingafaraldur um sumarið var leiksvið í fyrsta þætti Sam- vinnustarfsins á Islandi. Við hljótum að undrast þann dug, að einmitt á þessum þrenging- artímum, þegar menn sáu varla lífsbjörgina, skyldu bændur í Þing- eyjarsýslu leggja fyrsta grunninn að 100 ára Samvinnustarfi á Is- landi. Nú hefur mjög syrt í álinn í ís- lenzku efnahagslífi. Ef ekki koma óvænt höpp, sem vart eru sjáanleg, hlýtur einhver lífskjaraskeröing að eiga sér stað. Spurningin verður því hvernig helzt skuli brugðizt við vandamálunum, aflabrestinum, markaðserfiðleikunum, hinni veiku stöðu útflutningsatvinnuveganna, samfara hinni miklu verðbólgu. Fyrstu viðbögrð verða að vera þau, að tryggja undirstöðuatvinnu- vegunum rekstrargrundvöll, jafn- framt þarf að sýna aukna aðgæzlu í fjármálum og spara í rekstri eins og frekast er unnt. Á þetta bæði við um ríkið og atvinnurekstur al- mennt, en mestu varðar þó, að tak- ast megi að ná verðbólgunni niður. Þegar syrtir í álinn er það verð- bólgan, sem margfaldar vandann. Það er ekki sízt hinn hái fjár- magnskostnaður, sem nú gerir það að verkum, að taprekstur setur allt í strand á skömmum tíma. Það yrði gæfa þjóðarinnar, að verðbólgan næðist niður á svipað stig og er hjá aðalviðskiptaþjóðum okkar, en gæfuleysi hins vegar, ef blásið verður nú í verðbólguglóðir. Að loknum framsöguræðum hóf- ust umræður sem standa munu fram á kvöld og fundinum lýkur annað kvöld, og á sunnudaginn verður sérstakt afmælishóf að Laugum. — Fréttaritari. Mun Alta-kórinn syngja og Komsa- skólahljómsveitin leika við opnun sýningarinnar sem verður kl. 17:00 mánudaginn 21. júní og stendur til 4. júlí. Það er Anne- marie Lorentzen, sendiherra Nor- egs, sem opnar sýninguna. Alta-kórinn, sem er blandaður kór um 30 manns, mun koma víða fram á meðan hann stendur hér við. M.a. tók hann þátt í 17. júní- hátíðahöldunum í Kópavogi, heim- sækir öldrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi og ýmsar aðrar stofnanir á höfðborgarsvæðinu. Sunnudag- inn 20. júní mun kórinn syngja í Skálholtskirkju og þann 21. júní við opnun Alta-sýningarinnar í Norræna húsinu. Þá heldur kórinn tónleika í Nor- ræna húsinu þann 22. júní kl. 20.30. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, kirkjuleg verk, lög úr söngleikjum, verk eftir norræna höfunda og norsk, sænsk og íslensk þjóðlög. Undirleikari með kórnum er Nini Bellika Holmgren. Ennfremur er í hópnum fiðluleikari sem taka mun þátt í tónieikunum. Stjórnandi kórsins er Olav Solvik. Blaðamannafundur var haldinn í Norræna húsinu á miðvikudaginn þar sem m.a. voru viðstaddir ferða- málastjóri Finnmerkur, Valing T. Gorter, og fulltrúar frá Alta-bæj- arfélaginu og veiðimálastofnuninni í Finnmörku. Tóku þar margir til orða, m.a. Valing T. Gorter, ferða- málastjóri Finnmerkur, og Hjálm- ar Ólafsson menntaskólakennari. Á meðan á fundinum stóð lék Komsa-skólahljómsveitin fyrir utan. Að því loknu gekk Komsa- skólahljómsveitin niður í bæ og spilaði við útitaflið. Komsa- skólahljómsveitin syngur einnig við opnun Alta-sýningarinnar á mánudag. Stofnun Arna Magnússonar: Sumarsýningin helguð Jónsbók

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.