Morgunblaðið - 19.06.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
Saltfiskréttirn-
ir úr veizlu SÍF
EINH OG Morgunblaðið skýrði frá á dögunum, hélt Sölusamband ísl.
fiskframleiðenda veglega saltfiskveizlu síðastliðinn þriðjudag i tilefni
af 50 ára afmæli sambandsins. Saltfiskréttirnir þóttu bragðast mjög vel
og hefur Morgunblaðið fengið leyfi til að birta uppskriftirnar að réttun-'
um, en þær eru allar komnar frá Portúgal.
MEIA DESFEITA
DE BACALHAU
300 g hvítar baunir, smáar, 3 hvit-
lauksbitar, 400 g saltfiskur, 3 harðsoð-
in egg, I stór laukur, salt, pipar, 1
msk. edik, I dl ólifuolia.
Saltfiskinn þarf að útvatna í
minnst 12 tíma og skipta um vatn 4
sinnum. Baunirnar eru lagðar í
bleyti í minnst 12 tíma og síðan
soðnar í 2—2 'k tíma eða þar til þær
eru meyrar. Fiskurinn er settur í
nýtt vatn og suðan látin koma upp,
síðan eru beinin og roðið fjarlægt
og fiskurinn bitaður. Hitið olíuna
og setjið sneiddan laukinn i. Þetta
er soðið hægt án þess að brúnast og
fisknum bætt út í ásamt baununum
og edikinu. Látið sjóða í 5—10 mín.
og kryddið síðan. Berið fram á fati
skreyttu niðursneiddu eggi og
smáttskornum hvítlauk.
PUDIM
DE BACALHAU
500 g saltfiskur, 500 g kartöflur, 5 dl
mjólk, 1 msk. smjör eða smjörlíki, 2
egg, 1 msk. rjómi, tómatsósa, pipar,
múskat.
Leggið fiskinn í bleyti í kalt vatn,
með roðið upp, í 24 tíma. Þá er látið
síga vel af fiskinum, beinin fjar-
lægð og hann roðflettur. Kartöfl-
urnar eru flysjaðar og soðnar í
mjólkinni blandaðri dálitlu vatni.
Þegar kartöflurnar eru soðnar eru
þær annaðhvort hakkaðar og stapp-
aðar ásamt fiskinum og smjöri eða
smjörlíki og eggjarauðunum bætt í
og þetta kryddað með pipar og
múskati, rjómanum og stífþeyttum
eggjahvítunum er svo blandað í að
lokum. Deigið er svo sett í smurt
eldfast fat og bakað í vatnsbaði sem
nær upp á hálft fatið.
Borið fram með tómatsósu.
BOLINHOS
DE BACALHAU
240 g saltfiskur, 150 g kartöfiur (fiysj-
artar), 3 egg, 2 eggjahvítur, Vt dl ólífu-
olía, söxuó steinselja, 1 laukur.
Sjóðið kartöflurnar og fiskinn (út-
vatnaður eina nótt í köldu vatni).
Fjarlægið roð og bein og stappið
fiskinn. Stöppuðum kartöflum,
eggjarauðum og steinselju er síðan
hrært saman við fiskinn. Sneiðið
laukinn og steikið í olíunni þar til
hann er ljósbrúnn og bætið út í.
Stífþeyttum eggjahvítunum fimm
er síðan bætt í og hrært varlega
með trésleif. Hitið næga olíu á
pönnu og búið til bollur með 2
matsk. úr deiginu. Steikist þar til
ljósbrúnt.
BACALHAU
ALBARDADO
750 g saltfiskur, 1 sítróna, 3 hvítlauks-
bátar, 4 msk. hveiti, 2 egg, steinselja
(1 grein), ólífuolía, pipar.
Utvatnið fiskinn í 24 tíma í köldu
vatni með roðið upp. Látið síga vei
af fiskinum, hann settur í nýtt vatn
og suðan látin koma upp. Fiskurinn
er þá tekinn upp úr, roðflettur,
beinin fjarlægð og hann sneiddur
niður í jafnar sneiðar. Marinerið
með sítrónusafa, smáttbrytjuðum
hvítlauk, ólífuolíu og pipar.
Á meðan er smjöri og hveiti
blandað saman og út í það bætt 1
msk. óiífuolíu, eggjum, saxaðri
steinselju og nógu vatni svo bland-
an verði mjúk.
Fisksneiðarnar eru síðan þaktar
með deiginu og steiktar í ólífuolíu á
pönnu.
BACALHAU
A GOMES DE SÁ
250 g saltfiskur, 150 g kartöflur, 4
laukar, 2 harösoóin egg, 2 hvítlauks-
bátar, V/i dl ólifuolía, steinselja.
Kartöflurnar og fiskurinn er soðið í
sitt hvoru lagi. Beinin og roðið er
fjarlægt af fiskinum og hann brytj-
aður niður. Kartöflurnar eru flysj-
aðar og skornar í sneiðar. Laukur-
inn er skorinn í þunnar sneiðar og
steiktur ljósbrúnn í olíunni ásamt
smáttskornum hvítiauknum. Þá er
fiskinum og kartöflunum bætt í.
Þetta er snöggsoðið og smáttskor-
inni steinseiju og öðru egginu,
smáttskornu, bætt út í.
Þetta er síðan borið fram skreytt
með hinu egginu í sneiðum. Einnig
má setja svartar ólífur á.
BACALHAUS
Á TRANSMONTANA
6 stykki saltfiskur, 6 þunnar sneiðar
„presunto" (hrá skinka), 3 msk.
smjör, 3 msk. ólífuolía, 3 msk. hveiti,
1 dl hvítvín, 0,5 dl portvín (þurrt), 1
tómatur eða tómatpasta, 2 laukar, 3
egg, I hvítlauksbátur, 1 lárviðarlauf,
salt, pipar, steinselja, stappaðar kart-
öflur.
Fiskstykkin eru útvötnuð í köidu
vatni með roðið upp í 24—36 tíma.
Vatnið látið renna af, stykkin roð-
flett og beinin fjarlægð. Leggið fisk-
stykkin flöt og setjið skinkuna inn-
an í. Setjið stykkin í smurt eldfast
fat. Skerið laukinn í þunnar sneiðar
og steikið í smjöri eða olíu, látið
ekki brúnast. Leggið laukinn yfir
fiskstykkin. Út í feitina sem eftir
varð á pönnunni er settur fíntsax-
aður hvítlaukur, tómatur og hveiti
hrært út í hvítvíni. Síðan er krydd-
að með saiti og pipar og portvíni
bætt í. Hitið og hellið yfir fisk-
stykkin. Setjið síðan smáttskorna
steinselju yfir. Síðan er allt þetta
þakið með stöppuðum kartöflum og
strokið yfir með hrærðu eggi. Steik-
ið í ofni í 20 mín.
Setjið meiri saxaða steinselju yf-
ir, áður en borið er fram.
BACALHAU DO MESTRE
LAGAREIRO
500 g saltfiskur (útvatnaður), 2 dl
ólífuolía, 3 hvítlauksbátar, I tsk. papr-
ika, 500 g kartöfiur, salt, pipar.
Fiskurinn er steiktur á viðarkolum.
Ólífuoiían er hituð og hvítlauksbát-
arnir (aðeins marðir með hnífs-
blaði) settir útí. Þetta er soðið smá-
stund og þá er hvítlaukurinn fjar-
lægður. Olífuolíunni er hellt yfir
fiskinn og hann er borinn fram
skreyttur með bökuðum kartöflum
sem salti og pipar hefur verið stráð
yfir.
BACALHAU COM NATAS
Á IMPERIAL
4 skammtar saltfiskur, 2 laukar, 1 kg
kartöflur (skornar í teninga), V, 1
rjómi, 4 eggjahvitur (stífþeyttar), 7,5
dl mjólk, 60 g hveiti, 60 g smjör, salt,
pipar, múskat, ólifuolía.
Utvatnið fiskinn yfir nótt í köldu
vatni. Látið vatnið síga vel af, fjar-
lægið bein og skerið fiskinn í sneið-
ar. Skerið laukinn í þunnar sneiðar.
Hitið smávegis af ólífuolíu og steik-
ið laukinn þar til hann er mjúkur,
ekki brúnaður. Bætið siðan við
fiskinum og kartöflunum sem hafa
verið steiktar áður. Þá er búin til
hvít sósa úr smjöri, mjólk og hveiti,
sem er síðan bætt við fiskinn ,og
kartöflurnar. Þar næst er rjóman-
um og stífþeyttum eggjahvítunum
bætt í og allt kryddað með salti,
pipar og múskati. Þessu er helit í
smurt eldfast fat, sléttað að ofan og
smjörklípa sett ofan á. Bakað í heit-
um ofni.
BACALHAU
Á BRAZ
350 g saltfiskur, 250 g kartöflur (flysj-
aðar og skornar i jafnar ræmur), 2
laukar, 6 egg, steinselja.
Fiskurinn er ekki útvatnaður held-
ur skorinn í mjög þunnar sneiðar,
roð og bein fjarlægt. Þetta er síðan
þvegið 4—5 sinnum í volgu og köldu
vatni til skiptis og vatnið látið siga
vel af. Sneiðið iaukinn og látið hann
krauma í óiífuolíu, ekki brúnast, og
bætið fiskinum í. Þetta er snöggsoð-
ið, kartöflum, eggjahræru og sax-
aðri steinselju bætt í. Blandið fljótt
saman.
Borið fram á hituðu fati með loki.
Sparakstur BÍKR og Orkusparnaðarnefndar:
Hver fer lengst á dropanum?
Á SUNNUDAGINN nk. verður spar-
aksturskeppni á vegum Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavikur og Orku-
sparnaðarnefndar. Keppnisbílar
verða ræstir frá Shell-bensínstöðinni
fyrir ofan slökkvistöðina í Öskju-
hlíð.
Mörg bílaumboð verða með í
keppninni og líklega verður mest
baráttan á milli Daihatsu Char-
ade og Suzuki um það hvaða bíll
kemst lengst. Jafnframt er keppt í
mörgum vélarflokkum; í 0—1000
verða Suzuki, Charade og Peugeot.
I algengasta flokknum, 1001 —
1300, verða m.a. Ford Escort og
Opel Kadett. Meðal bíla í efri
flokkum verður Volvo Turbo.
Fyrsti bill verður ræstur kl. 14.00
eftir hádegi á sunnudag eftir skoð-
un.
Hver keppnisbíll fær 5 lítra af
bensini og á að aka þar til hann
stöðvast. Bæði er ekið innanbæjar
og á malarvegum í nágrenni
Reykjavíkur. Verða keppendur að
halda ákveðnum meðalhraða, sem
miðast við umferðarhraða. í fyrra
komst Suzuki-bifreið 108 km á 5
lítrum, sem jafnast á við 4,6 1 á
100 km í eyðslu. Spurningin er nú
hvort einhver slær þetta met.
Hreppasvipan
Sleipnisskjöldurinn
Hestaþing að Murneyri
Um helgina 26. og 27. júní næst-
komandi halda hestamannafélögin
Sleipnir og Smári sitt árlega hesta-
þing að Murneyri. Þar verður keppt í
A- og B-flokkum gæðinga hjá báðum
félögum.
í A-flokki gæðinga hjá Sleipni er
keppt um farandskjöld, sem aldrei
vinnst til eignar og hefur verið
keppt um hann á hverju ári frá
1950, nema árið 1955 að keppnin
féll niður vegna veðurs. Skjöldur-
inn er eftir Ríkharð Jónsson
myndhöggvara og er útskorinn
hestur í tré.
UNGUR maður slasaðist talsvert í
umferðarslysi sem varð á Reykjavegi
í Mosfellssveit um miðjan dag 17.
júni sl„ samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá lögreglunni í
gær.
Slysið varð með þeim hætti að
bíll ók frá Vesturlandsvegi inn á
Reykjaveg og síðan í austurátt, en
bifhjói kom á móti og á móts við
í A-flokki gæðinga hjá Smára er
keppt um Hreppasvipuna. Árið
1944 gáfu gamlir smalar og hesta-
strákar úr Hreppunum þessa
merkilegu svipu, en hún vinnst
aldrei til eignar. Þessi eftirsótti
verðlaunagripur er vönduð smíði
með gullstöfum á silfurstétt.
Keppni um hana féll niður 1955
vegna veðurs.
A undanförnum árum hafa börn
og unglingar tekið þátt í keppni á
gæðingum sínum á þessum mótum
og er keppt í tveimur aldursflokk-
um, 12 ára og yngri og 13 til 15 ára.
dæiustöð sem þarna er, beygði bif-
reiðin í veg fyrir bifhjólið sem lenti
beint framan á bifreiðinni og varð
þar allharður árekstur.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar slasaðist ökumaður bifhjóls-
ins talsvert, einkum á fæti. Einnig
fékk hann höfuðáverka. Ekki er
talið að hann sé í lífshættu.
I fyrra gáfu hjónin í Vestra-
Geldingaholti, Rósmarí Þorleifs-
dóttir og Sigfús Guðmundsson, tvo
bikara, sem keppt er um í þessum
aldursflokkum hjá Smára, en hjón-
in á Arnarstöðum, Gunnar B.
Gunnarsson og Guðríður Val-
geirsdóttir, gáfu bikara sem keppt
er um hjá Sleipni. Eru þeir fyrir
stighæsta ungling í hvert sinn.
Þessir bikarar vinnast aldrei til
eignar.
Á þessu hestaþingi verða kapp-
reiðar og verður keppt í: 150 m
skeiði, 250 m skeiði, 250 m ung-
hrossahiaupi, 350 m stökki, 800 m
stökki og 800 m brokki. Á undan-
förnum árum hafa allir þekktustu
hlaupagarpar og vekringar iands-
ins mætt þarna til leiks enda völl-
urinn góður og tímar hafa orðið
góðir hjá hlaupagörpunum.
Árnesdeild Hagsmunafélags
hrossabænda á Suðurlandi ætlar
að halda uppboð á hrossum laug-
ardagskvöldið 26. júní á mótssvæð-
inu. Formaður hestamannafélags-
ins Smára er Finnborgi Jóhanns-
son, Stóra-Núpi, en formaður
hestamannafélagsins Sleipnis er
Magnús Hákonarson, Selfossi.
Mosfellssveit:
Bifhjól og bíll í árekstri
Rauði kross Islands:
Jón Hólm kaupmað
ur á leið til Súdan
Jón H. Hólm kaupmaður í
Reykjavík, er á leið til Súdan
þar sem hann mun starfa á
vegum Rauða kross íslands
næstu þrjá mánuði.
Jón H. Hólm kaupmaður
Meginverkefni Jóns verður að
sjá tveimur flóttamannabúðum í
Austur-Súdan og læknaliði í bæn-
um Kassala fyrir lyfjum og hjúkr-
unargögnum.
Ráðningartíma Jóns Hólm lýk-
ur 1. september. Þá er fyrirhugað
að annar Islendingur leysi hann af
hólmi og starfi í Súdan fram að
áramótum.