Morgunblaðið - 19.06.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.06.1982, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982 Algerir yfirburðir Skaga- manna i síðari hálfleiknum TILhRIK þau er Skagamenn sýndu i síðari hálfleiknum gegn Breiðabliki á Akranesi á miðvikudagskvöld hljóta að teljast með þeim allra bestu af þeirra hálfu undanfarin ár. Eftir að liðin höfðu skilið jöfn, 1 — 1, í fyrri hálfleik var Ijóst hvert stefndi strax og dómari leiksins, Guðmund- ur Haraldsson, hafði flautað til merkis um að síðari hálflcikur skyldi hafinn. Linnulaus sókn Ak- urnesinga stóð út allan hálfleikinn og þegar upp var staðið var staðan orðin 3—1 heimamönnum í vil. Blik- arnir hefðu svo hæglega getað feng- ið helmingi fleiri mörk á sig. Slíkir voru yfirburðirnir og sannast sagna kom það á óvart hversu mjög Breiða- blik gaf eftir í síðari hálfleiknum. Akurnesingar fengu óskabyrjun í leiknum strax á 4. mínútu. Árni Sveinsson lagði þá knöttinn út til Kristjáns Olgeirssonar, sem sendi hann þegar laglega fyrir markið. Þar var Guðbjörn Tryggvason einn og óvaldaður á markteig og skoraði örugglega framhjá Guð- mundi Ásgeirssyni, markverði Blikanna. Sveinbjörn Hákonarson, sem lék með að nýju í liðinu og gerbreytti miðjunni, átti síðan skot yfir Blikamarkið áður en Kópavogsliðið jafnaði metin. Dæmd var aukaspyrna rétt utan vítateigs á Skagamenn á 20. mín- útu. Sigurður Grétarsson tók hana mjög svo snyrtilega. Lyfti knettin- um yfir varnarvegginn og sendi hann efst í markhornið án þess að Bjarni Sigurðsson næði að koma í veg fyrir mark. Einhverjir voru á því að þessa aukaspyrnu hefði aldrei átt að dæma, en það er önn- ur saga. Skagamenn áttu síðan tvö þokkalegustu færi, sem misfórust áður en Bjarni varð að lyfta þrumuskoti Sigurðar Grétarsson- ar af 30 metra færi yfir markið. Rétt á eftir skaut Július Pétur Ingólfsson yfir markið í dauðafæri eftir fallega sóknarlotu. Blikarnir höfðu haldið Skaga- mönnum sæmilega i skefjum í fyrri hálfleiknum og átt hættu- legar skyndisóknir af og til, en í síðari hálfleiknum var engu slíku fyrir að fara. Akurnesingar tóku öll völd á vellinum og það taldist til tíðinda ef Blikarnir komust al- mennilega fram yfir miðju vallar- ins. Það er eðliiegast að renna yfir minnisbókina í síðari hálfleiknum. Hún segir bestu söguna. 49. mín. Þrumuskot Árna Sveinssonar eftir aukaspyrnu, en Guðmundur Ásgeirsson varði vel. 52. mín. Blikarnir með fallega sókn. Sigurjón Kristjánsson og IA UBK 3—1 Sigurður Grétarsson unnu vel saman og samvinnunni lauk með skoti Sigurjóns framhjá markinu. 68. mín. 2—1. Árni Sveinsson gaf laglega fyrir markið. Guð- mundur Ásgeirsson missti af knettinum, sem barst til Guð- bjarnar Tryggvasonar. Hann lagði boltann fyrir fætur Júliusar Pét- urs á markteig og skot hans rataði rétta leið í netið. 70. mín. Falleg sókn Akurnes- inga, sem lauk með fyrirgjöf Sveinbjarnar, en Guðbjörn skall- aði rétt yfir markið. 83. mín. Enn áttu Skagamenn laglega sókn upp hægri vænginn. Jón Askelsson gaf vel fyrir markið og Guðbjörn skallaði áfram fyrir markið til Júlíusar Péturs. Fastur skalli hans hafnaði í þverslá Blik- anna og þaðan út í teiginn. 85. mín. Guðbjörn og Júlíus prjónuðu sig laglega í gegnum Blikavörnina. Júlíus fékk tvö kjör- in færi til að skora, en í bæði skiptin var bjargað frá honum á marklínu, í síðara sinnið á meist- aralegan hátt. 89. mín. Júlíus skallaði yfir vörn Blikanna þar sem Guðbjörn kom á fullri ferð og tók við knettinum. Lék síðan áfram og aðeins inn í vítateiginn. Skot hans hafnaði í stönginni og þeyttist þaðan þvert yfir markið í hliðarnetið hinu megin, 3—1. Fallegt mark. 90. mín. Júlíus Pétur komst einn í gegn, en spyrnti framhjá í ágætu færi. Akranesliðið lék í þessum leik allt aðra og betri knattspyrnu, en sést hefur til þess í vor. Reyndar voru örlítil ummerki um betri tíð farin að sjást í síðasta leik, en rós- in sprakk út með tilþrifum á mið- vikudag. Að sama skapi ollu Blik- arnir miklum vonbrigðum, eink- um og sér í lagi í síðari hálfleikn- um. Árni Sveinsson var bestur í liði Skagamanna eins og áður í sumar og jafnframt besti maður vallar- ins. Sýndi stórskemmtileg tilþrif á tíðum og sýndi jafnframt mikla baráttu, sem ekki hefur alltaf ver- ið hans aðalsmerki. Þá kom Sveinbjörn Hákonarson mjög sterkur út á miðjunni og sýndi að liðið má illa án hans vera. Jón Áskelsson stóð sig ennfremur mjög vel og virðist vera að ná sér upp úr löngum öldudal. Þá átti Guðbjörn Tryggvason prýðisgóðan leik. Hjá Blikunum var fremur fátt um fína drætti. Sigurður Grét- arsson besti maður liðsins, en aðr- ir mjög svipaðir að getu. „Glókoll- arnir“ tveir, Ólafur Björnsson og Ómar Rafnsson, báðir sterkir í vörninni, en miðjumennirnir týndust. Dómari leiksins var Guðmundur Haraldsson og hefur sýnt betri og öruggari dómgæslu. — SSv. • Árni Sveinsson var yfírburðamaður í liði ÍA og sýndi frábæran leik. Árni fékk 9 í einkunnagjöf Mbl. Mikill heppnissigur Valsmanna á Akureyri gegn liði KA VALSMENN unnu heppnissigur á liði KA í íslandsmótinu í knatt- spyrnu á miðvikudag. KA lék sinn besta leik á beimavelli í sumar og verðskuldaði sigur í leiknum. En knatLspyrnan er óútreiknanleg, og þrátt fyrir að lið KA hafí sótt mun meira og sýnl betri knattspyrnu en Valsmenn, máttu þeir sjá á eftir báð- um stigunum. KA-menn höfðu mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum og áttu þá að geta skorað ein þrjú mörk, en þau urðu ekki fleiri en eitt. Gunnar Gíslason skoraði mjög gott mark IA: Bjarni Sígurðsson 6 Guöjón Þórðarson 6 Árni Sveinsson 9 Jón Áskeisson 7 Jón Gunnlaugsson 6 Sígurður Lárusson 6 Krístján Olgeirsson 5 Sveinbjörn Hákonarson 8 Jón Alfreðsson 5 Guðbjörn Tryggvason 7 Július Pétur Ingólfsson 6 Breiðablik: Guðmundur Ásgeirsson 6 Ómar Rafnsson 6 Ólafur Björnsson 6 Valdimar Valdimarsson 5 Helgi Helgason 5 Trausti Ómarsson 6 Sigurður Grétarsson 7 Sígurjón Kristjánsson 6 Birgir Teitsson 5 Þórarinn Þórhallsson 5 Björn Þór Egilsson 5 Hákon Gunnarsson lék of stutt Vignir Baldursson lék of stutt KA: Aðalsteinn Jóhannsson Eyjólfur Ágústsson Guðjón Guðjónsson Haraldur Haraldsson Erlingur Kristjánsson Gunnar Gíslason Elmar Geirsson Ormar Örlygsson Ilinrik Þórhallsson Jóhann Jakobsson Ásbjörn Björnsson Valur: Brynjar Guðmundsson íllfar Hróarsson Grímur Sæmundssen Jón Gunnar Bergs Njáll Eiðsson Þorgrímur Þráinsson Ingi Björn Albertsson Albert Guðmundsson Magni Pétursson Þorsteinn Sigurðsson strax á 6. mínútu. Hann óð upp allan völlinn frá miðju, lék á hvern Valsmanninn af öðrum og skoraði síðan frá vítateigslínu með góðu skoti. Valsmenn skoruðu svo heppn- ismark á 37. mínútu og jöfnuðu leikinn. Erlingur Kristjánsson ætlaði að gefa á markvörðinn, en Þorsteinn komst inn í sendinguna og náði að gefa vel fyrir markið á Albert sem skoraði af stuttu færi, 1-1. Allan síðari hálfleikinn áttu leikmenn KA og sóttu án afláts. En þrátt fyrir mikla pressu á mark Vals, tókst þeim ekki að skora. Á 66. mínútu leiksins lék KA — 1 O Valur lánið við Valsmenn. í einni af fáum sóknum þeirra hrökk boltinn í hendi Erlings Kristjánssonar inni í vítateig og Valur fékk víti. Njáll Eiðsson skoraði svo úr víta- „Vil engu spá um framhaldið“ — segir George Kirby, þjálfari Akurnesinga „ÉG HEF nú hingað til haft það fyrir sið að tala ekki við íslenska blaðamenn. Það er ekki vegna þess að ég hafí eitthvað á móti þeim, síð- ur en svo. Viðtöl við blaðamenn geta e.t.v. verið í lagi eftir sigurleiki, eins og t.d. nú, en þegar lið tapar hljóma öll ummæli þjálfara eins og afsakan- ir,“ sagði George Kirby, þjálfari Ak- urnesinga, er Mbl. ræddi við hann eftir leik Akraness og Breiðabliks á Akranesi á miðvikudag. Kirby sló síðan til og sagði: „Auðvitað er ég ánægður með sigurinn hjá okkur í kvöld. Áhorf- endur fengu að sjá góða knatt- spyrnu. Ég vil engu spá um hvort þetta á eftir að reynast vendi- punkturinn hjá Akranessliðinu í sumar. Ég gæli aldrei við spá- dóma. Það eru svo margir þættir, sem spila inn í árangur liðsins hverju sinni. Bara sú staðreynd, að grasvöllurinn hér á Akranesi er orðinn almennilegur í fyrsta skipti í mörg ár, hefur sitt að segja. Annars er aðalmálið hjá okkur og það sem reyndar öll knatt- spyrna snýst um, að skora mörk. Til þessa höfum við skapað okkur þrisvar sinnum fleiri tækifæri í leikjunum en við höfum síðan nýtt. Þetta hefur því fyrst og fremst verið spurningin um að nýta þau færi, sem við höfum skapað okkur. Við nýttum nógu mörg til að vinna í þessum leik.“ — SSv. spyrnunni. Reyndist markið nægja Val til sigurs í leiknum. Lið KA lék mjög vel í þessum leik og átti skilið að sigra. Guðjón Guðmundsson var besti maður vallarins, en þeir Gunnar Gísla- son, Jóhann Jakobsson, Elmar Geirsson og Ásbjörn Björnsson áttu allir góðan leik að þessu sinni. Hjá Val átti Njáll Eiðsson best- an leik, sívinnandi og ódrepandi baráttujaxl. Jón Gunnar Bergs var og traustur í vörninni. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild. KA — Val- ur, 2-1 (1-1). MÖRK Vals: Albert Guðmundsson á 37. mín. og Njáll Eiðsson úr víta- spyrnu á 66. mínútu. MARK KA: Gunnar Gíslason á 6. mínútu. GUL SPJÖLD: Engin. ÁHORFENDUR: 620. DÓMARI: Kjartan Tómasson og dæmdi hann leikinn mjög vel. SH. FH sigraði toppliðið á grasvellinum FH SIGRAÐI Þór, 1—0, á Kapla krikavellinum i Hafnarfírði fyrir skömmu og var þar leikið á grasvell- inum sem tekið hefur stórstígum framförum aö undanfornu. Hann er nú kominn í leikhæft ástand. í dag fer fram leikur í 2. deild á vellinum, er FH og Skallagrimur mætast. Leikur FH þólti afar góður, einn sá besti sem boðið hefur verið upp á í 2. deild. Erling Ragn- arsson skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.