Morgunblaðið - 19.06.1982, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
33
Sumarnám-
skeið fyrir
börn í Tónabæ
Félagsmiðstöðin Tónabær gengst í
sumar fyrir vikulöngum dagnám-
skeiöum fyrir börn fædd á árunum
frá 1970 til 1975. Leiðbeinendur
starfa með börnunum að skipulagn-
ingu leikja og ýmiss konar útistarfi á
leikvöllum og útivistarsvæðum borg-
arinnar. Farið er í stuttar dagsferðir
út fyrir borgina og skoðuð fyrirtæki
og stofnanir í Reykjavík. I slæmu
veðri er föndrað innandyra.
Þetta er í fyrsta skipti sem
námskeið þessi eru starfrækt fyrir
börn og unglinga í Tónabæ yfir
sumarmánuðina. Kostnaður vegna
styttri skoðunar- og kynnisferða
er innifalinn í þátttökugjaldi en
ætlast er til að þátttakendur hafi
með sér nesti í hádeginu.
Innritun stendur yfir í Tónabæ
frá kl. 9—10 daglega í síma 35935.
Vélskóla ís-
lands slitið
Vélskóla íslands var slitið þann 21.
maí síðastliöinn. í skólaslitaræðu
Andrésar Guðjónssonar kom m.a.
fram að síðastliðið haust hófu 317
nemendur nám í Reykjavik, þar af 60
á 1. stigi skólans þar sem tekið hefur
verið upp áfangakerfi. Vélstjórnar-
menntun fór einnig fram á Akureyri,
ísafirði, í Keflavík, Vestmannaeyjum,
á llúsavík og Akranesi.
í meginatriðum var starf skólans
með líkum hætti og undanfarin ár.
Árlegur kynningardagur skólans,
Skrúfudagurinn, var haldinn að
venju. Starfsvika var haldin en þá
var farið með nemendur í heim-
sókn í fyrirtæki og ýmis námskeið
haldin fyrir þá. Tölvukennsla var
einnig tekin upp í skólanum síð-
astliðinn vetur.
Við skólaslit voru verðlaun af-
hent fyrir góðan námsárangur.
Hörður Karlsson hlaut verðlaun
fyrir frábæra kunnáttu í vélfræði-
greinum en Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna hafði gefið
góðan grip í því skyni. Að þessu
sinni luku 67 nemendur prófi með
4. stigs vélstjórapróf.
Árstíöafundir
Samhygðar
Mánudaginn 21. júní nk. verða
haldnir árstíðafundir Samhygðar.
Fundirnir eru, eins og annað
starf Samhygðar, opnir öllum en
miðast fyrst og fremst við þá sem
eru tilbúnir að hefjast handa um
að gera jörðina mennska.
Fundirnir verða á eftirtöldum stöð-
um: Hótel Holti kl. 20.30, Þróttheim-
um kl. 20.30, Fellahelli ki. 20.30,
Ölduselsskóla kl. 20.30, Ármúla 36,
kl. 20.30, Hafnarfirði: Samhygöarhús-
inu v/Flatahraun kl. 20.30.
Einnig verða árstíðafundir Sam-
hygðar haldnir í Keflavík, á ísafirði,
Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum.
Sýningu lýk-
ur í Gallerí
Lækjartorg
IIM ÞESSA helgi lýkur málverka-
sýningu Björns Skaftasonar í Gallerí
Lækjartorgi.
Á sýningunni eru 47 myndverk
unnin með „sérkennilegri tækni“
eins og segir í frétt frá Galleríinu.
Sýningin er opin frá 14.00 til 22.00,
en henni lýkur á sunnnudags-
kvöldið.
STAÐU^HNN^ANDLATlt
_ ,_____________ _V^
1H ~ÉM
Opið í kVÖid til kl. 3. E»ri hæð — danaaalur.
Dansbandið
ásamt söngkonunni Sólveigu Birgisdóttur
leika fyrir dansi. Eitthvað fyrir alla, bæði
gömlu og nýju dansarnir.
Neðri hæð — diskótek
Við höfum gert miklar breytingar á diskótekinu okkar. Þar á
meðal eru ný Ijós, nýtt gólf og síðast en ekki sist nýjar græjur.
Fjölbreyttur matseöill að venju.
Áskiljum okkur rétt til að ráðstafa boröum eftir kl. 21.00.
Borðapantanir í síma 23333. Spariklæðnaður eingöngu leyfður.
Borðapantanir í síma 86220 og 85660.
\l M.YSIV. ASIMINN KH: •
22480 Al
Avallt um
helgar
Mikið fjör
LEIKHUS
Opið í kvöld frá kl. 18—3
Fjölbreyttur matseðill.
Spiluð þægileg borð- og danstónlist.
Borðapantanir í síma 19636.
Spariklæönaöur áskilinn.
eitthvaö gott
á prjónunum
!>refclnr»
KÍNVERSKA VEITINGAHU SIO
LAUGAVEGI 22 SIMI13628
KEKOUKELC
Hótel Borg
DANSLEIKUR
Rokk, rokk, rokk og
meira rokk í kvöld frá kl.
22.00 á Hótel Borg
Úlfarnir
mæta á miönætti og
kynna nýju plötuna sína
og hverfa svo SPOR
laust.
VIÐBURÐUR I
SKEMMTANALÍFINU
og Troggs
á hljómleikum í Háskólabíói
í kvöld kl. 23.
Allir þekkja syrpuplöt-
urnar frá Stars on 45.
Og hver man ekki eftir
gömlu góðu lögunum
með TROGGS svo sem
„Wild Thing“ og „With a
Girl Like You“.
Miöasala í Háskóla-
bíói frá kl. 16.00 í
dag.
Músik fyrir allar.