Morgunblaðið - 19.06.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1982
37
Yfirlýsing
í dálkum þínum sl. sunnudag 13.
júní, kvartar 7608—2588 yfir því
að ráðningarþjónusta við Lauga-
veg, hafi tekið greiðslu af fólki í
atvinnuleit og ekki endurgreitt
þrátt fyrir að því hafi ekki verið
útveguð vinna.
Þar sem Ráðningarþjónusta
okkar er staðsett við Laugaveg,
óskum við eftir að það komi fram,
að hjá okkur greiða vinnuveitend-
ur einir fyrir okkar ráðningar-
þjónustu, enda óheimilt skv. lög-
um að krefja launþega um
greiðslu.
Virðingarfyllst,
Ráðningarþjónusta,
Bókhaldstækni hf.
Bergur Björnsson.
Gáta
Gömul kona í Vesturbsnum
hringdi og lét okkur þessa gátu í té:
Borg eina leit ég í upphæðum
standa,
fjórdyruð var hún með fögru
smíði.
Á henni eru gluggar tveir glæsi-
legir,
turnar að tölu tveir og þrjátíu.
Fyrir henni ræður einn ágætis
svanni,
og öðru nafni, illur tíranni.
:usnrj
Kisa svarar
Ekki þarftu að kvarta yfir öllum
kattareigendum; að köttur þeirra
beri starrafló og heimilisfólk þitt
líði fyrir það. Ef þú ert að sækjast
eftir því að kattaeigendur tjóðri
ketti sína við dyr og loki þá inni í
heila tvo mánuði, þá skjátlast þér
hcldur betur, því margir skyldu
aldrei ganga að því, því kötturinn
á frelsi alveg eins og þú og fleiri.
Ég hef aldrei heyrt það, að kettir
migi upp við útidyr, svo að ég vona
að einhver annar svari þessu.
Svo er það þessi „engin smá
hópur af fólki sem líður fyrir
kattapláguna", það fólk hlýtur að
hafa gaman af öðrum dýrum, en
því miður hefur allt fólk gaman
af einhverju dýri, svo það fólk
getur ekkert sagt eða gert.
Kisa.
Vísur í
tilefni
kosninga
Okkur hafa borist tvær vís-
ur eftir hinn kunna hagyrðing,
Jörund Gestsson frá Hellu við
Steingrímsfjörð. Fyrri vísan
varð til þegar sjálfstæðismenn
töpuðu í Keykjavík í kosning-
unum 1978, en þá var rigning
og slagveður:
Hugsun skýr fór þar í þrot
því er glópskan engu lík
Himininn grætur glappaskot
góðra manna í Reykjavík.
Seinni vísan er ort þegar
sjálfstæðismenn unnu borg-
ina aftur í kosningunum um
daginn, en þá var, eins og
menn muna gott veður, sól
og hiti:
Borgin skipti létt um lit
lífinu fagnar sólin
fólkið aftur fékk sitt vit
fúlsaði rauðu skjólin.
Þessir hringdu . . .
Allð lóð við
Samtún veld-
ur vandræðum
Sigríður Kjerúlf, Samtúni 18
hringdi og sagði að á auðu svæði
ofanvert við Samtúnið, væri að
myndast ruslahaugur. Þegar verið
var að byggja við Borgartúnið
hafði safnast þarna saman eitt-
hvert drasl, sem hefði ekki verið
hreinsað burtu. Síðan hefði smám
saman verið að bætast við, á
hverju vori, síðast núna fyrir
fáum dögum hefði hún séð fólk
henda þarna rusli. Síðan ryki úr
þessu yfir garðana hjá þeim. Það
sem hún vildi fá að vita væri, hver
ætti að sjá um að hirða lóðina,
hún héldi að bærinn ætti hana, en
væri ekki viss, en ef svo væri ekki,
hver ætti þá að sjá um þetta.
Aldrað fólk
ekki tryggt
Sólveig Eysteinsdóttir, hringdi og
sagði okkur smá sögu í tilefni árs
aldraðra. Þannig var, að hún ætl-
aði að tryggja móður sína í sólar-
landaferð, og fór í því augnamiði
niður í Sjóvá, til að kaupa ferða-
slysatryggingu sem þar hefur ver-
ið auglýst. Þar fékk hún þær
fréttir,að þar sem viðkomandi
kona væri 79 ára gætu þeir ekki
tryggt hana, þeir ferðaslysa-
tryggðu ekki fólk eldra en 75 ára.
Hún fór þá niður í Samvinnu-
tryggingar og fékk þar strax
keypta tryggingu, þar hefði aldur:
inn ekki verið nein fyrirstaða. í
Sjóvá hefði ekki verið minnst á
neinn hærri áhættuflokk eða neitt
slíkt, og sér fyndist þetta hreinn
dónaskapur við aldrað fólk, að
neita því alveg um tryggingu
vegna þess eins að það væri komið
yfir vissan aldur.
Upplýsingar
óskast um
gulan kött
Kona í Kópavoginum hringdi og
sagði að gulur eyrnalaus köttur
kæmi reglulega í heimsókn til
hennar og fengi eitthvað í svang-
inn. Hann kæmi á hverjum degi,
stundum tvisvar á dag, en vildi
aldrei koma inn fyrir dyr, það yrði
alltaf að færa honum matinn út.
Þó væri hann örugglega ekki úti-
leguköttur, því hann væri blíður
og ekki styggur nema við einstaka
fólk. Hún hafði heyrt tvö nöfn
nefnd i sambandi við hann, Bjössi
og Fleksnes, en hún vissi ekki um
hvort þau væru rétt. Hún hélt
kannski að einhver sem flutt hefði
í burtu hefði skilið hann eftir. Nú
langaði hana að komast í samband
við einhvern sem þekkti þennan
kött eða gæti gefið henni einhverj-
ar upplýsingar um hverjar ástæð-
ur hans væru. Ef einhver býr yfir
slíkum upplýsingum, þá er hann
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 40948.
GÆTUM TUNGUNNAR
Hyggjum að skiptingu orðanna ástand og ástúrt í fram-
burði! Réttur framburður er: á-stand og ást-úð. (Ath.:
„á-stúð“ er rangur framburður.)
Heyrst hefur: Ég óska þér góðan dag.
Rétt er: Ég býð þér góðan dag (eða: ég óska þér góðs dags).
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
sfflraw
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
MINKAVEIÐAR
í STRAUMSFIRÐI
VINNAN ER ALLT
Grein um Henry Moore
83 ÁRA BLÓMATÍMI
í BORG
ÍSLANDSSJÓMANNA
Veröld:
ENN HERÐA JARÐAR-
BÚAR DRYKKJUNA
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans
vantar
þi3 gódan bíl ?
notaður- en í algjörum sérfbkki
JÖFUR
Ath.: Opiö í dag milli 1 og 5.
Nýbýlavegi2 - Kópavogi
- Simi 42600
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU