Morgunblaðið - 19.06.1982, Blaðsíða 40
auglVsingasíminn er.
22480
IHvreoablabib
iorj0íwtiMaí>íií>
Rjúkandi kaffi
ogheitbrauðfrakl.7
<gg>
isauiiiis®
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1982
Tvö skip á kolmunnaveiðar:
Aflinn unninn í
marning um borð
ÁÆTLAÐ er að Eldborg HF
13 haldi til kolmunnaveiða um
miðjan júiímánuð næstkom-
andi og verður kolmunninn,
sem aflast, unninn í marning
um borð. l»essa daga er verið
að breyta Eldborgu til þessara
veiða, meðal annars verður
Ingiríður
drottning
kemur í dag
INGIKÍÐUR drottning, ekkja
FriAriks Danakonungs, kemur
hingað til lands í einkaheimsókn í
dag klukkan 16.00 með flugvél
Klugleiða og mun hún dvelja hér á
landi fram á miAvikudagsmorgun.
Samkvæmt upplýsingum Hall-
dórs Reynissonar, forsetaritara,
mun Ingiríður drottning skoða
Þjóðminjasafnið og Islenzkan
heimilisiðnað á morgun og held-
ur síðan síðdegis til Þingvalla,
þar sem hún mun sitja kvöldverð
í boði forsætisráðherrahjóna.
A mánudagsmorgun fer
drottningin síðan til Vestmanna-
eyja, þar sem hún mun fara um í
fylgd með heimamönnum. Hún
snæðir hádegisverð í boði bæj-
arfógetans í Vestmannaeyjum.
Eftir hádegi verður flogið til
Fagurhólsmýrar og verður farið
inn í þjóðgarðinn í Skaftafelli, ef
veður leyfir. Síðan verður haldið
til Hafnar í Hornafirði og þar
snæddur kvöldverður í boði
heimamanna og mun drottning
hafa gistingu í Höfn.
Á þriðjudagsmorgun verður
flogið frá Höfn til Egilsstaða.
Frá Egilsstöðum verður haldið
inn í Hallormsstað, þar sem
drottning mun skoða skógrækt-
ina. Þá verður hádegisverður í
Hallormsstað, en þaðan verður
haldið inn á Egilsstaði og farin
skoðunarferð um byggðina og
upp á Fjarðarheiði. Drottning
heldur síðdegis til Reykjavíkur.
Með drottningu í för verða frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, dönsku sendiherrahjón-
in og fylgdarlið.
Ingiríður drottning heldur til
Danmerkur að morgni miðviku-
dags.
Sjá nánar á miðopnu blaAsins.
Eftir brunann var kirkjan rústirnar einar. Nýja kirkjan í baksýn.
Ljósm. Mbl. Albert Kemp.
Gamla kirkjan að Heydöl-
um brann til kaldra kola
Grunaður maður handtekinn, en sleppt aftur
GAMLA KIRKJAN aA Hcydölum i
Breiðdal í S-Múlasýslu brann til
kaldra kola um miAjan dag fimmtu-
daginn 17. júni. AAkomumaAur var
handtekinn á bænum þá um kvöldiA
og fluttur flugleiAis um nóttina til
Reykjavíkur. Var hann yfirheyrður
af rannsóknarlögreglumönnum í
gær, en maðurinn játaði ekki á sig
verknaðinn og var honum sleppt síð-
degis í gær. Heydalakirkja var byggð
1856 og gefin Þjóðminjasafninu árið
1975. Hún var tekin á fornleifaskrá
árið 1976.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Arnar Guðmundsson deild-
arstjóri hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins að maðurinn sem hand-
tekinn var, hafi áður orðið uppvís
af ýmiss konar spellvirkjum.
„Það var stórkostlegt óhapp að
kirkjan skyldi vera brennd og í
henni fóru góðir gripir, þar á með-
al tvær klukkur og var önnur frá
1652 og var hún merkt manninum
sem steypti hana. Þá var í kirkj-
unni altari og predikunarstóll,
sennilega jafn gamall kirkjunni,
en aðrir hlutir höfðu verið fluttir í
nýju kirkjuna," sagði Þór Magn-
ússon þjóðminjavörður í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Ráðherra
samþykkti á sínum tíma að Þjóð-
minjasafnið tæki Heydalakirkju
til verndar og varðveislu, en til
tals kom á sínum tíma að flytja
Gamla kirkjan að Heydöl-
um.
kirkjuna að Skorrastað en ekki
varð af því. Kirkjan var í niður-
níðslu, því ekki hafði gefist tæki-
færi til þess að lagfæra hana, en
hefjast átti handa við það verk nú
í haust. Kirkjan var byggð árið
1856 og var á sínum tíma ein
stærsta og besta kirkjan á Austur-
landi. Kirkjan var mjög stílhrein
og allir húsaverndunarmenn voru
mjög hlynntir varðveislu hennar.
Skaðinn fyrir utan kirkjuna eru
klukkurnar og er hann geysimik-
ill, svona hluti fær maður ekki aft-
ur,“ sagði Þór Magnússon þjóð-
minjavörður.
komið fyrir kolmunnaflökun-
arvélum í skipinu, settar í það
marningsvélar, frystitæki og
útbúin verður stór frystilest í
skipinu. Gert er ráð fyrir, að
Eldborg landi aflanum í Eng-
landi, en þar eru fyrirtæki sem
vilja kaupa kolmunnamarning-
inn.
Slippstöðin hf. á Akureyri er
nú langt komin með að smíða
togara, sem verður í eigu aðila á
Hólmavík. Þessi togari mun fá
nafnið Hólmadrangur og verður
hann útbúinn til kolmunnaveiða
á svipaðan hátt og Eldborg og er
einnig áætlað að hann landi
kolmunnamarningnum í Eng-
landi. Gert er ráð fyrir að
Hólmadrangur verði afhentur
eigendum í ágúst nk.
Ekki er ljóst hvort fleiri ís-
lenzk skip haldi til kolmunna-
veiða á þessu ári. Þó er vitað að
eigendur Víkings AK hafa
áhuga á að senda skipið á þessar
veiðar, ef líkur eru til að þær
gangi vel síðla sumars á svæð-
inu milli Islands og Færeyja.
Ekki ljóst
hverjum
fíkniefnin
voru ætluð
EKKI ER enn Ijóst hverjum voru
ætluA fíkniefnin sem komu til fs-
lands 5. maí sl., en efnin komu
hingað meö flugi frá New York. Um
var að ræða 189,4 kg af marijuhana.
í samtali við Morgunblaðið
sagði William Möller aðalfulltrúi
lögreglustjóra, að skráður send-
andi efnanna, fyrirtæki á Jam-
aica, kannaðist ekki við þau og
ekki væri enn ljóst hver hinn
raunverulegi sendandi væri. Ekki
er talið að endanlegur ákvörðun-
arstaður efnanna hafi átt að vera
hér á landi og sagði William að
lögreglufulltrúi hjá Interpol ynni
nú að rannsókn málsins. -
Rangt flokkaður salt-
fiskur einnig í Eldvík
ENN HAFA ekki borizt
nákvæmar fréttir frá Portú-
gal um hve mikið magn af
íslenzkum saltfiski, sem
þangað er kominn, hefur
reynzt vitlaust flokkaður.
Morgunblaðið hefur hins
vegar fengið staðfest í Portú-
gal, að komið hafi í Ijós, að
saltfiskur sem nú er verið að
skipa upp úr Eldvík, hafi
einnig reynzt vitlaust flokk-
Milli Islands og Noregs
í sleða á 10 metra dýpi
Frá fréttaritara Morgunbladsins í Osló.
UNGUR íslendingur, Einar
Atli Jónsson, ætlar í ágúst
að leggja upp frá Þránd-
heimi í Noregi áleiöis til ís-
lands í eins konar neð-
ansjávarsleða sem dreginn
verður á 5 til 10 metra dýpi.
Einar Atli starfar nú sem
kafari hjá norsku fyrirtæki
en starfaði m.a. áður fyrir
íslensku landhelgisgæsl-
una.
Einar sagðist vera að hrinda í
framkvæmd gömlum draumi og
ætlar að verða fyrstur til að
ferðast á þennan hátt milli land-
anna. Einar hefur sjálfur hann-
að farkostinn en hann verður
dreginn af 50 feta mótorbáti.
Sleðinn er gerður úr áli og mun
Einar liggja í honum, en getur
fylgst með því sem framhjá fer í
gegnum skerm úr fíbergleri.
Einar hyggst kanna dýralíf,
mengun sjávar og hitastig í
þessari 530 sjómílna ferð.
Frá bátnum til sleðans liggja
loftslöngur svo og aðrar leiðslur,
sem gera honum kleift að koma
skilaboðum til bátsverja. Sleðinn
verður útbúinn með stýribúnaði.
Ef svo óheppilega vildi til, að
festar milli bátsins og sleðans
slitnuðu, þá á sleðinn að fljóta
upp á yfirborðið. Áætlað er að
ferðin taki átta daga en Einar
kemur upp á yfirborðið á tólf
tíma fresti og tekur sér sex tíma
hvíld í bátnum. Þetta uppátæki
Einars er ekki ódýrt, en hann
vonast eftir stuðningi fólks, sem
hefur líkað hugmyndin. Lauré.
aður eins og í saltfiskskipinu
sem losaði í síðustu viku.
Enn mun aðeins hafa
verið skipað upp hluta af
saltfiskinum í Eldvík og
ekki mun verða ljóst fyrr
en eftir helgi hve mikið af
fiskinum er vitlaust flokk-
aður. Eldvík fór með 1500
tonn af saltfiski til Portú-
gal og er töluverður hluti
þess fisks frá Vestmanna-
eyjum, en þar virðast aðal-
mistökin hafa átt sér stað
við flokkun fisksins í gæða-
flokka.
Nú eru í Portúgal fjöl-
margir íslendingar vegna
þessara mistaka. Strax að
aðalfundi SÍF loknum
héldu Friðrik Pálsson,
framkvæmdastjóri, og
Vestmanneyingarnir Stef-
án Runólfsson og Sigurður
Einarsson til Portúgal til
viðræðna við þarlenda að-
ila.