Morgunblaðið - 26.06.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982
9
Ætlar þú að kaupa 4ra herb. íbúð?
Viltu raöhús í Mosfellssveit á svipuöu veröi. Húsiö er
stofa, 3 svefnh., eldhús meö kæliklefa, nýtt flísalagt
baðherb. meö keri í, sauna, fataherb., geymsla og fl.,
allt í mjög góöu standi. Ræktaöur garður, bílskúrs-
réttur. Hefur þú áhuga? Hringdu þá í síma 66623.
m^^^mmm^^mmmma—mmm^mam
HÚSEIGNIN
Sími 28511
Verömetum eignir samdægurs
Glæsilegt raðhús — Seljahverfi með tveim íbúðum
3x75 fm. Uppi 4 svefnherb., bað, fataherb., þvottahús. 1. hæðin
stofa, boröstofa, eldhús, kjallari. Sér 2ja herb. íbúö. Allar innrétt-
ingar mjög vandaðar. Verö 2—2,1 millj.
Fokhelt einbýlishús í Mosfellssveit
Glæsilegt rúmlega 300 fm á tveimur hæðum á einum besta stað við
Leirutanga. Útsýni yfir sjóinn. Rúmlega 1000 fm lóð. Tvöfaldur
bílskúr. Teikningar og allar nánari uppl. á skrifstofunni. Verö
12—13 hundruö þús.
Blönduhlíð — 2ja herb.
Falleg 45 fm íbúö á 1. hæð. Sér inngangur. Verö 600 þús.
Dalsel — 7—8 herb.
2 hæöir, 160 fm. íbúö á tveim hæöum. Mjög vandaöar innréttingar,
6 svefnherb. uppi og niðri. Verð 1,6—1,7 millj.
Furugrund — 3ja herb. plús einstaklingsíbúð í kj.
70 fm 3ja herb. íbúö mjög vönduð ásamt stórri einstaklingsíbúö í
kjallara i 3ja hæöa blokk. Kjallarinn er ca. 40 fm. Verö 1300 þús.
Engihjalli — 3ja herb.
Glæsileg 95 fm 3ja herb. íbúö á 3. hæö í 3ja hæða blokk. Stór stofa
með stórum suöursvölum. Verö 950 þús.
Hlíðar — 2ja til 3ja herb. risíbúö
70 fm risíbúö við Engihlíö. Verð 650 þús.
Lokastígur — 4ra herb.
110 fm risíbúö í steinhúsi sem er kjallari, hæð og ris. Verð 800 þús.
Lyklar á skrifstofunni.
HÚSEIGNIN
Skólavörðustíg 18, 2. hæð.
Pétur Gunnlaugsson. lógfræðingur,
Opið laugardag 1—4
Lokað sunnudag
SMYRILSHÓLAR
2ja herb. ca 50 fm ágæt íbúö á
jarðhæö í fjölbýli. Ákv. sala.
SÓLHEIMAR
3ja herb. ca. 85 fm mjög góö
íbúö á 1. hæö. Nýtt baö og
eldhús.
HRAUNBÆR
4ra herb. ca. 100 fm ágæt íbúö
á 3. hæö. Þvottur og búr innaf
eldhúsi.
SKIPASUND — SÉR
4ra herb. ca 95 fm íbúö á 2.
hæö. Bílskúrsréttur.
MIÐVANGUR —
HAFN.
4ra—5 herb. ca 120 fm
mjög góð íbúö á 3. hæð. Sér
svefnálma. Þvottur innaf
eldh. Nýtt eldhús. Ákv. sala.
SUNNUVEGUR — HF
4ra—5 herb. ca. 120 fm neðri
hæð í tvíbýli á kyrrlátum staö.
Skipti á minni mögul.
ÞVERBREKKA —
KÓP.
5—6 herb. ca 120 fm mjög
góö íbúö á 2. hæö í lyftu-
blokk.
SÓLHEIMAR — RAÐH.
Ca. 210 fm á 3 hæðum meö
innb. bilskúr. Skipti möguleg á
hæð í Heimum eða Vogum.
LAUGAVEGUR
3ja herb. ca. 90 fm snyrtileg
íbúö á 2. hæö. Fæst meö hag-
stæðum kjörum. Laus fljótlega.
BÁRUGATA
4ra—5 herb. ca 115 fm aöal-
hæö í þríbýli. Bílskúr
HOLTSGATA
4ra herb. ca. 100 fm vönduð
ibúö á 4. hæö. Sér hiti.
LJÓSHEIMAR
4ra herb. ca. 105 fm ágæt íbúö
á 2. hæð í lyftublokk.
ÁLFASKEIÐ — HAFN.
4ra herb. ca. 110 fm nýstands.
ibúö á 4. hæö. Bílskúrssökklar.
BREIÐVANGUR —
HAFN
4ra—5 herb. ca. 120 fm góö
íbluð á 3. hæö með bílskúr.
ÆGISÍÐA —
PARHÚS
kjallari, hæö og ris, alls ca.
140 fm. Möguleiki aö breyta
og endurbæta. Bitskúrsrétt-
ur.
FRAMNESVEGUR —
RAÐH.
120 fm lítiö raöhús á 3 hæðum.
Nýstandsett. Laust fljótlega.
SPÓAHÓLAR —
SKIPTI
5—6 herb. ca 120 fm glæsi-
leg endaíbúö á 3., efstu
hæð. Innb. bílskúr. Möguleg
skipti á einbýli sem má vera
á byggingastigi.
M
MARKADSMONUSTAN
INGÓLFSSTRÆTI 4 . SIMI 26911
Róbert Arni Hrelðarsson hdl.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson_____________152. þáttur
í upphafi sólmánaðar rifjast
upp eitt og annað í máli okkar,
tengt hinum bjarta lífgjafa og
göngu hans.
Séra Bjarni Gissurarson í
Þingmúla í Skriðdal
(1621—1712), dóttursonur sr.
Einars í Eydölum, orti merki-
legt kvæði um samlíking sólar-
innar. í þessu kvæði er meiri
náttúrulýsing en títt var áður.
Þó er kvæðið ef til vill athygl-
isverðast fyrir þá sök, að þar
örlar á þeirri hugmynd, sem
Bjarni Thorarensen fullgerði,
að hinn innri maður móti út-
litið því meir sem hver eldist.
í hinu fræga sólarkvæði sínu
spyr Bjarni:
Hvaó er betra en sólar sýn,
þá sveimar hún yfir stjörnu rann?
Hann svarar sér síðar í
kvæði sínu. Ur heilagri ritn-
ingu hefur hann þann fróðleik
að samlíkja megi blóma hinn-
ar bestu konu við ljóma sólar-
innar, og þrátt fyrir allt þykir
Bjarna meira til um konuna,
því að:
llennar Ijós, |>ó halli degi,
hvers kyns dyggða slokknar eigi.
Austfirsku skáldin, sr.
Bjarni og náfrændur hans,
voru vel lesnir í fornum fræð-
um. Líklega hefur Bjarni orða-
sambandið sólar sýn úr Háva-
málum. Þau hafði systrungur
hans, sr. Stefán Ólafsson í
Vallanesi, þrautkannað og þýtt
á latínu. En í Hávamálum er
sólar sýn (það að sólin sjáist,
birta og hiti) talið með því sem
mönnum sé allra best og holl-
ast.
Gamlir menn gáfu sólinni
mörg nöfn. Svo segir í Alvís-
sálmum:
Sól heitir meó mönnum,
en sunna meó goóum
kalla dvergar Dvalins leika,
eygló jötnar,
álfar fagrahvel,
alskír ása synir.
Merkilegt er að sólin heitir
líka sol á latínu, reyndar
karlkyns. Telja hálærðir menn
að orðið sé af sömu frumrót og
sunna og þykjast kenna í rót-
inni frummerkinguna birta. I
daglegu tali sínu hafa aðrar
germanskar þjóðir verið
geymnari á orðið sunna en við.
Bestu lífi lifir það hjá okkur í
samsetningunni sunnudagur,
svo og í fjölda fallegra ör-
nefna, svo sem Sunnudalur.
Átt sólarinnar heitir sunnr í
elstu bókmenntum okkar. En
svo kvað Eilífur Guðrúnarson í
Kristsdrápu:
Sctbergs kveóa sitja
sunnr at Uróar brunni,
svá hefr ramr konugr remdan
Róms banda sik löndum.
Eru Kristshugmyndir hans
að vonum heldur fornlegar.
Kristur er voldugur konungur
og stundar á landvinninga, og
skiljanlegt má það vera, að
Eilífi sé ekki með öllu skýr
fyrir sjónum skilsmunur Urð-
arbrunns og Jórdanarfljóts.
Orðmyndin sunnr tók merki-
legri breytingu, svo sem fleiri
orð þegar tvöfalt (langt) n fór
næst á undan r-i. Varð úr þessu
suðr, seinna suður, svo sem nú
er sagt. Kallast þetta ófull-
komin samlögun (tillíking) og
er hliðstætt því er mannr
breytist í maðr og síðar maður.
Hitt var þó algengara að orð-
myndir sem þessar hyrfu aftur
til upphafs síns að mestu.
Fyrir þá mildi málsörlaga
segjum við nú til dæmis munn-
ur en ekki muður (undantekn-
ing Ólafur muður), sannur en
ekki saður og Finnur en ekki
Fiður, enda mundu víst fáir
vilja svo heita.
Þegar sólin heitir eygló, þá
er það sú sem alltaf skín, fagra-
hvel er hið bjarta hjól eða
kringla, og alskír er hin al-
bjarta. Er þess þá ógetið að
sólin heitir og álfröðull eða
bara röðull, líknskin og sitt-
hvað fleira. Af þessum gömlu
sólarheitum lifir helst röðull.
Greinir menn nokkuð á hversu
skýra skuli, en tækilegust virð-
ist mér sú tilgáta að orðið
merki kringla, hjól og væri
skylt þýsku das Rad = hjól,
latína rota, sömu merkingar,
samber t.d. Rotary-félagsskap-
inn með kringluna að einkenn-
ismerki og enska orðið round =
kringlóttur, úr latínu rotundus.
Eftir göngu sólar frá austri
til vesturs mynduðu menn síð-
an með hljóðvarpi orðin rang-
sælis, réttsælis og andsælis.
Nærri má því geta að hið hálfa
tungl, sem birtist á veggþili í
Fróðárundrum, gengi andsæl-
is. Sólin varð aldrei fulllofuð í
ljóðum skáldanna. í Sólarljóð-
um (líklega frá 13. öld) verður
sólin, sem er upphafsorð sjö
vísna í listrænni klifun, tákn
lífsins og þess guðs sem gaf
það, og sólsetrið samsvarar
dauðanum. Hvergi kenni ég þó
hita og bjarma sólarinnar bet-
ur en í ljóðum þeirra frænda
Jóhanns Sigurjónssonar og
Jónasar Hallgrímssonar. Jó-
hann kvað:
Sólin ilmar af eldi
allan guðslangan daginn,
fadmar ad sér hvert einasta blóm,
andar logni yfir sa*inn.
En í hinu óviðjafnanlega
harmljóði Sorg, „hrynja sól
eftir sól í dropatali". Jónas
lýkur sínum yndislegu Sólset-
ursljóðum svo:
Yekur þú von
og vekur þú bæn,
hvenær sem dapri
dimmu hrindir,
og augu kætir
allrar skepnu;
þökk er og lofgjörð
á þinni leid.
Vekur þú von
og vekur þú bæn,
er þú í Ijóma
líóur af himni,
aftur í Ijóma
upp að renna;
þökk er og lofgerd
á þinni leið.
Hníg þú hóglega
í hafskautið mjúka,
röðull rósfagur,
og rís að morgni,
frelsari, frjóvgari
fagur guðs dagur!
Blessaður, blessandi
blíður röðull þýður!
Lúðrasveit Laugarnesskóla:
Vel heppnuð ferð til Lux-
emborgar og Þýzkalands
Lúðrasveit Laugarnesskóla er ný-
komin heim úr 12 daga ferð til Luxem-
borgar og Þýskalands. Stjórnandi
sveitarinnar er Stefán Þ. Stephensen
sem hefur stjórnað henni frá stofnun,
1976. 46 ungmenni á aldrinum 10—16
ára voru í ferðinni og nokkur hópur
foreldra til aðstoðar.
Flogið var með Flugleiðum til
Luxemborgar og þaðan ekið til
Kölnar, þar sem Þýsk-íslenska fé-
lagið tók á móti hópnum. í Köln og
nágrenni voru haldnir 5 tónleikar og
auk þess spilað í og við ráðhúsið í
Köln þar sem borgarstjóri tók á
móti hópnum. Ræðismaður íslands,
dr. Max Adenauer, var viðstaddur
þá athöfn.
Sveitin spilaði m.a. á útipalli við
Kölnardómkirkju og í Radevorm-
wald í boði tónlistarskóla þar og
léku lúðrasveit heimamanna og
Lúðrasveit Laugarnesskóla til skipt-
is. Auk þessa var leikið í skemmti-
görðum og á fjölförnum torgum.
Alls staðar var gerður góður rómur
að leik sveitarinnar og bárust henni
boð um að leika víðar, en vegna
strangrar dagskrár var það ekki
unnt.
I Luxemborg var leikið í litlum
bæ, Canach, en þar hafa margir ís-
lendingar búið á undanförnum ár-
um. Lokatónleikar lúðrasveitarinn-
ar voru á Place d’Armes sem er eitt
helsta torgið í höfuðborginni, Lux-
emborg. Þar var stenmningin slík að
sveitin fékk ekki að hætta leik sín-
um fyrr en flóðgáttir himins opnuð-
ust og allir, jafnt hljóðfæraleikarar
sem áheyrendur, flúðu á braut.
Hvarvetna var sveitinni mjög vel
tekið og unglingunum hrósað ákaft
fyrir leik sinn.
Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur í Ráðhúsinu i Köln.