Morgunblaðið - 26.06.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
11
ísraelsmenn trúum hótunum
um, að okkur skuli útrýmt, sagði
landamæravörður í ísraelsku
borginni Metulla, þegar við
ræddum við hann á sínum tíma.
— Það er betra að halda lífi án
vorkunnsemi og samúðar heldur
en láta menn berja sér á brjóst
til minningar um sig dauðan,
bætti landamæravörðurinn við.
Hann heitir Gideon Amman,
kaupsýslumaður frá Tel Aviv, og
var þarna að gegna árlegri 30
daga herskyldu.
Israelsmenn hafa sýnt það við
innrásina í Líbanon, að þeir
bjóða almenningsálitinu um
heim allan byrginn með því hug-
arfari, sem landamæravörður-
inn lýsti. Þeir eru að berjast
fyrir eigin tilverurétti og ætla
ekki að gefa PLO neitt eftir, fyrr
en í fulla hnefana. í Camp Da-
vid-samkomulaginu viður-
kenndu ísraelsmenn „lögmæt
réttindi palestínsku þjóðarinn-
ar“. Nú hafa þeir nokkur hundr-
uð þúsund Palestínumenn á
valdi sínu í Líbanon. Hvað ætla
þeir að gera við þetta fólk?
Leiðtogar PLO hafa kvartað
undan því, að þeir fái engan
stuðning frá Arabaríkjunum í
átökunum við Israelsmenn.
Arabaríkin hafa ekki verið jafn
vanmáttug og innbyrðis sundruð
um langan aldur. PLO-foringj-
arnir vilja ekki leggja niður
vopn, þeir eru ekki fúsir til að
setjast að í vopnlausu ríki á
vesturbakka Jórdanár á milli Is-
raels og Jórdaníu. Sýrlendingar
vilja ekki fá þá inn í land sitt.
Líbanonmenn vilja ekki hafa þá
hjá sér. Jórdaníumenn vilja þá
ekki heldur. ísraelsmenn líta
ekki á PLO-menn sem hermenn
heldur hryðjuverkamenn.
Deilan sýnist óleysanleg.
Hafnarborgirnar fornfrægu Síd-
on og Tyrus á Miðjarðarhafs-
strönd Líbanon eru í rúst. Sex til
sjö þúsund PLO-menn bíða ör-
laga sinna í vesturhluta Beirút
með þau orð á vörunum, að borg-
in eigi eftir að verða álíka
orrustuvöllur og Stalíngrad í
átökum Rússa og nasista. Ibúar í
þessum bæjarhluta eru taldir
hafa verið um 600 þúsund og
flóttamenn streyma nú þaðan í
þéttum röðum.
Skammt frá Metulla er mann-
auð líbönsk borg, Khiam. Þar
var einu sinni háskóli og 30 þús-
und íbúar. Þeir eru allir flúnir.
Við gistum rétt hjá þessari
draugaborg á sínum tíma. Á
nóttunni mátti heyra þaðan
vélbyssuskothríð. Okkur var
sagt, að þar væru Israelsmenn
að æfa sig í götubardögum. Von-
andi verður unnt að stilla til
friðar í Líbanon, áður en skot-
hríð hefst á milli húsa í Beirút.
Björn Bjarnason
í sól og sumaryl á Egilsstöðum fyrir
nokkrum dögum. Þennan fallega
sumardag fór hitinn í 24 stig í for-
sælu og ungviðið kunni að meta blíð-
una, léttklætt í görðum og á götum.
Ljósm.Ólafur (•uómundsson
Frík heimsins
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Agnar Hauksson:
YZT
Höfundur gaf út.
ísafirði 1982.
Sum kver ungra manna er erfitt
að flokka samkvæmt venjulegu
bókmenntamati. Eru þau til dæm-
is fullgild ljóð, sögur, ritgerðir eða
bara hugleiðingar um lífið og til-
veruna? Eða eru þau fyrst og
fremst tjáning, þörf sem leitar út-
rásar innan bókarspjalda?
Líklega verður kver Agnars
Haukssonar að hlíta síðartöldu
skilgreiningunni. I kverinu eru
viðbrögð ungs manns við samtíð
sinni, uppreisn kannski, að
minnsta kosti hans lýsing á því
sem fyrir augu ber og hann hefur
reynt.
Við skulum líta á sýnishorn
framarlega í kverinu:
(iötuvígi næturinnar
voru réist umhverfis hálfmánann
sem speglaðist í tjörninni
Samúdarfullar kellingar
gen^u með lotningu
á vatninu
Ekki svo klént. Laglega orðað er
niðurstaðan. „Ég hafði enga von,“
skrifar höfundurinn. Vegfarendur
fortíðar og/ eða framtíðarinnar
eru óttaslegnir í texta hans.
I þessum anda er eftirfarandi
yfirlýsing: „Heimurinn er sóða-
legur/ óréttlátur/ harður/ eng-
anveginn einfaldur/ ekki full-
kannaður/ heimurinn er fyrir oss/
endalausar pælingar fyrir oss/
frík heimsins".
En hvað er það sem angrar,
hvað er svona leiðinlegt? Vitan-
lega frystihúsið sem gerir mann
ringlaðan og veldur stressi ásamt
ýmsu öðru í samfélaginu, ekki síst
stöðutákn borgaranna. Því er mót-
mælt að slíkt sé eftirsóknarvert.
En sá sem nennir ekki að taka
þátt í lífsgæðakapphlaupinu getur
átt það á hættu að verða „stranda-
glópur á íslandi". Þrátt fyrir allt
er eitthvað skemmtilegt, til dæmis
frelsi ungs manns, raunverulegt
og ímyndað, það að gleðjast með
glöðum „Ábyrgðarleysið er krani
þekkingarinnar".
Yzt er að mínu viti heimild um
ungan mann í pælingum, kverið er
beinskeytt og víða í því góður
húmor. Ekki spillir uppsetningin
og myndirnar sem lýsa textann.
Jóhann Hjálmarsson.
Serstök
greiöslukjör
og sérstakur
barnaafsláttur!
Ferðakynning
Skrifstofan veröur opin í
dag laugardag kl. 10—2.
Sýnd veröur ný video-
mynd frá Mallorka og
gefnar upplýsingar um
feröamöguleika.
mdMTHC
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu,
Hallveigarstíg 1, símar: 28388 og 28580.