Morgunblaðið - 26.06.1982, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982
Vestfirðir
Fréttaskýring
Á Vestfjörðum bjuggu
16% landsmanna um síð-
ustu aldamót en aðeins
4,6% 1980. Engu að síður
skila Vestfirðingar hátt í
fjórðungi þeirra frystiaf-
urða, sem SH flytur á er-
lenda sölumarkaði. Þeir
leggja því drjúgan hlut í
þjóðarbúið.
Almennar
upplýsingar
um Vestfirði
íbúar á Vestfjörðum vóru
tæplega 12.500 árið 1901. Þeir
vóru hinsvegar aðeins 10.500 í
árslok 1980. Á sama tíma óx
íbúatala landsins úr 78.500 í
229.100, nær þrefaldaðist.
Fækkun fólks í strjálbýli hefur
verið mun örari á Vestfjörðum
en í öðrum landshlutum. I
strjálbýli landshlutans búa að-
eins um 1.980 manns en nálægt
8.500 í þéttbýli.
Fjölgun í þéttbýli hefur og ver:
ið hæg, sérstaklega eftir 1940. í
höfuðstað Vestfjarða, ísafirði,
búa nú tæplega 3.400 manns —
en íbúar vóru um 2.000 þegar árið
1920 og um 2.800 árið 1940.
í Bolungarvík búa nú um 1.270
manns, en þar hefur verið íbúa-
aukning allar götur frá 1950. Á
Frá ísafirði, höfuðstað Vestfjarða. Frá Vestfjörðum kemur milli fimmtungs og fjórðungs freðriskframleiðslunnar, þó þar búi aðeins 4,6%
þjóðarinnar.
Þeir afla grimmt í þjóðarbúið
Hægrisveifla í kaupstöðum — meirihluti á Flateyri
Patreksfirði var vaxandi byggð
fram til 1965, en íbúatalan hefur
síðan staðið því sem næst í stað.
Flestir aðrir þéttbýlisstaðir á
Vestfjörðum hafa aukið nokkuð
íbúatölu sína síðasta áratuginn.
Meðalbrúttótekjur framtelj-
anda á Vestfjörðum hafa verið
um eða yfir landsmeðaltali í
meira en áratug.
Auðlindir eru einhæfari á
Vestfjörðum en í öðrum lands-
hlutum. Þar er t.d. lítið um nýt-
anlegan jarðhita. Möndullinn,
sem atvinnulífið snýst um, er
sjávarútvegur, veiðar og vinnsla,
enda stutt á gjöful mið og Vest-
firðingar hafa skipað sér í fram-
varðarsveit um myndarlegan
frystihúsarekstur. Rúmlega 2.000
manns sinna fiskveiðum eða fisk-
vinnslu, eða tæplega 40% vinnu-
aflsins, sem er um 4.700 manns.
Það er mun hærra hlutfall en í
öðrum landshlutum. Rúmlega
800 manns sinna öðrum iðnaði en
fiskiðnaði, 500 bústörfum og um
1.300 ýmiss konar þjónustustörf-
um (opinber þjónusta, samgöng-
ur, verslun o.fl.).
ísafjörður —
Bolungarvík
Á Vestfjörðum eru tveir kaup-
staðir: Isafjörður, sem um lang-
an aldur hefur verið höfuðstaður
Vestfjarða, og Bolungarvík.þar
er kraftmikil, vaxandi byggð.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 43,9%
greiddra atkvæða í Bolungarvík,
jók atkvæðamagn sitt um 27,02%,
en 39,9% kjörfylgi á ísafirði,
jókst um 33,39%. Flokkurinn fékk
4 fulltrúa af 9 kjörnum á báðum
þessum stöðum — og skortir þar
aðeins 1 bæjarstjórnarfulltrúa á
hreinan meirihluta.
Jafnaðarmenn og óháðir komu
næstir að atkvæðum í Bolung-
arvík með 24,3% kjörfylgi og 2
bæjarfulltrúa sem er lakari út-
koma en 1978, er þeir fengu 33%
atkvæða. Framsóknarflokkur jók
hinsvegar fylgi sitt nokkuð, hlaut
18,5% atkvæða og 2 fulltrúa
(14,4% 1978). Alþýðubandalagið
rekur síðan lestina með 13,2%
atkvæða og 1 fulltrúa. Alþýðu-
bandalagið var ekki með flokks-
framboð 1978.
Alþýðuflokkurinn nær næst
mestu kjörfylgi á ísafirði, 26%
og 2 bæjarfulltrúum, eykur fylgi
sitt nokkuð, fékk 23,4% 1978.
Framsóknarflokkur fékk 13,7%
atkvæða og 1 fulltrúa (11,3%
1978). Alþýðubandalag 11,6% og 1
fulltrúa (15,9% 1978) og Óháðir
borgarar 8,9% og 1 fulltrúa
(15,8% 1978).
Meirihluti
Sjálfstæðisflokks
á Flateyri
Sjálfstæðisflokkurinn vann
meirihluta í hreppsnefnd Flat-
eyrar, 3 hreppsnefndarfulltrúa
af 5. Sameiginlegt mótframboð,
C-listi, hlaut 2 fulltrúa. Aðeins 2
atkvæði réðu úrslitum. D-listinn
á Flateyri jók atkvæðamagn sitt
um 56% frá 1978. Sé sú fylgis-
40% vinnu-
afls í sjáv-
arútvegi
Þar er Al-
þýðubanda-
lagið litli
flokkurinn
aukning fiokksins borin saman
við úrslit í 22 kaupstöðum lands-
ins ná sjálfstæðismenn ekki
meiri aukningu nema í 4 kaup-
stöðum: Kópavogi, Grindavík,
Garðabæ og Vestmannaeyjum.
Úrslitin á Flateyri vöktu því at-
hygli sjálfstæðisfólks um gjör-
vallt landið.
Aðrir kaup-
túnahreppar
• Patreksfjörður: Þar fengu
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur 2 full-
trúa hver en framfarasinnar 1.
Alþýðuflokkur hlaut 22,3% at-
kvæða, Framsóknarflokkur
22,5% kjörfylgi og Sjálfstæðis-
flokkur 26%. Framsóknarflokkur
vinnur fulltrúa af óháðum.
• Þingeyri: Framsóknarflokkur
fékk mest, kjörfylgi á Þingeyri,
32,6%, og tvo fulltrúa. Sjálfstæð-
isflokkurinn kemur rétt á hæla
Framsóknar með 30% atkvæða
og 2 fulltrúa, vinnur af óháðum.
Óháðir fá 26,5% og 1 fulltrúa og
vinstri menn 10,9% og engan
kjörinn. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir stöðu sína verulega frá
1978.
• Suðureyri: Framsóknarflokkur
hlaut 35,8% atkvæða og 2 full-
trúa, Sjálfstæðisflokkur 29,2%
og 1 fulltrúa, Alþýðuflokkur
19,2% og 1 og Alþýðubandalag
15,8% og 1. Alþýðuflokkur vinn-
ur fulltrúa af Sjálfstæðisflokkn-
um á Suðureyri.
• í Tálknafirði, Bíldudal, og á
Hólmavík komu ekki fram
flokkslistar, utan G-listi í
Tálknafirði (sem ekki fékk mann
kjörinn). í Súðavík var óhlut-
bundin kosning.
Alþingiskosningar
1979
í Alþingiskosningunum 1979
fékk Sjálfstæðisflokkurinn flest
atkvæði á Vestfjörðum, 1.735, og
2 kjörna þingmenn: Matthías
Bjarnason og Þorvald Garðar
Kristjánsson. Framsóknarflokk-
ur fékk 1.645 atkvæði og 2
kjörna: Steingrím Hermannsson
og Ólaf Þ. Þórðarson. Alþýðu-
flokkurinn 1.188 atkvæði og 1
kjörinn: Sighvat Björgvinsson.
Karvel Pálmason var og lands-
kjörinn (uppbótarþingmaður) af
A-lista. Alþýðubandalag fékk 808
atkvæði og hvorki kjördæma-
kjörinn né landskjörinn þing-
mann. I ljósi þessara talna, sem
og þeirra staðreynda, sem hý-
afstaðnar sveitarstjórnarkosn-
ingar sýna, geta menn síðan gert
því skóna, hverjar horfur séu hjá
framboðsaðilum í Vestfjarða-
kjördæmi í Alþingiskosningum,
sem fram eiga að fara á næsta
ári — en fyrr gætu orðið að
ýmsra dómi.
Sterkt framboð
Matthías Bjarnason, fyrrv. sjáv-
arútvegs- og heilbrigðisráðherra,
hefur lengi verið oddviti vest-
firskra sjálfstæðismanna og einn
af sterkustu málsvörum sjálf-
stæðisstefnunnar á Alþingi.
Hann býr að mikilli pólitískri
reynslu og yfirsýn og þykir
málsnjall með ágætum. í ráð-
herrastörfum þótti Matthías
rannsaka og gaumgæfa öll mál
vel, hafa náin samráð við hags-
muna- og fagaðila, en taka
sjálfstæðar ákvarðanir að vel at-
huguðu máli og hafa pólitískan
kjark og þrek til að fylgja þeim
eftir. Hann kunni öðrum stjórn-
málamönnum betur að nýta sér-
þekkingu embættismanna í já-
kvæðu samstarfi — en vera jafn-
framt húsbóndi þeirra. Að sjálf-
sögðu er vestfirskum sjálfstæðis-
mönnum mikill styrkur í slíkum
oddvita, en Matthías er jafn-
framt einn af burðarásum þing-
flokksins og stendur sig þá best
er mest á reynir.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
hefur einnig reynst starfssamur
og ötull þingmaður. Hann hefur
ekki síst haslað sér völl í orku- og
húsnæðismálum og reynst mik-
ilvirkur í þeim málaflokkum. Þá
hefur hann barist öðrum þing-
mönnum fremur fyrir jöfnun
húshitunarkostnaðar, en misrétti
í þeim efnum er mikið.
Varaþingmenn Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum eru nú
Sigurlaug Bjarnadóttir, mennta-
skólakennari, og Einar Kr. Guð-
finnsson, stjórnmálafræðingur.
Flokkurinn á og mörgu hæfu for-
ystufólki að fagna vestra. Það
ættu því að vera öll efni til sterks
framboðs þar.
— sf.
Matthías Bjarnason, þáv. sjávarútvegsráóherra, undirritar reglugerð
um útfærslu fiskveiðilandhelginnar í 200 mílur. Jón Arnalds, ráðuneyt-
isstjóri, stendur að baki Matthíasar.