Morgunblaðið - 26.06.1982, Blaðsíða 13
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982
13
Þingmál Sjálf-
stæðisflokksins
Eftir Birgi Isl.
Gunnarsson alþm.
í grein sem birtist hér í Mbl.
fyrir skömmu, gerði ég í stuttu
máli grein fyrir ítarlegum tillög-
um sjálfstæðismanna á Alþingi
á sviði orkumála, iðnaðar- og
stóriðjumála, landbúnaðarmála
og vegamála. í þessari grein
verður áfram haldið og fjallað
um fleiri málaflokka.
Félagsmál
Stærsta málið á sviði félags-
mála er frv. um Lífeyrissjóð Is-
lands, en þar er lagt til að gerð
sé grundvallarbreyting á lífeyr-
istryggingarkerfi þjóðarinnar
með það að markmiði, að allir
hafi sama rétt til fullnægjandi
ellilífeyristrygginga á grundvelli
ævitekna, jafnframt því sem
tryggt sé að allir njóti ákveðins
lágmarksellilífeyris, er sé í sam-
ræmi við framfærslukostnað og
verðlagsþróun á hverjum tíma.
Af öðrum tillögum á þessu
sviði má nefna tillögu um að
1982 skyldi verða ár aldraðra og
var það samþykkt. Flutt var til-
laga um slysa-, líf- og örorku-
tryggingar þeirra, sem vinna að
almannavörnum og björgunar-
störfum. Þá var flutt tillaga um
breytingu á lögum um lögskrán-
ingu sjómanna, til að bæta
tryggingar sjómanna.
Menningarmál
Á þessu sviði voru flutt fjögur
athyglisverð mál. Lagt var fram
frv. um listskreytingu opinberra
bygginga, þar sem kveðið var á
um skyldu til að verja 1—2%
byggingarkostnaðar í þessu
skyni. Menntamálaráðherra
flutti frv. um svipað efni og var
það samþykkt með nokkrum
breytingum.
Flutt var tillaga um eflingu
listiðnaðar og iðnhönnunar. Þá
var flutt frv. um Tónskáldasjóð
íslands og gert ráð fyrir að veitt
verði framlög úr þeim sjóði til
tónsmíða, til útgáfu íslenskrar
tónlistar á hljómplötum, snæld-
um og nótum og til kynningar á
íslenskri tónlist. Þá var flutt frv.
um útvarpsrekstur, en skv. því
er gert ráð fyrir að einkaleyfi
ríkisins á þessu sviði verði af-
numið.
Hér má og nefna frv. um
breytingu á grunnskólalögum tl
að vernda friðhelgi einkalífs,
sporna gegn pólitískum áróðri í
skólum og til að styrkja sam-
band foreldra og barna annars
vegar og samstarf heimila og
skóla með því að virða rétt for-
eldra til að tryggja að fræðslan
gangi ekki gegn trúar- og lífs-
skoðunum þeirra. Þá var og flutt
frv. um að tekin væru inn í gild-
andi grunnskólalög ákvæði, sem
tryggðu fræðslu um áhrif og
neyslu áfengis og annarra
ávana- og fíkniefna.
Skattamál
Á sviði skattamála voru flutt
allmörg frumvörp. Allir þing-
menn flokksins utan ráðherr-
arnir stóðu að frv. til breytinga á
lögum um tekju- og eignarskatt.
Þar var lagt til að tekjuskattur
yrði ekki hærri en 40% af tekj-
um (nú 50%); að tekjuskattur af
almennum launatekjum yrði
felldur niður; að eignarskattar
lækkuðu stórlega og yrðu 0,8%
af eignarskattsstofni (nú 1,2%);
að fólk yrði hvatt til beinnar
þátttöku í atvinnulífinu með því
að arður af hlutabréfum yrði
skattlagður á hliðstæðan hátt og
annar sparnaður; að atvinnulíf
yrði örvað með því að létta af því
sköttum.
Þá fluttu einstakir þingmenn
frv. um að draga mætti frá tekj-
um vaxtagjöld af námslánum; að
viðhald fasteigna, fasteignagjöld
og iðgjald af húseigendatrygg-
ingu á íbúðarhúsnæði til eigin
nota yrði frádráttarbært; að
fasteignir, sem notaðar eru til
íbúðar, skuli sem skattstofn
eignarskatts ekki hækka meira
milli ára en nemur hækkun
skattavísitölu; að frestun skatt-
lagningar söluhagnaðar verði
rýmkuð vegna þeirra, sem hætta
atvinnurekstri.
Þá var flutt frv. til laga um að
atvinnurekendum yrði greidd
þóknun fyrir lögboðna inn-
heimtu gjalda í þágu hins opin-
bera. Ennfremur frv. um að
sveitarstjórnum sé skylt að fella
niður fasteignaskatt af efnalitl-
um örorku- og ellilífeyrisþegum
og að fasteignaskattar af sumar-
bústöðum verði lækkaðir. Enn
má nefna frv. um breytingu á
lögum um erfðafjárskatt. Til-
gangur frv. er að leiðrétta þá
skekkju sem verðbólgan hefur
valdið við þessa skattlagningu
og að undanþiggja eftirlifandi
maka erfðafjárskatti.
Birgir ísl. Gunnarsson
„St*rsta málið á sviði
félagsmála er frv. um
Lífeyrissjóð íslands, en
þar er lagt til að gerð
sé grundvallarbreyting
á lífeyristryggingar-
kerfi þjóðarinnar með
það að markmiði, að
allir hafi sama rétt til
fullnægjandi ellilífeyr-
istrygginga á grund-
velli ævitekna ...“
Banka- og tollamál
Þingmenn flokksins lögðu
fram frv. að miklum lagabálkí
um viðskiptabanka. Þar er gert
ráð fyrir sameiginlegri löggjöf
um alla viðskiptabanka, þ.e.
bæði ríkisbankana og hlutafé-
lagsbankana. Ýmis nýmæli eru í
þessu ítarlega frv. Þá var flutt
sérstakt frv. um að lækka skatta
á gjaldeyrisviðskipti.
Flutt var frv. um breytingu á
lögum um tollskrá til að fella
endanlega niður greiðslur að-
flutningsgjalda af aðföngum
iðnfyrirtækja, sem stunda fram-
leiðslu til útflutnings eða eiga í
samkeppni við vöru eða þjón-
ustu, sem flutt er til landsins. Þá
voru flutt þrjú frv. um tollamál,
sem miðuðu að greiðslufresti á
aðflutningsgjöldum.
Ýmis mál
Auk ofangreindra mála má
nefna frv. um að fella niður
þungaskatt af strætisvögnum í
þéttbýli, frv. um að auka útboð á
opinberum framkvæmdum og
frv. um breytingu á kosningalög-
um, sem m.a. fól í sér að hér eftir
verður kosið á laugardögum í
stað sunnudaga áður. Þá var
flutt frv. til breytinga á stjórn-
arskránni, sem koma eiga í veg
fyrir álagningu afturvirkra
skatta.
Flutt var tillaga um eflingu
almannavarna, um ráðunaut í
öryggis- og varnarmálum og um
könnun á lækningamætti.
jarðsjávar við Svartsengi.
Hér hefur í grófum dráttum
verið gerð grein fyrir flestum
þeim málum, sem þingmenn
Sjálfstæðisflokksins höfðu
frumkvæði að. Auk þess báru
þingmenn flokksins fram fjölda
fyrirspurna og stóðu að frv., sem
þingmenn annarra flokka voru
fyrstu flutningsmenn að. Að
baki þessara þingmála liggur
gífurlegt starf þingflokksins og
annarra flokksmanna, sem
kvaddir hafa verið til aðstoðar.
Þetta mikla starf ber vott um
virka og lifandi stjórnarand-
stöðu.
i
i
i
BREIÐABLIK-KR
á Kópavogsvelli í dag kl. 14.00
BARNAGÆSLA
Barnagæsla verður á sérstaklega afgirtu svæði
og munu fóstrur annast gæsluna.
Ekkert hik
á Breiðablik!!
STRÆTISVAGNAFERÐ
Strætisvagnaferð erfrá Hlemmi Kl. 13.30 beint á leikinn og frá skiptistöð
á Kópavogshálsi strax eftir leik.
BOÐSGESTIR
4. flokki Breiðabliks ásamt þjálfara og umsjónarmanni er sérstaklega
boðið á þennan leik. Mæting er við suðurhlið vallar kl. 13.45
Komið og sjáið baráttuleik á
fagurgrænum grasvellinum í Kópavogi
SKRUÐGANGA
Skólahljómsveitin Ranheim skolemusikkorps frá Þrándheimi í Noregi
mun leika fyrir skrúðgöngu frá Kópavogsskóla kl. 13.15 og marsera á
Kópavogsvöll. Einnig mun skólahljómsveitin leika á Kópavogsvelli fyrir
leik og í hálfleik.
Verslunin Pelsinn
Kirkjutorgi 4 - Reykjavík
Þar sem
fagmennirnir
versla
erpéróhœtt
TOYOTA
P SAMUELSSON 8, CO HF
m mm.**
I