Morgunblaðið - 26.06.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
Neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar var í dag algjörlega iamað og bitnaði
það mjög á þeim 1,75 milljónum manna sem daglega ferðast þannig um
borgina. I*etta fólk var ýmist gegnblautt í rigningu eða sat fast í umferðaröng-
þveitinu sem myndaðist eftir að um 14.000 starfsmenn járnbrauta höfðu hafið
verkfall, en haft er eftir einum bifreiðastjóra að öngþveitið hafi verið sem
„helvíti á hjólum".
Ein og hálf milljón
manna hóta verk-
föllum í Bretlandi
l ondon, 25. júní. Al*.
BKESK stjórnvöld standa nú frammi
fyrir verkföllum hjá starfsmönnum
sjúkrahúsa, járnbrautastarfsmönnum
og kolanámumönnum.
Eftir að athyglin fór að færast frá
átökum við Kalklandseyjar að innan-
lardsmálum tóku að heyrast háværar
óánægjuraddir með kaup og kjör og
nú hafa verkalýðsfélög, sem hafa inn-
an sinna vébanda um 1,5 milljón
verkamanna, hótað verkföllum um allt
landið hjá starfsmönnum bresku
járnbrautanna, bresku heilbrigðis-
þjónustunni og í kolaiðnaði.
Ferðir neðanjarðarlesta Lund-
únaborgar hafa nú alla vikuna verið
í ólestri vegna verkfalla hjá starfs-
mönnum þar, sem mótmæla að-
haldsstefnu í fjármálum, sem hefur
í för með sér færri stöður og minna
kaup. Þeir hafa hótað því að allar
neðanjarðarsamgöngur um borgina
stöðvist frá og með næsta mánudegi
verði ekkert að gert.
Arthur Seargill, hinn nýkjörni
forseti Samtaka kolanámumanna,
sem telur um 250.000 félagsmenn,
gekk út af sínum fyrsta samninga-
fundi í aðalstöðvum hins breska
kolanámuráðs eftir einungis 3!A
mínútu. Hann segir að námumenn
muni fara í verkfall ef ráðið birti
ekki lista um 30 námur sem til
standi að loka, en ráðið neitar alfar-
ið að nokkur svona listi sé til.
Norman Siddal, forseti hins
breska kolanámuráðs, segir að lok-
anir einstakra náma vegna tap-
reksturs séu mál ráðamanna á
hverjum stað og engin nauðsyn sé
að hafa um það opinberar umræður.
Scargill sem var fagnað af u.þ.b. 200
manns sem lögreglan hélt í skefjum
er hann gekk út af fundinum sagði:
„Tímabili baktajaldasamninga er nú
lokið. Við tekur nýtt tímabil opinna
samningaviðræðna."
Margrét Thatcher sagði í gær í
ræðu í neðri málstofu breska þings-
ins, að útganga Scargills af samn-
ingafundi í gær „væri lítt uppbyggi-
leg“ og varaði sterklega við verkföll-
um sem boðuð eru á mánudag.
Bretland:
V er kamannaflokkur
sigrar í Coatbridge
( oatbridge, Skotlandi, 25. júní. AP.
Verkamannaflokkurinn
breski hélt sæti sínu í auka-
kosningum, sem fram fóru í
gær, fimmtudag, í Coatbridge
skammt fyrir vestan Glasgow
en meirihluti þess minnkaði
þó um þriðjung. Kjördæmið
hefur verið öruggt vígi
Verkamannaflokksins um
áratugaskeið en þar er at-
vinnuleysi með því mesta,
sem gerist á Bretlandseyjum.
Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins, Tom Clarke, fékk
19.208 atkvæði en frambjóðandi
íhaldsmanna 9.118. Næstir komu
skoskir þjóðernissinnar með
hálft fjórða þúsund atkvæða en
frambjóðandi frjálslyndra og
nýja jafnaðarmannaflokksins
rak lestina með tæp þrjú þús-
und. Meirihluti Verkamanna-
flokksins minnkaði um þriðjung
í kosningunum en þrátt fyrir það
sagði Tom Clarke, eftir að úrslit-
in lágu fyrir, að nú hefði þróun-
inni verið snúið við og að aftur
væri farið að blása byrlega fyrir
flokknum.
I Bretlandi nemur atvinnu-
leysið nú 12,8% en í Coatbridge,
60.000 manna bæ, er það 20%.
Þrátt fyrir það virtust margir
hafa meiri áhuga á frásögnum af
Falklandseyjastríði, heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu og jóðsótt Díönu prins-
essu, enda kallaði breska frétta-
stofan kosningabaráttuna þá
leiðinlegustu, sem um getur á
seinni tímum. Að loknum kjör-
degi kom í ljós, að 56% atkvæð-
isbærra manna höfðu neytt
kosningaréttarins.
Grasmaðkar
stöðvuðu lest
Fabriano, Ítalíu, 25. júní. AP.
GRASMAÐKAR milljónum
saman sem voru að fara^yfir
járnbrautarteina á Mið-Ital-
íu í gær stöðvuðu flutn-
ingalest, segja heimildir í
bænum Fabriano.
Lestarstjórinn sá ekki þessa
mikiu fylkingu grasmaðkanna
fyrr en lestin ók á hana og
stöðvaðist, en talið er að hún
hafi verið um þriggja kílómetra
löng og 10 metra breið.
„Mér fannst eins og við hefð-
um keyrt yfir eitthvað slím-
kennt og skyndilega byrjuðu
hjólin að spóla," er haft eftir
lestarstjóranum. Lestin komst
ekki áfram fyrr en eftir tveggja
tíma bið, og þá með hjálp ann-
arrar lestar sem ýtti aftan á
hana.
Yfirvöld segja svona fylk-
ingar mikinn skaðvald, þar sem
þær eyðileggja uppskerur og
skóga, en ástæðan fyrir þeim
séu miklir og langvarandi
þurrkar.
\y/
ERLENT
Ný-nazisti drepur þrjá
Nurnberg, Vestur-Pýskalandi, 25. júní. AP.
VESTIJR-ÞÝSKUR ný-nazisti skaut
og drap tvo Bandaríkjamenn og einn
Egypta og særði þrjá útlendinga í
mióborg Niirnberg í nótt, áöur en
hann skaut sig sjálfan til bana með
tveimur kúlum í brjóstið.
Lögreglan segir manninn hafa
heitið Helmut Oxner og sé þetta
ekki í fyrsta sinn sem hann hafi
komið nálægt aðgerðum ný-naz-
ista.
Ekki hefur lögreglunni enn tek-
ist að bera kennsl á lík hinna
látnu, en annar Bandaríkjamaður-
inn sé án efa hermaður og hinir
tveir séu án efa óbreyttir borgarar
í heimalöndum sínum.
Oxner mun hafa komið inn á
diskótek í miðborginni nálægt
miðnætti og hafið skothríð þegar
dyravörðurinn bað hann um að af-
henda aðgöngumiða. Hann mun
síðan hafa flúið út úr diskótekinu
út á nærliggjandi götu og haldið
þar áfram skothríðinni. Þegar
hann sá lögregluna nálgast sneri
hann sér við og stytti sér aldur.
„PLO á sér ekki
viðreisnar von“
- segir Walid Jumblatt, leiðtogi líb-
anskra vinstrimanna, og spáir gífur-
legum hræringum í Arabaheiminum
Beirul, 25. júni AP.
WALID Jumblatt, leiðtogi líbanskra
vinstrimanna, sagði í gær, fimmtu-
dag, að Frelsisfylking Palestinu-
manna, PLO, væri sundruð samtök,
sem ekki gætu ráðið það við sig
hvort þau ættu að gefast upp eða
berjast. „PLO er að reyna að vinna
tíma,“ sagði Jumblatt, 33ja ára gam-
all leiðtogi Þjóðarhreyfingar líb-
anskra vinstrimanna, „en sjálfur tel
ég, að samtökin séu búin að vera.
Þau eiga sér ekki viðreisnar von.“
Jumblatt, sem staðið hefur við
hlið Palestínumanna síðan í borg-
arastyrjöldinni í Líbanon
1975— 76, sagði á blaðamanna-
fundi, sem hann efndi til á heimili
sínu í Vestur-Beirút, að PLO
treysti á að almenningsálitið í
heiminum og Arabaríkin kæmu
Palestínumönnum til hjálpar á
síðustu stundu. „Þessu er þó lokið.
Það er ekki í nein hús að venda,"
sagði Jumblatt og varð að brýna
raustina til að yfirgnæfa sprengju
gnýinn, en í kílómetra fjarlægð
rigndi niður sprengjunum frá
orrustuflugvélum Israela.
„PLO vill ekki horfast í augu
við raunveruleikann," sagði
Jumblatt ennfremur, „og það get-
ur leitt til blóðugra átaka milli
þeirra sjálfra innbyrðis áður en
Israelar veita þeim náðarstung-
una. Þeir verða að gera upp við sig
hvort þeir vilja allsherjarsjálfs-
morð eða endanlega uppgjöf."
Hann sagði, að herskárri armur-
inn, undir forystu George Ha-
bash, vildi berjast til síðasta
manns en Arafat vildi leita póli-
tískrar lausnar og hefði nú á
prjónunum að hitta að máli Bash-
ir Gemayel, Ieiðtoga kristinna
hægrimanna, fyrir milligöngu
Saudi-Araba.
Jumblatt, sem einnig er leiðtogi
200.000 múhameðskra Drúsa i
Líbanon, sagði, að líklegt væri,
hver sem framvindan yrði í Lib-
anon, að PLO leystist upp 1 and-
stæða smáhópa og að enginn
þeirra gæti talað máli palestínsku
Walid Jumblatt, leiðtogi líbanskra
vinstrimanna og bandamaður PLO.
Myndin var tekin í gær, fóstudag, á
blaöamannafundi i Beirut en þar
lýsti hann þvi yfir, að hann hefði
sagt sig úr neyðarnefndinni, sem
Elias Sarkis, forseti Libanons, skip-
aði til að finna lausn á vandamálum
þjóðarinnar. AP
ísraelskir hermenn gæta Palestínumanna, sem þeir tóku til fanga þegar
borgin Tyros féll þeim í hendur 10. þ.m.
þjóðarinnar. „Mestu mistök PLO,“
sagði hann, „voru að þau ofmátu
styrk sinn í Líbanon og reyndu að
kljást við ísraela með hefðbundn-
um hernaðaraðgerðum. Nú verða
þeir að leita nýrra leiða. Ég spái
því að þeir muni leggja fyrir sig
hryðjuverk," sagði Jumblatt og
gaf í skyn að von væri á nýrri öldu
flugrána og morða eins og á síð-
asta áratug eftir að Palestínu-
menn voru reknir frá Jórdaníu.
Jumblatt, sem borið hefur orð á
milli Habibs, sérlegs sendimanns
Bandaríkjaforseta, og Arafats,
leiðtoga PLO, kvaðst hafa sagt
PLO-mönnum, að nú yrðu þeir að
horfast í augu við blákaldan veru-
leikann en það hefðu þeir ekki
viljað. „Þeir halda enn að þessi
skammarlegu Arabaríki komi
þeim til hjálpar. Af því verður þó
ekki.“ Hann sagði, að hvernig sem
allt færi yrði PLO að skipta um
forystumenn og spáði því, að í
kjölfar algers ósigurs PLO myndu
ríkisstjórnir um allan Araba-
heiminn falla hver um aðra þvera
— „einkum þær róttæku".
„Enginn konungur, enginn
prins, forseti eða einræðisherra
mun sleppa óskaddaður frá því,
sem hér er að gerast," sagði
Jumblatt og líkti ástandinu nú við
það, sem var eftir stofnun ísra-
elsríkis árið 1948. Hann spáði því
að ísraelar myndu halda áfram að
•eggja Vestur-Beirút í rúst, hús
fyrir hús og götu fyrir götu, á
sama tíma og kristnir hægrimenn
réðu yfir flutningi matvæla og
eldsneytis, vatns og rafmagns.
„Þetta er stríð gegn fátækasta
fólkinu í Líbanon og það, sem
fyrir ísraelum vakir, er að skapa
andrúmsioft örvæntingar og upp-
gjafar," sagði Jumblatt.