Morgunblaðið - 26.06.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.06.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ1982 19 PRINSINN og prinsessan af Wales med frumburðinn í reifum. Það bar til tíðinda á fimmtudag, að Karl prins tafði vígsluathöfn nýrrar efnarannsókna- stofu um heilar 20 mínútur en annars er breska konungsfjölskyidan orðlögð fyrir stundvísi. Þegar hann loksins kom sagðist hann hafa þurft að „sinna dálitlu, og ef satt skal segja, þá hafði ég mjög gaman af því“. Bresku blöðin skildu þetta þannig, að hann væri nú þegar farinn að hjálpa konu sinni með litla strákinn og að líklegast væri, að hann hefði verið að skipta um bleyju á honum. Talsmaður Buckingham-hallar varðist hins vegar allra frétta og sagði, að blöðin gætu bara verið með sínar eigin ágiskanir. Krabbamein er ekki erfiðast viðureignar Wa.shington, 25. júní. AP. ÞRÁTT fyrir allt er krabbamein sá sjúkdómur sem best gengur að lækna af þeim skaðvænu sjúkdóm- um sem herja á mannkynið, sagði forstöðumaður bandarísku krabba- mcinsrannsóknarstöðvarinnar í gær. Krabbamein tilkomið vegna sígarettureykinga er eina form sjúk- dómsins þar sem um aukningu er að ræða og það er einnig það sem auð- veldast er að komast hjá, sagði dr. Devita á ráðstefnu um þessi mál sem stendur nú yfir. Hann sagði einnig að 45% þeirra sem væru úrskurðaðir með krabbamein á háu stigi og fengju meðferð við því í dag lifðu, a.m.k. fimm ár í viðbót og hlytu að öllum líkindum fullan bata. Af þeim 800.000 manns sem áætlað er að hljóti krabbamein á háu stigi i ár er talið að um 320.000 verði al- gjörlega lausir við sjúkdóminn að fimm árum liðnum. Forstöðumaður stofnunarinnar er algjörlega á öndverðum meiði við þá, sem telja að krabbamein fari ört vaxandi og litlum árangri hafi verið náð við upprætingu þess. Hann telur að innan fárra ára verði hægt að ráða við að lækna algjörlega 50% þeirra sem fá sjúkdóminn á háu stigi. Reykingar valda um 30% allra krabbameinstilfella, ítrekaði hann, en þær eru einnig sá þáttur sem algjörlega er hægt að komast hjá. Alexander M. Haig: Umdeildur og greindi á við samráðherrana ALEXANDER M. Haig, sern nú hefur sagt af sér embætti sem utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hefur verið maður mjög umdeildur allan þann tíma, sem hann hefur gegnt ráðherraembætti í ríkisstjórn Ronalds Reagans. Hann hef- ur átt í útistöðum við sam- starfsmenn sína í stjórninni, t.d. Richard Allen, fyrrv. ráðgjafa í þjóðaröryggismál- um, ('aspar Weinberger, varn- armálaráðherra, og nú síðast við Jeanne Kirkpatrick, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, og þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann býðst til að segja af sér. Þrátt fyrir það kemur afsögn hans nú mjög á óvart. Haig hefur verið í opinberri þjónustu í 40 ár og lengst af sem hermaður. Hann var hershöfð- ingi í Víetnam og einn helsti ráðgjafi Henry Kissingers, fyrrv. utanríkisráðherra, áður en hann gerðist starfsmanna- stjóri Nixons á síðustu valdadög- um hans í Hvíta húsinu. Að því loknu var hann skipaður yfir- hershöfðingi alls herafla Atl- antshafsbandalagsins og þegar hann kvaddi herinn var hann George Schultz, eftirmaður Haigs í ríkisstjórn Reagans. fjögurra stjörnu hershöfðingi. Ronald Reagan útnefndi Haig utanríkisráðherra sinn 16. des- ember 1980, mánuði áður en hann tók sjálfur við embætti. 21. janúar staðfesti öldungadeildin skipun hans eftir viðamiklar yf- irheyrslur, j)ar sem Haig var spurður í þaula um samband hans við Nixon meðan á Wat- ergate-hneykslinu stóð. Eins og fyrr segir hefur mikill styrr staðið um Haig í embætti, enda hefur hann greint á við sam- ráðherra sína um stefnuna í ýmsum málum, einkum utanrík- Alexander M. Haig, sem nú hefur sagt af sér embætti utanríkisráð- hcrra. ismálum ogJ)á ekki síst um af- stöðuna til Israela og hernaðar þeirra í Líbanon nú. Alexander M. Haig er fyrsti ráðherrann í ríkisstjórn Ronalds Reagans, sem segir af sér embætti. Á blaðamannafundinum þar sem Reagan skýrði frá afsögn Haigs greindi hann einnig frá því, að eftirmaður hans hefði verið ákveðinn George Schultz og hefði það verið gert í samráði við Haig. Schultz er 61 árs að aldri og var á sínum tíma fjár- lagastjóri og vinnumálaráðherra í ríkisstjórn Nixons. Veður víða um heim Akureyri 12 skýjaö Amsterdam 18 rigning Aþena 36 heióskírt Barcelona 25 skýjaö Berlín 20 heiöskírt Brussel 19 heiöskírt Chicago 28 rigning Dyflinni 16 rigning Frankfurt 23 skýjaó Genf 25 heiðskírt Helsinki 17 skýjaó Hong Kong 28 heióskírt Jerúsalem 32 heiöskirt Jóhannesarborg 19 heióskírt Kaíró 38 heiöskírt Kaupmannahöfn 15 heiðskírt Las Palmas 24 léttskýjaö Lissabon 23 skýjaö London 20 rigning Los Angeles 22 skýjaó Madrid 30 skýjaö Malaga 30 heiöskírt Mallorca 27 léttskýjað Mexíkóborg 27 heiöskírt Miami 29 rigning Moskva 21 skýjaö Nýja Delhi 38 heiöskírt New York 25 heiðskírt Osló 20 heiðskirt París 22 skýjaó Perth 15 heiðskirt Rio de Janeiro 29 skýjaö Reykjavtk 12 skýjaó Rómaborg 33 heiöskírt San Francisco 19 skýjaó Stokkhólmur 18 heiöskírt Sydney 14 skýjaö Tel Aviv 30 heiöskirt Tókýó 24 skýjaö Vancouver 26 skýjaö Vínarborg 24 skýjaö Þórshöjj) ft hálfakýjflA moiobecane fyrir alla fyrir börnin Frönsku reiöhjólin með gæðastimplinum. Mikið úrval af þessum vinsælu og frábæru reiðhjólum fyrirliggjandi. 10 ára ábyrgð á stelli. Eins árs ábyrgö á öllu öðru og ókeypis endurstilling innan 3ja mánaða. Bestu kaupin í bænum. Barnareiðhjólin vinsælu sem öryggið er í fyrirrúmi. Fót- bremsur + handbremsur og alveg lokuð keðjuhlíf. V-þýzk gæðavara. Eigum til margar stærðir af þessum vinsælu barnahjólum með og án hjálparhjóla. Kynntu þér verðið. o o (□©EaMIlíE þekkja allir, enda hafa þessi ítölsku sérsmíðuöu keppnishjól margsannað yfirburði sína erlendis og hér heima. Olympíumeistarar í Moskvu ’80 og íslandsmeistarar í öllum flokkum ’81. Fullkomín viðgerðar- og varahlutaþjónusta. Mílan Verzlun — Verkstæði Laugavegi 168 (Brautarholtsmegin). Sími 13830.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.