Morgunblaðið - 26.06.1982, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
Talbot Samba
reynsluekið
— Lipur
— Tiltölulega kraftmikill
— Gott rými frammí
Bílar
Sighvatur Blöndahl
TALBOT Samba heitir nýjasti bíll-
inn frá Talbot-verksmiöjunum og
er þar um að ræða eyðslugrannan
smábíl, sem þegar hefur hlotið lof
gagnrýnenda í Evrópu fyrir lipra
eiginleika. A dögunum reynsluók
ég Samba GL-útfærslunni og get
ég ekki annað en tekið undir með
evrópskum gagnrýnendum, gefið
bílnum ágætiseinkunn fyrir lipurð
í umferðinni. Hér er auðvitað ekki
á ferðinni neinn lúxusbíll, enda er
ekki til þess stofnað af framleið-
anda. Lipur smábíll, sem fyrst og
fremst er ætlaður fyrir bæjarum-
ferðina, þótt auðvitað sé því ekkert
til fyrirstöðu, að ferðast á honum
um landið. Samban byggir að hluta
til á 10 ára gamalli hugmynd, þ.e.
Peugeot 104, en hefur verið endur-
bættur verulega, en í þvi sambandi
má skjóta inn, að Peugeot-verk-
smiðjurnar frönsku eiga Taibot-
verksmiðjurnar.
A þremur dögum ók ég bílnum
liðlega 400 km við mismunandi
aðstæður, innanbæjar, á steypta
veginum austur fyrir fjall og síð-
an á mölinni, og í þessum rúnti
eyddi hann rétt liðlega 6 lítrum
benzíns á hverja 100 km, sem
verður að teljast mjög gott, sér-
staklega þegar það er haft í
huga, að liðlega helmingur vega-
lengdarinnar er innanbæjar.
Aksturseiginleikum Samba-
bílsins verður bezt lýst með orð-
inu „lipur“, þegar um er að ræða
akstur innanbæjar og á steyp-
unni, en þegar komið er út á
mölina koma aksturseiginleikar
smábílsins að sjálfsögðu í ljós.
Samban er framdrifin eins og
flestir keppinautar hans i þess-
um stærðarflokki og það kom
mér mjög á óvart hversu léttur
hann er í stýri, því oft hefur það
viljað brenna við í framdrifnum
bílum, að þeir hafa verið fremur
þunglamalegir í stýri. Stýris-
hjólið í Samba er mjög heppilega
stórt og gott er að halda um það,
en það er gert úr fremur mjúku
gerviefni. Bíllinn svarar mjög
vel og eins og áður sagði er hann
léttur í stýri.
Samba er þriggja dyra, þar af
er ein skuthurð. Framhurðirnar
eru ágætlega stórar, þannig að
engin vandkvæði eru á því fyrir
stóra menn að stíga um borð.
Hins vegar er þröngt að komast
aftur í bílinn af eðlilegum
ástæðum, þar sem ekki er um
stærri bíl að ræða. Það vekur
reyndar athygli með Samba
hversu mikið pláss er frammi í
honum, en að sama skapi lítið
aftur í. Að mínu mati er þetta
frekar til hagræðis en hitt, því
litlir bílar eins og Samba verða
aldrei almennilegir 4—5 manna
bílar, eins og framleiðendum
hefur verið frekar tamt að aug-
lýsa. Plássið fyrir bílstjóra og
farþega frammí er sem sagt
mjög gott í Samba og framsætin
eru vönduð með tauáklæði. Það
sem kannski mætti finna að
þeim er að sessan er frekar mjó.
Bakið er hins vegar þægilegt
fyrir minn smekk, en auðvitað
fer það eftir smekk hvers og eins
hvernig honum líkar að sitja í
bílsætum. Aftursætið er ósköp
venjulegt, hvorki gott né vont, en
eins og áður sagði er plássið
fyrir farþega lítið. Það má því
segja um Samba, að hann sé
ágætur fyrir minni fjölskyldur,
t.d. hjón með 2—3 börn.
Samban er mjög björt og at-
hygli vekur hversu vel sést út úr
honum, enda eru engir stórir
póstar, sem skyggja á, og glugg-
ar eru stórir miðað við stærð
bílsins og er það mikill kostur,
því það vill brenna við í mörgum
smábílum, að stórir menn sjá
hreinlega ekki nægilega vel út.
Mælaborðið í Samba er ein-
falt, en stílhreint. Eins og áður
sagði er stýrishjólið af góðri
stærð og mjög gott er að halda
um það. Stefnuljósarofi og
þurrkurofi mættu vera heldur
veigameiri, en þeir eru innan
seilingar við stýrishjólið. Rofar
fyrir aðalljós, upphitun í aftur-
rúðu og neyðarljós eru í sjálfu
borðinu og er þeim ýtt inn, en
þeir eru ágætlega staðsettir.
Sömu sögu er reyndar að segja
af innsoginu. Það er vel staðsett.
Miðstöðin í bílnum er þokkaleg,
tekur fljótt af framrúðu, en upp-
hitun bílsins sjálfs er í meðal-
lagi. Stjórntæki miðstöðvarinn-
ar eru af allra einföldustu gerð
og mætti verða bragarbót þar á,
auk þess sem maður þarf að
teygja sig óþarflega langt út á
mælaborðið til að stilla miðstöð-
ina.
Pedölum bílsins er vel fyrir-
komið, gott bil milli þeirra,
þannig að engin hætta er á því
að stíga á tvo í einu, eins og vill
verða í mörgum smábílum. Um
skiptinguna er það að segja, að
stönginni er vel fyrir komið og
er mjög auðvelt að skipta bíln-
um. I gegnum tíðina hefur það
viljað brenna við í frönskum bíl-
Talbot Samba, stílhreinn smábíll.
Rými aftur í er af skornum skammti
en hins vegar mikið frammí.
Talbot Samba
Gerð: Talbot Samba GL
Framleiðandi: Talbot — Peugeot
Framleiðsluland: Frakkland
Umboðsmaður: Vökull hf.
Vélarstærð: 4 strokka, 1.124 rúmsentimetrar
Hestöfl: 50 DIN
Borun/slaglengd: 72/69 mm
Skipting: 4 gíra
Lengd: 3.506 mm
Breidd: 1.528 mm
Hæð: 1.362 mm
Hurðir: 3
Þyngd: 740 kg
Hleðsla: 310 kg
Eyðsla: 6,2 lítrar/100 km, mæling Mbl.
Tími í 100 km: 18,2 sekúnduur
Hámarkshraði: 143km/klukkustund
Verð: 117.000 krónur
Afgreiðslufrestur: Til á lager
um, að skiptingin hefur verið
frekar losaraleg, en svo er ekki í
Samba. Nú, fyrst byrjað er að
tala um skiptinguna, þá má geta
þess, að miðað við vélarstærð
vinnur Samba ágætlega í gírun-
um, en persónulega fannst mér
3. gírinn skemmtilegastur til
aksturs innanbæjar. Það er auð-
velt að aka bílnum í 3. gír; án
þess að skipta mikið niður, ef
maður þarf ekki að stoppa á
annað borð. Hann er hins vegar
fljótur að missa afl í 4. gír, þegar
hann fer eitthvað að erfiða, sem
er alls ekki óeðlilegt í smábíl
með ekki stærri vél en raun ber
vitni. Hann vinnur sem sagt vel í
öllum gírum og er því mjög lipur
í innanbæjarakstri.
Bremsur bílsins fannst mér
óþarflega þungar og mætti
gjarnan verða þar bót á. Hand-
bremsan virkaði hins vegar mjög
vel. Um kúplinguna er það að
segja, að hún slítur á ágætum
punkti og er mjög létt í ástigi.
Samba er framleidd með
tveimur vélarstærðum eftir
óskum viðskiptavina, LS- og
GL-útfærslurnar eru með 4 cyl-
indra, 1.124 kúbiksentimetra vél-
um og GLS- og Cabriolet-
útfærslurnar eru með 4 cylindra,
1.360 kúbiksentimetra vélum.
Það verður að segjast, að það er
eins og vélinni hafi verið komið
fyrir í vélarhúsinu með skó-
horni, svo þröngt er um alla
hluti, þannig að menn verða ef-
laust að beita lagni við viðgerðir.
Framleiðandinn segir reyndar,
að lítið rými í vélarhúsi komi
fyrst og fremst til góða í auknu
rými fyrir farþega. Varadekki er
síðan komið haganlega fyrir
ofan á vélinni.
Farangursrými fyrir aftan
aftursæti er af skornum
skammti, eins og gengur og ger-
ist í smábílum. Er það hvorki
stærra né minna en gengur og
gerist.
Þegar á heildina er litið er
SamSa mjög lipur og tiltölulega
kraftmikill smábíll og því mjög
heppilegur til notkunar í bæjar-
. Mælahorðið er einfait en stílhreint -
Rými í vélarhúsi er mjög IHHh
HAIH II-
—sb