Morgunblaðið - 26.06.1982, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1982
Gunnar Páll Jóakimsson sigrar hér Jón Diðriksson naumlega á endasprettin-
um. Búast má við hörkukeppni milli þeirra á afmælismóti IR
„Metið í 800 í
mikilli hættu“
segir Jón Diðriksson, sem keppir á Afmælismóti ÍR í dag
„Ef veður verður sæmilegt og
stemningin á vellinum góð, þá verð-
ur Islandsmetið i stórhættu á afmæl-
ismóti ÍR. Ég veit að Gunnar Páll er
í góðri æfingu, og hann er mikill
keppnismaður. Ef aðstæður eru rétt-
ar getum við báðir slegið metið. Þvi
er bara að vona hið bezta, að veðrið
verði gott og áhorfendur fjölmenni,
þvi stuðningur þeirra er mikilvæg-
ur,“ sagði Jón Diðriksson í spjalli
við Mbl. Jón kom í gær til landsins í
boði ÍR-inga, sem í dag halda frjáls-
íþióttamót í tilefni 75 ára afmælis
félagsins.
Allir beztu frjálsíþróttamenn
landsins verða meðal keppenda á
mótinu. Hápunktur mótsins verð-
ur 800 metra hlaupið. Mótið gæti
þó orðið sögulegt sökum þess að
búast má við að þar kasti þrír Is-
lendingar yfir 60 metra í kringlu-
kasti, en það hefur ekki gerst áð-
ur. Einnig eru verulegar líkur á að
tveir íslendingar stökkvi yfir 5.00
m í stangarstökki, en það hefur
heldur ekki gerst áður. Þá er Guð-
rún Ingólfsdóttir til alls líkleg í
kringlukastinu. Keppni í sprett-
hlaupum karla og kvenna gæti
orðið tvísýn.
Afmælismót ÍR hefst kl. 14 með
keppni í stangarstökki, en hlaupa-
greinar hefjast kl. 14.35. ÍR-ingar
hafa gefið út leikskrá í tilefni
mótsins, þar sem m.a. er að finna
ávarp heiðursformanns ÍR, Al-
berts Guðmundssonar, og viðtal
við Hrein Halldórsson, sem orðið
hefur að leggja keppnisskóna á
hilluna vegna meiðsla.
Jón á 3:41,8
JÓN Dióriksson UMSB var aðeins
rúmu sekúndubroti frá íslandsmet-
inu í 1500 metra hlaupi á frjáls-
íþróttamóti í Leverkusen í V-Þýzka-
landi í fyrrakvöld. A sama móti sigr-
aði Þorvaldur Þórsson ÍR í 200
metra hlaupi á nýju persónulegu
meti, 21,9 sekúndum.
„Við vorum óheppnir með veður
og keppni. Brautirnar voru undir
vatni eftir þrumuveður og ský-
fall,“ sagði Jón Diðriksson í sam-
tali við Mbl. Piltur sem átti að
halda uppi hraða í 1500 metra
hlaupinu brást og varð Jón því að
leiða meirihluta hlaupsins sjálfur,
en á síðustu 50 metrunum seig
Karl Fleschen, einn bezti milli-
vegalengda- og langhlaupari
V-Þýzkalands í seinni tíð, fram úr
Jóni. Fleschen fékk 3:41,6 og þriðji
maður 3:43,2, en alls hófu 17
hlauparar keppni og settu 12
þeirra persónulegt met.
„Ég skokkaði bara í gegn,“ sagði
Þorvaldur, „og get því vonandi enn
betur," sagði Þorvaldur Þórsson.
Næsti maður var á 22,8 sek. „Mér
finnst ég vera frískur og formið er
gott, svo ég vonast til að standa
mig vel á afmælismóti IR á laug-
ardag og á öðrum mótum heima.“
Jón Diðriksson og Þorvaldur
Þórssonverða meðal keppenda á 75
ára afmælismóti ÍR-inga í Laug-
ardalnum
Knattspyrnuleikir helgarinna
EFTIRTALDIR knattspyrnuleikir fara fram í íslandsmótinu í knattspyrnu
um helgina í L, 2., 3. og 4. deild:
Laugardagur 26. júní kl.
1. deild Akranesvöllur — ÍA:ÍBÍ 14.30
1. deild Akureyrarvöllur — KA:ÍBV 14.00
1. deild Kópavogsvöllur — UBK:KR 14.00
2. deild Borgarnesvöllur — SkallagrímurReynir S. 14.00
2. deild Laugardalsvöllur — Þróttur R.:Einherji 14.00
2. deild Neskaupstaðarvöllur — Þróttur N.:Völsungur 14.00
3. deild A Grindavíkurvöllur — Grindavík:Víkingur Ó. 14.00
3. deild A Stykkishólmsvöllur — SnæfelkHaukar 14
3. deild B Eskifjarðarvöllur — Austri:HSÞ 14.00
3. deild B Grenivíkurvöllur — Magni:Sindri 14.00
3. deild B Laugalandsvöllur — Árroðinn:Huginn 14.00
4. deild A Grundarfjarðarvöllur — Grundarfj.:UDN 14.00
4. deild A Hellissandsvöllur — Reynir He.:Aftureld. 14.00
4. deild A Stjörnuvöllur — Stjarnan:Grótta 14.00
4. deild B Bolungarvíkurv. — Bolungarvík:Léttir 14.00
4. deild B Skeiðið — Reynir Hn.:Ármann 14.00
4. deild C Hveragerðisvöllur — Hveragerði:Hekla 14.00
4. deild C Selfossvöllur — Stokkseyri:Eyfellingur 16.00
4. deild C Þorlákshafnarvöllur — Þór Þ.:Drangur 14.00
4. deild F Borgarfjarðarvöllur — Umf. B.:Höttur 16.00
4. deild F Fáskrúðsfjarðarvöllur — Leiknir:Hrafnkell 16.00
Sunnudagur 27. júní
Landsleikur — Drengir — Island:Færeyjar
1. deild Laugardalsvöllur — Valur:Víkingur 20 00
3. deild A Kópavogsvöllur — ÍK:Selfoss 14.00
4. deild F Neskaupstaðarvöllur — Egill rauði:Súlan 15.00
Lokastaðan í riólakeppni
heimsmeistarakeppninnar
• Riölakeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu er nú lokið. Keppni í milliriölunum fjórum
hefst á mánudag. Þrjár þjóöir leika í hverjum riöli. Hér að neöan má sjá lokastöðuna í riölakeppninni.
2. riðill
17 mörk voru skoruö í þessum
riðli, mest fimm í leik, 4—1 sigri
Þjóöverja gegn Chile og 3—2
sigri Alsír gegn Chile. Engum
leik lauk án þess aö mark væri
skoraö. Úrslit leikja uröu þessi:
V-Þýskaland — Alsír 1—2
Chile — Austurríki 0—1
V-Þýskaland — Chile 4—1
Alsír — Austurríki 0—2
Alsír — Chile 3—2
V-Þýskaland — Austurr. 1—0
Og lokastaðan:
V-Þýskaland 3 10 1 6—3 4
Austurríki 3 2 0 1 3—1 4
Alsír 3 2 0 1 5—5 4
Chile 3 0 0 3 3—8 0
5. riðill
Aöeins sjö mörk sáu dags-
ins Ijós í þessum riöli, tvö
markalaus jafntefli. Úrslit
leikja uröu sem hér segir:
Spánn — Hondúras 0—0
Júgóslavía — N-írland 0—0
Spánn — Júgóslavía 2—1
Hondúras — N-írland 1—1
Spánn — N-írland 0—1
Og lokastaöan:
N-írland 3 1 2 0 2—1 4
Spánn 3 111 3—3 3
Júgóslavía 3 111 2—2 3
Hondúras 3 0 2 1 2—3 2
Milliriðlarnir fjórir
Undanúrslit
8. júlí Sevilla
10. júlí Alicante 3.-4. sætið
11. júlí Madrid úrslitaleikurinn
8. júlí Barcelona
D
Austurríki
Frakkland
N-írland
A B
Belgía V-Þýskaland
Sovétríkin England
Pólland Spánn
3. riðill 22 MÖRK voru skoruð í riöl- inum og voru Ungverjarnir iönastir vió markaskorunina. Þeir skoruðu 12 mörk, þar af 10 gegn El Salvador en kom- ust samt ekki áfram. Úrslit leikja uróu þessi: Argentína — Belgía 0—1 Ungverjal. — El Salvad. 10—1 Argentína — Ungverjal. 4—1 Belgía — El Salvador 1—0 Belgía — Ungverjaland 1—1 Argentína — El Salvador 2—0 Lokastaðan varó þessi: Belgía 3 2 1 0 3—1 5 Argentína 3 2 0 1 6—2 4 Ungverjal. 3 111 12—6 3 El Salvador 3 0 0 3 1—13 0
6. riðill 26 MÖRK voru skoruð í leikj- unum 6 í þessum riöli. Úrslit leikjanna uröu þessi: Brasilía — Sovétríkin 2—1 Skotland — Nýja Sjál. 5—2 Brasilía — Skotland 4—1 Sovétríkin — Nýja Sjál. 3—0 Sovétríkin — Skotland 2—2 Brasilía — Nýja Sjáland 4—0 Lokastaðan í 6. riöli varð þessi: Brasilía 3 3 0 0 10—2 6 Rússland 3 111 6—4 3 Skotland 3 111 B—8 3 Nýja Sjál. 3 0 0 0 2—12 0
1. riðill
í ÞESSUM riðli voru aöeins
skoruð 10 mörk í leikjunum
6. Úrslit leikja uröu þessi:
Ítalía — Pólland 0—0
Perú — Kamerún 0—0
Ítalía — Perú 1—1
Pólland — Kamerún 0—0
Pólland — Perú 5—1
Ítalía — Kamerún 1—1
Lokastaóan í riðlinum
varð því þessi:
Pólland 3 1 2 0 5—1 4
ítalía 3 0 3 0 2—2 3
Kamerún 3 0 3 0 1—1 3
Perú 3 0 2 1 2—6 2
4. riðill
16 mörk í þessum rióli og ekk-
ert markalaust jafntefli. England
varð öruggur sigurvegari en úr-
slit uróu þessi í einstökum leikj-
um:
England — Frakkland 3-1
Tékkóslóv. — Kuwalt 1—1
England — Tékkóslóv. 2—0
Frakkland — Kuwait 4—1
Frakkland — Tékkóslóv. 1—1
England — Kuwait 1-0
Og lokastaóan:
England 3 3 0 0 6—1 6
Frakkland 3 111 6—5 3
Tékkóslóvakía 3 0 2 1 2—4 2
Kuwait 3 0 12 2—6 1
Skotarnir fengu frábærar móttökur
SKOSKA knattspyrnulandsliðið
flaug hcim frá Spáni á fimmtudag-
inn, leikmenn hengdu hausa sína og
töluðu fátt í vélinni. En þegar til
Glasgow kom var tekið stórkostlega
á móti liðinu, fjöldi manns mætti á
flugvöllinn og skosku leikmennirnir
voru hylltir sem sigurvegarar. Á
spjöldum mátti lesa setningar eins
og þessa: „Velkomnir heim piltar,
við erum stolt af ykkur.“ Móttök-
urnar nú voru allt aðrar og betri
heldur en þegar liðið sneri heim frá
Argentinu fyrir fjórum árum eftir
frekar sneypulega útreið, enda var
frammistaðan nú öllu betri og raun-
ar stórgóð og liðið varð heim að snúa
einvörðungu vegna þess að liðið var
með lakari markatölu en Sovétríkin.
Innbyrðisleik þeirra lyktaði sem
jafntefli, 2—2, í leik sem Skotarn-
ir voru mun betri lengst af. Þeir
höfðu 1—0 yfir í hálfleik með
marki Joe Jordan, en hann sagði
við komuna til Glasgow: „Þetta
var eitt af mikilvægustu mörkum
sem ég hef skorað og ég hélt að
það myndi skipta sköpum í leikn-
um, því Sovétmennirnir voru
ólíklegir til afreka þangað til
langt fram í seinni hálfleik."
Jock Stein, þjálfari skoska liðs-
ins sagði: „Það er alls ekki leiðin-
legt að vera komnir heim, móttök-
urnar eru frábærar, en við hefðum
þó auðvitað fremur kosið að vera
enn í slagnum. Gordon Strachan,
útherjinn snjalli frá Aberdeen,
sagði að hinn mikli hiti á Spáni
hefði leikið stórt hlutverk og þeg-
ar hliðsjón væri tekin af honum
væri frammistaða liðsins frábær.