Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 5

Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 5 Hreppsnefnd Fellahrepps ásamt fráfarandi sveitarstjóra: Baldur Sigfússon, Sigurður Grétarsson, Þráinn Jónsson, Svala Eggertsdóttir, Gunnar Vignisson og Bragi Hallgrímsson. Fellahreppur: Svala Eggertsdóttir ráðin sveitarstjóri Kgilsstöduin, 5. júlí. Á FYRSTA fundi nýkjörinnar hrcppsnefndar Fellahrepps, 29. júní, var l'ráinn Jónsson kjörinn oddviti og Svala Eggertsdóttir ráöin sveitar- stjóri. Svala, sem jafnframt á sæti í hreppsnefndinni, var áður fulltrúi rektors Menntaskólans á Egilsstöö- um. Fellahreppur er nú næststærsta sveitarfélagið á Héraði með 300 íbúa — og búa %hlutar íbúanna í þéttbýliskjarnanum við Lagar- fljótsbrúna, sem hlotið hefur nafnið Feliabær. Nýlega festi Fellahreppur kaup á 20 hekturum lands undir bygg- ingar í Fellabæ. Um síðustu helgi var flutt inn í fyrstu verkamannabústaðina í Fellabæ, sem byrjað var að byggja fyrir réttum 10 mánuðum. Hér er um þrjú raðhús að ræða og er hver íbúð 112 ferm. aö stærð og bygg- ingarkostnaður er rétt innan við 800 þús. kr. I febrúar síðastliðnum var stað- fest nýtt skipulag fyrir Fellabæ. Að sögn oddvita, Þráins Jónsson- ar, eru helstu framtíðarverkefni sveitarfélagsins m.a. gatnagerð, umhverfismál, atvinnumál og bygging skólasels með mötuneyt- isaðstöðu, en Fellahreppur er nú rekstraraðili að Egilsstaðaskóla. Auk þess tekur sveitarfélagið þátt í byggingu íþróttahúss á Egils- stöðum og byggingu elliheimilis þar ásamt öðrum sveitarfélögum á Héraði. Verslunarfélag Austurlands hefur nú hafið byggingu 450 ferm. verslunarhúsnæðis rétt ofan við Lagarfljótsbrúna. Ætlunin er að stofna sérstakt hlutafélag um byggingu hússins. Avallt hefur verið kosið óhiut- bundið til sveitarstjórnar Fella- hrepps og í kosningunum nú hlutu eftirtaldir kosningu: Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri, 78 atkvæði, Bragi Hállgrímsson, bóndi, 78 atkv., Baldur Sigfússon, húsasmiður, 74 atkv., Svala Egg- ertsdóttir, nú sveitarstjóri, 53 atkv., og Gunnar Vignisson, versl- unarmaður, 46 atkv. Sigurður Grétarsson, sem verið hefur sveitarstjóri Fellahrepps jundanfárin 2 ár, hefur nú verið ráðinn framkvæmdastjóri Versl- unarfélags Austuriands. Ólafur. Elzti íbúi Raufarhafn- ar látinn Kaufarhöfn, 4. júlí. ELZTI íbúi Kaufarhafnar, Guðrún Hólmfríður Guðlaugsdóttir, lézt að heimili sinu á Raufarhöfn, þriðju- daginn 22. júní síðastliðinn, á 99. aldursári. Guðrún var fædd að Yztafelli í Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu 8. október 1883. Hún fluttist til Raufarhafnar árið 1930 með eig- inmanni sínum, Gunnlaugi Sig- valdasyni, járnsmiðs og, dóttur þeirra hjóna, Ingibjörgu. Gunn- laugur lézt árið 1954. Guðrún var jarðsungin laugar- daginn 3. júlí frá Raufarhafnar- kirkju. — Helgi. VEGGSPJALD Landverndar árið 1982 sýnir bjargfugla í Vest- mannaeyjum og tók Sigurgeir Jónasson allar myndirnar. Spjaldið er selt á skrifstofum Landverndar og í nokkrum bókaverzlunum í Reykjavík. o „Ebony and lvory“ er komið á topp- inn í Bretlandi og Bandaríkjunum og á fleygiferð á toppinn alis staðar annars staðar. Með McCartney spila og syngja m.a. Stevie Wonder, Steve Gadd, Carl Perkins, Eric Stewart (10 cc), Stanley Clarke, Dave Mattacks, Ringo Starr o.fl. Besta og vandaðasta plata sem Paul McCartney hefur sent frá sér um fangf árabil. FÁLKINN Suöurlandsbraut 8 sími 84670 Laugavegi 24 sími 18670 Austurveri sími 33360 Heildsöludreifing sími 84670

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.