Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.07.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982 17 Hljómsveitin Stuðmenn i einu atriði myndarinnar. Hættuleg farartæki,enþætti áreiðanlega mikil skerðing — segir Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra um hugmynd Asmundar Brekkan að banna innflutning mótorhjóla yfir ákveðinni stærð „ÞAÐ ER ekki hægt að neita því að þetta eru hættuleg farartæki, en hvort menn treysta sér til að sam- þykkja tillögu Ásmundar, það er annað mál. Það þætti áreiðanlega mikil skerðing ef innflutningur á þeim yrði bannaður,“ sagði Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra, að- spurður um spurningu Ásmundar Brekkan yfirlæknis á Borgarspítal- anum í grein i Mbl. sl. laugardag, en þar spyr hann dómsmálaráðherra að eftirfarandi: „Væri það skerðing á persónufrelsi að banna hér innflutn- ing mótorhjóla yftr ákveðinni lág- marksstærð, í Ijósi alþjóðlegrar reynslu af þeim sem skaðvöldum?" Friðjón sagði einnig: „Maður veit um mörg hörmuleg slys af völdum þessara hjóla og svo er einnig eitt og annað í sambandi við minni hjólin svo sem óskapleg- ur hávaði og ónæði sem honum fylgir. Ég get ekki svarað þessari spurningu Ásmundar fyrr en ég hef skoðað málið betur. Það hefur tvær hliðar. Þau eru talin nauð- synleg farartæki og það þætti áreiðanlega mikil skerðing ef inn- flutningur þeirra yrði bannaður." Stuðmenn í stórræðum Hljómsveitin Stuðmenn, sem gerði garðinn frægan hér um árið með skondnum tónlistarflutningi sínum, hefur nú komið saman á ný. Hljómsveitin vinnur nú að gerð kvikmyndar og hljómplötu í tengsl- um við myndina, en hún verður væntanlega frumsýnd í desember á þessu ári. Hér er um að ræða kvikmynd í fullri lengd, söngva- og gaman- mynd og spannar efni hennar „allt litróf mannlegra vanda- mála“, eins og Stuðmenn sjálfir komast að orði. Stuðmenn skipa þeir Egill Ólafsson, Jakob Magn- ússon, Valgeir Guðjónsson, Tóm- as Tómasson, Þórður Árnason og Ásgeir Óskarsson, og hafa þeir sjálfir gert handrit að myndinni í samvinnu við Ágúst Guð- mundsson, kvikmyndagerðar- mann, sem er leikstjóri myndar- innar. Stuðmenn munu lítið koma fram opinberlega að þessu sinni, en þó er ákveðið að hljómsveitin leiki um verslun- armannahelgina í Atlavík og helgina eftir á þjóðhátíð í Eyj- um. Þá er einnig í ráði að þeir félagar komi fram á almennum dansleik á höfuðborgarsvæðinu um miðjan ágúst. Léttar handhægar steypu hrærivélar Verð aðeins kr. 3.955.- Skeljungsbúðin 4 SíÖumúla33 símar 81722 og 38125 AUr.LVSINCASÍMINN ER: 22480 }H*r0unbUibih Þaö er nánast sama hvers þú leitar - þú finnur allar útgáfurnar í Amsterdam! Fólk.verslun, tíska, menning, listir, veitingahús, skemmtistaðir, kaffihús, - Amsterdam á þetta allt - alls staðar að úr heiminum. Arnarflug flýgur til Amsterdam alla sunnudaga og miðvikudaga. Hafðu samband við söluskrifstofuna - Amsterdamflugið oþnar þér ótal leiðirtil styttri eða lengri ferða um Amsterdam, Holland eða Evróþu - sprengfullra af spennandi dægradvöl fyrir þig og þína. ÞURNNUR AJdNHEMNN IHOLMNDI Ansterdam áœtlunin - frábœr ferðamöguleiki Hafið samband við söluskrifstofu Arnaflugs eða ferðaskrifstofurnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.