Morgunblaðið - 08.07.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982
21
Endurskoðun nauðsynleg
Strax í nóvember í fyrra tók
Delors efnahagsmálaráðherra að
vekja máls á því, að hlé væri nauð-
synlegt á umbótaáformum stjórn-
arinnar. Nú hefur Mauroy forsæt-
isráðherra látið hafa eftir sér að
nauðsynlegt sé að endurskoða
vaxtatakmörk umbótaáætlunar-
innar niður á við.
Þær raddir eru nú farnar að
heyrast innan ríkisstjórnarinnar,
sem áður mátti aðeins heyra hjá
hinni borgaralegu stjórnarand-
stöðu. Mitterrand forseti sagði
sjálfur í ræðu fyrir skemmstu, að
hafa yrði „strangan" hemil á fjár-
lagahallanum og Delors efnahags-
málaráðherra lét hafa eftir sér:
— Það er ekki unnt að halda
áfram með þeim hætti, sem verið
hefur. Útgjöld til félagsmála vaxa
of hratt. Nú verða allir að slá af
kröfum sínum.
Ummæli Delors vöktu strax
andstöðu innan stjórnarflokk-
anna. Georges Marchais, leiðtogi
kommúnista lét rækilega í það
skína, að sérhver umtalsverð frá-
vik frá boðaðri stefnu, yrðu skoð-
uð sem svik.
Horfur eru því ekki bjartar í
frönsku efnahagslífi. Sláandi eru
ummæli blaðsins „Le Point" fyrir
skemmstu: — Sérhver Frakki
verður nú að gera sér grein fyrir,
að stjórnin á ekki eftir að leiða
hann inn í velferðarhöll þúsund og
einnar nætur, heldur inn í skugga-
legt og tötralegt hús meinlætisins.
Þýtt úr Der Spiegel.
Peter UsttnoT og James Mason I hhit-
verkum Poirots og Odell Hardner.
Ustinov í
hlutverki Poirots
REGNBOGINN hefur hafið sýningar
á kvikmyndinni Sólin var vitni, sem
gerð er eftir samnefndri sögu Agatha
Christie.
Leikstjóri er Guy Hamilton og
höfundur tónlistar Cole Porter og
höfundur handrits Anthony Shaff-
er.
Það er Peter Ustinov sem leikur
Hercule Poirot, en fleiri nafntogaðir
leikarar koma við sögu: Jane Birkin,
Colin Blakely, Nicholas Clay, James
Mason, Roddy McDowall, Sylvia
Miles, Denis Quilley, Diana Rigg,
Maggie Smith og Emily Hone.
Gleymið ekki aö,
18 @
7. flokkur ^ _
20.000- 360.000-
7.500- 675.000-
1.500- 2.322.000-
750 - 5.744.250-
9.315
36 — 3.000-
9,351
9.101.250-
108.000-
9209.250-
Endurnýið tímanlega.Við drögum 13. júlí.
r
•••••••• •••■•••• i
•••■ •••••••• ■•••
•••• ■•■• ■•■• •■••
••••i !•••■■ ••••
■••■■••• ■••■•■■•
•••• ••••
•••< J
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
hefur vinninginn
AMSTERDAM
rf&ito'j síá Od gqdeda
í VIKUFERD FWG 0G BÍLL
VERDFRÁKR
FERÐAMIÐSTÖDIIM SÍM128133 11255