Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 27

Morgunblaðið - 08.07.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 27 Árlegur hreinsunardag- ur JC-félaga í Grindavík Söngtónleik- ar á 11 stöðum víða um land KRISTJÁN Jóhannsson, óperu- söngvari, og Guðrún Kristinsdóttir, píanóleikari, verða á tónleikarór um Austur- og Norðurland dagana 10.—28. júlí. Þau heimsækja einnig Vcstmannaeyjar, laugardaginn 31. júlí. Söngur Kristjáns hefur þegar vakið mikla athygli og hrifningu bæði hérlendis og erlendis. Krist- ján hefur nú gert sinn fyrsta stór- samning við heimsþekkta óperu, eða við English National óperuna í London og jafnframt við English Northern óperuna. Hans fyrsta hlutverk á Englandi verður Pink- erton í Madame Butterfly. Guðrún Kristinsdóttir er þjóðkunn fyrir píanóleik sinn með ýmsum af virt- ustu söngvurum okkar. Á tónleik- um þeirra verða fluttir söngvar og óperuaríur eftir: Gounod, Bizet, Verdi, Leoncavallo, Tosti, Card- illo, Rossini, Donizetti, Puccini, Sigfús Einarsson, Sigurð Þórðar- son, Sigvalda Kaldalóns o.fl. Tónleikarnir verða sem hér segir: Egilsstöðum laugardaginn 10. júlí í Valaskjálf kl. 17, Neskaup- stað mánudaginn 12. júlí í Egils- búð kl. 21, Reyðarfirði miðviku- daginn 14. júlí í Félagslundi kl. 21, Siglufirði föstudaginn 16. júlí í kirkjunni kl. 21, Hvammstanga sunnudaginn 18. júlí í félagsheim- ilinu kl. 21, Blönduósi þriðjudag- inn 20. júlí í félagsheimilinu kl. 21, Skagafirði miðvikudaginn 21. júlí í Miðgarði kl. 21, Raufarhöfn föstudaginn 23. júlí í Hnitbjörgum kl. 21, Aðaldal sunnudaginn 25. júlí að Ýdölum kl. 21, Akureyri miðvikudaginn 28. júlí í íþrótta- skemmunni kl. 21, Vestmannaeyj- um laugardaginn 31. júlí í Leik- húsinu kl. 21. Aðgöngumiðar verða seldir einum og hálfum tíma fyrir tónleika. (Úr rréttatilkynningu) 34 sovéskir togarar út af Reykjanesi ÞRJÁTÍU og fjórir sovéskir togarar voru að veiðum suðvestur af Reykja- nesi, þegar flugvél Landhelgisgæzl- unnar flaug þar yfir á föstudag í sið- ustu viku. Daginn áður voru aðeins sex sov- éskir togarar á miðunum. Togararnir voru frá 200 mílna mörkunum og allt að 260 mílur suðvestur af Keykjanesi. Þá flaug flugvél Landhelgis- gæzlunnar. yfir kolmunnamiðin 200 mílur út af Langanesi í gær. Þar varð ekki vart neinna skipa, en kolmunnaveiðiskip frá austur- blokkinni, Rússum, Pólverjum, Austur-Þjóðverjum og Búlgörum hafa komið á þau mið á bilinu 7. til 10. júlí undanfarin þrjú ár. Grindavík. LAUGARDAGINN 13. júní efndi JC í Grindavík til hreinsunardags ann- að árið í röð. Nefndin, sem sá um framkvæmd verkefnisins, hafði samráð við bæjaryfírvöld, sem lögðu til plastpoka undir drasl. Nefndarmenn sáu um að dreifa pokunum í öll hús daginn áður með þeim tilmælum til bæjarbúa, að þeir hreinsuðu kringum hús sín og stuðluðu þannig að hreins- un bæjarins. Fjölmargir bæjarbú- ar nýttu sér tækifærið og þegar líða tók á daginn, mátti víða sjá fulla poka liggja við lóðamörk. Snemma daginn eftir fjöl- menntu JC-félagar til að hirða pokana. Fimm hópar skiptu sér niður á bæinn með jafnmarga vörubíla til verksins. Fylltir voru 10 bílar af margs konar drasli, sem keyrt var á haugana. Áber- andi var að fullorðna fólkið var þakklátt fyrir þetta framtak og nýtti sér tækifærið til að losna við drasl, sem það á erfitt um vik að losna við dags daglega. í framhaldi af þessum hreins- unardegi fóru nokkrir JC-félagar meðfram Grindavíkurveginum og tíndu drasl og kenndi þar margra grasa. Það er von JC-félaga að slíkur dagur verði árlegur við- burður í bæjarfélaginu svo Grindavíkurbær geti verið íbúum sinum til sóma. Formaður nefndarinnar, sem vann að þessu byggðarlagsverk- efni, var Kristin E. Pálsdóttir. — Fréttaritari - ISUZU Isuzu Trooper MMC Pajero Scout ’77 Bronco Zuzuki Hjólhaf 2650 2350 2540 2337 2030 Heildarlenqd 4380 3290 4220 3863 3420 Breidd 1650 1680 1770 1755 1460 Veqhæö 225 235 1930 206 240 Hæð 1800 1880 1660 1900 1700 Eigin þyngd 1290 1395 1680 1615 855 TR00PER Oröiö jeppi hefur frá fyrstu tíö merkt sterkbyggð bifreið með drifi á öllum hjólum sem hentar jafnt á vegi sem vegleysum og er einnig voldugt vinnutæki. Isuzu uppfyllir allar þessar kröfur og gerir enn betur því hann kemur til móts viö kröfur nútímans um þægindi aksturseiginleika og orkusparnað. Isuzu T rooper er enginn hálf-jeppi. Þaö eina sem er hálft hjá Isuzu T rooper er verðið sem er aðeins helmingsverð sambærilegra vagna. Isuzu T rooper er: Aflmikill en neyslugrannur Harðger en þægilegur Sterkbyggður en léttur Isuzu Trooper hentar jafnt til flutninga á fólki sem far- angri. Isuzu Trooper má fá hvort heldur með bensín- eða diselvél. Sérgrein Isuzu bílaframleiðendanna er gerð pick-up bíla með drifi á öllum hjólum og einnig hönnun vöru- bifreiða og vinnuvéla. Við hönnun Isuzu Trooper hefur verið beitt allri þeirri reynslu og tækni sem hefur aflað Isuzu pick-up heims- frægðar og vinnuvélum og vörubifreiðum Isuzu alþjóð- legrar viðurkenningar. Því til viðbótar kemur svo glæsileiki búnaðar banda- rísku GM verksmiðjanna. Af því leiðir að Isuzu Trooper er í engu ábótavant hvort heldur sem voldugu vinnu- tæki eða veglegum ferðavagni. ■ Hringið og aflið upplýsinga, við greiðum símtalið. Trooper í tómstundum. Trooper til allra starfa. isuzu ! $ VÉIADEILD - r™ JÍ3 8 f 38

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.