Morgunblaðið - 08.07.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ1982
31
Fram skoraði þrju
mörk í framlengingunni
Framarar sigrudu Vestmannaey-
inga örugglega í annað skiptið á ör-
fáum dögum, nú í bikarnum og fór
leikurinn fram í Eyjum. Staðan var
jöfn eftir venjulegan leiktima, hvort
lið hafði skorað eitt mark, en í fram-
lengingunni skoruðu Framarar þrjú
mörk en heimamenn ekkert, og var
því sigur Fram öruggur.
Vestmannaeyingar tóku forystuna
á 14. mín er Jóhann Georgsson
skoraði af stuttu færi. Kári Þor-
leifsson sendi fyrir markið og Sig-
urlás bróðir hans skallaði til Jó-
hanns. Vestmannaeyingar höfðu
verið sprækari fram að markinu
en eftir það jafnaðist leikurinn.
Á 62. mín jafnaði Viðar Þor-
kelsson fyrir Fram með glæsilegu
marki. Skaut hann þrumuskoti úr
góðu færi, sem markvörður ÍBV
átti ekki möguleika á að verja.
Robson næsti
þjálfari enska
landsliðsins
Nú er fullfrágengið aö Bobby
Robson, framkvæmdastjóri Ipswich
Town, verði næsti þjálfari enska
landsliðsins í knattspyrnu. Hann
hefur verið þjálfari „B“landsliðsins
undanfarið, og þá var hann Ron
Greenwood innan handar á Spáni
sem „njósnari", fylgdist með and-
stæðingum Englendinga.
Hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Ipswich í 12 ár og náð mjög
góðum árangri með liðið. Tals-
maður Rnska Knattspyrnusam-
bandsins sagði, að þeir hefðu
fengið manninn sem þeir vildu fá í
starfið, og að enginn annar hefði
komið til greina.
Venjulegum leiktíma lauk þann-
ig, eins og áður sagði, en Framar-
ar voru mun sterkari í framleng-
ingunni. Guðmundur Torafson
skoraði annað mark þeirra með
skalla eftir aukaspyrnu, Steinn
Guðjónsson bætti þriðja markinu
við með þrumuskoti úr teig eftir
fyrirgjöf Viðars Þorkelssonar og
Marteinn Geirsson skoraði fjórða
markið úr vítaspyrnu undir lok
leiksins eftir að Valþór Sigþórsson
hafði fellt Guðmund Torfason inn
í teignum.
Leikurinn var frekar slakur og
sorglega lítil knattspyrna sem lið-
in sýndu. Eina knattspyrnan sem
sást kom frá Fram, nema fyrsta
kortérið í leiknum, þá voru heima-
menn sprækir.
Framliðið var mjög jafnt, Mart-
einn mjög traustur í vörninni og
Guðmundur Torfason og Viðar
Þorkelsson mjög ógnandi. Vest-
mannaeyingar áttu alls ekki góð-
an dag og aðeins einn þeirra lék
vel, Valþór Sigþórsson.
hkj/ SH
ÍBK vann
Víði 2—0
Kcflavík sigraði Víði, Garðinum,
2—0, í bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi.
í hálfleik var staöan 0—0. Það var
ekki fyrr en á 75. mínútu síðari hálf-
leiksins sem Ragnari Margeirssyni
tókst að skora fyrir ÍBK. Daníel Ein-
arsson skoraði svo annað mark ÍBK
á 86. mínútu. Lengst af var leikur
liðanna nokkuð jafn. En Keflvík-
ingar verðskulduðu sigurinn. Leik-
menn Víðis börðust samt af miklum
krafti og léku oft mjög vel.
Arnór/ ÞR.
I
• Kristján Olgeirsson skoraði þrjú
mörk fyrir ÍA í gærkvöldi gegn
Þrótti i bikarkeppni KSÍ.
Kristján Olgeirsson
með þrennu er IA
sigraði stórt
Akurnesingar unnu stóran sigur á
liði Þróttar R, á Laugardalsvellinum
i gærkvöldi er liðin léku í bikar-
keppni KSÍ. ÍA sigraöi 5—1. Það
voru Þfottarar sem skoruðu fyrsta
mark leiksins. Það gerði Arnar Frið-
riksson mjög laglega. Skoraði Arnar
með góðu skoti, strax á 3. minútu
leiksins. Skagamenn jöfnuðu ekki
leikinn fyrr en á 26. mínútu en þá
skoraði Kristján Olgeirsson. Staðan
var því jöfn í hálfleik 1—1. Fyrri
hálfleikur var jafn og sýndu Þróttar-
ar þá oft góð tilþrif og stóðu fyllilega
í 1. deildar liðinu.
1 síðari hálfleiknum tóku Skaga^
menn hinsvegar af skarið og skor-
uðu fjögur mörk. Kristján
Olgeirsson skoraði á 48. mínútu.
Guðbjörn Tryggvason potaði inn
marki af stuttu færi eftir stangar-
skot á 58. mínútu. Júlíus Pétur
skoraði fjórða mark ÍA á 88. mín-
útu og á 89. mínútu skoraði Krist-
ján sitt þriðja mark. Fullstór sig-
ur IA miðað við gang leiksins en
engu að síður mjög sanngjarn.
— ÞR
Víkingar mörðu Völsung 2—1
VÍKINGAR sigruðu Völsung á
Húsavík í gærkvöldi með tveimur
raörkum gegn einu. Völsungur hafði
yfir í lcikhléi.
Fyrri hálfleikur var jafn fram-
an af en síðan voru Völsungar
sterkari aðilinn. Víkingar héldu
greinilega að þeir þyrftu ekkert að
hafa fyrir sigrinum en svo var þó
ekki. Fyrsta markið kom á 43.
mín. Olgeir Sigurðsson skoraði þá
af stuttu færi. Hann átti tvö önn-
ur mjög góð fæi i í hálfleiknum og
hefðu Völsungar þvi átt að geta
haft stærra forskot í hálfleik.
I seinni hálfleik var eins og nýtt
Víkingslið hefði komið inn á völl-
inn, svo gjörbreyttur var leikur
þess. Völsungur átti ekkert færi
og skoruðu Víkingarnir tvisvar og
tvö önnur mörk voru dæmd' af
þeim.
Ómar Torfason skoraði fyrra
markið á 59. mín. er hann vippaði
yfir Gunnar Straumland, sem
beitti furðulegu úthlaupi til að
reyna að stöðva Ómar. Fimm mín.
fyrir leikslok skoruðu svo Vík-
ingar sigurmarkið. Höfðu þeir þá
gert harða hríð að marki Völs-
ungs, skallað í stöng, Völsungar
bjargað á linu og þar fram eftir
götunum. Heimir Karlsson
spyrnti þá knettinum í markið
með viðkomu í nokkrum stöðum
Völsungum í markteignum.
KK/SH
Stórkostlegt heimsmet
hjá Moorcroft í 5 km
Bretinn David Moorcroft setti stórkostlegt heimsmet í 5 km hlaupi í
gærkvöldi á Bislet-leikunum í Oslo. Moorcroft hljóp vegalengdina á 13.-00:42
sek. Bætti hann gamla metið um sex sekúndur en það átti Henry Rono.
Moorcroft átti bestan tíma 13:20:51 fyrir hlaupið. Hann bætir sig því um 20
sek. sem er hreint ótrúlegt.
LAUGARDALSVÖLLUR — AÐALLEIKVANGUR
BIKARKEPPNI KSI
VALUR
í kvöld kl. 8
. r
Nú mætir
Bikarstemmning
á vellinum
Spennandi leikur
milli tveggja bestu
bikarliða landsins
Ofurkraftur — Ótrúleg ending
Valsmenn teika í
buningum w*